Tíminn - 04.09.1987, Blaðsíða 2

Tíminn - 04.09.1987, Blaðsíða 2
2 Tíminn Föstudagur 4. september 1987 Fundur um samgöngumál Samgönguráðherra, Matthías Á. Mathiesen, efnir til funda með sveitarstjórnarmönnum um sam- göngumál á þeim stöðum sem nánar greinir í auglýsingu þessari. Á fundinum flytur ráðherra framsöguerindi um samgöngur í viðkomandi landshluta, en síðan verða almennar umröeður. í för með ráðherra verða fulltrúar stofnana er heyra undir samgönguráðuneytið og munu þeirtaka þátt í umræðunum, svara fyrirspurnum og veita upplýs- ingar eftir þörfum. Fundirnir, þ.á.m. fundarstaður og tími, verða nánar kynntir síðar í samráði við forystumenn landsftlutasamtaka sveitarfélaga. Vestf jarðakjördæmi: í Reykjanesi við ísafjarðardjúp í tengslum við ársfund Fjórðungssambands Vestfirðinga, föstu- daginn 4. sept., kl. 13.00. Suðurlandskjördæmi: Á Selfossi, fimmtudaginn 24. sept., og í Vest- mannaeyjum, föstudaginn 25. sept. Norðurlandskjördæmi eystra: Á Akureyri, þriðjudaginn 29. sept. Norðurlandskjördæmi vestra: Á Sauðárkróki, miðvikudaginn 30. sept. Austurlandskjördæmi: Á Egilsstöðum, þriðjudaginn 6. okt., og á Horna- firði, miðvikudaginn 7. okt. Vesturlandskjördæmi: í Stykkishólmi, föstudaginn 9. okt. Reykjaneskjördæmi: í Keflavík, þriðjudaginn 13. okt., og í Kópavogi, fimmtudaginn 15. okt. Reykjaneskjördæmi: í Keflavík, þriðjudaginn 13. okt., og í Kópavogi, fimmtudaginn 15. okt. Reykjavík: Fundur með borgaryfirvöldum, föstudaginn 16. okt. Samgönguráðuneytið. V Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri Læknaritarar Viljum ráða í tvær 50% stöður læknaritara á Bæklunardeild og Lyfjadeild. Vinnutími er frá kl. 12.00-16.00. Upplýsingar veita læknafulltrúar við- komandi deilda. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist skrifstofustjóra F.S.A. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri St. Jósefsspítali Landakoti Deildarritara Óskum eftir að ráða deildarritara í fullt starf nú þegar á handlækningadeild 3 B og gjörgæslu. Upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunarstjórnar alla virka daga frá kl. 10.00-16.00. Reykjavík 3. september Fjölmiðlaheimijrinn: ÚTVARP RÓT A LEID í L0FTID Aö líkum lætur að Útvarp Rót verði næsta viðbótin í íslenskum fjölmiðlaheimi. begar hafa 30 ein- staklingar, sent starfað hafa í ýmsurn félagasamtökum, stofnað með sér hlutafélag undir nafninu Útvarpsfé- lagið Rót hf. í fréttatilkynningu segir aö til- gangurinn með stofnun félagsins sé að koma á fót grasrótarútvarpi, sem muni útvarpa til Faxaflóasvæðisins. Markmiðið sé ekki að afla hagnaðar heldur að skapa vettvang fyrir þjóð- félagslega og menningarlega unt- ræðu. Þannig muni útvarpið leggja sérstaka rækt við umræðu um mann- réttindamál, þjóðfrelsisntál, velferð- armál, verkalýðsmál, umhverfismál. menningarmál, friðarmál, kvenfrels- ismál og síðast cn ekki síst uppeldis- og menntamál. Þá er annað nýnæmi varðandi hið nýja útvarp það að dagskrárgerðin verður í höndum þeirra einstaklinga og samtaka, sem áhuga hafa á að notfæra sér þá aðstöðu sem hún hefur upp á að bjóða. Síðan þegar stöðin vex er ætlunin að hafa dag- skrárliði í nafni Útvarps Rótar, s.s. frcttaþjónustu í tengslum við óháðar erlendar fréttastofur. Segja aðstandendur útvarpsins aö lífsnauðsynlegt sé fyrir félagssinnað fólk og félagasamtök að taka saman höndum í uppbyggingu og fyrirhug- aðri starfsemi Rótar. í því skyni verður boðið til kynn- ingarfundar um Rót hf. miðvikudag- inn 9. scptember kl. 20:30 í sam- komusal Sóknar að Skipholti 50A og hafa 250 félagasamtökum verið send fundarboð. A fundinum geta þessir aðilar skráð sig fyrir hlutabréfum á minnst 5000 kr. hvern hlut, en þó með þeim fyrirvara að enginn einn aðiii getur farið með meira en 4% atkvæða í félaginu. Ætlunin er að afla 3,5 - 4,5 m.kr. á þennan hátt. f>á má fá nánari upplýsingar hjá starfsmanni Rótar hf. á skrifstofu félagsins að Mjölnisholti 14, 3.h., þar sem opið er frá 15.00 - 17.00 daglega og í síma 91-623610. Hið nýja húsnæði félags eldri borgara Tímamynd Pjetur Vetrarstarf eldri borgara aö hefjast: Alltaf eitthvað að gerast í nýju húsi Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni hefur nú fengið nýtt húsnæði til afnota fyrir félagsstarfið. Það er í Sigtúni 3, annarri hæð og tekur salurinn um 250 manns í sæti og er fyrirhugað að taka til starfa laugardaginn 5. september. Þá verð- ur húsið opið frá klukkan 13 til klukkan 17 og verður dagskrá frá klukkan 1. Um kvöldið verður skemmtun sem hefst með borðhaldi klukkan 19.30. Þásyngur Friðbjörn G. Jónas- son við undirleik Sigfúsar Halldórs- sonar og Karl Guðmundsson leikari les upp, og síðan verður dansað. Miðar á skemmtunina verða seldir á skrifstofu félagsins í Nóatúni 17. Opna húsið sem var á laugardög- um í Sigtúni við Suðurlandsbraut hcfur nú færst yfir á sunnudaga. Á nýja staðnum verður hins vegar alltaf eitthvað að gerast á hverju kvöldi. Á mánudögum eru fyrirhug- aðar myndasýningar, á þriöjudögum og fimmtudagskvöldum verður spil- uð félagsvist, á miðvikudagskvöld- um og fimmtudögum verður spilað bridge og á föstudögum veröur upp- lestur, annað hvort æfiþættir, sögur eða ljóð. Mikill áhugi er á að konta upp ýmsum hópunt og klúbbum innan félagsins, t.d. bókmenntaklúbbi, leiklistarklúbbi, hljómplötuklúbbi og mörgu fleira. - SÓL Útvegsbankamálið reifað í gær Aðilar þeir sem gert hafa tilboð í hlutabréf ríkisins í Útvegsbank- ann hf. áttu í gær fund með við- skiptaráðherra í framhaldi af ósk ráðherrans um slfkar viðræður. En eins og fram kont í Tímanum í gær hyggst ráðherrann leita samkomu- lags ntilli aðilanna tveggja urn skiptingu á kaupum á Útvegsbank- anum. Jafnframt er á dagskrá þessara viðræðufunda auk Útvegsbankans sjálfs sú spurning hvort og hvernig möguleiki sé á sameiningu og hag- ræðingu bankakerfisins. Á fundin- um í gær voru „málin reifuð" eins og það var orðað en engin niður- staða fékkst. Samkvæmt heimild- um Tímans eru fáir fletir á þessu máli sem leitt gætu til santkomulags ef nokkur. Viðræðununt verður þó haldið áfram. en að sögn Jóns Sigurðssonar verða þessi mál skoð- uð í ráðuneytinu út þennan mánuð og á meðan verða bréfin ekki seld öðrum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.