Tíminn - 24.07.1987, Side 9

Tíminn - 24.07.1987, Side 9
Föstudagur 24. júlí 1987 Tíminn 9 VEIÐIMÁL Veiðifélag stofnað Árið 1972 var stofnað veiðifélag uni Þjórsá að frumkvæði Ölvis Karlssonar í Þjórsártúni og Har- aldar Einarssonar, Urriðafossi. Varð Ölvir fyrsti formaður félags- ins og gegndi því starfi þar til á aðalfundi þess í júní s.l. að hann hætti að eigin ósk. Voru honum þökkuð ötul störf fyrir félagið, sem hann hefur sinnt af dugnaði og þrautseigju. Veiðifélagið um Þjórsá nær frá ósi í sjó og að Þjófafossi við Búrfell og fiskgengar ár og lækir, sem í ána falla á þessu svæði. Að félaginu eiga aðild allar jarðir, sem liggja að svæðinu. Það er því býsna stór hópur bænda og annarra landeig- enda, sem hlut eiga að máli. Það sem blasir við í veiðifélagi Þjórsár er, hversu fáir eiga ríkra hagsmuna að gæta um veiðihlunnindi vegna þess að nær öllu laxveiðin kemur í hlut tiltölulega fárra aðila í félags- inu. Þetta hefur að nokkru leyti sett mark sitt á félagsstarfið þar sem gætt hefur kröfu þeirra sem ofar búa við vatnakerfið um aukna hlutdeild í laxinum. Þannig hafa komið fram hugmyndir og tillögur um að takmarka netaveiði umfram það sem bein lagaákvæði kveða á um og byrja veiðiskap síðar að sumrinu venja hefur verið að gera. Eldisstóð og fiskvegagerð I félagsstarfinu hefur frá hendi forráðamanna þess verið lögð meg- ináhersla á að gæta hagsmuna veiðiréttareigenda gagnvart rösk- un og tjóni á fiskstofni árinnar og veiðinni frá hendi orkunýtingar og aðgerða þeim tengdar við efri hluta svæðisins. Þá hefur á vegum félags- ins verið unnið að sleppingu laxa- seiða og könnun á laxagengd auk athugana og undirbúnings að gerð fiskvegar um Urriðafoss, en land- eigendur þar hafa verið jákvæðir gagnvart slíkri framkvæmd. Menn ætla að slík aðgerð myndi örva fiskinn til göngu um fossinn, sbr. það sem gert var með fiskvegi í Laxfossi í Laxá í Kjós. Landsvirkjun hefur sinnt bóta- kröfu fyrir tjón og röskun í vatna- kerfi Þjórsár og stöðuvatna á Holtamanna- og Landmannaaf- rétti. Samkomulag tókst milli hags- munaaðila veiðiafnotanna og Landsvirkjunar um byggingu fisk- eldisstöðvar á Fellsmúla í Lands- sveit. Þá hefur Landsvirkjun lofað að byggja fiskveg unt Búðafoss og hún hefur þegar gert umbætur sem auðvelda eiga göngufiski för um Árneskvísl Þjórsár hjá Hestafossi. Með tilkomu eldisstöðvar í Fells- múla hefur hagur fiskræktar m.a. við Þjórsá vænkast svo mjög, að Þjórsár Alkunna er, að Þjórsá er lengsta straumvatn landsins eða 230 km á lengd. Vatnakerfi hennar er geysi- víðáttumikið. Þessi sunnlenska efla teygir sig jafnvel inn í Norður- land eystra. En vatnasviðið í heild nær yfir 7.530 ferkílómetra svæði. Af þessu gætu menn dregið þá ályktun, að laxveiði hlyti að vera mjög mikil í Þjórsá. En svo er ekki. Árleg meðalveiði á svæðinu s.l. 5 ár hcfur verið urn 1.500 laxar. Nokkur göngusilungsveiði er einn- ig í ánni, auk selveiði sem er reyndar önnur saga en fjalla skal um. Skýringu þess að laxveiði er ekki nteiri en raun ber vitni í Þjórsá, rniðað við stærð svæðisins, liggur í því fyrst og fremst, að áin er ekki fiskgeng nema að Búðafossi, sem er í 48 km fjarlægð frá ósi hennar í sjó. Á þessu svæði er aðeins ein þverá, sem í er lax, þ.e. Kálfá í Eystrihrepp, sem fellur í ána um 4 km fyrir neðan Búðafoss. Hins vegar er ljóst að miklir möguleikar til aukinnar fiskgengdar eru fyrir hendi á þessu öfluga vatnasvæði. Búðafoss í Þjórsá. var rúmlega 1.600 laxar, en þess ber að geta, að árin 1977, 1978 og 1979 kom í ljós verulegur árangur af seiðasleppingu í árnar í Þjórs- árdal. Veiðimálastofnunin gerði tilraun með sleppingu kviðpoka- seiða og startfóðraðra laxaseiða í árnar. Má hiklaust gera ráð fyrir að þessi tilraunaslepping hafi skilað um 7 þús. laxa umframveiði á þessum þremur árum. Seinustu fimm ár hefur árleg meðalveiði verið um 1.500 laxar, sem fyrr greinir. Miklir fiskræktarmöguleikar Ljóst er af þeirri reynslu, sem fékkst af sleppingu laxaseiða á ófiskgengt svæði og þeirri vitneskju um skilyrði fyrir lax á öðrum ófiskgengum svæðum árinnar, að miklir möguleikar til aukningar á fiskgengd liggja í Þjórsársvæðinu. Það, sem hefur tafið fyrst og fremst framkvæmdir í þessa veru, er fjár- skortur. Félagið hefur samþykkt að leggja 5% gjald á laxveiðitekjur á svæðinu og jafnvel þó að inn- heimtist, er sýnt að það dugir engan veginn til þess að unnt sé að ráðast í meiriháttar sleppingar eða aðrar fiskræktarframkvæmdir. Til þess að það verði gert að góðu gagni, þarf jafnframtönnurúrræði. Þjórsá ein besta stangaveiðiá landsins? Eins þáttar um laxveiðimál Þjórsár er ógetið. Það er sú breyt- ing, sem orðið hefur á vatnsrennsli árinnar. Vegna virkjunarfram- kvæmda og orkuvinnslu, hefur vetrarvatn árinnar aukist og áin orðið tærari að sumrinu en hún var áður. Menn sjá fyrir sér í náinni framtíð vegna áframhaldandi framkvæmda og uppistöðulóna á svæðinu glæsilega stangaveiðiá. Það verður vissulega spennandi fyrir stangaveiðimenn að fá tæki- færi til að spreyta sig við veiðiskap í Þjórsá og víst er að á efri hluta árinnar verða eftirsótt veiðisvæði. Til þess að það geti orðið verður að gera fiskveg um Búðafoss. Hve- nær hann kemur liggur ekki Ijóst fyrir núna. En það verður að opna gönguleið fyrir lax og annan göngu- fisk um Búðafoss sem allra fyrst. eh Myndin er tekin þegar aðalfundar- menn í Þjórsárfélaginu skoðuðu fískeldisstöðina í Fellsmúla. Frá vinstri: Einar Einarsson, Urriða- fossi, Sigurður Þórðarson, stöðvar- stjóri, Ölvir Karlsson, Þjórsártúni og séra Hannes Guðmundsson, Fellsmúla. M\ndir Einar Hannesson. Árneskvísl í Þjórsá, rétt neðan Hestafoss. Sérkennilgur hraun- hleri. Veiðimaður sést rétt neðan við hlerann. Unnið að lagfæringu gönguleiðar fyrir lax í Árneskvísl Þjórsár hjá Hestafossi. ætla má að slepping laxaseiða muni aukast verulega á næstunni. Laxveiðin Laxveiði á Þjórsársvæðinu er nær eingöngu netaveiði og fæst mestur hluti veiðinnar á neðri hluta svæðisins. Á tímabilinu 1961 til 1970 var árleg meðalveiði á svæð- inu um 1.000 laxar. Sama tala um meðalveiði áranna 1971 til 1980 Laxveiðimál

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.