Tíminn - 14.08.1987, Side 19
Föstudagur 14. ágúst 1987
Tíminn 19
\sr%é
\ ekRi beöið ettir ao
& írarntí ðardrautn-
Mandy Smith er 17 ara,
en hefur þó verið í
módelbransanum“ ífjögurár
Bill Wyman og Mandy - rétt áður en að slitnaði upp úr sambandinu
Pat, mamma Mandy, og Stephen,
sonur Bills, uröu líka ástfangin.
Það má segja, að þarna hafi
mæðgur og feðgar krossvíxlast
hún alltaf rífandi vinnu við fyrirsætustörfin (um hálfa
milljón króna fær hún fyrir hvert verkefni) og hún
hefur fengið ótrúlega hagstæð tilboð.
Samband hennar við Bill Wyman þótti sumum í
hæsta máta óvenjulegt, þar sem stúlkan var aðeins 13
ára en hann nýorðinn afi, 47 ára. Til að kóróna þetta
allt varð Pat (38 ára) - móðir Mandy - ástfangin af
Stephen Wyman (23 ára) - syni Bills.
Það var svo í Marbella á Spáni sem Mandy varð
hrifin af tvítugum strák og gaf þá Bill reisupassann, en
sagt er að Pat, mamma hennar, og Stephen Wyman
haldi enn saman. Aldursmunurinn er líka heldur
minni hjá því parinu.
ÞAð var ekki síst vegna þess hversu Mandy
líktist Brigitte Bardot að ijósmyndarar
voru æstir í að taka myndir af henni. Hún
var reyndar aðeins 13 ára þegar það allt
byrjaði.
Mandy leit út sem 16-18 ára þegar hún var aðeins
nýorðin 13. Þá kynntist hún hljómlistarmanninum Bill
Wyman úr Rolling Stones, sem var 47 ára. Hann varð
yfir sig skotinn í Mandy og þau fóru að vera saman,
þrátt fyrir 34 ára aldursmun!
Wyman kom henni á framfæri við módel-fyrirtæki
og þau voru saman í 3 ár, en þá vildi unga stúlkan
breyta til og ráða sér sjálf, enda orðin 16 ára!
Á þessu eina ári sem hún hefur sjálf séð um
starfsferilinn, hefur hún sungið inn á plötu „1 Just
Can't Wait", sem selst vel, og gcrðar hafa verið af
henni reynslukvikmyndir sem lofa góðu. Svo hefur
m
W
ÍfÍP
vxf:
Mandy er nú 17 ára og orðin mikil
kynbomba, en sagt er að hún hafi
líka verið það 13 ára, -að minnsta
kosti féil Bill Wyman, nýbakaður
afinn, fyrir henni ________
Enn ein ný
„Bardot“!
LOBERT Bullard, tví-
tugur Breti reyndi sex sinnum á
einum degi að stytta sér aldur, en
mistókst í öll skiptin.
( seinustu tilrauninni tókst hon-
um hins vegar að sprengja þakið af
húsinu og slasa tvær manneskjur -
en sjálfur slapp hann ómeiddur.
Ég var kjáni, viðurkennir Bull-
ard eftir á. Það er ekki mér að
þakka, heldur Guði, að éger hérna
ennþá.
Útlitið var fremur dökkt í mars
hjá Robert Bullard, sem er 22 ára.
Hann hafði misst vinnuna og hafði
ekki ráð á húsaleigu, heldur bjó til
skiptist hjá vinum sínum og kunn-
ingjum, meðan hann leitaði í ör-
væntingu að annarri vinnu.
Einn daginn, þegar ég var einn
heima hjá pabba, small eitthvað í
kollinum á mér, segir hann. Ég
ákvað skyndilega að fyrirfara mér,
fór og keypti sex dósir af sterkasta
bjórnum og pakka af sterkustu
verkjatöflum, sem hægt er að fá
án lyfseðils. Ég tróð handfylli af
töflunum upp í mig og skolaði
þeim niður með bjórnum. Þessu
hélt ég áfram, þangað til allar 24
töflurnar voru búnar og svo lauk ég
við bjórinn. Þá loks missti ég
meðvitund.
Einhverra hluta vegna rankaði
ég við mér eftir nokkrar klukku-
stundir. Fjárinn sjálfur, nú hef ég
Robert
Bullard er
þakklátur
fyrir að
ifa eftirsex
sjálfsvígs-
tilraunir
Maðurinn semgat @kki
DAID
Hann reyndi sjálfsvíg sex sinnum
samdægurs, en mistókst.Þá sprakk húsiö
í loft upp og hann slapp ómeiddur.
gert einhverja skyssu, sagði ég við
sjálfan mig.
Næst reyndi Robert Bullard að
skera á úlnliðsslagæðarnar. Ég
hamaðist með hnífinn, en hann
bara beit ekkert. Það var eins og
blaðið væri úr tré.
Þá fór ég inn á baðherbergi og
leitaði að rakvélinni hans pabba,
en hann notar þá einnota sköfu,
þar sem blaðið er lokað inni. Mér
tókst að brjóta eina slíka og ná í
hluta af rakblaðinu. Með því lagði
ég á ný til atlögu við úlnliðina á
mér og nú sá ég blóðbogann standa
út í loftið og féll í yfirlið.
Bullard átti hins vegar greinilega
ekki að deyja þennan daginn. Um
það bil klukkustundu seinna fór ég
að koma til sjálfs mín, heldur
vankaður, segir hann. Ég var atað-
ur blóði, en storknað var fyrir
sárin. Þá æstist ég allur, fór fram í
eldhús og skrúfaði frá gasofninum
og stakk höfðinu inn í hann.
Hundruð manna hafa dáið svona,
hugsaði ég. Nú bætist ég í hópinn.
Ég héit höfðinu inni í ofninum í um
það bil hálftíma, en þá varð mér
líka ljóst, að ekkert ætlaði að
gerast.
Hann gafst upp, áður en gasið
náði að gera honunt mcin og ákvað
nú að reyna enn eina aðferð. Ég
hcngi mig, hugsaði ég, náði í snúru
af sóltjöldunum fyrir glugganum.
batt annan endann unt hálsinn á
mér, en hinn í Ijósakrónukrókinn,
stökk síðan niður af sófabakinu -
en þá slitnaði snúran.
Aftur reyndi ég gasofninn í
stundarfjórðung eða svo, en þá
fékk ég svo mikinn náladofa af að
krjúpa á gólfinu, að ég lagðist
alveg niður.
Einmitt þá kornu unnusta föður
hans og vinkona hennar inn og
urðu hræddar, þegar þær fundu
gaslyktina. Þegar þær opnuðu fram
í eldhúsið, myndaðist sterkurdrag-
súgur, rifjar Bullard upp. Gasið
komst í snertingu við Ijósið á
vatnshitatækinu - og feikileg
sprenging varð. Eldhnöttur unt
metri á hlið þaut yfir eldhúsið og
út um gættina.
Allt þakið iyftist af húsinu og
einn veggurinn í eldhúsinu stór-
skemmdist. Bullard var hálfmeð-
vitundarlaus- en rneð öllu ómeidd-
ur.
Konurnar tvær voru fluttar á
sjúkrahús með brunasár, en náðu
sér fljótlega. Það kostaði um 3
milljónir (íkr.) að gera við húsið.
Seinna var Bullard fyrir rétti
fundinn sekur um skemmdir á
eignum með vítaverðu gáleysi.
Hann fékk tveggja ára skilorðs-
bundið fangelsi.
Ég ætlaði ekki að meiða neinn
nema sjálfan mig, segir hann. Þetta
var eintómur kjánaskapur. Nú á ég
vinkonu, framtíðarvonir og trú á
Guð og hef lært að nteta lífið.