Tíminn - 29.04.1987, Side 19

Tíminn - 29.04.1987, Side 19
Miðvikudagur 29. apríl 1987 Tíminn 19 Verndun umhverfisins kemur okkur öllum við - þýski kennslumálaráðherrann vill láta taka upp kennslu í umhverfismálum í skólum Nú er u.þ.b. ár liðið frá kjarn- orkuslysinu í Tsérnóbýl og hafa verið talsverðar umræður um af- leiðingarnar, þær sem í ljós eru komnar, í tilefni þess síðustu daga. í Vestur-Þýskalandi urðu við- brögðin við slysinu þau m.a. að kennslumálaráðherrann Dorothee Wilms vill taka inn á námsskrá skóla umhverfisvandamál til að gera nemendum grein fyrir því allt frá unga aldri hver nauðsyn sé að hlífa náttúrunni og gæta hófs í því að ganga á auðlindir hennar. Menntamálaráðherrann hefur gef- ið út þá fyrirskipun að námsefnið skuli kennt í öllum skólum Vestur- Þýskalands, einkum í tengslum við líffræði og efnafræði. Mikil umræða var um þetta framtak ráðherrans á ráðstefnu um sveitarfélögogumhverfi, sem hald- in var í Berlín í febrúar s.l. Þar kom borgarstjóri Vestur-Berlínar, Eberhard Diepgen fram með yfir- lýsinguna: „Verndun umhverfisins kemur öllum við“. Hann sagði það skyldu þeirra sem fara með stjórn og skipulagsmál að beita þeim ráðum sem duga til að halda um- hverfinu heilsusamlegu. En lög og reglur sem til þess séu sett gegni því aðeins hlutverki sínu ef al- menningur geri sér grein fyrir nauðsyn þeirra. Hann tók því undir þá skoðun menntamálaráðherrans að upplýsa verði almenning betur um umhverfisvandamál og sagði það skyldu yfirvalda að annast þá fræðslu. Það verði að sýna fólki fram á að það beri sjálft ábyrgð og geti lagt sitt lóð á vogarskálarnar á ýmsan hátt. Félagsskapur sem hefur verndun umhverfisins og frekari menntun á því sviði á stefnuskrá sinni hefur gert lista yfir umhverfisvanda sem þeir halda fram að þarfnist skjótra úrbóta staðaryfirvalda. Sér- • fræðingar á ráðstefnunni báru sam- an bækur sínar og fram kom að umhverfisvandamál væru í slíkum vexti að brýna nauðsyn bæri til að upp væru teknar markvissar um- ræður og stöðugt upplýsinga- streymi sérfræðinganna á milli. Um 40 sérfræðingar um umhverfismál sveitarfélaga gáfu skýrslu um starf sitt. Þátttakendum á ráðstefnunni var skipt í 10 sérhæfða hópa sem fjölluðu um mál eins og t.d. orkugj- afa sem hefðu sem minnst óþægindi í för með sér, verndun drykkjar- vatns og kynningu til almennings á umhverfisvörnum sveitarfélaga. Fyrirlesari við háskólann í Stutt- gart talaði um “vistfræðilegar bygg- ingar í bæjum og borgum". Fulltrúi frá norðurhluta Rín-Westfalen, sem er geysiiðnvætt ríki, miðlaði af reynslu yfirvalda þar af að fást við Tsérnóbýlslysið varð til þess að kennslumálaráðherra Vestur-Þýskalands vill taka upp kennslu í umhverfisverndarmálum í skólum. hávaða- og loftmengun. „Hvernig spara má vatn" var annað umræðu- efni, og fulltrúi umhverfisdeildar Hamborgar ræddi um hvernig koma mætti fyrir gömlum rusla- haugum. Frá umhverfismálaráðuneytinu í Bonn var sendur áheyrnarfulltrúi, einnig frá iðnrekendum og ýmsum þrýstihópum. Umræður sér- fræðinganna á ráðstefnunni gerðu það Ijóst að það verður ekkert áhlaupaverk að hrinda í fram- kvæmd mörgum þeim ráðstöfunum sem nauðsynlegar eru til að bæta verndun umhverfisins. Það er sem sagt geysistórt verk- efni sem bíður í umhverfismálum í Vestur-Þýskalandi, en þar í landi er áhuginn vel vakandi og er mikill viðgangur Græningjanna þar til vitnis um það. Síðustu kolanámunni i Essen lokað Sé Ruhrhéraðið í Þýskalandi nefnt sjá menn fyrir sér iðnaðar- borgir á kafi í kolareyk, enda miklar kolanámur og iðnaður þar um slóðir. Reyndar eru kolanám- urnar þar þær næstvíðáttumestu í heimi. En nú er hún Snorrabúð stekkur, síðustu kolanámunni í „kolahöfuðborginni" Essen var lokað um síðustu áramót. Þá var lokið 146 ára sögu kolanámu- vinnslu í borginni, þar sem eitt sinn var framleidd mest af kolum í Evrópu um leið og lokað var elstu námunni sem enn var starfrækt í Ruhrhéraðinu, svonefndri Zoll- verein. Þegar kolanámufyrirtækið Ru- hrkohle tilkynnti fyrir þrem árum að það hefði ákveðið að loka „Zollverein“ reis mikil mótmæ- laalda fólksins í héraðinu sem þekkti ekki annað en að hafa sitt lifibrauð af kolavinnslu. í augum þess er hnignun og niðurlagning kolaiðnaðarins afleiðing stefnu misviturra stjórnvalda, stefnu sem Ruhrkohle kallar „að dragast sam- an sér til heilsubótar". Strax 1958 var farið að vinna skv. þessari stefnu og á árunum 1960-1980 var 40 kolanámum lokað í Essen. Á sama tíma fækkaði starfsmönnum í iðnaðinum frá u.þ.b. 53.000 í rétt rúmlega 1000. Af þeim eru 17% útlendingar, fyrst og fremst Tyrkir, og voru þeim fengin önnur störf. Margar ástæður liggja til þess að kolanámurnar hafa verið lagðar niður í Essen. Ódýrari kol hafa verið flutt inn frá öðrum löndum, dollarinn stendur lágt og áhuginn hefur fremur beinst að öðrum orkugjöfum s.s. olíu og kjarnorku. Það var einfaldlega orðið fjárhags- lega óhagkvæmt að reka kolanám- urnar lengur í Ruhrhéraðinu. Nú leita kolanámufyrirtækin fyrir sér norðar í landinu um önnur svæði þar sem ódýrara er að vinna kolin og skilja eftir gamaldags námur, úrgangsvandamál og úrelt vinnu- skipulag. Starfsmennirnir 1000 sem síðast unnu við „Zollverein" vissu svo sem að hverju dró, en engu að síður hefur lokun námunnar í för með sér gjörbreytingu á lifnaðar- háttum þeirra. Enginn starfsmaður á á hættu að verða atvinnulaus en margir þeirra verða nú að fara langar leiðir daglega á nýja vinnu- staðinn. 630 þeirra sækja nú vinnu í námum milli Duisburg og Herne. Við nýskipunina hefur verið gætt að því að gamlir nágrannar geti átt samleið á nýja vinnustaðinn og kunna starfsmennirnir vel að meta þá tillitssemi. Þá eiga starfsmenn sem náð hafa 50 ára aldri rétt á að fara á eftirlaun, og 300 manns neyta þess réttar síns. En borgaryfirvöld í Essen verða nú að takast á við nýjar og breyttar aðstæður. í miðborginni hafa að vísu ýmsar þjónustustofnanir verið settar á fót, enda Essen orðin miðpunktur orkuframleiðslu á svæðinu. En Katernberg, sá borg- arhluti sem niest átti undir „Zoll- verein", á nú í þrengingum. Síðan námunni var lokað hefur fólki fækkað þar úr 30.000 í 25.000, unga fólkið hverfur á burt í at- vinnuleit og þjónusta öll dregst saman vegna skorts á viðskiptum. En þeir eru vanafastir íbúarnir í Katernberg og kæra sig ekki um að yfirgefa heimaslóðirnar. Þeir óska eftir því að vinduturnarnir tveir sem tilheyra „Zollverein" verði látnir standa sem sögulegt minnis- merki. Miðvikudagur 29. apríl 6.45 Veöuríregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin-Jón Baldvin Halldórsson og Jón Guöni Kristjánsson. Fréttir eru sagöar kl. 7.30 og 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Tilkynning- ar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. 9.05 Morgunstund barnanna: „Antonía og Morgunstjarna“ eftir Ebbu Henze Steinunn Bjarman þýddi. Þórunn Hjartardóttir les (8). 9.20 Morguntrimm. Lesið úr forustugreinum dag- blaðanna. Tónleikar. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veöurfregnir. 10.30 Úr fórum fyrri tíðar Umsjón: Ragnheiður Viggósdóttir. 11.00 Fréttir. Tilkynningar. 11 05 íslenskt mál Endurtekinn þáttur frá laugar- degi sem Ásgeir Blöndal Magnússon flytur. 11.20 Morguntónleikar a. Konunglega fílharmon- íusveitin í Lundúnum leikur þrjú lög eftir Gilbert og Sullivan. Einsöngvarar og kór syngja meö; Isedore Godfrey stjórnar. b. Prelúdía í f[s moll op 23 nr. 1 eftir Sergej Rakhmaninoff.Richard Gresco leikur á píanó. c. Allegretto þátturinn úr Sinfóníu í d moll eftir Cesar Franck. Concertge- bouw-hljómsveitin í Amsterdam leikur; Edo de Waart stjórnar. d. „Hiröirinn á hamrinum“ eftir Franz Schubert. Christa Ludwig syngur. Ger- vase de Peyer og Geoffrey Parsons leika á klarinettu og píanó. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttlr. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn - Börn og skóli. Umsjón: Sverrir Guðjónsson. 14.00 Miðdegissagan: „Fallandi gengi“ eftir Er- ich Maria Remarque Andrés Kristjánsson þýddi. Hjörtur Pálsson les (6). 14.30 Norðurlandanótur Svíþjóð. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. Frá Vestfjörðum. Umsjón: Finnbogi Hermannsson. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.05 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. Tilkynningar. 17.05 Síðdegistónleikar. 17.40 Torgið - Nútímalífshættir. Umsjón: Stein- unn Helga Lárusdóttir. 18.00 Fréttir. Tilkynningar. 18.05 Torgið, framhald. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. Fjölmiðlarabb Gunnar Karlsson flytur. Í9.45 Tónleikar í útvarpssal. a. Síðasta blómið, tónverk fyrir kór og hljómsveit eftir Þorkel Sigurbjörnsson Barnakór Garðabæjar syngur með hljómsveit nemendas í Tónmenntaskólan- um í Reykjavík; Gígja Jóhannsdóttir stjórnar. b. Blokkflautusveitin í Vínarborg leikur tónverk eftir Erich Urbanner, Kasimierz Serocki, Thom- as Crecquillon, Orlando di Lasso, Salomoni Rossi gi Tylman Susato. 20.40 Að tafli. Jón Þ. Þór flytur skákþátt. 21.00 Létt tónlist. 21.20 Á fjölunum Þáttur um starf áhugaleikfélaga. Umsjón: Haukur Ágústsson. (Frá Akureyri). 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Frá útlöndum Þáttur um erlend málefni í umsjá Bjarna Sigtryggssonar. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp á samtengdum rásum til 00.10 Næturútvarp Oskar Páll Sveinsson stendur vaktina. 6.00 í bítið. Rósa Guðný Þórsdóttir léttir mönnum morgunverkin, segir m.a. frá veðri, færð og samgöngum og kynnir notalega tónlist í morg- unsárið. 9.05 Morgunþáttur í umsjá Kristjáns Sigurjóns- sonar og Kolbrúnar Halldórsdóttur. Meðal efnis: Plötupotturinn, gestaplötusnúður og miðviku- dagsgetraun. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Á milli mála. Leifur Hauksson kynnir létt lög við vinnuna og spjallar við hlustendur. 16.05 Hringiðan. Umsjón: Broddi Broddason og Margrét Blöndal. 18.00 íþróttarásin. Ingólfur Hannesson lýsir knatt- spyrnuleik islendinga og Frakka í undankeppni Evrópumóts landsliða sem háður er í París og hefst kl. 18.00. Samúel örn Erlingsson tekur við af Ingólfi þegar leiknum lýkur. 22.05 Perlur. Jónatan Garðarsson kynnir sígilda dægurtónlist. (Þátturinn verður endurtekinn n.k. sunnudagsmorgun kl. 9.03). 23.00 Við rúmstokkinn. Guðrún Gunnarsdóttir býr fólk undir svefninn með tali og tónum. 00.10 Næturútvarp. Hjörtur Svavarsson stendur vaktina til morguns. 2.00 Nú er iag Gunnar Salvarsson kynnir gömul og ný úrvalslög. (Endurtekinn þáttur frá gær- degi). Fréttir eru sagðar kl. 7.00, 8.00, 9.00, 10.00, 11.00, 12.20 15.00, 16.00, 17.00,18.00, 19.00 22.00 og 24.00. Svæðisútvarp virka daga vikunnar 18.03-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni - FM 96,5. Fréttamenn svæðisút- varpsins fjalla um sveitarstjórnarmál og önnur stjórnmál. Umsjón: Gísli Sigurgeirs- son. Miðvikudagur 29. april 17.55 Evrópukeppni landsliöa I knattspyrnu Frakkland - Island. Bein úlsending fró París. 19.50 Fréttaágrlp á táknmáll. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Söngvakeppni sjónvarpsstöðva i Evrópu 1987 Lögin í úrslitakeppninni. Kynnir Kolbrún Halldórsdóttir. 21.00 Spurt úr spjörunum - Þrettándi þáttur. Spyrlar: Ómar Ragnarsson/Kjartan Bjarg- mundsson. Dómari: Baldur Hermannsson. Stjórn upptöku: Ásthildur Kjartansdóttir. 21.30 Kane og Abel. Annar þáttur. Bandarískur (ramhaldsmyndatlokkur i sjö þáltum gerður ettir skáldsögu Jetfrey Archers. Aðalhlutverk: Peter Strauss og Sam Neill. pýðandi Jón O. Edwald. 22.20 Nýjasta tækni og visindi Umsjón Sigurður H. Richter. 22.50 Fréttir i dagskrárlok. Miðvlkudagur 29. april 17.00 Heldri menn kjósa Ijóskur (Gentlemen Prefer Blondes). Bandarísk dans- og söngva- mynd byggð á samnefndum söngleik. Aðalhlut- verk: Jane Russel, Marilyn Monroe og Charles Coburn. Myndin gerist að mestu leyti í París, þar sem tvær ungar konur (Marilyn Monroe, Jane Russel) vinna fyrir sér á næturklúbbi, en þar lenda þær í óvæntum vandræðum og ævintýrum. 18.30 Myndrokk.______________________________ 19.05 Teiknimynd. 19.30 Fréttir. 20.00 Opin lína. Áhorfendur Stöðvar 2 í beinni línu í sima 673888. 20.20 Happ í hendi. Orðaleikur í umsjón Bryndísar Schram.___________________________________ 20.50 Sumardraumur (Summer Fantasy). Banda- rísk kvikmynd frá 1984 með Julianne Phillips og Ted Shackelford í aðalhlutverkum. Leikstjóri er Noel Nosseck. Myndin fjallar um örlagaríkt sumar i lífi 17 ára stúlku. Hún þarf að taka mikilvægar ákvarðanir um framtíðina og hún kynnist ástinni i fyrsta sinn. 22.20 Listræningjarnir (Treasure Hunt). Nýr ít- alskur spennumyndaflokkur í 6 þáttum. Fræg- um listaverkum er stolið víðs vegar um Italíu. 23.20 Jacksonville and all that Jazz. Spyro Gyra, Adam Makowicz, The Swing Reunion og Phil Wodds flytja kraftmikinn Jass á Mayport hátíð- inni 1984. 00.10 Dayskrárlok. 29. apríl 7.00- 9.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur yfir blöðin, og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00. 9.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum. Palli leikur öll uppáhaldslögin ykkar, gömul og ný. Opin lína til hlustenda, mataruppskrift og sitthvað fleira. Fréttir kl. 10.00,11.00. 12.00-12.10 Fréttir. 12.10-14.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson á hádegi, Fróttapakkinn, Þorsteinn og fréttamenn Bylgj- unnar fylgjast með því sem helst er í fréttum, segja frá og spjalla við fólk í bland við létta tónlist. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00-17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Pétur spilar síðdegispoppið og spjallar við hlustendur og tónlistarmenn. Fróttir kl. 15.00,16.00 og 17.00. 17.00-19.00 Ásta R. Jóhannesdóttir í Reykjavík síðdegis. Ásta leikur tónlist, lítur yfir fréttirnar og spjallar við fólkið sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00. 19.00-21.00 Anna Björk Birgisdóttirá Flóamark- aði Bylgjunnar. Flóamarkaður og tónlist. Fréttir kl. 19.00. 21.00-23.00 Ásteir Tómasson á miðvikudags- kvöldi. Ásgeir leikur rokktónlist úr ýmsum áttum. 23.00-24.00 Vökulok. Ljúf tónlist og fréttatengt efni. Dagskrá í umsjá Arnars Páls Haukssonar fréttamanns. 24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist og upplýsingar um veður og flugsamgöngur. Frétir kl. 03.00.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.