Tíminn - 14.08.1987, Qupperneq 15
Föstudagur 14. ágúst 1987
Tíminn 15
MINNING
Guðmundur Sigurðsson
Fæddur 3. ágúst 1896.
Dáinn 6. ágúst, 1987.
Guðmundur Sigurðsson, fyrrum
bóndi, hreppstjóri og oddviti frá
Hlíð í Grafningi lést að Vífilsstöðum
6. ágúst sl. og verður kvaddur hinstu
kveðju í dag að Kotstrandarkirkju í
Ölfusi.
Guðmundur, afi okkar, fæddist
að Grímslæk í Ölfusi, sonur hjón-
anna Sigurðar Bjarnasonar og Pál-
ínu Guðmundsdóttur, sem síðar
bjuggu að Riftúni í Ölfusi. Sigurður
og Pálína eignuðust 13 börn. Fimm
þeirra dóu í æsku, en af þeim, sem
náðu fullorðinsárum eru Helga, Sig-
urpáll, Svanborg og Vilborg látin.
Eftirlifandi systkini Guðmundar eru
Sigríður, Sigrún og Þorleifur. Einnig
var Fjóla Halldórsdóttir, dóttir
Svanborgar alin upp af þeim
hjónum.
Fyrir giftingu vann Guðmundur
við bú foreldra sinna og stundaði
sjóróðra á veturna. Einnig var hann
rjúpnaskytta góð. Hann kvæntist
ömmu, Helgu Jónsdóttur, f. 9. ágúst
1897, þann 31. desember 1926 og
náðu þau því að eiga gullbrúðkaups-
afmæli 1976. Saman eignuðust þau
fjögur börn, Björn, kvæntan Berg-
þóru Snæbjörnsdóttur, Sigrúnu,
gifta Halldóri Ásmundssyni, Vig-
dísi, gifta Baldri Guðmundssyni og
Inga, kvæntan Ingibjörgu Skarphéð-
insdóttur. Helga átti tvær dætur frá
fyrra hjónabandi, þær Fanneyju
Benediktsdóttur, d. 1962, er gift var
Halldóri Halldórssyni og Benediktu
Benediktsdóttur, d. 1971, er gift var
Ellerti Halldórssyni.
Guðmundur og Helga hófu bú-
skap sinn í Reykjavík, þar sem þau
bjuggu í tvö ár, síðan í Þorlákshöfn í
sex ár, og að Hlíðarenda í Ölfusi í
þrjú ár. Þá fluttu þau að Hlíð í
Grafningi þar sem þau voru búsett í
um 25 ár eða þar til þau brugðu búi
og fluttu til Reykjavíkur 1963, þá á
efri árum en þar var heimili þeirra
að Baldursgötu 13. í Reykjavík
starfaði hann í Völundi fram undir
áttrætt.
Lengst af starfsævi sinni var hann
bóndi og alla ævi í hugsun. Hann
vildi veg íslenska landbúnaðarins
sem mestan, sauðkindin var heilög
og að gá til veðurs að morgni var
fastur liður einnig eftir að á mölina
var komið. Þjóðmál voru honum
hugleikin, pólitíkin var á hreinu og
hann fylgdist vel með í þeim efnum
alla tíð. Afi var þrekmaður til sálar
og líkama. Handtak hans var ákveð-
ið og þétt og lýsti vel persónuleikan-
um. Hann varstefnufasturoghringl-
andi honum fjarri. Hann naut ætíð
trausts þar sem hann var og gegndi
margvíslegum trúnaðarstörfum.
Guðmundur var í hreppsnefnd
Grafningshrepps 1946-63, oddviti
frá 1949 og hreppsstjóri frá 1958.
Samtímis var hann sýslunefndar-
maður og í ýmsum nefndum og
ráðum fyrir sína sveit og sýslu.
Einnig var hann umboðsmaður fyrir
Brunabótafélag íslands o.fl.
Alltaf var gott að koma til afa og
ömmu á Baldursgötuna, þar skorti
aldrei umræðuefni og oft glatt á
hjalla. Þar var hlýju að finna fyrir
okkur barnabörnin, sem eru 27 að
tölu og þau barnabarnabörnin, sem
náðu að kynnast langafa og lang-
ömmu.
Þegar amma lést 1983 var eins og
lífskraftur afa minnkaði til muna
enda aldurhniginn og var hann að
mestu á sjúkrahúsum eftir það.
Hann gladdist við hverja heimsókn
og þáði að halda í hendur þeirra,
sem honum þótti vænt um. Hann
hélt níræðisafmæli sitt hátíðlegt fyrir
ári síðan og naut þess þá mjög að
eiga stund með ættingjum svo og
vinum úr sinni fyrri heimasveit.
Þökkum við fyrir hönd aðstand-
enda starfsfólki í Hátúni og að
Vífilsstöðum góða aðhlynningu.
Sjálfar viljum við þakka afa okkar
margar ánægjulegar og fróðleiksríkar
samverustundir. Blessuð sé minning
hans.
Helga G. Halldórsdúttir,
Erna Bryndís Halldórsdóttir.
{ dag er til moldar borinn afi minn
Guðmundur Sigurðsson. Ég mun
minnast afa míns sem stórbrotins
manns. Það var gott að koma í kaffi
á Baldursgötuna. Þar var alltaf tekið
á móti manni meðhlýjuog glaðværð.
Ég mun seint gleyma þeim ánægju-
stundum þegar við sátum saman og
töluðum um sveitina, sem var hans
líf og yndi. Það voru mörg góð ráð
sem ég sótti í sjóð afa um hestamenn-
skuogrjúpnaveiði. Þaðvarhreykinn
unglingur sem kom til afa síns og
sagði honum frá folakaupum. Við
ræddum það löngum stundum
hvernig best væri að fóðra folann og
síðar temja hann. Árangurinn lét
ekki á sér standa, folinn varð góður
og gegn.
Ég vil þakka afa alla þá hvatningu
og uppörfun sem hann veitti mér í
leik og starfi.
Með þessum fátæklegu orðum
kveð ég góðan vin og afa. Minningin
unt hann lifir.
Hvíl í friði.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Bricm)
Guðmundur Baldursson.
1111)1111
LESENDUR SKRIFA
Ut í náttúruna - hugvekjubrot
Hlusta þú - hlusta þú á raddir
náttúrunnar - söngstef fuglanna í
algeymingi, er þeir fljúga um sól-
ríkan víðáttugeiminn, og ber þú þá
augum, er þeir tylla sér, við og við
meðal urta, einhversstaðar meðal
moskenndra hleina, sumstaðar í
fjölgróskunni, hlusta þú á nið lauf-
vinda er þeir bylgja sef vatnsins,
hvar sem það fyrirfinnst, út í
náttúrunni - það mun gera þig
jákvæðari en áður, því hugurinn
fyllist lotning fyrir lífi og lögmáls-
kenndu samspili móður náttúru,
sem hefur svo ótal margt að geyma
í skauti sér, sem hrífur bætir og
gleður - því nú er sumar... Hlusta
þú - Hlusta þú á gjálfur hverrar
öldu við ströndina við flóann, þar
sem hún fyllir smá saman í sendinn
spor elskendanna, er hittust hér
fyrst í vor, á leynilegu stefnumóti
- þú veist kannski ekki, en horfir
með spurn í augum á þessi hverful-
leikans spor, og það hvarflar
kannski að þér, að hversu forgengi-
leg þessi lífsmynd geti verið, eins
og sérhvert sumar sem tekur enda,
þá kemur ávallt að lokum haust -
haust fallandi laufa í mold-moldar
er geymir kraft og anda sérhvers
sumars, í minningunni, löngu eftir
það hefur kvatt í bili... Hlusta þú.
ég tala nú ekki um ef þú berð
hverja eining, í sumardýrð náttúr-
unnar augum af einlægni hugar
þíns og hjarta, þá hefur þú fundið
lykil hamingjunnar, og hvcr vill
ekki verða hamingjusamur. nógur
sjálfum sér, á heilbrigðan og já-
kvæðan máta... það er löngu vitað,
að sumir leita langt yfir skammt, í
þeim efnum leita langt yfir skammt
að auðnu og rósemi huga síns og
hjarta - finna hana stundum á
slægu refilstigum tilverunnar í
margskonar freistingum -það virð-
ist þeirra mál í bili - en - sumir fá
aðstoð við leit sína að sannri auðnu
og lífsfyllingu, og sumir finna hana
eins og af sjálfsdáðum eftir mis-
langa leit, og segja kannski við guð
sinn í leiðinni, eins og segir í einu
gömlu ljóði, berðu mig til blóm-
anna í birtu og yl, þeir verða
bænheyrðir, því þeir eru á réttri
leið, því móðir náttúra stendur
ávallt fyrir sínu, engu síður en í
garð þeirra, sem skemmra eru á
veg kontnir í sannri auðnuleit -
það kemur sumar eftir vor, og ef
þú hlustar vel og berð margvíslegar
gjafir móöur náttúru - augum,
þarft þú engu að kvíða, þó þig
skorti eitt og annað í bili, og
hryggist kannski yfir því, finnst þér
ekki þá vera lausn að leita út í
náttúruna og opna hug þinn -
hjarta og sál, fyrir fegurð hennar
og mikilleik, bera bæn þína fram
sem í téöu Ijóði berðu mig til
blómanna, í birtu og yl kannski
uppfyllist ósk þín, því móðir nátt-
úra, á sér margar ljúfar hliðar, en
umfram allt, bætin... gæðin, og fer
ekki í manngreiningarálit...
26.-27.7. 1987
Gunnar Sverrisson,
Þórsgötu 27, Reykjavík
Heilsugæslustöð á Þórshöfn
Heildartilboð óskast í innanhússfrágang á heilsu-
gæslustöð á Þórshöfn.
Innifalið í verkinu er t.d. múrhúðun, pípulagnir,
raflagnir, dúkalögn, málun, innréttingasmíði.
Verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 1988. Útboðs-
gögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7,
Reykjavík gegn 10.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 1.
sept. 1987 kl. 11.30.
INNKAUFASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Tilkynning til launa-
skattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
eindagi launaskatts fyrir mánuðina maí og júní er
17. ágúst nk. Sé launaskattur greiddur eftir
eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því
sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Nýtt - laxveiði - nýtt
Laxveiði við nýtt veiðisvæði „Norðlingafljót Borgar-
firði“. Boðið er upp á mikinn lax í fallegri veiðiá og
ákaflega fögru umhverfi.
Óseld veiðileyfi verða seld næstu daga hjá eftir-
töldum aðilum:
1. Sveinn Jónsson, s. 84230-14131
2. Þorgeir Jónsson, s. 685582
3. Fljótstunga Hvítársíðu, s. 93-51198.
Verð veiðileyfa kr. 5000 pr. stöng pr. dagur.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldsskóla:
Umsóknarfrestur um áður auglýsta stöðu kennara í dönsku við
Iðnskólann í Reykjavík framlengist til 17. ágúst.
Við Menntaskólann í Hamrahlíð vantar stundakennara í ensku og
stærðfræði. Umsóknir skal senda fyrir 20. ágúst til skólameistara,
sem veitir nánari upplýsingar.
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi er laus staða kennara í
efnafræði og líffræði, rafiðnaðargreinum.
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið
Innilegar þakkir til vina og vandamana, sem glöddu
mig á áttræðisafmæli mínu, með heimsóknum,
gjöfum og kveðjum og gerðu mér daginn ógleyman-
legan.
Guð blessi ykkur öll.
Ólína Bergsveinsdóttir,
Hverfisgötu 17, Hafnarfirði.
t
Móðir okkar
Steinunn Gróa Bjarnadóttir
Háaleitisbraut 117
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. ágúst kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á
líknarstofnanir.
Fyrir hönd aðstandenda
Inger Traustadóttir Bjarni Traustason