Tíminn - 29.04.1987, Blaðsíða 2

Tíminn - 29.04.1987, Blaðsíða 2
2 Tíminn Miðvikudagur 29. apríl 1987 Fatlaðir einstaklingar: Fjármagn til bifreiðakaupa - allt að 600 bifreiðum á ári Á vegum Heilbrigðis- og trygging- amálaráðuneytisins hefur verið gefin út reglugerð um þátttöku almanna- trygginga í bifreiðakaupum fatlaðra í samræmi við breytingar sem gerðar voru á lögum um almannatryggingar í vor. Er hér um að ræða styrki til bifreiðakaupa, sem koma í stað eftirgjafar aðflutningsgjalda sam- kvæmt tollskrárlögum. Felur þetta í sér breytingar á fyrirkomulagi og aukna fyrirgreiðslu til fatlaðra vegna bifreiðakaupa. Samkvæmt reglugerðinni eiga þeir sem njóta bóta almannatrygginga, foreldrar eða forráðamenn fatlaðra og þeir sem hreyfihamlaðir eru og eigi njóta bóta rétt á ofangreindum styrkjum. Umsóknir skulu framvegis sendar Möguleg nýjung: Sojamjólk á markaðinn? Úthlutun Stjórnarnefndar fatlaðra: lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins fyrir 1. september ár hvert á sérstökum eyðublöðum sem þar liggja frammi. Greiðsludeild Trygg- ingastofnunar ríkisins mun framveg- is annast greiðslu þessara styrkja og nema þeir 80.000 krónum sé um að ræða fötlun og 250.000 krónum sé um að ræða mjög hreyfihamlað fólk. Miðast greiðslur við allt að 650 bifreiðar á ári. Þeir aðilar sem fengu eftirgjöf aðflutningsgjalda á tímabilinu 1. mars til 31. des. 1986 skulu fá greiddan mismun á fenginni eftirgjöf og þeim fjárhæðum sem fram koma hér að framan. Verða þær greiðslur inntar af liendi til hlutaðeigandi aðila frá og með 10. júní n.k. - SÓL Verður þetta raunin fyrir fatlaða í Reykjavík þegar svæðið mætir afgangi í úthlutun framkvæmdafjár? aöilar skoöa máliö Afall fyrir fatlaða á höfuðborgarsvæðinu - fá 36 milljónir en væntu 110 milljóna Þær sögur hafa gengið fjöllum hærra að íslenskir aðilar séu að skoða möguleikann á að vinna ýmsar mjólkurvörur úr sojabaun- um, vörur eins og t.d. jógúrt, mjólk og osta. Sojabaunir er hægt að fá mjög ódýrar og verði af þessari fram- leiðslu er óhætt að segja að hún eigi eftir að veita íslenskum hefð- bundnum mjólkurvörum mikla samkeppni, þar sem gefið er að hún yrði mun ódýrari. Davíð Scheving Thorsteinsson hjá Sól hf. athugaði þennan mögu- Það hefur löngum þótt góð og gild skýring á því af hverju kven- fólk starfar t' láglaunastörfum að þær axli ekki ábyrgð. Ef spurt er af hverju þær axli ekki ábyrgð er svarið að þær séu ófáanlegar til þess. Deildar mciningar hafa veriö uppi um ágæti þessarar kenningar og nýverið lagði Samband ís- lenskra bankamanna fyrir kven- kyns félagsmenn sína spurningu um það hvort þær hefðu áhuga á ábyrgðarmeira starfi. í Ijós kom að 55,5% þeirra sem svöruðu höfðu áhuga á ábyrgðar- meira starfi og kom í ljós að þeim mun fleiri deildum sem konurnar höfðu starfað við, þeim mun meiri var áhuginn á'aukinni ábyrgð. En þó sumum virðist að hægt gangi hefur þó hlutur kvenna í trúnaðarstörfum í Búnaðarbank- anum vænkast á síðastliðnum 5 leika fyrir nokkrum árum en sagði hann ekki hafa reynst heppilegan á þeim tíma. íslcnskri aðilar hafa einnig spurst fyrir í Hollandi um efni til framleiðslu á sojajógúrt. í Svíþjóð eru þegar komin á markað tæki til framleiðslu og pökkunar á sojamjólk með ýtnis konar bragðefnum. Slík tæki hafa einkum verið seld til Asíulanda, en ekki á Norðurlöndum. í Svíþjóð er einnig fáanlegur ostur úr sojabaun- um sem kallaður er Tofu. Árs- neysla Itans í Japan er um 15 kíló á mann. - SÓL árum. Árið 1982 voru í bankanum 10 embættismenn, 9 karlar og ein kona. í ár er hlutfallið 7 karlar og 5 konur. Útibússtjórar innanbæjar voru 1982 5 karlar og ein kona, en í ár 4 karlar og tvær konur. Deild- arstjórar voru 1985 alls 12, þar af 4 karlar og 8 konur, en eru nú 8 karlar og 17 konur. Þá hefur hlut- fall kvenna í stöðum fulltrúa og féhirða enn aukist, voru 7 karlar og 14 konur árið 1982, en 7 karlar og 31 kona í ár. Hinu má þó ekki gleyma að í nær öllum almennum störfum, sem eru jafnframt þau lægst launuðu í bönkum starfa eingöngu konur, meðan að nær allir karlar sem í bönkunum starfa hafa einhvern titil og þar með betri laun. SÍB hefur nú boðað til verkfalls og er aðalkrafan uppstokkun launakerf- isins. Fundur Svæðisstjórnar málefna fatlaðra í Reykjavík og fulltrúar 14 stofnana og félagasamtaka sem sóttu um framlög úr Framkvæmda- sjóði fatlaðra á árinu 1987 var haldinn á miðvikudaginn. Tilefni fundarins var úthlutun stjórnar- nefndar málefna fatlaðra úr Fram- kvæmdasjóði fatlaðra fyrir árið og afgreiðsla Stjórnarnefndar á utn- sóknum til stofnana fatlaðra hér í Reykjavík. Af þessu tilefni hafa hinir ýmsu aðilar úr Svæðisstjórn málefna fatl- aðra í Reykjavík, Blindrafélaginu, Skóla geðdeildar Barnaspítala Hringsins, Styrktarfélags vangef- inna í Reykjavík, Sjálfsbjörg og Þjálfunarskóla ríkisins gefið frá sér fréttatilkynningu þar sem eftirfar- andi kemur fram: „Sl. haust voru Stjórnarnefnd málefna fatlaðra sendar ítarlegar og rökstuddar umsóknir að upp- hæð 110 milljónir króna frá 14 stofnunum og félagasamtökum til 26 viðfangsefna vegna málefna fatl- aðra hér í Reykjavík. í Rcykjavík búa næstum 40% landsmanna og ber að miða við að til stofnana fatlaðra í Reykjavík komi framlög a.m.k. í hlutfalli við það. Þar sem verkefni hér í Reykjavík eru hlut- fallslega meiri en í öðrum lands- hlutum hefur Svæðisstjórnin talið réttmætt að gera ráð fyrir að u.þ.b. helmingur af framlögum úr sjóðn- um gangi til verkefna í Reykjavík. Að þessu sinni komu 155 mill- jónir til úthlutunar úr Fram- kvæmdasjóði fatlaðra en á síðasta ári hafði sjóðurinn 80 milljónir króna til ráðstöfunar. Að þessu sinni nema framlög sem veitt eru til Reykjavíkur aðeins 48 milljón- um króna eða 31% af ráðstöfunar- fé sjóðsins og er sú niðurstaða alvarlegt áfall fyrir alla þá er vinna að málefnum fatlaðra í Reykjavík. Tillitsleysi stjórnarnefndar við fjölda fatlaðra í Reykjavík, útvíkk- un á hlutverki framkvæmdasjóðs og breyting á framkvæmdaröð, sem truflað getur uppbyggingu hinnar flóknu þjónustukeðju fatl- aðra árum saman, sýnir, að Stjórn- arnefndin hefur í störfum sínum sniðgengið skýr lagaboð. Með því að samþykkja niður- stöður Stjórnarnefndar hafa ráð- herrarnir,(félagsmála, mennta- mála og heilbrigðismála), ekki gætt þeirrar skyldu að vinna að því réttlætismáli að allir fatlaðir sitji við sama borð um aðgang að þjónustu án tillits til búsetu. Með því að láta þetta óréttlæti viðgang- ast hafa ráðherrarnir brugðist hags- munum íbúa Reykjavíkur." - SÓL Pétur Ásbjarnarson, tjaldbúinn á þaki Laugardalshaliarinnar, tekur við bókagjöf Svarts á hvítu til Krísuvíkursamtakanna. Sigurður Þorri Sigurðsson sölustjóri afhenti honum gjöfina. Svart á hvítu færir Krísuvíkursamtökun- um veglega bókagjðf Á föstudaginn var gengu nokkrir forráðamenn bókaforlagsins Svarts á hvítu á fund Péturs Ásbjarnarsonar, sem nú gistir á þaki Laugardalshall- arinnar til að afla Krísuvíkursamtökunum fjár, og færðu samtökunum eitt eintak af öllum bókum sem forlagið hefur gefið út til þessa. Þeirra á meðal voru t.d. fslendingasögur I og II í skinnbandi, Hávamál og Völuspá, Nafn rósarinnar, Grámosinn glóir eftir Thor Vilhjálmsson, unglingabókin Algjörir byrjendur eftir Rúnar Ármann Arthúrsson og margar fleiri. Búnaðarbankinn skartar óvenjulega mörgum konum í ábyrgðarstörfum. Frá vinstri Theodóra Thoroddsen, útibússtjóri, Alda Sigurmarsdóttir, forstöðukona endurskoðunardei!dar,Anna Inga Grímsdóttir ,forstöðu- kona afurðalánadcildar, Hanna Pálsdóttir, aðalféhirðir, Halldóra Áskels- dóttir, starfsmannastjóri, Dóra Ingvarsdóttir, útibússtjóri og Edda Svavarsdóttir, skipulagsstjóri. Tímamynd. Brein Konum í ábyrgðar- störfum fjölgar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.