Tíminn - 14.08.1987, Page 16
16 Tíminn
Föstudagur 14. ágúst 1987
Framsóknarkonur
Landssamband framsóknar-.
kvenna heldur landsþing sitt
aö Varmahlíð í Skagafiröi dag-
ana 4.-6. sept. n.k. Allar fram-
sóknarkonur hvattar til aö
mæta og taka með sér gesti.
Þeir sem vilja láta skrá sig á
þingið hafi samband við fram-
kvæmdastjóra L.F.K., Guð-
rúnu Kristjánsdóttur á skrif-
stofu flokksins, Nóatúni 21 í
síma 91-24480.
. Nánari upplýsingar síðar.
Snyrtivöruverslun
til sölu
Til sölu snyrtivöruverslun í verslunarkjarna í
Reykjavík mjög hentugt fyrir 1-2, hægt að skapa
aðstöðu fyrir snyrtistofu. Rekstur á uppleið. Fæst
á góðu verði ef samið er strax.
Upplýsingar í síma 91-53521 eftirkl. 19.00.
Framleiðslustjóri -
Fiskvinnsla
Framleiðslustjóri óskast í umfangsmikla fisk-
vinnslustöð á Vestfjörðum. Reynsla æskileg. Góð
laun og fríðindi í boði fyrir góðan mann.
Upplýsingar í síma 685414 eða 685715.
Framleiðni sf.
Allt í stofuna
Rodos sófasett 3+1+1, sófaborð'+ lítið borð og
bókahilla, hár skenkur, borðstofuborð og sex háir
stólar allt sami viður, askur. Er rúmlega 1 árs frá
TM húsgögnum. Vandað og fæst á góðu verði.
Upplýsingar í síma 91-53521, eftir kl. 19.00. ,
Kennsla
Menntaskólann við Sund vantar kennara í efnafræði
12 stundir á viku.
Upplýsingar veita deildarstjóri í efnafræði Hafþór
Guðjónsson í síma21647 og rektor skólans í síma
33419 eða 35519.
Rektor.
Tilkynning til söiuskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir júlímánuð er 15. ágúst.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna
ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Sjúkraþjálfara
og iðjuþjálfa
vantar við sérdeildir Hlíðaskóla.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 25080 eða
656280.
Hey til sölu
Til sölu úrvalshey. Upplýsingar í síma 93-51283.
, «
Sýning Lars Emils Arnasonar
1 dag föstudaginn 14. ágúst klukkan
20.00 opnar Lars Emil Arnason mál-
verkasýningu í Gallert Hallgerði
(Langbrók) Bókhlöðustíg 2.
Á sýningunni eru um 20 olíumálverk,
auk teikninga og skúlptúra.
Lars Emib hefur tekið þátt í nokkrum
samsýningum hér heima og erlendis, en
þetta er fjórða einkasýning hans hér á
landi.
Lars Emil er 25 ára Reykvíkingur.
Hann stundaði nám við Myndlistaskólann
í Reykjavík, Myndlista- og Handíðaskóla
Islands, auk þriggja ára framhaldsnáms í
Hollandi.
Sýningin er opin frá klukkan 16.00 til
20.00 alla virka daga, en frá klukkan
14.00 til 20.00 um helgar.
Öll verkin á sýningunni eru til sölu.
Sveinn Bjömsson sýnir í
Gallerí Svart á hvítu
Á morgun, laugardaginn 15. ágúst
verður opnuð í Gallcrí Svart á hvítu við
Úðinstorg sýning á verkum Sveins
Björnssonar listmálara.
Sveinn er fæddur að Skálum á Langa-
nesi 1925. Hann byrjaði að mála samhiiða
sjómennsku 1948. Fyrstu einkasýningu
sína hélt hann í Hafnarfirði 1952. Síðan
hefur hann tekið þátt í miklum fjölda
samsýninga á íslandi og erlendis. Fyrsta
einkasýningSveins í Rcykjavík var haldin
í Listamannaskálanum 154. Sveinn er að
mestu sjálfmenntaður, en hann var við
nám við Listaakademíuna í Kaupmanna-
höfn 1956-1957. Hann hefurhaldiðeinka-
sýningar í Reykjavík og Kaupmannahöfn
og tekiö þátt í samsýningum víða, svo
sem í Rijcka í Júgóslavíu, Berlín og
Lubeck
Sýning Sveins Björnssonar stendur frá
15. ágúst til 1. scptember. Gallerí Svart á
hvítu er opið alla daga ,nema mánudaga,
kl. 14:00- 18:00.
Sýning Valtýs í Þrastalundi
Sýningu Valtýs Péturssonar listmálara
í Þrastalundi lýkur á sunnudag 16. ágúst.
Þetta er 14. sýning hans þar - á jafn
mörgum árum, og stendur ávallt um
verslunarmannahelgi. Sýningin var mjög
fjölsótt. Þetta var sölusýning.
Næsta ár verður því 15. árið í röð, sem
Valtýr Pétursson sýnir í Þrastalundi og
mun hann mæta þá galvaskur með nýjar
myndir.
Gallerí Svart á hvítu:
Sýningar hafnar á ný
eftir sumarhlé
1 Gallerí Svarl á hvítu hefjast nú að
nýju reglubundnar sýningar eftir sumar-
hlé. Fyrsta sýningin verður opnuð á
morgun, Iaugardag, en þá verður sýning
á vcrkum Sveins Bjornssonar listmálara.
Sigurður Örlygsson sýnir málverk 26.
september-11. október.
Georg Guðni sýnir olíumálverk, teikn-
ingar og vatnslitamyndir 17. október-1.
nóvember.
Margrét Árnadóttir Auðuns sýnir mál-
verk 7. nóvember-22. nóvember.
Hálendisferð í 5 daga
Félag eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni ráðgerir 5 daga hálendisferð
dagana 26.-30. ágúst.
Farið verður norður Sprengisand,
Gæsavatn og Öskju og í Herðubreiðar-
lindir, en síðan til Mývatns og suður um
Kjöl. Gisting verður í Nýjadal, Laugum í
Reykjadal og í Þelamerkurskóla.
Nánari upplýsingar verða gefnar á
skrifstofu félagsins í síma 28812.
Kaffisala í Ölveri
Kaffisala verður í sumarbúðunum í
Ölveri í Borgarfirði, sunnudaginn 16.
ágúst. Messa verður á undan kaffisölunni
og hefst hún kl. 14.30. (hálfþrjú).
Allur ágóði af kaffisölunni rennur til
uppbyggingarstarfsins. Nefndin
Sumarleyfisferðir Útivistar
1. Ingjaldssandur o.fl. Margir áhuga-
verðir staðir á skaganum milli Önundar-
fjarðar og Dýrafjarðar verða skoðaðir,
t.d. Nesdalur, Barði, Hrafnaskálanúpur
o.s.frv. Gist í húsi. Enginn burður. Berja-
land.
2,lsafjarðardjúp, berja- og skoðunar-
ferð 20.-23. ágúst. Snæfjallaströnd,
Kaldalón og fleiri staðir í Inndjúpi
skoðaðir. Siglt verður í Æðey. Pantið
strax. Gist í húsi.
3,Núpsstaöarskógar 27.-30. ágúst.
Einn af athyglisverðustu stöðum á Suðurl-
andi. Tjöld. Upplýsingar og farmiðar á
skrifstofunni Grófinni l.símar: 14606 og
23732. Útivist
Meðlimir í Myndlistarklúbbi Hvassaleitis,
sem um þessar mundir sýnir í EDEN í
Hveragerði.
Sýning í EDEN Hveragerði
Myndlistarklúbbur Hvassaleitis heldur
sýningar í Eden í Hveragerði vikurnar
11.-18. ágúst og 18.-25. ágúst.
Fyrri vikuna (11.-18. ág.) sýna þau:
Aðalbjörg Jónsdóttir, Ásgeir Valdemars-
son, Hólmfríður Jóhannesdóttir, Jón
Jónsson, Ólafur Páll Betúelsson, Ólöf
Sigurðardóttir, Sigurbjörg Ólafsdóttir,
Sigurbjörg Sigurjónsdóttir og Þórunn
Sveinbjarnardóttir.
Seinni vikuna (18.-25. ág.) sýna: Aðal-
björg Zophaníasdóttir, Ellen Bjarnadótt-
ir, Franz Pálsson, Gestur Magnússon,
Gísli Benjamínsson, Huida Höjdahl, Jó-
hanna Daníelsdóttir, Rebekka Gunnars-
dóttir og Þórey Jónsdóttir.
Hljómleikar í Bústaðakirkju
Hljómsveit unga tónlistarfólksins.
Stjórnandinn Guðmundur Óli
Gunnarsson er í öftustu röð t.v.
Sunnudaginn 16. ágúst kl. 20.30
verða haldnir tónleikar í Bústaða-
kirkju þar sem hljómsveit skipuð
ungu tónlistarfólki leikur. Flutt
verða þrjú verk: Oktett eftir Hróð-
mar I. Sigurbjörnsson, fiðlukonsert
nr. 5 í A-dúr, K-219 eftir Wolfgang
Amadeus Mozart og balletttónlist
Appollon Musagéte eftir Igor Stra-
vinskí. Einleikari á fiðlu verður
Auður Hafsteinsdóttir en stjórnandi
hljómsveitar Guðmundur ÓIi Gunn-
arsson.
Oktett Hróðmars fyrir 5 blásara
og 3 strengjaleikara er skrifaður
1984-85 og er síðasta verkið sem
hann skrifaði áður en hann hélt til
framhaldsnáms í Hollandi en hann
leggur stund á tónsmíðanám við
tónlistarháskólann í Utrecht.
Einleikari tónleikanna, Auður
Hafsteinsdóttii' er ein úr hópi ungra
efnilegra fiðluleikara sem verið hef-
ur við nám erlendis síðustu ár. Hún
hélt til náms vestur um haf eftir nám
sitt við Tónlistarskólann í Reykjavík
og hefur dvalið 4 ár í Boston.
Síðasta verkið á tónleikunum á
sunnudaginn ballettinn Appollon
Musagéte, er skrifað fyrir strengja-
sveit árið 1928 en kom út í endur-
skoðaðri mynd 1947. Þaö er í hópi
aðgengilegustu verka Stravinskí og
var frumflutt í Washington í apríl
1928 en hefur ekki enn verið flutt
opinberlega hérlendis.
Hljómsveitin sem leikur á tón-
leikunum er skipuð ungum hljóð-
færaleikurum að stórum hluta fólki í
sumarfríi frá námi erlendis.
Stjórnandi tónleikanna, Guð-
mundur Óli Gunnarsson stundar
nám í hljómsveitarstjórn við tónlist-
arháskólann í Utrecht í Hollandi.
Alls taka 26 manns þátt í flutningn-
um. Tónleikarnir verða sem fyrr
segir í Bústaðakirkju á sunnudags-
kvöldið 16. ágúst og hefjast kl.
20.30.
, Háls- nef og eyrnalæknar:
Á Austfjörðum og Suðurlandi
Einar Sindrason háls-. nef-, og eyrna-
læknir ásamt öðrum sérfræöingum
Heyrnar- og talmeinastöðvar íslands
verða á ferð um Austfirði og Suðurland
dagana S.ágúst til 14,ágúst n.k..segir í
fréttatilkynnigu frá Heyrnar-ogtalnteina-
stöð íslands.
Rannsökuð verður heyrn og tal og
útveguð heyrnartæki.
Farið verður á eftirtalda staði:
Fáskrúðsfjörður .............. S.ágúst
Breiðdalsvík.................. 9.ágúst
Djúpivogur ............... 10. ágúst
Höfn í Hornafirði ........ 11. ágúst
Kirkjubæjarkl............. 13. ágúst
Vík ...........................14.ágúst
Tekið á móti tímapöntunum á viðkom-
andi heilsugæslustöð og er fólki bent á að
panta tíma sem fyrst.
Opna BRIDGE-MÓTIÐ á
Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum
Hótel Valaskjálf og Bridge-samband
Austurlands halda opið bridgemót í Hótel
Valaskjálf 21.-22. ágúst n.k.
Mótið hefst föstudagskvöldið 21. ágúst
kl. 20:00 og er miðað við 30-36 pör.
Mótinu lýkur á laugardagskvöldi með
sameiginlcgu borðhaldi og dansleik.
Vegleg peningaverðlaun eru fyrir sigur-
vegara. (1. verðl.kr. 40.000)
Þátttaka tilkynnist í gestamóttöku Hót-
els Valaskjálfar í síma 97-1500.
Allar nánari upplýsingar gefur Pálmi
Kristmannsson í stma 97-1421, Kristinn
Kristjánsson í sima 97-4221 og Steinþór
Ólafsson í síma 7- 1500.
Félag eldri borgara:
Hálendisferð í 5 daga
Félag eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni ráðgerir 5 daga hálendisferð
dagana 26.-30. ágúst. Farið verður norður
Sprengisand. Gæsavatn og Öskju og í
Herðubreiðarlindir, en síðan til Mývatns
og suður um Kjöl. Gisting verður í
Nýjadal, Laugum í Reykjadal og í Þela-
merkurskóla.
Nánari upplýsingar verða gefnar á
skrifstofu félagsins í síma 28812.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgótu 8, Hafnarfirði
Opið alla daga nema mánudaga kl.
14-18. Sími 52502.