Tíminn - 29.04.1987, Side 5
Miðvikudagur 29. apríl 1987
• Tíminn 5
Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins:
Viljum fá að skoða
spilin hjá dömunum
- Kvennalistinn á leikinn
„Við erum fyrst og fremst að ræða
saman um næstu daga og vikur.
Ríkisstjórnarmyndun var ekki sér-
staklega rædd og við teljum að
formaðurinn nú, eins og hingað til
hafi þau mál í sinni hendi og eina
sem hann fer með af þessum fundi
eru þær umræður sem hér fóru fram,
eins og hann túlkar þær. Þannig að
hann hefur alveg opnar heimildir til
allra hluta í þeim efnum,“ sagði
Friðrik Sophusson, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins þegar Tíminn
ræddi við hann í gær, en þá stóð
miðstjórnarfundur flokksins yfir.
Sagði Friðrik að Þorsteinn hefði
ekki farið fram á neina traustsyfirlýs-
ingu frá miðstjórnarfundinum til
stjórnarmyndunarviðræðna, þess
væri ekki álitin þörf.
Um tilboð Jóns Baldvins þess
efnis að stofnað verði til ríkisstjórnar
Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og
Kvennalista, sagði Friðrik að engin
afstaða hefði verið tekin til þess máls
á fundinum. „Við, eins og allir aðrir
hljótum að bíða eftir því hvernig
Kvennalistinn bregst við og á hvaða
málefni hann leggur áherslu," sagði
Friðrik. Neitaði hann því að hann
hefði tekið þátt í viðræðum við
Kvennalistann.
Varðandi yfirlýsingar Jóns Bald-
vins í fjölmiðlum um ofangreindar
ríkisstjórnarviðræður, sagði Friðrik:
„Leikurinn er til þess gerður að fá
Kvennalistann til að tefla út ein-
hverjum raunsæjum málefnum, en
ekki bara einhverjum almennum
viðhorfum.
En við höfum ekki rætt við
Kvennalistann í dag. Þær eiga leik-
inn. Það næsta sem skeður er eflaust
að þær gera opinber eða tilkynna
Jóni Baldvin eftir atvikum, hvaða
málefni þær vilja leggja aðaláherslu
á. Þá höfum við það til samanburðar
við stefnu annarra flokka, en
Kvennalistinn hefurekki þurft hing-
að til að skerpa sín málefni, þannig
að það sé um raunsæja hluti að ræða,
sem menn ætla að taka fyrir í
ríkisstjórnarsamstarfi," sagði
Friðrik.
Aðspurður um hugsanlegt stjórn-
arsamstarf Sjálfstæðisflokks og
Borgaraflokks, sagði Friðrik að
vegna forsögu málsins væri harla
ólíklegt að til þess kæmi.
- En hvað mun Sjálfstæðisflokk-
urinn gera á morgun, mun hann
halda áfram sínum þreifingum ?
„Ég held að við munum hinkra
eftir því hvort eitthvað komi frá
Kvennalistanum. Það er beðið eftir
því að hann sýni eitthvað. Það hefur
engin ákvörðun verið tekin í Sjálf-
stæðisflokknum um tilboð Jóns
Baldvins, en við viljum fá að skoða
spilin sem dömurnar hafa á hendi.
Hins vegar tel ég að stjórnarmynd-
unarviðræður komi til með að taka
langan tíma og þá á ég við fjórar til
fimm vikur," sagði Friðrik Sophus-
son. phh
Steingrímur
biðst lausnar
- ríkisstjórnin mun sitja áfram þartil ný ríkisstjórn
hefur verið mynduð
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra gekk á fund frú Vig-
dísar Finnbogadóttur, forseta ls-
lands og baðst lausnar fyrir sig sem
forsætisráðherra og ríkisstjórn sína.
Fór Vigdís Finnbogadóttir, forseti
fram á það við Steingrím Hermanns-
son að hann og ríkisstjórn hans sitji
áfram þar til ný ríkisstjórn hefur
verið mynduð.
Ekki er ljóst hvenær forseti ís-
lands mun veita einhverjum af for-
mönnum flokkanna umboð til að
hefja stjórnarmyndunarviðræður,
en búist er við að það verði ekki fyrr
en í byrjun næstu viku.
Sáttafundir:
Bankamenn og
leiðsögumenn
- á fundi hjá sáttasemjara. Einnig rafvirkjar
og línumenn hjá RARIK
Samband bankamanna hefur boð-
að verkfal! frá og með 8. maí.
Nokkuð stíf fundahöld hafa verið að
undanförnu hjá bankamönnum og
viðsemjendum þeirra hjá sáttasemj-
ara. Þannig stóð sáttafundur fram
eftir nóttu aðfaranótt þriðjudagsins
eftir að bankamenn höfðu komið
með nýtt tilboð til vinnuveitenda
sinna. Annar fundur hófst kl. 18:00
í gær. Hafi samningar ekki tekist á
laugardag mun sáttasemjari, lögum
samkvæmt, bera fram sáttatillögu
sem félagsmenn verða að greiða
atkvæði um. Sáttasemjari hefur
einnig heimild til að fresta verkfalli
bankamanna um 15 daga.
Meginkrafa bankamanna er breyt-
ing á uppbyggingu launakerfisins
bönkunum að kostnaðarlausu.
Póstmenn hafa samþykkt kjara-
samning með 455 atkvæðum gegn
151. Á kjörskrá voru 793 en 614
greiddu atkvæði um samninginn.
74% greiddu atkvæði með honum
en 24% greiddu atkvæði gegn
honum.
Félagsráðgjafar starfandi hjá ríki ■
hafa einnig samþykkt kjarasamning
sinn og flestir hafa einnig endurráðið
sig.
Rafvirkjar og línumenn hjá RAR-
IK funduðu hjá sáttasemjara í gær
og að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar
sáttasemjara miðaði nokkuð í sam-
komulagsátt hjá þeim.
Félag leiðsögumanna mætti á fund
sáttasemjara kl. 17:30 í gær en
verkfall þeirra hefur staðið í um
mánaðartíma. Einnig er ósamið enn
við nokkra hópa háskólamenntaðra
starfsmanna hjá ríkinu, svo sem
Félag háskólakennara. Þá er einnig
ósamið við starfsfólk flugfélaganna.
ABS
Skáldið skoðar bókina. Með honum á myndinni eru vinstra megin Ragnar
Gíslason, útgáfustjóri og Ólafur Ragnarsson, forstjórí Vöku- Helgafells,
en hægra megin Snorri Sveinn Friðríksson, listmálari.
Bókaútgáfa:
Viðhafnarútgáfa
á Brauðinu dýra
- í tilefni af afmæli skáldsins
Sagan af brauðinu dýra eftir nó-
belsskáldið Haildór Laxness hefur
verið gefin út í viðhafnarútgáfu.
Þetta er sérstök útgáfa í stóru broti
svipuðu því sem tíðkast hefur við
útgáfu listaverkabóka og er bókin
skreytt vatnslitamyndum eftir
Snorra'Svein Friðriksson listmálara
og er öll litprentuð.
Sagan birtist fyrst í tveimur köfl-
um í Innansveitarkróníku eftir Hall-
dór árið 1970 en birtist í nýju
bókinni örlítið breytt frá hendi
skáldsins sem sjálfstæð saga.
Sagan greinir frá Guðrúnu Jóns-
dóttur vinnukonu prestsins á Mos-
felli í Mosfellsdal. Hún var send til
að sækja pottabrauð úr seyðslu í
hverasandi fyrir sunnan ána, en
villtist á heiðum uppi fjarri manna-
byggðum í þrjá sólarhringa. En
brauðið snerti hún ekki. „Maður
étur nú ekki það sem manni er trúað
fyrir barnið gott“ svaraði hún þegar
hún var spurð hverju sætti.
Það er bókaútgáfan Vaka-Helga-
fell sem gefur bókin út.
- SÓL
Akranes:
Byggingargjaldi til Höfða synjað
- framlag heimamanna vantar enn
Akurnesingar kusu meira en al-
þingismenn á laugardaginn, því
samhliða alþingiskosningunum var
kosið um byggingariðgjald til elli-
heimilisins Höfða. Leikar fóru svo
að á 14 hundrað manns sögðu já og
svipaður fjöldi sagði nei, en þó
þannig að 10 fleiri aðilar játtu en
neituðu. Fjáröflunar- og fram-
kvæmdanefnd Höfða tekur þessu
sem vantraust á tillöguna og af
þessu verður því ekki.
Ætlunin var að hækka útsvars-
prósentu bæjarbúa um 0,52% á
ári, eða um 217 krónur. Hlutur
Akurnesinga í 2. áfanga byggingu
Höfða er um 35 milljónir, eða
40%. Akurnesingar hafa ekki sam-
þykkt þessa fjáröflunarleið og
verður fjáröflunar- og fram-
kvæmdanefnd Höfða að finna nýj-
ar leiðir, því eins og einn aðili í
nefndinni komst að orði: „Við
erum í biðstöðu um óákveðinn
tíma. Við gerum ekkert nema með
öruggan tekjustofn á bak við
okkur. Framlag heimamanna
vantar.“
- SÓL
Mesti bílainnflutn-
ingur í sögunni:
Nýrbíllá
4. hvert
heimili á
einu ári
- Um 500 „stórir
strákar“ keypt sér „leik-
fang“ á þrem mánuðum
Fleiri bflar hafa verið fluttir til
landsins fyrstu 3 mánuði þessa árs en
nokkru sinni fyrr á þriggja mánaða
tímabiti. Alls voru fluttir inn 5.468
bílar þennan fyrsta fjórðung ársins.
Þetta er um 500 bílum fleira en fyrra
met, sem var mánuðina apríl-júní í
fyrra. Hér er hins vegar um nær
fjórfalt fleiri bíla að ræða en fluttir
voru inn á sama ársfjórðungi árin
1985, 1983 og 1981 og um tvöfalt
fleiri en metárið 1982.
Á einu ári, þ.e. frá apríl í fyrra til
marsloka nú, hafa verið fluttir inn
rúmlega 19.044 bílar. Það þýðir
nýjan bíl á nær fjórða hvert heimili
(um 86 þús. íbúðir) í landinu á þessu
eina ári. Þar sem bílakaup aukast
venjulega með vorinu má áætla að
innflutningurinn verði jafnvel 22-24
Íiúsund bílar í ár. Er ekki ólíklegt að
slendingar nái því á þessu ári að
verða mesta bílaþjóð heims, en
þann titil hafa Bandaríkjamenn átt
frá upphafi.
Af þessum 5.468 bílum nú eru um
4.800 fólksbílar, þar af 644 fluttir inn
notaðir. Með fólksbílunum eru þó
ekki talin um 500 „leikföng" sem
“stóru strákarnir“ hafa keypt sér á
þessum þrem mánuðum, þ.e. svo-
nefnd létt fjórhjóla ökutæki, sem
ullu landvörðum vorum hvað mest-
um áhyggjum og ama nú um nýliðna
páskahelgi.
Ladan er nú enn óskoraðri sigur-
vegari en nokkru sinni fyrr. Alls 886
nýjar Lödur bættust í flotann þennan
1. ársfjórðung, þ.e. yfir 21% allra
nýju fólksbílanna voru af þeirri
tegund. Næst söluhæsta tegundin
var Toyota með 487 nýja bíla. Af
notuðu bílunum voru um 100 Fordar
frá V-Þýskalandi, um 80 Bensar og
um 40 BMW.
Innflutningur atvinnubifreiða hef-
ur ekki aukist að sama skapi og
fólksbílanna. Sendibílarnir eru nú
nær jafn margir og á sama tímabili í
fyrra en vorubílarnir nokkru fleiri.
- HEI