Tíminn - 24.07.1987, Qupperneq 16
16 Tíminn
Föstudagur 24. júlí 1987
DAGBÓK
Dagsferðir Ferðafélagsins
Sunnudagur 26. júlí
1) Afmælisganga nr. 4 - Botnsdalur -
Botnsheiði - Skorradalur. Missið ekki af
afrnælisgöngunutTh Gangið með Ferða-
félaginu í tilefni 60 ára afmælisins í
áfóngum að Reykholti í Borgarfirði.
Verð kr. 1.000. Brottför kl. 10. f.h.
2) Kl. 13 Fjöruferð í Hvalfjörð. Gengið
um Hvalfjarðareyri. Verð kr. 600.
Sunnudagur 26. júlí kl. 08 - Þórsmörk -
dagsferð. Munið að tilkynna þátttöku í
dagsferðina. Verð kr. 1000. Njótið
sumarsins í Þórsmörk hjá Ferðafélagi
fslands í Langadal.
Miðvikudagur 29. júli:
1) kl.08 - Þúrsmörk - dagsferð. Verð kr.
1.000.
2) kl. 20 - Tröllafoss og nágrenni. Ekið
að Hrafnhólum og gengið þaðan með
Leirvogsá að Tröllafossi. Brottför frá
Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Far-
miðar við bíl. Fritt fyrir börn í fylgd
fullorðinna.
Ferðafélag fslands
Fararheillf^
^5^
Startarar -
Alternatorar
fólksbíla -
vinnuvélar
og bátar
12 V og 24 Volta Delco
Remy, Bosch Cav,
Lucas og fl. fyrir
Caterpillar, Perkings,
Leister, Volvo, Scania,
japanska og evrópska
fólksbíla.
Cav og Bosch 24 volta
alternatorar fyrir báta
og vinnuvélar.
Spennustillar fyrir
flestar gerðir alternatora.
Varahlutir fyrir startara og
alternatora.
Viðgerðaþjónusta.
Sendum í póstkröfu.
ÞYRILLHF.
Tangarhöfða 7
2. hæð
110 Reykjavík
Sími 91-673040
Sumarleyfisferðir
Ferðafélagsins:
29. júIí-3. ágúst (6 dagar): Eldgjá -
Strútslaug - Álftavatn.
Gönguferð með viðleguútbúnað. Ekið
i Eldgjá og gengið þaðan á fjórum dögum
í Álftavatn.
29. júlí-2. ágúst (5 dagar): Landmanna-
laugar - Þórsmörk.
Gengið frá Landmannalaugum milli
gönguhúsa F.f. til Þórsmerkur.
31. júlí-6. ágúst (7 dagar): Arnarfell
hið mikla - Þjórsárver - Kerlingarfjöll.
Gist í Þúfuveri í tjöldum fyrstu
nóttina, farið á bát yfir Þjórsá á laugar-
degi og gengið á Arnarfell hið mikla.
Síðan er gengið um Þjórsárver, Illahraun
og til Kerlingarfjalla. Þetta er gönguferð
með viðleguútbúnað.
31. júlí-3. ágúst (4 dagar): Núpsstaðar-
skógur.
Ekið í tjaldstað við fossinn Þorleif
míganda. Gönguferðir um nágrennið s.s.
Súlutinda, Núpsstaðarskóg, að Núpsá,
Hvítá og víðar.
7.-12. ágúst (6 dagar): Landmannalaugar
- Þórsmörk.
Gengið milli gönguhúsa með bakpoka
og mat, frá Landmannalaugum til Þórs-
merkur.
7.-16. ágúst (10 dagar): Hálendið norðan
Vatnajökuls.
Ekið norður Sprengisand um Gæsavatna-
leið í Herðubreiðarlindir, þar næst í
Kverkfjöll yfir nýju brúna við Upptypp-
inga og í leiðinni komið við í Oskju. í
Kverkfjöllum er dvalið í þrjá daga, þaðan
farið að Snæfelli og dvalið í tvo daga.
Heimleiðis er ekið sunnan jökla til
Reykjávíkur.
Pantið tímanlega í sumarleyfisferðirn-
ar. Upplýsingar á skrifstofu F.Í., Öldu-
götu 3. - Ferðafélag fslands.
Dagsferðir sunnudaginn 26. júlí.
Kl. 8.00 Þórsmörk, einsdagsferð. Dvalið
3 -4 klst. í Mörkinni. Verð kr. 1.000.-.
Munið ódýra sumardvöl í Básum.
Kl. 13.00 Skálafell v/Esju. Létt
fjallganga. Gott útsýnisfjall. Gengið til
baka um Svínaskarð að Stardal. Brottför
frá BSÍ, bensínsölu.
Sjáumst. - Útivist.
Útivist
Ferðir um verslunarmannahelgi 31. júlí -
3. ágúst.
1. kl. 20.00 Núpsstaðarskógar. Tjöld.
Einn skoðunarverðasti staður á Suður-
landi.
2. kl. 20.00 Lakagígar - Leiðólfsfell.
Gengið um Lakagíga. Ekið Línuveginn.
Heimum EldgjáogLaugar. Húsogtjöld.
3. kl. 20.00 Kjölur - Drangey - Skaga-
fjörður. M.a. farið um Laugafell, Vest-
urdal (að Hraunþúfuklaustri), í Skagafj-
örð og ógleymanlega Drangeyjarsiglingu.
Svefnpokagisting.
4. kl. 20.00 Þórsmörk. Ódýr Þórsmerkur-
ferð. Skálagisting í Básum
Laugard. kl. 8.00. Skógar - Fimmvörðu-
háls - Þórsmörk. Og Þórsmörk.
Sumarleyfísferðir.
1. Eldgjá - Strútslaug - Þórsmörk. 27.
júlí - 2. ágúst. Bakpokaferð. Fararstjóri:
Rannveig Ólafsdóttir.
2. Hornstrandir - Hornvík. 31. júlí - 4.
ágúst. Rúta eða flug til ísafjarðar, með
skipi til Hornvíkur og tjaldbækistöð þar.
Fararstjóri: Lovísa Christianscn.
3. Lónsöræfí. 5.-12. ágúst. Tjaldbækistöð
við lllakamb.
4. Hálendishringur. 9.-16. ág. 8 dagar,
stytt ferð. Gæsavatnaleið - Askja -
Kverkfjöll - Mývatn.
5. Tröllaskagi 9.-15. ágúst. Ný ferð. Farin
Tungnahrygg úr Barkardal, að Hólum og
síðan ekið til Siglufjarðar, gengið þaðan
Héðinsfjörð til Olafsfjarðar. Gist íhúsum
og tjöldum. Uppl. og farm. á skrifst.,
Grófinni 1, símar 14606 og 23732.
Sjáumst.
mi
Sunnlendingar
Héraðsmót framsóknarmanna í Vestur-
Skaftafellssýslu verður haldið
í félagsheimilinu Tunguseli í Skaftártungu laugardag 25. júlí n.k. og
hefst kl. 22.30.
Dagskrá: Guðni Ágústsson flytur ávarp
Hjörtur Benediktsson fer með gamanmál
Hljómsveit Stefáns P. leikur fyrir dansi.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélögin.
Sumarferð ’87
Sumarferð framsóknarfélaganna verður farin 8. ágúst. Farin verður
Fjallabaksleið syðri. Skráning í síma 24480.
Framsóknarfélögin í Reykjavík.
BFÖ-BLAÐIÐ
f elaijMÍt Hlndindislrlatjs ukunuinud 1 Wi1 IW
rjórhjólin varasöm
„Ég reynl aö sjá blrtuna i tilverunni"
- %•** •ip.'Kj vmióut
Umferöin a isafiröi
BFÖ-blaðið
Félagsrit Bindindisfélags ökumanna,
2. tbl. 1987 er komið út. Þar er m.a. rætt
við Jónas Eyjólfsson yfirlögregluþjón um
umferðina á Isafirði, en í síðasta tölublaði
var rætt um umferðina á Akureyri. „Ég
reyni að sjá birtuna í tilverunni" er
yfirskrift á viðtali við Hreggvið Jónsson,
nýkjörinn alþingismann og félaga í Bind-
indisfélagi ökumanna. Frá Umferðarráði
eru ýmsar leiðbeiningar til ökumanna og
hvatningarorðin „Ökum af viti í sumar -
og reyndar alltaf". Greint er frá Heilsu-
skokki Ábyrgðar og lR, sem fer fram
við Laugardalslaugina á mánudögum,
miðvikudögum og fimmtudögum og er
Guðmundur Þórarinsson, þjálfari á
staðnum þá kl. 16.30-18.30. Margt fleira
efni er í blaðinu.
Heilbrigðismál
2. tbl. 35. árg. eru komin út. Þar er
margvíslegt efni að finna. M.a. er greint
frá heilbrigðisstefnu stjórnmálaflokk-
anna, sem flestir kjósa forvarnir. Rætt er
við Gunnar Þór Jónsson yftrlækni um
starfsemi slysadeildar Borgarspítalans
þar sem t.d. kemur fram að þriðji hver
Reykvíkingur kom á slysadeildina á síð-
asta ári. Gerð er grein fyrir gildi göngu-
ferða. Orsakir vöðvagigtar eru raktar.
Krabbamein í skjaldkirtli er algengara á
íslandi en í flcstum öðrum löndum nefnist
ein greinin, í annarri er sagt frá því að nú
séu á lífi um fjögur þúsund manns sem
fengið hafa krabbamein og sagt er frá
þróttmiklu starfi Krabbameinsfélagsins.
Ný menntamál
2. tbl. 5. árg. eru komin út. í þessu
blaði eru tveir grcinarflokkar og óvenju
margar greinar. Fyrri greinaflokkurinn
fjallar um fólk sem hefur af einhvbrjum
ástæðum lent utan við almenna skólakerf-
ið en sá síðari fjallar um mál sem olli
miklum deilum fyrir tveimur, þremur
árum: friðarfræðslu. Fastir þættir eru í
bla'inu en auk þeirra má nefna grein um
þjóðfræði og skólastarf og viðbrögð úr
Námsgagnastofnun við grein um stofnun-
ina í síðasta tölublaði.
Útgefandi Nýrra menntamála er
Bandalag kennarafélaga og ritstjóri
Hannes Ólafsson.
Guðsþjónusta fyrir
ferðafólk í
Heydalakirkju
Sunnudaginn 26. júlí verður guðs-
þjónusta í Heydalakirkju í Breiðdal kl.
14. Ferðafólki á Austurlandi og nærsveit-
ungum er sérstaldega boðið að heimskja
Breiðdal og taka þátt í guðsþjónustunni.
Sóknarprestur, sr. Gunnlaugur Stefáns-
son, mun annast guðsþjónustuna og
kirkjukór Heydalakirkju undir stjórn
Árna ísleifssonar, organista, mun leiða
safnaðarsönginn. Að lokinni guðsþjón-
ustu er kaffi hlaðborð á Hótel Staðarborg,
sem kirkjugestum gefst kostur á að njóta,
er kostar kr. 370 fyrir fullorðna.
í Breiðdal er gróskumikil ferðamanna-
þjónusta. Hótel Bláfell á Breiðdalsvík
veitir alhliða þjónustu við ferðafólk allan
ársins hring og nýlega hlaut það alþjóð-
lega viðurkenningu fyrir góða veitinga-
þjónustu. Sumarhótel er einnig rekið á
Staðarborg, þar sem veitt er öll almenn
ferðamannaþjónusta. f byrjun sumars
tók til starfa í Felli, Breiðdal, ferðaþjón-
usta bænda, sem býður gistingu og morg-
unverð á vægu verði.
Það fer vel á því að sækja Breiðdal
heim, taka þátt í guðsþjónustu í Hey-
dalakirkju, upplifa náttúrufegurð sveitar-
innar og njóta gestrisni heimafólks.
Sóknarprcstur.
Frístundahópurinn Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Frístunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi verður
laugardaginn 25. júlí. Lagt er af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10.00.
Markmið göngunnar er: Samvera, súr-
efni, hreyfing. Takið þátt í einföldu og
skemmtilegu frístundastarfi í góðum fé-
lagsskap. Nýlagað molakaffi.
Ókeypis helgarnámskeið
í hugleiðslu í Tónabæ
Dagana 24. til 26. júlí nk. standa Sri
Chinmoy friðarsamtökin fyrir námskeiði
í hugleiðslu sem leið.til sjálfsvitundar og
verður námskeiðið haldið í Tónabæ.
Leiðbeinandi verður Kangal Ben
Spector. Hann er 38 ára og i'rá Montreal
í Kanada. Spector hefur undanfarin 15 ár
stundað hugleiðslu undir handleiðslu jóg-
ans Sri Chinmoy sem er vel þekktur víða
um heim og stjórnar m.a. friðar-hug-
leiðslu hjá Sameinuðu þjóðunum. Sl. 7 ár
hefur Ben Spector ferðast vítt og breitt
um Bandaríki Norður-Ameríku, Kanada
sem og Ástralíu og Vestur-Evrópu og
leiðbeint á námskeiðum sem þessu. Hann
hefur auk þess komið fram í fjölda viðtals-
þátta bæði í útvarpi og sjónvarpi. Þetta er
önnur heimsókn hans til íslands. Fyrir
utan að kenna heimspeki og hugleiðsluað-
ferðir Sri Chinmoy, starfar Spector sem
ráðgjafi í tölvuforritun.
Sýnt hefur verið fram á að hugleiðsla
hjálpar við slökun og stuðlar að auknu
sjálfstraustri auk þess sem hún getur bætt
samskipti á milli fólks og aukið starfs-
hæfni. Spector mun kenna margar hug-
leiðslu- og slökunaræfingar svo hver finni
eitthvað við sitt hæfi.
Aðgangur að þessu námskeiði er
ókeypis og þátttaka öllum opin. Nánari
upplýsingar má fá í síma 13970.
Náttúruverndarfélag
Suðvesturlands:
Gönguferð um Reykjavík
í samvinnu við ýmsa aðila fer Nátt-
úruverndarfélag Suðvesturlands um helg-
ina gönguferð, að miklu leyti í náttúru-
legu umhverfi, sem tengir saman helstu
útivistarsvæði Reykjavíkur. Stansað
verður á allmörgum stöðum á leiðinni og
þar verða stuttar kynningar á náttúrufari
eða sögu, rætt verður um umhverfis- og
náttúruverndarmál og hvernig við getum
nýtt útivistarsvæðin betur, okkur öllum
til ánægju og fróðleiks.
Um ferðina.
1 Reykjavík er enn að finna jarðfræði-
leg fyrirbæri, mjög fjölbreytt lífríki og
sögulegar minjar sem þátttakendum gefst
kostur á að fræðast um í ferðinni. f
þessari gönguferð verður einnig gerð
tilraun til að brydda upp á nýjungum í
umhverfisfræðslu og jafnframt að hvetja
borgarana og borgaryfirvöld til að hjálpast
að við að gera Reykjavík að verðugum
vettvangi til útivistar s.s. til sam-
komuhalds, til gönguferða, náttúru-
skoðunar og söguferða eða til að njóta
þess að vera úti á hlýlegum og fallegum
stað. Borgarstarfsmenn eru að gera margt
skemmtilegt á því sviði eins og kynnt
verður á leiðinni. Gönguhraði verður við
allra hæfi og hægt verður að koma í
gönguna hvar sem er og vera með í henni
lengri eða skemmri tíma. Gönguleiðin
liggur víðast nálægt strætisvagnaleiðum.
Þeim sem ekki hafa gengið þessa leið
áður mun koma það skemmtilega á óvart
hve margt fallegt og forvitnilegt er þar að
sjá þegar náttúran er í fullum skrúða.
Leiðin.
Lagt verður af stað á laugardagsmorg-
uninn kl. 9.00 frá Gamla bryggjuhúsinu
Vesturgötu 2. Gengið verður eins og leið
liggur suður Aðalstræti og áfram með
Tjörninni að vestanverðu, um Hljóm-
skálagarðinn að Umferðarmiðstöðinni.
Þaðan verður farið kl. 11.00 suður í
Öskjuhlíð og niður í Fossvog og áfram
inn í Skógræktarstöðina og niður að
Fossvogslæk. Þaðan verðurfariðkl. 15.30
og haldið inn Fossvogsdalinn upp í Elliða-
árdal og göngu fyrri dagsins lýkur við
Árbæ um kl. 19.00.
Á sunnudagsmorgun verður haldið af
stað kl. 9.00 frá Árbæ í skoðunarferð um
Árbæjarsvæðið og síðan gengið niður í
Elliðaárvog. Þaðan verður svo farið yfir í
Laugardal. Úr grasagarðinum verður far-
ið kl. 14.00 niður í Laugarnes. Kl. 16.00
hefst ganga úr Laugarnesi, sem farin gæti
verið í ferskri hafgolu sjávarmegin við
Sætún og Skúlagötu. Gönguferðinni lýkur
á Árnarhóli kl. 18.00.
Listasafn ASÍ:
Áning ■ framlenging
Sýningin Áning ’87 í Listasafni ASÍ
hefur verið framlengd um eina viku.
Á sýningunni tefla ellefu listamenn í
ýmsum greinum fram verkum sýnum,
sem eru um margt ólík, en mynda þó
spennandi heild. Listamennirnir eru: Ása
Olafsdóttir, Gestur Þorgrímsson, Guðný
Magnúsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir,
Halla Haraldsdóttir, Jens Guðjónsson,
Ófeigur Björnsson, Sigrún Einarsdóttir,
Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna), Sigrún
Guðmundsdóttir og Sören Larsen.
Sýningin er opin virka daga kl. 16-20,
en laugardag og sunnudag kl. 14-22.
Henni lýkur sunnudaginn 26. júlí.
Helstu vextir við banka og sparisjóði (% á ári)
11. júlí 1987
(Ein * merkir breytingu vaxta frá síðustu skrá og þrjár *** vísa á banka
og/eða sparisjóði sem breyta vöxtum)
I. Vextir ákveðnir af bönkum og sparisjóðum
Lands- Útvegs- Búnaðar- Iftna&ar- Verslunar- Samvinnu- Alþýðu- Spari- Vegin
banki banki banki banki banki banki banki sjóftir meðaltðl
Dagsetning siðustubreytingar 11/7 11/7 11/7 11/7 11/7 21/6 1/7 11/7
Innlánsvextir: Hlaupareikningar 8.00* 6.00 6.00 8.00 6.00* 4J» 6.00 4.00" 6.40*
Ávísanareikningar 8.00* 6.00 6.00 6.00 6.00* 7.00 12.00 4.00» 6.80*
Alm.sparisj.bækur 15.00* 12.00 13.00 14.00 14.00* 10.00 12.00 15.00»’ 13.80*
Annað óbundiðsparifó’1 7-24.50 12-23.90 7-22.00 14-20.00* 11-22.50 12-18.00 3.50
7-22.00
Uppsagnarr.,3mán. 16.00* 15.00 13.00 15.00* 15.00 16.00 16.00* 13.80
Uppsagnarr.,6mán. 17.00 14.00 20.00 20.00* 17.00 19.00 17.00* 16.80*
Uppsagnarr.,12mán. 17.00* 19.00 20.00 26.50“" 17.70*
Uppsagnarr., 18mán. 25.00,) 27.00 25.50“" 25.60
Verðtr.reikn3mán. 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00
Verðtr.reikn6mán. 3.50 4.00 3.50 3.00* 3.50 3.00 4.00 3.50 3.50*
Ýmsirreikn. ’’ 9.00 5-6.50"
Sérstakar verðbætur 14.0* 12.00 18.00 14.00 12.00 10.00 12.00 1229.3"»’ 15.90*
Innl.gjaldeyrisreikn.: Bandarikjadollar 6.00 6.25* 6.00 6.25 6.50 6.00 6.50 6.50* 6.20*
Sterlingspund 7.50 8.00 8.00 7.50 9.00 8.00 8.00 7.50 7.80
V-þyskmóík 2.50 2.75' 2.75 2.75 3.50 3.00 3.00 3.00 2.80
Danskarkrónur 8.50 8.75* 8.50 8.50 10.00 9.00 900 8.50 8 60*
Útlánsvextir: Víxlar(forvextir) 27.00* 24.00* 24.00“ 28.50 28.50* 24.00“ 25.50 28.004' 26.30*
Hlaupareikningar 28.50* 25.50* 25.00 30.00 30.00* 25.00 27.00 29.50* 27.70*
þ.a.gmnnvextir 12.00 12.00 12.00 11.00 12.00 12.00 12.50 12.00 11.90
Alm.skuldabfólS) 28.00’ 25/25.5“* 28.00* 29.50 29.50* 25.00 26.50 29/29.5“* 27.90*
þ.a.gmnnvextir 10.00 12.00 12.00 11.00 12.00 1Z00 12.00 12.00 11.20
Verðtr.$kbr. að 2.5 ár5) 8.00* 7.5/8.07’’ 7.50 9.00* 8.00 7.00 7.50 7.88.0“’ 7.90*
Vefötr.skör.>2.5érsl 7.50 6.757.0'' 7.50 8.00 8.00 7.00 7.50 7.58.0“ 7.50
Afurðalán i krónum 23.00 21.00 23.00 23.00 23.00 24.00 23.00
Afurðalán i SDR 7.75 7.75 7.75 7.75 8.00 8.25 7.90
Afurðalán i USD 8.75 9.00 8.75 8.75 9.25 8.75 8.80
Afurðalán í GBD 10.00 10.50 10.00 10.00 10.75 11.50 10.40
Afurðalán í DEM 5.25 5.25 5.25 5.25 5.50 5.50 5.30
II. Vanskilavextir. ákveðnir af SedHabanka: Frá 1. júní 1987 2.8% (33.6% ár ári), 1. júlí 1987 3.0% (36.0% á ári).
III. Meðalvextir 21.5.87 (geta gilt i júni 87): Alm. skbr. 22.9% (10.2+12.7). vtr. lán að 2,5 árum 6.8% og minnst 2.5 ár 7%. Meðalvextr 21.6.87 (geta giit i
, júli 87): Alm. skbr. 24.6% (10.9+13.7), vtr. lán að Z5 árum 7.2% og minnst 2.5 ár 7.3%.
1) Sjá meðfylgjandi lýsingu. 2) Aðetns hjá Sp. Vólstj. 3) Aðeins hjá SPRON, Sp. Kóp., Hafnarij., Mýras., Akureyrar, Óiafsfj., Svarfd.. Siglufj.. Norðfj., Árstógsstr.
& Eyrar i Keflavik. 4) Viðsk.vixlar keypúr m.v. 26.0% vexti hjá Bún.banka 25.0% hjá Samv.banka og 26.5% hjá nokkrum sparisj. 5) Vaxtaálag á skuldabréf
til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, Verzi.b. beitir þessu ekki. 6) Aðeins hjá Sp. Bol, Mývetn., Reykd. og Akureyrar. 7) Lægn vextmir gilda ef um fasteignaveð
er að ræða. 8) Lægn talan er vegna kmlána. 9) Undant. er Sp. i Keflavik: Tékkareikn. 3%, alm. sparibók og sérst. verðbætur 10% og Sp. V-Hún:Tékkareikn. 7%.