Tíminn - 14.08.1987, Qupperneq 14
14 Tíminn
Föstudagur 14. ágúst 1987
FRÉTTAYFIRLIT
KÚVAIT — Hernaöarlegur
og stjórnmájalegur þrýstingur
jókst í garð íranstjórnar þegar
stjórnvöld í Kúvait þökkuöu
vestrænum ríkjum fyrir aðstoð
við að halda siglingaleiðinni
um Persaflóann opinni.
KÚVAIT — Bandaríska or-
ustuskipið Guadalcanal sigldi
með þyrlur er leita uppi tundur-
dufl áleiðis til Persaflóans þar
sem það mun innan skamms
fá aðstoð breskra og franskra
tundurduflaleitara.
JÓHANNESARBORG
— Svartir verkamenn er vinna
við framleiðslu á gullstöngum í'
Suður-Afríku gengu í lið með
250 þúsund svörtum námu-
verkamönnum og lögðu niður
vinnu. Þetta eru mestu vinnu-
deilur í sögu landsins.
SEOUL — Roh Tae-Woo
leiðtogi stjórnarflokksins í Suð-
ur-Kóreu sagði á blaðamanna-
fundi að þeir fjölmörgu sem
lagt hefðu niður vinnu hefðu
rétt til að krefjast hærri launa
og betri aðbúnaðar.
JERÚSALEM — Lögreglan
í ísrael sagðist hafa slasað tvo
útlendinga og handtekið sex
aðra þegar hún dreifði hópi
mótmælenda fyrir utan banda-
rísku ræðismannsskrifstofuna
í Austur-Jerúsalem. Hópurinn
var að mótmæla hersetu ísra-
elsmanna á Vesturbakkanum
og á Gazasvæðinu.
MOSKVA — Þúsundir sov-
éskra barna alast upp án for-
eldra sinna og án þess að ríkið
sinni þeim. Það var yfirmaður
nýstofnaðra samtaka í landinu
er lætur sér annt um málefni
barna, sem lét hafa þetta eftir
sér.
LUNDÚNIR - iranska
fréttastofan IRNA sagði írani
hafa skotið niðurfjórar írakskar
herþyrlur í bardögum á norður-
vígstöðvunum.
MANILA — Hvirfilvindurinn
Betty æddi yfir Filippseyjar í
gær og létust sjö manns í
óveðrinu auk þess sem heimili
þúsunda manna lögðust í rúst.
Þá fór rafmagn af í að minnsta
kosti sex bæjum.
MOSKVA — Stjórnvöld í
Sovétríkjunum gáfu út fyrir-
skipanir sem ætlað er að auka
uppskeru og gera landsmenn
minna háðari korninnflutningi
frá Vesturlöndum.
PEKÍNG — Kínverskir land-
mælingamenn sögðu að Ever-
est tindurinn í Nepal væri enn
hæstu allra fjallatinda þrátt fyrir
fullyrðingar bandarískra fjall-
göngumanna að tindurinn
Qogir í Karakorumfjöllum við
landamæri Kína og Pakistan
væri 38 metrum hærri en Ever-
est.
UTLÖND
lllllll!lllllli!l
III
lllllllil
Persaflóastríöið:
Efnavopn gegn efnavopnum
- íranar segjast hafa rétttil þess aö svaraefnavopnaárásum íraka á sama hátt
SÞ-Rcutcr
Stjórnvöld í íran segjast eiga rétt á
því að nota efnavopn til að svara
slíkum árásum íraka. Þctta kom
fram í bréfi sem Iranar sendu til
Sameinuðu þjóðanna.
Bréfið var sent til Javier Perez De
Cuellar aðalritara SÞ og þar lýstu ír-
anar yfir því að þeir tækju ekki mark
á banni á efnavopnahernaði sem
samþykkt var í Genf árið 1925,
a.m.k. í einhvern tíma þar sem þcir
hcfðu fullan rétt til að svara efna-
vopnaárásum íraka.
Bæði íranar og írakar hafa skrifað
undir samþykktina frá árinu 1925.
Það var Ali Akbar Velayati utan-
ríkisráðherra írans sem sendi bréfið
til aðalritarans og þar var minnt á
árás íraka á borgina Sardasht í júní-
mánuði.
Vclayati sagði að þessi tólf þúsund
manna borg hefði orðið fyrir árás ír-
aka og hefði verið notast við efna-
vopn. Rannsóknarmenn frá SÞ
komu til borgarinnar níu dögum eftir
árásina og fundu þá mikla efnaeitr-
un.
Velayati gagnrýndi yfirlýsingu SÞ
frá því í maímánuði og taldi hana
máttlausa. Yfirlýsingin var birt eftir
að lýst var yfir í skýrslu að efnavopn
hefðu verið notuð í Persaflóastríð-
inu. Þessi skýrsla var einmitt unnin á
vegum SÞ.
Frá kirkjugarði í íran: Fórnarlömb-
um stríðsins fjölgar með degi
hverjum.
Danmörk:
Kosningar í
næsta mánuði?
Kaupmannahöfn-Rcutcr
Raddir eru nú uppi um að kosn-
ingar vcrði haldnar í Danmörku um
miðjan septembermánuð. Þessar
raddir fengu aukinn hljómgrunn í
gær þegar Poul Schlúter forsætisráð-
herra landsins ncitaði að láta hafa
eitthvað eftir sér urn þetta mál.
Minnihlutastjórn fjögurra flokka
undir stjórn Schlúters hefur setið að
völdun síðan árið 1982 og verður að
boða til kosninga ekki síðar en í
janúar á næsta ári. Stjórnmála-
skýrendur hafa hingað til talið að
nóvember sé líklegasti kosninga-
mánuðurinn.
Dagblaðið Information hafði hins
vegar í gær eftir heimildarmönnum
á æðstu stöðum að Schlúter myndi
síðar í þessum mánuði kalla þingið
saman og tilkynna þar að kosningar
verði þann 15. scptember.
Talsmaður forsætisráðherrans
sagði hann ekkert vilja láta hafa eftir
sér um þetta mál er blaðamenn vildu
forvitnast um frétt Information í
gær.
Sumir efnahagssérfræðingar hafa
spáð því að efnahagur Dana fari
versnandi síðar á árinu og er það
talin helsta ástæðan fyrir því að
Schlúter vilji halda kosningar fyrr en
Bretland:
Stærðfræðisnilli
Lundúnir-Rcutcr
Níu ára gamall strákur varð í
gær yngsti Bretinn til að ná prófi er
veitir honum aðgang að háskóla.
Vanalega eru það helmingi eldri
krakkar sem reyna við þetta próf.
John Adams heitið „séníið“ og
náði „A“ áfanga í stærðfræði með
því að standast próf í faginu. í
prófinu þurfti hann meðal annars
að fást við flóknar jafnmunarunur
og keilusnið.
Adams var ekki lengi með fyrri
hluta prófsins, kom út fjörutíu
mínútum áður en þurfti að skila.
Stráksi kemur frá Leicestershire
í Mið-Englandi og þurfti að útvega
honum sérstakan stól og borð sem
hæfði hæð hans.
Faðir Adams er sjálfur stærð-
fræðikennari og hefur sjálfsagt
hjálpað syni sínum við að bæta met
það er Ruth Lawrence átti. Hún
tók „A“ stigið er hún var nfu ára
og tíu mánaða gömul, fór síðan í
Oxford háskólann og lauk þar
prófi með ágætiseinkunn 13 ára
gömul.
Adams sagði við blaðamenn í
gær að hann hefði hug á því að
hefja nám við Oxford háskólann
og verða síðan prófessor í stærð-
fræði.
Stefnir í breytingu á bjórkrám í Englandi og Wales:
Opið allan daginn
Það kannast líklega margir fslend-
ingar sem ferðast hafa til Englands
við kallið „Time, please" þegar
klukkan slær þrjú á bjórkrám þar í
landi. Á næsta ári verður breyting á,
kallið góðkunna mun hverfa því
ríkisstjórn Margrétar Thatchers hef-
ur ákveðið að fella niður eftirmið-
dagslokunina og leyfa bjórkrám að
vera opnum frá klukkan 11 á morgn-
ana til 11 á kvöldin alla daga nema
Skoðanakönnun í Bandaríkjunum:
Kanar vilja karl
í Hvíta húsið
Washington-Reutcr
Nærri þriðjungur bandarískra
kjósenda telur að karlmaður sé
betur til þess búinn en kvenmaður
að vera forseti Bandaríkjanna.
Þetta kom fram í niðurstöðum
skoðanakönnunar sem kvenrétt-
indahópur lét vinna.
Niðurstöðurnar voru birtar í vik-
unni og þar kom fram að aðeins
8% aðspurðra töldu konur hafa
nieiri hæfileika til að bera en
karlmenn til að verða góðir forset-
ar. Hins vegar voru 31% aðspurða
á því að karlmenn væru hæfastir til
að fara með stjórn mála í Hvíta
húsinu.
Tæplega 50% þeirra sem svör-
uðu könnuninni sögðu að ekki væri
hægt að meta eftir kynferði hvort
forseti yrði hæfur stjórnandi eður
ei.
Flestir aðspurða töldu konur
hæfari til að fást við félagsleg mál
s.s. heilbrigðismál, menntun, eit-
urlyfjaneyslu og málefni fátækra.
Heiðarleiki og trú á málefni voru
frekar tengd við konur en
karlmenn.
Karlmenn höfðu hins vegar vinn-
inginn þegar fást þurfti við „tækni-
leg“ mál, til að mynda vopnamál,
erlend viðskipti, landbúnaðarmál
og ríkisfjármál.
sunnudaga.
Bretar hafa löngurn verið þekktir
fyrir íhaldssemi en loksins hafa þeir
nú samþykkt að afnema þessi
skrýtnu lög sem sett voru á tímum
fyrri heimsstyrjaldarinnar og hafa
verið í gildi síðan.
Byrjað var að loka breskum krám
frá kl. 3 til kl. 5.30 árið 1917. David
Lloyd George og ríkisstjórn hans
ákvað þá að á meðan hugdjarfir
hermenn þjóðarinnar létu lífið á
erlendri grundu væri það minnsta
sem fólk við hergagnaframleiðslu
heima fyrir gæti gert að koma ekki
drukkið í vinnu eftir að hafa fengið
sér snarl á kránum.
Erlendir ferðamenn hafa síðan
litið á lokunina sem eitt af einkenn-
um landsins og sett það jafnfætis
öðrum s.s. volgum bjór og vondu
veðri.
Stjórn Thatchers á að vísu eftir að
leggja fram tillögu um þessa breyt-
ingu fyrir þingið en fátt virðist geta
komið í veg fyrir að þessi nýju lög
verði samþykkt í haust og taki svo
gildi á næsta ári.
Reyndar er nokkuð víðtækur
stuðningur við tillöguna og sumir
vilja jafnvel ganga lengra, leyfa
lengri opnunartíma á sunnudögum
og að foreldrar fái að koma með
börn sín inn á krárnar til að gera
staðina heimilslegri.
Englendingar og Walesbúar eru
seinir til í þessum efnum því í
Skotlandi var eftirmiðdagslokunin
lögð niðurfyrirtíu árum. Samkvæmt
skýrslum hafa sjúkdómar tengdir
áfengisneyslu ekki aukist á þessu
tímabili og fjöldi þeirra sem teknir
hafa verið drukknir undir stýri hefur
raunar hækkað minna í Skotiandi en
sunnan landamæranna.
Áfengisvarnarsamtök í landinu
eru þó ekki sannfærð um að eftirmið-
dagsopnunin verði til góðs. Þau telja
að ef ríkisstjórninni sé umhugað um
að gera lögin um opnunartíma frjáls-
ari ætti hún einnig að hvetja til þess
að eigendur bjórkráa legðu aukna
áherslu á mat og skemmtiatriði á
stöðum sínum.
Þau benda einnig á að áfengis-
drykkja landsmanna sé gífurleg, um
ein milljón manna í Englandi og
Wales sé háð áfengi og rúmlega
fjórtán milljónir atvinnudaga fari í
súginn vegna vínneyslu.
Meirihluti þjóðarinnar virðist
samt sem áður vera sammála orðum
þeim sem biskupinn frá Peterbor-
ough lét frá sér fara árið 1872 þegar
lög um áfengissölu voru samþykkt:
„Frjálst England er betra en ódrukk-
ið England.
ÚTLÖND
UMSJÓN:
Heimir
Berqsson
BLAÐAMAÐUR