Tíminn - 10.06.1987, Qupperneq 19
Miðvikudagur 10. júní 1987
Tíminn 19
llllllllllllllllllll spegill llllll- ^'!IIIIHÍ? .Illlilliliiii". ■;!Nj;ii!in^ ................................................................................................ -"lillllllillil!::; .......................................... -...............Illl........... .......Illll......... .................. ............................................
Þrjósk og óhlýðin
prinsessa ó
heimilisfrið
Karl Gústaf Svíakonungur og Silvia drottning hans hafa sýnt
Madeleine og kenjum hennar mikla þolinmæði. En er þolinmæðin
nú á þrotum?
íslenskt dansfólk vin
Nú líður senn að því að sænsku
konungshjónin komi í opinbera
heimsókn til íslands og ef að
vanda lætur verður í nógu að
snúast fyrir þau þann skamma
tíma sem sú heimsókn varir. Þó
gæti vel verið að þeim veitti ekki
af örlitlu fríi frá daglegu amstri,
bústelli og barnauppeldi. Það er
nefnilega haft fyrir satt að
yngsta barn þeirra hjóna, Made-
leine sem á fimm ára afmæli nú
í júní, reyni mjög á þolrif foreldr-
anna þessa dagana!
Karl Gústaf Svíakonungur og
Silvia drottning hans hafa verið
gift í 11 ár og eiga þrjú börn.
Uppeldi eldri barnanna, Victoriu
og Carls Philippe hefur gengið
frásagnarlitið fyrir sig. Þau hafa
átt sín eðlilegu þrjóskuskeið og
ekki þótt frásagnarvert. En
Madeleine gengur svo fram af
foreldrum sínum — og hirðfólkinu
öllu, að húsfriðnum er ógnað.
Því er m.a.s. haldið fram að
hjónaband foreldra hennar sé í
hættu vegna óþekktarinnar og
óhlýðninnar sem hún sýnir dag-
inn út og daginn inn.
Konungurinn er sagður vera
orðinn svo þreyttur á uppátækj-
um þessarar ómeðfærilegu dótt-
Þessa mynd af Jóni Þór Antonssyni og Ester Ingu Söring birti
Evening Gazette með viðtalinu við þjálfara þeirra.
sælir gestir í Blackpool
Alþjóðleg danskeppni í sam-
kvæmisdönsum fór fram í Black-
pool nýlega og tóku nú íslend-
ingar þátt í henni í fyrsta sinn en
þessi keppni á 62ja ára sögu að
baki.
Þau Jón Þór Antonsson og
Ester Inga Söring kepptu þar í
suðuramerískum dönsum í
áhugamannariðli en þar tóku
þátt 290 pör, úrval dansara víðs
vegar úr heiminum. Þau Jón Þór
og Ester Inga fóru að vísu ekki
með sigur af hólmi en vöktu
heilmikla athygli og þótti blað-
inu Evening Gazette ástæða til
að birta mynd af þeim og ræða
við þjálfara þeirra, Níels Einars-
son og Rakel Guðmundsdóttur í
Nýja dansskólanum.
Þar kemur fram að þó að ís-
lendingar hafi ekki tekið þátt í
keppninni fyrr hafa þeir á undan-
förnum árum ekki látið hana
framhjá sér fara. Undanfarin þrjú
sumur hefur Níels komið til
Blackpool, ásamt nemendahópi
frá Nýja dansskólanum og hefur
hópurinn farið sístækkandi ár
frá ári. í þetta skipti voru það 26
manns sem nutu lífsins í Black-
pool, en á næsta ári áætlar Níels
að 100 manns verði í hópnum.
íslendingarnir eru vinsælir
gestir í Blackpool og lýsa hótel-
stjórar þar ánægju sinni yfir
komu þeirra. Þeir bæta þvi
reyndar við að þessar heimsókn-
ir íslenska dansfólksins virðist
vera ágætis auglýsing fyrir
þennan enska baðstrandabæ,
því að alltaf komi fleiri og fleiri
íslenskir ferðamenn þangað,
sem komist að raun um hvað
ódýrt sé að dveljast þar þegar
tekið er með í reikninginn hvað
sé dýrt að búa á íslandi.
ur sinnar að hann vilji grípa til
róttækra ráðstafana til að koma
smáaga yfir hana. Drottningin
aftur á móti er sögð halda vernd-
arhendi yfir óþekktaranganum
sínum, eins og mæðra er siður,
og mun þessi ágreiningur eiga
sök á því að konungshjónin eiga
fátt vantalað sín á milli, stundum
dögum saman.
En óþekk börn hafa þekkst í
öllum fjölskyldum og sem betur
fer gengur það ástand oftast
fljótt yfir. M.a.s. þykir sumum
það boða góða framtíð ef börn
sýna sjálfstæðan vilja sinn og
láta ekki alltof vel að stjórn. „Oft
verður gæðingur úr göldum fola“
segir íslenskt máltæki og er það
gjarna yfirfært á mannfólkið. Það
er þess vegna ekki öll nótt úti
enn um að hún Madeleine litla
Svíaprinsessa eigi eftir að verða
hin mesta myndarkona og hvers
manns hugljúfi.
„Sittu fallega stelpa" er pabb-
inn líklega að segja. En Made-
leine lætur sér ekki segjast.
Miðvikudagur
10. júní
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin - Hjördís Finnbogadóttir og
Óöinn Jónsson. Fréttir eru sagðar kl. 8.00 og
veöurfregnir kl. 8.15. Fréttayfirlit kl. 7.30 og
síðan lesiö úr forustugreinum dagblaðanna.
Tilkynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25.
Fréttir á ensku kl.8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barnanna: „Sögur af
Munda“ eftir Bryndísi Víglundsdóttur Höf-
undur lýkur lestrinum (11).
9.20 Morguntrimm. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Óskastundin Umsjón: Helga Þ. Stephen-
sen.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur Umsjón: Edward J. Fredrik6en.
(Þátturínn verður endurtekinn að loknum fréttum
á miðnætti).
11.55 Útvarpið í dag
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Barnamenning. Umsjón:
Sigrún Proppé. (Þátturinn verður endurtekinn
nk. sunnudagsmorgun kl. 8.35).
14.00 „Davíð“, smásaga eftir Le Clécio. Þórhild-
ur Ólafsdóttir þýddi og flytur formálsorð. Silja
Aðalsteinsdóttir les fyrri hluta.
14.30 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Sigurður Al-
fonsson. (Endurtekinn þáttur frá laugardegi).
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Hvernig má bægja kjarnorkuvánni frá
dyrum. Þorsteinn Helgason leitar svars hjá Páli
Einarssyni jarðeðlisfræðingi, séra Gunnari
Kristjánssyni og Norðmanninum Erik Alfsen.
(Endurtekinn þáttur frá mánudagskvöldi).
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Siðdegistónleikar. a. Concerto grösso op.
6 eftir Arcangleo Cofelli. Kammersveit Slóvakíu
leikur; Bohdan Wa/chal stjórnar. b. Konsert í
A-dúr fyrir tvær fiðlur og hljómsveit eftir Antonio
Vivaldi. Susanne Lautenbacher og Ernesto
Mampaey leika með Kammersveit Emils Seíler;
Wolfgang Hofmann stjórnar.
17.40 Torgið Umsjón: Einar Kristjánsson og Sverr-
ir Gauti Diego.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald .
Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
Staldrað við. Haraldur Ólafsson spjallar um
mannleg fræði og ný rit og viðhorf í þeim efnum.
20.00 Ungir norrænir einleikarar 1986. Akan
Rosengren leikur með Filharmoníusveitinni í
Helsinki; Osmo Vánská stjórnar. Klarinettu-
konsert op. 57 eftir Carl Nielsen.
20.30 Sumar í sveit. Umsjón: Hilda Torfadóttir.
(Frá Akureyri) (Þátturinn verður endurtekinn
næsta dag kl. 15.20).
21.20 Orgelvikan í Nurnberg 1986. a. Hans og
Martin Haselböck leika orgelverk fyrir tvö orgel
eftir Gaétano Piazza, Johann Christian Bach og
Ludwig van Beethoven. b. Marie Bernadette
Dufourcet-Hakim leikur hugleiðingu sína um
„uppgefið stef“ í Pachelbel-keppninni.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Frá útlöndum. Þáttur um erlend málefni í
umsjá Bjarna Sigtryggssonar.
23.10 Djassþáttur - Jón Múli Árnason.
24.00 Fréttir. .
00.10 Samhljómur Umsjón: Edward J. Frederik-
sen. (Endurtekinn þáttur frá morgni).
01.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns.
&
00.10 Næturvakt útvarpsins. Magnús Einarsson
stendur vaktina.
6.00 í bítið. Snorri Már Skúlason léttir mönnum
morgunverkin, og kynnir notalega tónlist í
morgunsárið.
Fréttir á ensku sagðar kl. 8.30.
9.05 Morgunþáttur í umsjá Kolbrúnar Halldórs-
dóttur og Skúla Helgasonar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Leifur Hauksson, Guðrun
Gunnarsdóttir og Gunnar Svanbergsson.
16.05 Hringiðan. Umsjón; Broddi-Broddason og
Erla B. Skúlasdóttir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 íþróttarásin. Ingólfur Hannesson, Samúel
örn Erlingsson og Georg Magnússon
22.05 Á miðvikudagskvöldi Umsjón: Kristín Björg
Þorsteinsdóttir.
30.10 Næturútvarp. Magnús Einarsson stendur
vaktina til morguns.
Fréttir eru sagðar kl. 7.00, 8.00, 9.00, 10.00,
11.00, 12.20 15.00, 16.00, 17.00, 18.00, 19.00
22.00 og 24.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar
18.03-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni - FM 96,5. Fréttamenn svæðisút-
varpsins fjalla um sveitarstjórnarmál og önnur
stjómmál.
Miðvikudagur
10. júní
18.00 Úr myndabókinni - Endursýndur þáttur frá
7. júní. Umsjón: Agnes Johansen.
19.30 Hver á að ráða. (Who's the Boss?) 12.
þáttur. Bandarískur gamanmyndaflokkur um
einstæðan föður sem vinnur eldhússtörfin fyrir
önnum kafna móður. Aðalhlutverk: Tony Danza,
Judith Light og Katherine Helmond. Þýðandi Ýrr
Bertelsdóttir.
20.00 Fréttir og veður.
20.40 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Spurt úr spjörunum-Átjándi þáttur Spyrlar:
Ómar Ragnarsson/Kjartan Bjargmundsson.
Dómari: Baldur Hermannsson. Stjórn upptöku:
Ásthildur Kjartansdóttir.
21.15 Garðastræti 79. (79 Park Avenue) Nýr
flokkur - Fyrsti þáttur. Bandarískur framhalds-
myndaflokkur í sex þáttum gerður eftir skáld-
sögu Harold Robbins um léttúðardrós í New
York. Aðalhlutverk: Lesley Ann Warren, David
Dukes, Michael Constantine og Raymond Burr.
Sagan segirfrá Maríönnu Morgan sem á heldur
dapurlega æsku og byriar snemma að vinna
fyrir sér í danshúsi einu. Á betrunarstofnun lærir
hún nektardans, karlmenn elta hana á röndum
og samskiptin við þá verða helsta tekjulind
Maríönnu. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
22.05 Sjötta skilningarvitið - Endursýning. 4.
Endurholdgun. Myndaflokkur um dulræn efni
frá 1975. í þessum þætti er rætt við Kristján frá
Djúpalæk, Erlend Haraldsson og Sören Sörens-
en. Umsjón Jökull Jakobsson.
23.00 Dagskrárlok.
0
r)s
rSTOÐ2
Miðvikudagur
10. júní
16.45 Shadey (Shadey) Bresk gamanmynd frá
árinu 1985 með Anthony Sher, Billie Whitelaw,
Lesley Ash o.fl. í aðalhlutverkum. Leikstjóri er
Philip Saville. Oliver Shadey hefur þann eigin-
leika til að bera að geta framkallað hugsanir á
auða filmu. Hann vill helst nota þennan eigin-
leika til góðs en leiðist út í vafasamt athæfi
þegar hann þarf á peningum að halda til þess
að gangast undir kynskiptaaðgerð.
18.20. Bestu lögin. Gunnar Jóhannsson leikur
bestu l^in í dag.
19.00 Benji (Benji). Nýr leikinn myndaflokkur fyrir
yngri kynslóðina. Hundurinn Benji vingast við
ungan prins frá annarri plánetu og kemur
honum til hjálpar á örlagastundu.
19.30 Fréttir.
19.55 Viðskipti. í þessum viðskipta- og efnahags-
þætti er víða komið við í athafnal ífi landsmanna.
Stjórnandi er Sighvatur Blöndahl.
20.15 Happ i hendi. Að þessu sinni snýr starfsfólk
Heklu hf. lukkuhjólinu. Umsjónarmaður er
Bryndis Schram. _____________________________
20.55 Annika (Annika). Ástarsaga tveggja ung-
menna frá ólíkum þjóðfélögum. Fyrsti hluti af
þremur. Með aðalhlutverk fara Christina Rigner,
Jesse Birdsall, Vas Blackwood, Ann-Charlotte
Stalhammar, Birger österberg og Anders Bong-
enhielm. Leikstjóri er Colin Nutley. Annika er ein
hundruða Svía sem koma í sumarskóla til
Englands. hún hittir þar breskan strák, Pete, og
gegn ætlan Pete verða þau ástfangin. Þegar
Annika snýr aftur til Svíþjóðar eftir þriggja vikna
dvöl, brestur hjarta Pete og fer hann á eftir
henni. Hann kann ekki sænsku og þykir Svíar
heldur framandlegir í háttum. Annar hluti mynd-
arinnar verður á dagskrá 12. júni og þriðji hluti
sunnudaginn 14. júní.
21.50 Endurhæfingin (Comeback Kid). Bandarísk
sjónvarpsmynd frá árinu 1980 með John Ritter,
Susan Dey, Doug McKeon, Jeremy Licht og
James Gregory í aðalhlutverkum. Leikstjóh er
Peter Levin. Mynd þessi fjallar um fyrrverandi
hafnarboltaleikmann sem tekur að sér að þjálfa
nokkra götukrakka sem treysta engum og engu.
Þar fyrir utan þarf hann að tjónka við unga konu
sem stjómar leikvallasvæðum borgarinnar og
eru krakkarnir óspör á ráðin í því sambandi.
23.25 „Blue Note.“ Síðari hluti tónlistarhátíðar
blús-tónlistamanna í New York. Tónleikarnir
fóru fram 22. febrúar 1985 og meðal annarra
komu fram Bobby Hutcherson, Herbie Hancock,
Stanley Jordan, BobbyTimons, Bennie Wallace
og Washington-Harline.
00.25 Dagskráriok.
Miðvikudagur
10. júní
7.00- 9.00Pétur Steinn og Morgunbylgjan.
Pétur kemur okkur róttu megin framúr með
tilheyrandi tónlistog lítur yfir blöðin. Bylgjumenn
verða á ferðinni um bæinn og kanna umferð og
mannlíf.
Fréttlr kl. 7.00, 8.00 og 9.00.
9.00-12.00 Valdís Gunnarsdóttir á léttum
nótum. Sumarpoppið allsráðandi, afmælis-
kveðjur og spjall til hádegis. Verður litið inn til
fjölskyldunnar á Brávallagötunni?
Fréttirkl. 10.00,11.00.
12.00-12.10 Fréttlr.
12.10-14.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson á hádegi.
Þorsteinn spjallar við fólkið sem ekki er í fréttum
og leikur létta hádegistónlist.
Fréttir kl. 13.00.
14.00-17.00 Ásgeir Tómasson og síðdegis-
poppið. Gömlu uppáhaldslögin og vinsælda-
listapopp í réttum hlutföllum.
Fréttirkl. 14.00,15.00,16.00.
17.00-19.00 Ásta R. Jóhannesdóttir í Reykjavík
síðdegis. Ásta leikur tónlist, lítur yfir fróttirnar
og spjallar við fólkið sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 17.00.
18.10 Fréttir.
19.00-21.00 Anna Björk Birgisdóttirá Flóamark-
aði Bylgjunnar. Flóamarkaður og tónlist.
Fréttir kl. 19.00.
21.00-24.00 Sumarkvöld á Bylgjunni.
24.00-07.00 Næturdagskrá Byigjunnar. Ólafur
Már Bjömsson. Tónlist og upplýsingar um veður
og flugsamgöngur.
Fréttir kl. 03.00.