Tíminn - 04.04.1987, Qupperneq 7
Tíminn 7
Laugardagur 4. aprí! 1987
llllllllllllllllllllllllllll' MYNDLIST lllllllllillilllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllilllllll
Þrjár sýningar á
Kjarvalsstöðum
- Steinunn Þórarinsdóttir, Sóley Eiríksdóttir og Bragi Ásgeirsson
Sóley Eiríksdóttir við skúlptúra sína.
Borgararíma
Það er upphaf þessa máls
þrauta og raunasaga
þjakað hefur Þorstein Páls
þessa síðustu daga
Sumum þótti hann seinn til máls,
seinn í orðsins boðum,
líkt og þyrfti í sálu sjálfs
svipast eftir skoðun.
Eftir sveiflur, ólgu og tos
innri kvarnir mala,
þá varð skjálfti, þá varð gos,
Þorsteinn fór að tala.
Nauðsyn væri að færa fórn
flokksins sóma vegna
að Albert sæti ætti í stjórn
engu taldi hann gegna.
Sagði hann spurt um siðgæðið,
sóma, fremd og æru,
var það sama viðkvæðið
vinanna allra kæru.
Nú var framkvæmd næsta bráð,
nú var margt að erfa,
líknin ein var lausn í náð,
láta Albert hverfa.
Albert hlýðir, Albert fer,
Albert Þorstein kveður,
en allmörg hafði hann út með sér
íhaldshöfuðleður.
Framtalsgerða feril hans
fleiri ganga vildu
og við raunir ráðherrans
rennur blóð til skyldu.
Alberts framtals undanskot
ei skal kenna heimsku.
Hitt má reyna að hafa not
hentugrar stundargleymsku.
Hafskip fékk við flutning víns
fé úr ríkissjóði
af því leitaði umboðs síns
örsmár stundargróði.
Þeir munu bráðum fara flatt
fallnir mjög í verði
er sýnist ljótt að svíkja skatt
svo sem Albert gerði.
Fylgið hlýtur flokkur nýr,
flokkur borgaranna,
mannlegur og hjartahlýr,
hjálpin brotamanna.
Þjóðinni Albert segir sann,
sýnir gæfuveginn,
leiðir sérhvern lítinn mann
í ljósið hinum megin.
Albert þiggur allra hrós.
Albert var í stuði.
Albert mun vort æðsta ljós.
Albert þakkar guði.
Skattborgari.
Þrír listamenn munu opna sýning-
ar á Kjarvalsstöðum í dag laugardag.
Þeir eru: Steinunn Þórarinsdóttir,
Sóley Eiríksdóttir og Bragi Ásgeirs-
son.
Steinunn mun sýna 26 verk úr
ýmsum efnum svo sem járni, blýi,
gleri og leir, og eru þetta bæði
frístandandi höggmyndir og vegg-
myndir. Hér er á ferðinni 5. einka-
sýning Steinunnar og sú stærsta hing-
að til.
Sóley Eiríksdóttir sýnir skúlptúr
unnin úr leir. Hún hefur tekið þátt í
samsýningum hér heima og erlendis
en þetta er fyrsta einkasýning
hennar.
Bragi Ásgeirsson sýnir 88 olíumál-
verk og nefnir hann sýningu sýna
„HughriP'. Þetta er 9. stóra einka-
sýning Braga sem hélt sína fyrstu
einkasýninu í Listmunahúsinu árið
1955.
Allar eru sýningarnar opnar frá
14:00-22:00 daglega til 14 apríl.
-BG
Myndbönd:
Stiklur alla daga
- 20 þættir á 10 spólum w
Nú hafa eigendur myndbands-
tækja möguleika á að horfa á
Stiklu þætti Ómars Ragnarssonar á
hverjum degi, því Innkaupa- og
markaðsdeild Sjónvarpsins hefur
hafið útgáfu þessa vinsæla efnis á
myndsnældur.
Þáttaröðin Stiklur hóf göngu
sína í Sjónvarpinu í október 1981
og byrjaði Ómar yfirferð sína um
landið á Austurlandi. Nú eru þætti-
rnir orðnir rúmlega 20 og leiðin
legið um allt land og yfir. í þáttun-
um blandast saman mannfræði,
landafræði, sagnfræði og náttúru-
fræði og þegar saman kemur
verða flestir þessara þátta ómetan-
legur leiðarvísir þeirra, er um ís-
land vilja ferðast og fræðast.
Spólurnar verða alls 10, og á
þeim 21 þáttur. 5 fyrstu spólurnar
eru komnar út og hinar 5 verða
tiltækar næstu daga. Námsgagna-
stofnun hefur þegar fest kaup á
efni þessu fyrir skólana, og fjöl-
mörg bókasöfn hyggjast gera hið
sama og lána út.
Innkaupa- og markaðsdeild mun
auk þess selja Stiklur á myndsnæld-
um beint til viðskiptavina í húsa-
kynnum sínum í Skipholti 33,auk
þess sem tekið er á móti pöntunum
utan af landi í síma. Hver spóla
kostar 2000 krónur með söluskatti.
-SÓL
Hinrík Bjarnason, dagskrárstjóri afhendir Omari Ragnarssyni fyrstu
eintökin af Stiklum.
Steinunn Þórarinsdóttir við eitt
verka sinna.
(Tímamyndir: Pjetur)
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
Tæknifræðingur
- verkfræðingur
Tæknifræöingur, verkfræðingur óskast til að starfa
hjá byggingafulltrúanum í Reykjavík við bygging-
areftirlit, steypueftirlit og önnur störf á skrifstofu
byggingarfulltrúa.
Nánari upplýsingar um starfið gefur byggingarfull-
trúi, Borgartúni 3. Laun skv. launakerfi Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
Skólaskrifstofa Reykjavíkur óskar eftir að ráða
bókasafnsfræðing í fullt starf, sem fyrst.
Upplýsingar gefur skólasafnafulltrúi í síma 28544
e.h.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
11 Utankjörfundar-
f atkvæðagreiðsla
í Reykjavík vegna alþingiskosninga 1987 hefst í Ármúlaskóla
laugardaginn 4. apríl kl. 14 til 18. Síðan verður kjörstaðurinn opinn
alla virka daga kl. 10-12,14-18 og 20-22, en sunnudaga og helgidaga
kl. 14-18. Lokað verður föstudaginn langa og páskadag.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Séra Benjamín Kristjánsson
er látinn.
Þóra Björk Kristinsdóttir
Björn Ingvarsson
t
Hjartans þakkir fyrir sýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
Sigurbjargar Gunnarsdóttur
Melagötu 15, Neskaupstað
Jón Finnsson
börn og aðrir aðstandendur.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts
mannsins míns og föður okkar,
Sigurðar Sveinssonar
frá Sleggjulæk
Halldóra Gísladóttir
Kristín Mántyla
Arndís Sigurðardóttir
Gisli Sigurðsson
t Þökkum auðsýnda vináttu og samúð við fráfall
Þóris Bergssonar
Björg Hermannsdóttir
Hjalti Þórisson Guðrún Björk Tómasdóttir
Hermann Þórisson Rannveig Sigurðardóttir
Lilja Þórisdóttir Torfi Magnússon
Bergur Þórisson Laufey Kristinsdóttir
Sigríður Bergsdóttir
Jón Bergsson Þórdís Pálsdóttir
Vilhelmína Jónsdóttir Beck
og barnabörn