Tíminn - 10.06.1987, Page 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 10. júní 1987
Fjórhjólaeigendur áminntir:
Lögreglan skakki leik
í náttúrunni utan vega
Dómsmálaráðuneyti minnir á bann gegn óþarfa akstri utan merktra vega og vegarslóða
I tilefni af gagnrýni sem fram
hefur komið á reglur um skráningu
torfærutækja, svokallaðra fjórhjóla,
sem eru nokkurs konar dvergjepp-
ar, og vegna frétta af akstri þessara
ökutækja utan vega og spjöllum á
gróðri af þeirra völdum hefur
dómsmálaráðuneytið sent frá sér
harða áminningu til ökumanna
þessara tækja.
Þar segir að reglur þær sem ráðu-
neytið setti voru settar á grundvelli
gildandi umferðarlaga með tilliti til
umferðar og öryggis og með hlið-
sjón af ákvæðum í nýjum umferð-
arlögum sem samþykkt voru á síð-
asta Alþingi. Takmörkun á notkun
þessara tækja á vegi er því ein-
göngu gerð vegna umferðaröryggis.
Reglurnar fjalla hins vegar ekki um
akstur út frá öðrum sjónarmiðum,
svo sem gert er í náttúruverndar-
lögum. Að því leyti gilda um akstur
fjórhjóla sömu reglur og gilda um
önnur ökutæki.
Ráðuneytið leggur á það áherslu
að öll umferð utan vega er háð
ákvæðum náttúruverndarlaga og
reglugerðar, en samkvæmt þessum
ákvæðum skal öllum „skylt að sýna
varúð svo að náttúru landsins sé
ekki spillt að þarflausu" og „bann-
aður er allur óþarfa akstur utan
vega eða merktra vegarslóða, þar
sem hætt er við að spjöll hljótist á
náttúru landsins". Heitir ráðuneyt-
ið á ökumenn fjórhjóla sem og
ökumenn annarra ökutækja að
virða þær reglur. Hins vegar er
bent á að lög banna ekki alla um-
ferð ökutækja utan vega eða veg-
arslóða, svo sem t.d. akstur bónda
á jörð sinni.
í bréfi til allra lögreglustjóra hef-
ur ráðuneytið lagt áherslu á að lög-
reglu verði beitt til að koma í veg
fyrir alla misnotkun ökutækja að
þessu leyti. Það telur að beita beri
fyllsta aðhaldi og einbeitni við eftir-
lit á þessu sviði.
í lok tilkynningarinnar segir:
„Ráðuneytið hvetur notendur tor-
færutækja til að temja sér nærgætni
við gróður og náttúru landsins
þannig að eigi þurfi að koma til af-
skipta lögreglu.“ þj
17% hækkun hitaveitunnar rædd í borgarstjórn:
Nesjavallafram-
kvæmdir hækka
hitaveitutaxta
Húseigendur borga 100 milljónir á þessu ári
til framkvæmda
Hitaveituframkvæmdirnar við
Nesjavelli eru farnar að segja til sín í
stórhækkun á taxta hitaveitunnar,
eins og fulltrúar stjórnarandstöð-
unnar höfðu spáð í umræðum um
Nesjavallaframkvæmdirsl. haust, en
borgarstjórn staðfesti ákvörðun
borgarráðs um 17% hækkun á heitu
vatni, á fundi sínum á fimmtudag.
I máli Páls Gíslasonar, borgarfull-
trúa sjálfstæðismanna og formanns
stjórnar veitustofnana, kom fram að
þessi 17% hækkun hitaveitunnar er
til að greiða þær 100 milljónir sem
hitaveituna vantar vegna fram-
kvæmda sinna við Nesjavelli.
Páll greindi frá því að hitaveitan
stæði mjög vel og upplýsti að
þriðjungur tekna hitaveitunnar færi í
rekstur, þriðjungur í afskriftir og
þriðjungur færi til framkvæmda.
Bjarni P. Magnússon borgarfull-
trúi Alþýðuflokksins greiddi atkvæði
með hækkun. Hann sagði að varast
bæri lántökur hjá hitaveitunni og að
endar skyldu ná saman hverju
sinni.
Sigurjón Pétursson ítrekaði bók-
un sína úr borgarráði þar sem hann
benti á að í kjarasamningum ASÍ og
VSÍ á liðnum vetri hefði verið gengið
út frá ákveðnum verðlagsforsend-
um. Hluti þeirra verðlagsforsenda
væri að þjónustufyrirtæki Reykja-
víkurborgar gættu hófs í verðhækk-
unum. Sigurjón benti á að þessir
samningar væru enn í gildi og því
væri hitaveitan að bregðást forsend-
um samninganna.
Sigurjón sagðist ekki sjá neitt að
því, þegar um mannvirki sem standa
eiga um mannsaldra er að ræða, þá
sé kostnaði dreift á lengri tíma en
framkvæmdatímann. f>ví væri ekk-
ert á móti því að taka lán sem borgað
yrði á áratug eða tveim. Slíkt myndi
ekki leggja afkomu stöndugs fyrir-
tækis sem hitaveitunnar í hættu.
Sigrún Magnúsdóttir lýsti stuðn-
ingi við bókun Sigurjóns. Hún sagði
fólk hjá ASÍ nú þurfa að halda vel í
við sig til að eiga fyrir framfærslu
sinni. Þannig hefði það lagt sitt af
mörkum í baráttunni við verðbólg-
una. Því væri það skylda hitaveit-
unnar á sama tíma að gæta aðhalds
og minnti á fyrri orð sín í borgar-
stjórn um að fara hægar í sakirnar.
-HM
Diplómatían:
NÝSKIPAÐIR
SENDIHERRAR
Fyrir nokkru afhenti Hörður
Helgason sendiherra Francesco
Cossiga, forseta Ítalíu, trúnaðar-
bréf sitt sem sendiherra íslands á
Ítalíu. En sendiherrann hefur að-
setur í Kaupmannahöfn.
Þá afhentu þrír nýskipaðir sendi-
herrar forseta Islands, frú Vigdísi
Finnbogadóttir, trúnaðarbréf sín
að utanríkisráðherra viðstöddum.
Hinir nýskipuðu sendiherrar
eru: sendiherra Spánar hr. Ramón
Fernandez de Soignie; sendiherra
ísraels, hr. Yehiel Yativ, og sendi-
herra Chile, hr. Luis Alberto Re-
yes. Allir hafa þessir sendiherrar.
aðsetur í Osló.
ÞÆÓ
Hluti undirbúningshóps sýningarinnar Graphica
Graphica Atlantica:
99 grafíklistamenn
frá 25 þjóðlöndum
Það er ekki á hverjum degi sem
íslenskum listunnendum gefst kostur
á að skoða verk 99 myndlistarmanna
frá 25 þjóðlöndum á einni sýningu á
íslandi. En nú á laugardag mun
Reykjavíkurborg og félagið Islensk
Grafík einmitt opna slíka sýningu á
Kjarvalsstöðum.
Sýningin ber nafnið Graphica Atl-
antica og er ætlað að vera gott
þversnið af straumum og stefnum í
grafíklist beggja vegna Atlantsála.
Til að fá sem best yfirlit yfir vestræna
grafíklist var útvöldum listamönnum
boðið að senda þrjú til fimm verk á
sýninguna og bárust alls um 400
verk.
í tengslum við sýninguna verður
haldin ráðstefna um vestræna graf-
íklist og listamönnum þannig gefinn
kostur á auknum umræðum og skoð-
anaskiptum um stöðu grafíklistar-
innar.
Mikill áhugi hefur verið hjá er-
lendum grafíklistamönnum á Grap-
hica Atlantica og er von á a.m.k. 60
erlendum gestum á ráðstefnuna sem
haldin verður í Reykjavík og á
Kirkj ubæj arklaustri.
Þar munu þekktir fyrirlesarar halda
fyrirlestra og voru þeir einnig valdir
með það í huga að þeir gætu nálgast
sýna á Kjarvalsstöðum
umræðuefni Graphica Atlantica frá
sem víðustum grundvelli.
Þess má geta að sýningarskrá með
mynd frá hverjum listamanni verður
gefin út og verðlaun verða veitt af
alþjóðlegri dómnefnd að upphæð
kr. 200.000. Sýningin verður opin til
28. júní. -HM
\ Ungverjaland:
Ahugi á samstarfi
umnýtingujarðhita
Undanfarna daga hefur staðið
yfir heimsókn aðstoðarutanríkis-
ráðherra Ungverjalands, Imre
Dunai, hér á landi. Áhugi er á að
efla viðskipti milli landanna, en
þau hafa verið hverfandi lítil
undanfarin ár.
Það sem íslendingar hafa helst
keypt frá Ungverjalandi eru
vínföng, ávextir, vefnaðarvara,
rafmagnstæki og fatnaður. Helstu
útflutningsvörur íslands til Ung-
verjalands hafa verið þorskalýsi,
lagmeti og kísilgúr.
Ungverski ráðherrann hefur lýst
sérstökum áhuga þeirra á að skipt-
ast á upplýsingum við íslendinga
um nýtingu jarðhita og þá á sam-
starfi á því sviði.
Á meðan á dvöl ráðherrans hér
á landi stendur mun hann m.a. eiga
viðræður við Matthías Bjamason
viðskiptaráðherra, iðnaðarráðu-
neytið, Orkustofnun og Virki hf.,
Verslunarráð íslands, Útflutn-
ingsráð íslands, svo og einstaka
viðskiptaaðila. Heimsókn ráðherr-
ans lýkur í dag. ÞÆÓ