Tíminn - 29.04.1987, Page 13

Tíminn - 29.04.1987, Page 13
Tíminn 13 Miðvikudagur 29. apríl 1987 ililiilll ÚXLÖND lllllllll Nakasone kemurtil Bandaríkjanna í dag: Washington-Reuter Reagan Bandaríkjaforseti hefur reynt að gera lítið úr hættu á við- skiptastríði milli Bandaríkjanna og Japans, nú rétt áður en viðræður. hans og Yasuhiro Nakasone forsætisráðherra Japana hefjast í Washington. Nakasone kemur til Bandaríkj- anna í dag í vikulanga heimsókn og mun eiga fund með Reagan strax á fimmtudag. Bandaríkjaforsetinn sagði í ræðu í gær að lausnin á aukinni spennu í viðskiptum milli ríkjanna tveggja fælist ekki í aukn- um refsiaðgerðum heldur réttlátari og opnari mörkuðum í báðum löndunum. „Og því fyrr því betra,“ sagði forsetinn. Reagan sagðist ekki hafa verið hlynntur því að koma á 100% tolli á sumar japanskar rafmagnsvörur fyrr í þessum mánuði. Hann kvaðst þó hafa verið neyddur til að setja tollinn á þar sem Japanar hefðu ekki opnað markaði sína fyrir bandarískum vör- um og hefðu ekki haldið samkomu- lag um að hætta að selja hálfleiðara Reagan gerir lítið úr viðskiptastríði - Taliö aö japanski forsætisráðherrann kynni Bandaríkjaforseta nýjar tillögur stjórnar sinnar sem miöa aö því aö auka ásókn Japana í erlendar vörur Aukin samskipti aust- urs og vesturs: Breskir balletar herja í austurveg Lundúnir-Rcuter Hinn konunglegi breski ballet mun heimsækja Sovétríkin í júní og á ferðalag þessa fræga ballet- hóps að standa yfir í mánuð. Þetta er fyrsta heimsókn hópsins til Sovétríkjanna í 26 ár. Breski ballethópurinn mun bæði koma til Moskvu og Lenín- grad og sýna þar á ferðalagi sínu. Heimsóknin fylgir í kjölfar vel- heppnaðs ferðalags þess heims- fræga Bolshoi ballets til Bretlands á síðasta ári. Og fleiri breskir ballethópar eru á leið austur yfir járntjald, Sadler's Wells konunglegi ballet- hópurinn hefur tilkynnt að hann muni heimsækja Tékkóslóvakíu, Pólland, Austur-Þýskaland og Búlgaríu í maí og júnímánuði. Rónald Reagan Bandaríkjaforseti og Yasuhiro Nakasone forsætisráðherra Japans: Fundurum viðskiptadeilur á morgun. Portúgal: Kosningar í sumar - Soares forseti og ríkisráð hans hafa rofið þing landsins Lissabon-Rcutcr Ríkisráð Portúgals undir forystu Mario Soares forseta samþykkti f gær að rjúfa þing landsins og gera þannig kleift að halda kosningar fyrr en áætlað var. „Ríkisráðið samþykkti með meiri- hluta atkvæða að rjúfa þing lýðveld- isins", sagði talsmaður forsetaemb- Pólverjar þurrir vegna páfakomu Varsjó-Reuter Pólska ríkisstjórnin mun banna sölu áfengis í borgum þeim sem Jóhannes Páll páfi annar heim- sækir á ferðalagi sínu til landsins þann 8.-14. júní. Tilkynnt var um bannið í dagblaði ríkisstjórnarinnar Rzec- zpospolita í gær og þar kom fram að áfengi verður ekki til sölu í höfuðborginni Varsjá flesta dag- ana sem heimsókn páfa stendur yfir. Áætlað er að páfi haldi þrjár messur í Varsjá, á fyrsta degi heimsóknar sinnar og síðustu tvo dagana. í öðrum borgum sem páfi kemur til nær bannið einnig til dagsins fyrir komu hans. Rzeczpospolita birti einnig hið árlega bann á sölu áfengis þann 1. maí. Þá er frídagur í Póllandi í tilefni alþjóðadags verkamanna. Mario Soares forseti Portúgals: Hugsaði vel og lengi og ákvað að lokum að kalla til nýrra kosninga ættisins í gær eftir að ríkisráðið hafði verið á níutíu mínútna fundi. Ljóst var fyrr í þessum mánuði að minnihlutastjórn miðju- og hægrim- anna undir forsæti Anibal Cavaco Silva naut ekki lengur traust þingsins og fundur Soares með ríkisráði sínu var í raun aðeins formlegheit til að kosningar gætu farið fram fyrr en ella. Stjórnmálaskýrendur búast við að kosningar verði haldnar í miðjum júlímánuði en Soares mun líklega skýra frá kosningadeginum í sjón- varpsávarpi í dag. Forsetinn hafði reyndar um tvo kosti að velja, annar- svegar að leyfa vinstriflokkunum að mynda ríkisstjórn innan núverandi þings og hinsvegar að efna til kosn- inga tveimur árum áður en áætlað var. Soares valdi síðari kostinn. Þrír helstu stjórnarandstöðu- flokkarnir höfðu reynt að þrýsta á að fá tækifæri til að mynda stjórn er tæki við af hinni sautján mánaða gömlu ríkisstjórn Silva, allt kom þó fyrir ekki og nú eru stjórnmálaflokk- arnir allir farnir að búa sig undir snarpa kosningabaráttu. undir kostnaðarverði á alþjóðlegum mörkuðum. „Ég vona að ekki líði á löngu þar til við getum aflétt þessum tollum og litið verði í framtíðinni á þetta tímabil sem smáóhapp í uppbygg- ingu samskipta okkar,“ sagði Reag- an í ræðu sem hann hélt í viðskipta- ráði Bandaríkjanna. Búist er við að Nakasone, sem hefur í gegnum árin átt góð og náin samskipti við Bandaríkjaforseta, kynni honum nýja áætlun Japan- stjórnar sem miðar að því að auka eftirspurn Japana á erlendum vörum. Japanar flytja út gífurlega mikið magn af vörum en markaðir þeirra heima fyrir eru oft gerðir óaðgengi- legir fyrir erlend fyrirtæki. Vöru- skiptajöfnuður þeirra er því mjög svo hagstæður, á síðasta ári var t.d. vöruskiptajöfnuður þeirra við Bandaríkjamenn hagstæður upp á 58,6 milljarði dollara. Aðalfundur Samvinnubankans Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 30. apríl 1987að Hótel Loftleiðum, Kristalssal og hefst kl. 14.30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð fram tillaga um heimild bankaráðstil útgáfu jöfn- unarhlutabréfa og tillögur til breytinga á samþykktum bankans, ef fram koma. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir í aðalbanka, Bankastræti 7, dagana 27. - 29. apríl svo og á fundarstað. Bankaráð Samvinnubanka íslands hf

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.