Tíminn - 29.04.1987, Síða 4

Tíminn - 29.04.1987, Síða 4
4 Tíminn Miðvikudagur 29. apríl 1987 Landssamband kúabænda: Vilja fá skilvirkari leiðbeiningaþjónustu - og aö bændakonur fái fullt fæðingarorlof Mestur tíminn fór í að ræða búmarksmál, nýja búvörusamning- inn, nautakjötsbirgðir og um leið- beiningaþjónustu landbúnaðarins sagði Hörður Sigurgrímsson for- maður landssambands kúabænda, en aðalfundur sambandsins var haldinn fyrir stuttu í Osta-og smjörsölunni. 25 fulltrúar sátu fundinn frá 9 kúabændafélögum í landinu, þar af voru þrír fulltrú- anna konur. Birna Þorsteinsdóttir í Stóru-Hildisey í Landeyjum var fundarstjóri. Við teljum mikilvægt að leið- beiningaþjónustan verði sem hag- nýtust fyrir bændur, að leiðbein- ingaþjónusta búnaðarsamband- anna þurfi að verða persónulegri og taki meira mið af vandamálum líðandi stundar heldur en verið hefur. Búnaðarfélag fslands hefur yfirumsjón með þessari fræðslu og fundurinn skorar á það að beita sér fyrir nútímalegri og skilvirkari starfsháttum á þessu sviði þannig að þeir fjármunir sem varið er til þessara starfa nýtist bændum sem best í baráttu þeirra fyrir hagnýtari rekstri og bættum kjörum. Okkur líst vel á búvörusamning- inn en við lögðum áherslu á að gefin verði út reglugerð um fram- kvæmd á búvörusamningunum sem fyrst. Það er mikill munur að vita hvað er framundan og hvað menn mega framleiða. Á fundinum var töluvert rætt um fæðingarorlof bænda. Einsog stað- an er í dag fá bændakonur ekki nema hálft fæðingarorlof vegna þess að í búreikningum er vinna þeirra metin til 850 vinnustunda en þyrfti að vera um 1100 vinnustund- ir. Bent var á að búreikningastofa landbúnaðarins viðurkenndi ekki ýmsa vinnu á búunum, t.d. að elda og framreiða mat og önnur störf sem gætu talist til ráðskonustarfa. Síðan væri auglýstur taxti fyrir ráðskonur sem ynnu í sveitum og þær hefðu fullt fæðingarorlof. Stjórn landsambandsins var endurkosin. Formaður er Hörður Sigurgrímsson í Holti en aðrir stjórnarmenn eru Oddur Gunnars- son Dagverðareyri, Guðmundur Þorsteinsson Skálpastöðum og Halldór Guðmundsson í Holti og Sturlaugur Eyjólfsson Efri- Brunná. ABS Endurnýjun fiskiskipa: Nýir skrokkar - gamlar vélar - á 8,2 milljónir Pólsk skipasmíðastöð hefur nú tekið upp þá nýjung að bjóða þeim útgerðarmönnum sem eiga gamla trébáta sem í eru nýtanlegar vélar og tæki, skrokka á 8,2 milljónir króna. Það er Vélasalan hf. sem er um- boðsaðili pólsku skipasmíðastöðvar- innar og afhenda þeir fyrsta bátinn í júlí og síðan koma aðrir á 2 mánaða fresti eftir það. 4 útgerðarmenn hafa þegar lagt fram beiðni um endurnýj- un báta sinna. Nýju skipin eru 21,70 m löng og 6 m breið. Þau eru afhent fullbúin að utan, stýris- og skrúfubúnaður kom- inn í,máluð, brú og lest einangruð og frágengin og á þá aðeins eftir að millifæra tækin í brúnni, svo og vél og spil úr gamla bátnum. -SÓL Vestmannaeyjar: Hér fæst aðeins selbitinn fiskur - segja fiskimenn og kenna útsel um „Við erum ákaflega óhressir hér í Vestmannaeyjum með að ekki skuli gerður út leiðangur til þess að fækka útsel í Surtsey. Stofninn vex stöðugt og nú er svo komið að selurinn er búinn að eyðileggja eitt besta neta- svæðið hér um slóðir. Það fæst ekkert nema selbitinn fiskur, ef hann fæst á annað borð,“ segir Guðjón Pálsson, skipstjóri á Gull- bergi frá Vestmannaeyjum í nýút- komnum Fiskifréttum. Guðjón segir Vestmannaeyinga áhyggjufulla úr af fjölgun útsels í Surtsey. Ekki mætti blaka við honum, því Surtsey væri alfriðuð af Náttúruverndarráði og því yxi út- selsstofninn svo hratt. Ennfremur segir Guðjón að selurinn drepi meiri fisk en allur flotinn til samans. Hann sagðist ekki vera að mæla með því að stofninn yrði þurrkaður út, en það mætti að skaðlausu drepa 99% af honum. Að sögn starfsmanns Náttúru- verndarráðs þá hafa selamál ekki verið á dagskrá nýlega og þorði hann því ekki að fara með skoðun ráðsins á þessu stigi málsins. Hann sagði Náttúruverndarráð alfarið á móti fjöldadrápi allra dýra og benti á að það væri ekki gefið mál að hringormi myndi fækka, þó selurinn hyrfi. Hvað afrán sels á fiski varðar, þá væru þau mál ekki alveg á hreinu enn. En hann sagði að þetta væri viðkvæmt mál sem þyrfti að skoða. Ekki náðist í sérfræðinga Haf- rannsóknarstofnunar, né dýrafræð- ing Náttúrufræðistofnunar. -SÓL Ný stofnun: w UPPLYSINGAR NÁMSMANNA Skipstjórnarmenn í eðlisfræðiprófi sl. laugardag. Hólmavík: Skipstjórnarmenn útskrifast Á næstu dögum öðlast 10 Hólm- víkingar skipstjórnarréttindi á 200 tonna báta, en um þessar mundir er að Ijúka á Hólmavík réttinda- námskeiði á vegum Stýrimanna- skólans. Fyrri hluta vetrar var haldið námskeið sem gaf réttindi á 80 tonna báta og lauk því í janúar mcð útskrift um 20 ncmenda. Tíu þeirra héldu áfram náminu, og hafa þeir verið í lokaprófum undanfarna daga. Auk námsgreina sem varða sjómennskuna beint, hafa nemendurnir lagt stund á stærðfræði. íslensku, ensku, eðlis- fræði og fleiri greinar. Kennsla á þessum námskeiðum hefur farið fram í húsakynnum grunnskólans á Hólmavík, og hafa heimamenn annast kennsluna að langmestu leyti. Skipstjórnarmennirnir sem nú cru að Ijúka námi, hafa setið á skólabekk f allan vetur og því lítið getað sótt sjóinn. Segja má þó að tíminn til námskeiðshalds hafi ver- ið vel valinn, því að í vetur brást rækjuveiði á Húnaflóa og því lítið um verkefni fyrir suma bátana. Þessa dagana eru veiðar á úthafs- rækju hins vegar að hefjast. Stærsti bátur sem gerður er út frá Hólmavík, að Hólmadrangi frátöldum, er 69 tonn, en nú ættu að opnast möguleikar til útgerðar stærri þáta. Þar með gæti sjósókn vetrum orðið öruggari og auðveld- ari en nú og hægt yrði að sækja lengra. Utskrift skipstjórnarmannanna 10 fer fram á næstu dögum, en nákvæm tímasetning hefur ekki verið ákveðin. Stefán Gíslason Fuglafriðunarnefnd: SYNIÐ FUGLUM TILLITSSEMI Menntamálaráðherra hefur falið Háskóla íslands að hafa forgöngu um og annast starfsrækslu Upplýs- ingastofu námsmanna, er hafi það markmið að veita upplýsingar um innlendar og erlendar menntastofn- anir og möguleika á framhaldsnámi. Um skipulagningu upplýsingaöflun- ar og rekstrar stofunnar verði haft samráð við menntamálaráðuneytið, Lánasjóð fslenskra námsmanna, Félagsstofnun stúdenta, Stúdenta- ráð, Samband íslenskra námsmanna erlendis og Bandalag íslenskra sér- skólanema. -SÓL Menntamálaráðuneytinu hefur borist ábending frá fuglafriðunar- nefnd, sem segir m.a. annars: „Vakin er athygli á því, að dvöl manna við hreiður sjaldgæfra fugla, svo og myndataka, er óheim- il nema með leyfi Menntamálaráð- uneytisins. Þær tegundir sem hér eiga í hlut, eru: haförn, fálki, snæugla og haftyrðill. Sérstök sjaldgæfum eða ekki reglugerð gildir til að koma í veg fyrir truflun af völdum umferðar manna við hreiður þessara fugla. Á undanförnum árum hafa stundum birst myndir af fálkum og örnum í eða við hreiður, einnig viðtöl við menn, sem fara að slík- um hreiðrum án tilskilinna leyfa frá ráðuneyti. í sumum tilfellum má ætla, að viðkomandi rekist á hreiður fyrir tilviljun. Verra er þegar menn gera sér beinlínis ferð að hreiðrum án þess að afla sér heimildar. Ein heimsókn að arnar- hreiðri á viðkvæmasta tíma, (á vorin), getur leitt til þess að fugl- arnir afræki og verpi ekki aftur það árið. Óskað er eftir því við alla, að þeir sýni tillitssemi í umgengni við fugla,sjaldgæfasemaðra.“ -SÓL Eldsvoði i Hátúni Eldur kom upp í kompu ræstinga- konu á 4. hæð í Hátúni 10 klukkan 11.30 á mánudag. Slökkviliðinu var tilkynnt að eldurinn væri á 8. hæð, en þegar það kom á staðinn kom annað í ljós. Eldurinn var ekki mikill en tals- verður reykur frá plasti, sem fyllti stigagangana frá eldsupptökum og upp eftir fjölbýlishúsinu. Ekkert fólk var í hættu og reykurinn skemmdi ekki út frá sér, enda var loftað út strax. Slökkviliðið slökkti eldinn snarlega og hlaust lítið tjón af honum. Eldsupptök eru ókunn. þj

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.