Tíminn - 14.08.1987, Síða 7
Föstudagur 14. ágúst 1987
Tíminn 7
Á bæn á kristnu
útvarpsstöðinni
Kristilega útvarpsstöðin Alfa í
Kópavogi á um þessar mundir í þó
nokkrum rekstrarerfiðleikum. Hef-
ur Eiríkur Sigurbjörnsson nú ritað
bréf sem sent verður til allra kirkju-
deilda á íslandi og beiðist hann þar
hjálpar og stuðnings. Skorar hann
jafnframt á alla þá seni styðja vilja
óháða útvarpsstöð kristinna manna
að hjálpa til. Sem stendur hefur
Póstur og sími látið loka símanum
inn til upptökumanna vegna skulda
við stofnunina. Skuldirnar eru þó
ekki vegna afnotagjalda heldur
vegna dagskrárlínunnar frá Hamra-
borg 5 upp á Vatnsendahæð þar sem
sendirinn er.
Alfa er óháð kristileg útvarpsstöð
sem ekki er í neinum beinum tengsl-
um við einn söfnuð sérstaklega.
Hefur hún að markmiði að senda út
kristilegt efni í tali og tónuni. Tón-
listin er allt frá léttu rokki og upp í
hámessur. Lítið hefur verið lagt upp
úr því að afla auglýsinga til að létta
undir með rekstrinum en nú hefur
verið hafið átak í þeim málum.
Þannig ætti fjárhagslegur grundvöll-
ur að vera tryggari í framtíðinni. Nú
sem stendur hafa þó hlaðist upp
nokkrar skuldir. Pær eru að mestu
leyti gagnvart Pósti og síma enda
kostar um 50-60 þúsund að leigja
áðurnefnda dagskrárlínu á mánuði.
Tekist hefur að senija um jöfnun
vangoldinna greiðslna til áramóta en
ekki taldi Eiríkur nokkra leið að við
það mætti standa nema með öflugum
stuðningi velvildarmanna. Aðrar
skuldir eru mun minni, en það sem
helst ber að nefna í því sambandi eru
launagreiðslur, sem ekki hefur verið
gengið hart eftir. Stór hluti allrar
vinnu við dagskrá er inntur af hendi
án endurgjalds. Fram að áramótum
er ráðgert að greiða rúmlega hundr-
að þúsund á mánuði til lækkunar
skulda, ef nægur stuðningur fæst.
Samkvæmt hlustendakönnun,
sem Eiríkur vísar til í bréfi sínu og
bænarskjali, hlusta að jafnaði um
750-3000 manns á Alfa. Benda þeir
alfamenn á að það verði að teljast
einn stærsti prédikunarstóll á ís-
landi. Hann er í gangi í 14 tíma á
sólarhring þar sem flutt er ljúf og
róandi tónlist og inn á milli er lesið
upp úr Ritningunni, farið með bænir
og hlustendur örvaðir í trúnni og
styrktir í dagsins önnum.
Dæmi eru þess að einstakir
söfnuðir og kirkjur hafi lagt fram
mánaðarlegan styrk til Alfa og hefur
það borið uppi starfið og ekki síður
kjarkinn í útvarpsprestunum. KB
Eiríkur Sigurbjörnsson stjórnandi Alfa útvarpsstöðvarinnar.
Um fimmta
hver kona
1 íslandi
1 99
Um fimmta hver íslensk kona
á aldrinum 15-44 ára tekur „pill-
una" árið um kring og hefur það
hlutfall nánast staðið í stað það i
sem af er þessurn áratug, að því
er frarn kemur í nýrri skýrslu um
lyfjanotkun. Það svarar til þess
að um 11.000 konur séu „á pill-
unni" hverjusinni. Heiidsöluverð
þeirra rúmlega 140.(KX) pillu-
pakka sem seldir voru í fyrra var
rúmlega 21 milljón króna en aö
viðbættri smásöluálagningu,
söluskatti og afgreiðslugjaldi hafa
þær væntanlega kostað í kring
um 46 milljónir króna út úr
apólekinu, Þessi „getnaðárvarn-
arskattur" hefur því verið urn
4.200 krónur á hverja konu að
meðaltali.
Tölur unr ,pi Uunotkun" hjá
„frænkum" okkar á Norðurlönd-
um eru ekki handbærar yngri en
frá 19N3. En þá hafði notkun
veriö á uppleið á öllum Norður-
löndunum nema íslandi frá 1979.
Af hverjum 1(K) konum áframan-
grcindum aldri í Svíþjóð voru þá
29 „á pillunni", um 25 (fjórða
hver) í Danmörku, uní 18 t
Noregi og aðeins um 13 í Finn*
landi. Má því segja að ísland hafi
verið . í miðjunni hvað varðar
notkun getnaðarvarnaþillunnar.
- ÍIEI
Norrænu bændasamtökin NBC:
Tryggja verður
grundvöll
norrænna
landbúnaðarafurða
Sambandsfundur norrænu
bændasamtakanna NBC var hald-
inn í Villmanstrand í Finnlandi 4.
til 6. ágúst.
Fundurinn samþykkti ályktun
varðandi umhverfisvernd, alþjóða-
markað, hungur í heiminum og
sjálfsnægtir Norðurlanda í öryggis-
skyni.
NBC leggur áherslu á að fjöl-
skyldubúið verði áfram sem hingað
til ráðandi búskaparform á
Norðurlöndum. Norðurlönd leggi
öryggi sitt sem felst í innlendri
matvælaframleiðslu til grundvallar
í verndun landbúnaðar síns.
Tekjuþróun hjá norrænum bænd-
um geti ekki byggst á verðsveiflum
á alþjóðlegum markaði sem stýrist
af undirboðum og því sé hæfileg
innflutningsvernd nauðsynleg.
Ennfremur er í ályktuninni full-
yrt að Norðurlöndin framleiði ó-
spilltustu landbúnaðarafurðir í ver-
öldinni og því verði að tryggja
grundvöll þeirrar framleiðslu svo
hún geti haldið áfram um ókomna
framtíð.
NBC styður eindregið þá við-
leitni sem höfð er uppi, m.a. innan
vébanda GATT og fleiri samtaka
að koma lagi á heimsverslunina því
óeðlilegt sé að alþjóðlegir markað-
ir skuli vera yfirfullir og verðstríð
geisa á meðan hungur sé óleyst
vandamál hjá öðrum hlutum
heims.
Norrænir bændur vilji starfa í
samræmi við náttúruna en það
krefjist skýrrar stefnu í umhverfis-
málum og landbúnaðarstefnu (
rökréttu samhengi við hana. Þróa
verði framleiðsluna þannig að nei-
kvæð áhrif á umhverfið verði hverf-
andi og auka verði ábyrgð þeirra
sem starfa við landbúnað. Um leið
verði stórvirkustu mengunarvald-
arnir, iðnaðurinn og sveitarfélögin
að bregðast við á sama hátt því allir
þegnar þjóðfélagsins og veraldar-
innar allrar verði að finna lausnir
og bera kostnaðinn af mengunar-
vörnum.
Af íslands hálfu sóttu fundinn
f.h. Stéttarsambands bænda þeir
Ingi Tryggvason, Gunnlaugur Júl-
íusson og Jón Gíslason. Fyrir hönd
Framleiðsluráðs Gunnar Guð-
bjartsson, Haukur Halldórsson og
Þórarinn Þorvaldsson. Fyrir hönd
Osta-og smjörsölunnar Óskar H.
Gunnarsson og Páll Lýðsson fyrir
hönd Sláturfélags Suðurlands.
ABS
Tónlist í bátum:
Maggi Kjartans með
hljómborð í eldgíg
Ef þig langar á sérstæða sumartón-
leika og þig langar til að sjá Magga
Kjartans með hljómborðið sitt ofan
í eldgíg, þá eru Kertónleikarnir
sniðnir fyrir þig.
Tónleikarnir eru haldnir í sant-
vinnu nokkurra einstaklinga og Hér-
aðssambandsins Skarphéðins, en
aldrei fyrr hafa slíkir tónleikar verið
haldnir í eldgíg á íslandi, en gígurinn
heitir Kerið og er í Grímsnesi.
Hljómburðurinn þar er talinn injög
sérstæður, en tónlistin verður flutt
um borð í bátuni úti á vatninu.
Þeir sem koma fram á tónleikun-
um eru Kristján Jóhannsson, óperu-
söngvari og Lára Rafnsdóttir píanó-
leikari, Kristinn Sigmundsson
óperusöngvari og Jónas Ingimundar-
son píanóleikari, Björgvin Halldórs-
son söngvari, Hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar og Erna Gunnars-
dóttir, Ásgeir Steingrímsson tromp-
etleikari og hljóðmeistari verður
Pétur Kristjánsson.
Listamennirnir koma fram endur-
gjaldslaust, en héraðssambandið
mun selja aðgang að tónleikunum til
fjáröflunar til að létta á erfiðri
fjárhagsstöðu sem kom upp eftir
áætlaða útihátíð um verslunar-
mannahelgina. Miðaverð er krónur
500, en ókeypis fyrir 14 ára og yngri
og ellilífeyrisþega. -SOL
Við Kerið