Tíminn - 10.06.1987, Síða 7
Tíminn 7
Miðvikudagur 10. júní 1987
Fimm efstu stúlkurnar. F.v. Magn-
ea Magnúsdóttir, annað sæti, Fjóla
Grétarsdóttir, fjórða sæti, Anna
Margrét Jónsdóttir, fyrsta sæti,
Hildur Guðmundsdóttir, fimmta
sæti og Sigríður Guðlaugsdóttir,
þriðja sæti.
Fegurðar-
samkeppnin
í myndum:
Kvenleg
fegurð
Ungfrú Reykjavík og ungfrú ís-
land var krýnd við hátíðlega athöfn
í Broadway og í sjónvarpstækjum
okkar sem horfa enn á Ríkissjón-
varpið.
Anna Margrét Jónsdóttir heitir
sú heppna og er 21 árs Reykjavík-
urmær og flugfreyja hjá Flugleið-
um. Hún mátti varla mæ!a er nafn
hennar var tilkynnt en sagði eftir á:
„Þessu átti ég ekki von á“ og láir
enginn stúlkunni.
Tveggja mánaða þrotlausar
æfingar, föstur, líkamsrækt og
göngukennsla að baki og sigur
Önnu Margrétar í höfn.
Silfurverðlaunahafi var Magnea
Magnúsdóttir, 19 ára og einnig
Reykjavíkurmær og bókari og í
þriðja sæti var svo Sigríður Guð-
laugsdóttir, tvftugur nýstúdent úr
Verzlunarskólanum. Sigríðurer úr
Hafnarfirðinum.
í fjórða sæti lenti svo Fjóla
Grétarsdóttir og í því fimmta Hild-
ur Guðmundsdóttir.
Krýningarkvöldið var um margt
sögulegt, því þetta er í fyrsta skipti
sem sama stúlkan hlýtur bæði titil-
inn ungfrú Reykjavík og ungfrú
ísland. En þetta eru ekki einu titlar
Önnu Margrétar, því hún hefur
áður orðið Ungfrú Útsýn, Sólar-
stúlka Úrvals og Ungfrú Holly-
wood.
Verðlaunin voru ekki af verri
endanum í fyrrakvöld. Pels frá
Eggerti feldskera, skartgripir að
verðmæti hálft annað hundrað þús-
unda, gullfallegur kjóll og fjöl-
margar aðrar gjafir.
Gígja Birgisdóttir, ungfrú ísland
1986 svipti af sér kórónunni og
festi á höfuð Önnu Margrétar og
var ekki annað að sjá en áhorfend-
ur væru sammála dómnefndinni í
vali fegurðardrottningar íslands.
En Bjarni ljósmyndari Tímans var
að sjálfsögðu í Broadway og mynd-
irnar tala sínu máli.
Magnea Magnúsdóttir, lenti í öðru
sæti. Magnea er nítján ára gömul
Reykjavíkurmær og er bókari.
Sigríður Guðlaugsdóttir er tvítug
og nýútskrifuð úr Verzlunarskóla
íslands og er á leiðinni til Frakk-
lands til að læra frönsku ■ París.
Sigríður er úr Hafnarfirði.
Þessi tvö módel sýndu hluta af
verðlaunum ungfrú íslands, kjól,
pels og skartgripi.
Gígja Birgisdóttir rekur Önnu
Margréti rembingskoss eftir að
hafa látið kórónuna forlátu af
hendi á höfuð Önnu. Gígja stóð sig
með sóma sem ungfrú Island 1986
og við erum fullviss um að Anna
Margrét gerir jafnvel.
Hér eru þær allar samankomnar keppendurnir um titilinn fegurðardrottning íslands. Lengst til vinstri er ungfrú Gunnar Larsen setti upp sérhannaða tískusýningu á Broadway í tilefni af
ísland og Reykjavík, Anna Margrét Jónsdóttir. Fjórðafrá hægri er bronshafinn, Sigríður Guðlaugsdóttir og lengst fegurðarsamkeppninni. Hér sést Gunnar ásamt módeli og sænskum
til hægri Magnea Magnúsdóttir, en hún lenti í næst besta sætinu í keppninni. aðstoðarmanni sínum þegar hann var hylltur undir lokin.