Tíminn - 14.08.1987, Page 12
12 Tíminn
Föstudagur 14. ágúst 1987
ÍÞRÓTTIR
lllllll
llllllllllllll
Íllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
flllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Undanúrslitin í bikarkeppninni í knattspyrnu:
- Vilberg Þorvaldsson varhetja Víöismanna í gærkvöldi er hannskoraöi markiðerkom þeim í úrslitin - Gífurleg fagnaðarlæti í Garöinum
Frá Frímanni Ólafssyni fréttaritara Tírnans á
Sudurnesjum:
Fögnuður lcikmanna og stuðn-
ingsmanna Víðis var gífurlegur í
leikslok eftir frækinn sigur á Vals-
mönnum í undanúrslitum Mjólkur-
bikarkeppni KSÍ. Ljóst var að blað
var brotið í sögu bikarkeppninnar.
Vaismenn voru mest allan leikinn
með knöttinn cn var fyrirmunað að
koma honum í mark Víðismanna.
Garðsbúarnir gerðu liins vegar það
sem þurfti til, skoruðu eitt mark og
fögnuðu sínum mesta sigri í sögu
félagsins.
Fyrri hálfleikurinn var ekki
spennandi á að horfa. Daníel Ein-
arsson Víðismaður, besti maður
vallarins, átti fyrstu marktilraunina
á 6. mínútu en aukaspyrna hans var
varin af Guðmundi Baldurssyni.
Valsmenn tóku síðan leikinn í
sínar hendur, sóttu án afláts en
Víðir varðist vel eins og þeirra er
von og vísa. Jón Grétar Jónsson átti
fyrsta færi Valsmanna, skallaði að
marki Víðis á II. mínútu en Jón
Örvar markvörður var vel staðsett-
ur og bjargaði.
Sóknirnar hjá Val voru annars
frekar einhæfar og enginn virtist
gera tekið af skarið. I’cir fengu fá
færi og áttu t.d. aðeins þrjár horn-
spyrnur í hálfleiknum þrátt fyrir
sóknarþungann. Staðan jöfn í hálf-
leik 0-0.
Þorgrímur Þráinsson átti gott
skot að Víðismarkinu á 52. mínútu
en það fór rétt framhjá. Eftir það
hresstust Víðismcnn og sóttu
nokkuð.
Markið mikilvæga kom eftir
klukkustundarleik. Björn Vilhclms-
son komst inn í spil Guðna Bergs-
sonar og Sævars Jónssonar í Val-
svörninni, geystist fram og gaf til
hliðar á Vilbcrg Þorvaldsson. Vil-
berg tvínónaði ekki við hlutina
heldur skaut yfir Guðmund og í
Valsmarkið, 1-0 fyrir Víði.
Valsmenn settu allt á fullt í sókn-
inni, Magni Blöndal átti hörkuskot
að rnarki en Jón Örvar varði. Enn
sem fyrr var sókn Valsmanna ein-
hæf, spilað að nrcstu upp nriðjuna
þar sem vörn Víðis var sterkust
fyrir. Njáll Eiðsson fór í vörnina og
Guðni Bergs í miðherjann en þetta
var einfaldlega ekki dagur Reykja-
víkurliðsins og leikslokunum er lýst
hér að framan.
Víðismenn unnu þarna sinn
mikilvægasta sigur og mega vera
ánægðir. Daníel Einarsson var besti
maður liðsins og jafnframt vallar-
ins, orðinn varnarmaður í landslið^-
klassa.
Hjá Val var enginn einn betri en
annar og úrslitin sjálfsagt mikil von-
brigði fyrir stórliðið úr Reykjavík.
IVIikið cr hann erfiður þessi fótbolti: Árni Stefánsson Þórsari og Ragnar Margeirsson Framari hvíla sig í Laugardalnum í gær og horfa á tilþrif
Raldvins Þórsmarkvarðar. Júlíus Tryggvason fylgist einnig með. Tímamynd - Pjciur
Undanúrslitin í bikarkeppninni í knattspyrnu:
Lítil spurning í Laugardal
- Framarar unnu sannfærandi sigur á Þórsurum 3-1 og mæta Víði í bikarúrslitunum
íslandsmeistarar Fram komu sér í
úrslit bikarkcppninnar í ár með
sanngjórnum sigri á Þórsurum frá
Akureyri á Laugardalsvelli í gær-
kvöldi. Fram sigraði 3-1 eftirað hafa
verið 2-0 yHr í hálfleik.
Leikurinn í gær var þófkenndur
framan af en Reykjavíkurliðið náði
brátt afgerandi tökum á viðureign-
inni. Pétur Arnþórsson skoraði
fyrsta markið á 19. mínútu, rak þá
fótinn í knöttinn eftir langa fyrirgjöf
Viðars Þorkelssonar. Þarna var upp-
dekknig Þórsara slæm eins og reynd-
ar oftar í leiknum.
Pétur Ormslev náði síðan tveggja
marka forystu á 30. mínútu og var
fallega staðið að því marki. Ragnar
Margeirsson gaf fyrst á Kristinn sem
sendi langan bolta á Pétur Arnþórs-
son á fjærstöng. Pétur lyfti boltanum
til nafna síns sem skoraði með föstu
skoti, óverjandi fyrir annars hinn
ágæta markvörð Þórsara, Baldvin
Guðmundsson.
Fyrri hálfleikurinn var eign Fram-
ara og varla hægt að segja að Þórsar-
ar hefðu gerst aðgangsharðir við
mark Reykvíkinganna.
Síðari hálfleikurinn var tíðinda-
meiri. Kristján Kristjánsson Þórsari
komst einn í gegn á 54. mínútu en
Friðrik varði vel fast skot hans.
Skömmu áður hafði Pétur Ormslev
sent á Kristján Jónsson sem komst
einn í gegn en Baldvin varði örugg-
lega.
Framarar voru hættulegir í sókn'-
araðgerðum sínum, Ragnar Mar-
geirsson tók boltann vel á sig og var
stöðugt ógnandi. Guðmundur
Steinsson náði hins vegar ekki að
losa sig eins vel úr strangri gæslu
Nóa Björnssonar og reyndar elduðu
þeir grátt silfur saman er líða tók á
leikinn.
Fallegasta markið kom á 67. mín-
útu. Framarar spiluðu stutt á milli
sín út á hægri væng, Guðmundur
Steinsson gaf stungubolta á hinn
duglega Órmar Örlygsson sem
komst upp að endamörkum og gaf
fastan bolta fyrir á Ragnar Margeirs-
son er skoraði með góðu skoti í
hornið, vel spilað hjá Frömurum og
umbunin gott mark.
Þórsarar náðu að klóra í bakkann
skömmu síðar. Þeir fengu auka-
spyrnu út á hægri væng og upp úr
henni var Júlíusi Tryggvasyni brugð-
ið innan vítateigs. Hann tók sjálfur
vítaspyrnuna og skoraði örugglega.
Akureyringarnir tóku kipp við
markið, vissu að þeir höfðu ekki
spilað vel og vildu bæta úr. Sóknirn-
ar strönduðu þó flestar á góðri vörn
Framara og auk þess voru hvorki
Hlynur Birgisson né Halldór Áskels-
son á skotskónum í þetta skiptið,
leikurinn fjaraði út og sigur Fram
var fullkomnlega sanngjarn.
Þórsarar náðu ekki að byggja upp
almennilegt spil, munurinn á þeim
og Frömurum var t.d. sá að varnar-
menn liðsins voru nánast úr leik er
það hafði boltann, bæði Árni og Nói
eru ágætir „étarar“ en ekki mikið
meira. Hlynur Birgisson átti góða
spretti frammi hjá Þórsurum en
miðjan olli hins vegar vonbrigðum,
Einar, Siguróli, Jónas, Kristján og
Guðmundur Valur geta miklu
meira.
Friðrik Friðriksson var öryggið
uppmálað í marki Fram. Þorsteinn
Þorsteinsson hafði góðar gætur á
Halldóri Áskelssyni í þessum leik.
Ragnar Margeirsson var sterkur
frammi og Pétur Ormslev, nafni
hans Arnþórsson og Ormar Örlygs-
son stóðu sig vel. Aðall Fram var
jafnt og spilandi lið sem greinilega
er á góðri siglingu um þessar mundir.
Eyjólfur Ólafsson dæmdi, var
flautuglaður til að byrja með en
efldist í dómgæslunni er líða tók á
leikinn.
„Nei, nú lýgur Árni.“ Guðmundur Steinsson glottir, Árni Stefánsson útskýrir
málid fyrír Eyjólfi dómara scm biður um frið. Tímamynd • Pjeiur
KR-dagur
KR-dagurinn 1987 verður um
helgina þ.e. laugardaginn 15. ág-
úst og gefst þá fólki tækifæri til að
sjá þá uppbyggingu sem orðið
hefur á félagssvæði Reykjavíkur-
liðsins fornfræga.
Keppt verður í ýmsum íþrótta-
greinum á KR-svæðinu þennan
dag. Knattspyrnudagskráin er að
vanda viðamest og er eftirfar-
andi:
Kl. 12:00 íslandsmót 3. flokks kvenna.
Völlur 1 Týr-KR
Völlur 2 UBK-ÍBK
Kl.13:00 6. flokkur karla.
Völlur 1 A-lið KR-Fram
Völlur 2 B-lid KR-Fram
Kl.13:30 5. flokkur karla.
Völlur 3 KR-Víkingur
Kl. 13:40 7. flokkur karla.
Völlur 1 KR-Fram
Kl.14:40 4. flokkur karla.
Völlur 3 KR-Grótta
Kl. 16:00 íslandsmót 3. flokks kvenna •
Úrslit.
Völlur 1 KR-ÍBK
Völlur 2 Týr-UBK
Kl.17:00 3. flokkur karla.
Völlur 3 KR-Fram
Aö auki veröur boðiö upp á
glímu, borðtennis, badminton og
fimleika. Pokahlaup veröur milli
deildarstjórna og kraftakarlarnir
Jón Páll, Hjalti Úrsus og fleiri
láta sjá sig.
KR-konur annast svo kaffiveit-
ingar í félagsheimilinu.
Víðismenn Valsbanar!