Tíminn - 04.09.1987, Síða 3
Föstudagur 4. september 1987
Tíminn 3
Bergur Jónsson rafmagnseftirlitsstjóri:
Oft bregðast fagmenn alveg
"Rafmagnseftirlitið verður þess
oft áskynja, að fagmenn hafi valið
rangt raffangaefni, gengið frá lögn-
um og tengingum svo að ekki
samræmist reglugerð eða faglegum
vinnubrögðum. Stundum bregst
allt, hönnun, frágangur og eftirlit.
Þá er illa komið. Leitin að þekk-
ingu, löngunin til að auka víðsýni
og vandvirkni á að vera í fyrirrúmi
í daglegu lífi hvers manns, fag-
manna sem leikmanna. Einhvers
staðar hafa veigamiklir þættir
brugðist, ef mikil brögð eru að
slíkum raflögnum eða rafork-
uvirkjum," segir Bergur Jónsson,
rafmagnseftirlitsstjóri, í nýrri og
glæsilegri ársskýrslu Rafmagns-
eftirlits ríkisins (RER). Skýrsla
þessi er að sögn fyrsta sinnar
tegundar í svo góðum frágangi og
er það gert í tengslum við þátttöku
RER í heimilissýningunni Veröld.
Ásamt fjölmiklum upplýsingum
öðrum er að fynna í skýrslu RER
upptalningu á brunum og tjónum
af völdum rafmagns og einnig sér-
stakur listi yfir slys og tjón á
mönnum og dýrum.
Tölurnar eru vissulega hrikaleg-
ar og umhugsunarverðar. Alls er
talið í skýrslunni að 31 bruna og
annað tjón á síðasta ári, megi rekja
til rafmagns eða rafmagnsbúnaðar.
Það greinist þannig að þrjú tilvik
má rekja til háspennuvirkja og 28
bruna til lágspennuvirkja. Af þess-
um 28 eru 11 taldir frá raflögnunt,
12 frá biluðum raftækjum og 5
brunar frá rangri eða óvarlegri
notkun raftækja.
Fimrn slys urðu á mönnum á
árinu senr rekja má beint til rafbún-
aðar. Tvö þeirra voru í rafvirkjun
en þrjú í öðrunr starfsgreinum. Þá
drápust þrjú hross vegna snertingar
við háspennulínu og sex svín dráp-
ust af rafstraum frá lágspennu
vegna bilunar í neysluveitu.
Fjölmargt annað fróðlegt kemur
franr í skýrslunni sem dreift verður
á sýningunni Veröld á meðan hún
stendur. Síðar er fyrirhugað að
þessi fyrsti upplýsingabæklingur
verði borinn í hvert hús á landinu,
ef vera kynni að það mætti hvetja
menn til að hugsa almennt um
vandaðri frágang og vinnubrögð,
leika sem lærða.
KB
Af hverju „vaknaði" Verðlagsráð ekki fyrr en eftir 9
ára starfstíma?
Garðyrkjumenn
íhuga áfrýjun
til dómstóla
Úr því að vcrðlagsyfirvöld hafa
getað „þolað“ verðlagningaraðferð
Sölufélags garðyrkjumanna (fram-
boð/eftirspurn) í 47 ár og aldrei gert
athugasemdir, hvers vegna geta þeir
þá með engu móti þolað hana í 6
mánuði í viðbót, þ.e. þangað til
íyrirhugaður uppboðsmarkaður tek-
ur til starfa næsta vor? Þessi spurning
kemur fram í fréttatilkynningu sem
SFG sendi frá sér vcgna úrskurðar
Verðlagsráðs um ólöglegar verð-
lagningaraðferðir félagsins.
Að verð á blómkáli skuli t.d.
lækka úr 210 kr. kílóið í byrjun
niður í 50 kr. á háuppskerutíma og
verð á gulrófum úr 75 kr. niður í 20
krónur kílóið telur Sölufélag garðyr-
kjumanna gott dæmi um það að
framboð og eftirspurn sé látið ráða
við verðlagningu á garðávöxtum hjá
félaginu. Sami háttur hafi verið hafð-
ur á verðlagningunni öll 47 starfsár
SFG, en Verðlagsráð hafi þó ekki á
sínum 9 ára starfstíma séð neinn
annmarka á henni fyrr en nú í
sumar.
SFG telur „ákvörðun" Verðlags-
ráðs, sem tilkynnt hafi verið án alls
rökstuðnings, byggða á rangri túlkun
verðlagslaganna og að hún sé að
auki haldin alvarlegum formgöllum.
íhugar félagið af þeim sökum að
áfrýja „ákvörðuninni" til dómstóla.
- HEI
Áhöfnin á Venusi HF-519 á skólabekk aftur. Kennslan er hagnýt og tekur ca eina viku.
Áhöfn Venusar í Fiskvinnsluskólanum:
Lærir um meðferð fisks
Nú stendur yfir í Fiskvinnslu-
skólanum í Hafnarfirði námskeið
fyrir áhöfn frystitogarans Venusar
HF 519 og er námskeiðið haldið að
frumkvæði útgcrðar togarans og er
fyrsta námskeið þessarar tegundar
sem haldið cr fyrir áhafnir frysti-
togara.
Námskeiðið er að mestu bóklcgt
og stendur í eina viku. Námsefni er
fjölbreytt og spannar flesta þætti
sem snerta vinnslu sjávarafla. Leið-
beincndur eru frá Fiskvinnslu-
skólanum og víðar að og eru með
sérþekkingu hver á sínu sviöi.
Þess skal getið að öðrurn áhöfnum
frystitogara stendur slíkt námskeið
til boða.
Nánari upplýsingar fást í síma
53547 hjá Lárusi Björnssyni.
Meðal þess sem áhöfn Venusar
lærir er hagnýting fiskafla, hráefnis-
gæði, gerlagróður, hreinlæti, um-
hirða, meðferð og stillingar flöku-
narvéla, æti og næringarástand fisks,
þrifaðferðir og búnaður og um sníkj-
udýr í fiski, svo nokkur dæmi séu
tekin úr kennsluskránni.
Yfirleitt er kennt frá 8 á morgnana
til 17 á daginn.
Allir að drífa sig!
- SÓL
Sprengisandur
úr eigu Tomma
GGS hf. hefur komist að sam-
komulagi við Tómas Andrés Tómas-
son, Tomma, um kaup á veitinga-
staðnum Sprengisandi við Bústaða-
veg í Reykjavík. Breytingar á
rekstrinum eru að sögn ekki fyrir-
hugaðar enn sem komið er. Fyrir-
tækið GGS hf. á og rekur fjóra
Tomma hamborgarastaði fyrir á
höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt því
að hafa keypt alla þessa staði af
Tomma hefur fyrirtækið selt fram-
leiðsluleyfi á Tomma hamborgurum
til 23 skyndibitastaða um allt land og
sér GGS einnig um öll innkaup fyrir
þessa staði.
Framkvæmdastjóri GGS hf. er
Gissur Kristinsson og er skrifstofa
hans að Grensásvegi 12 í Reykjavík.
KB
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu í vinnslu
minningargreinar eftir Kristján
Guðbjartsson um Áslaugu Guðm-
undsdóttur að málsgrein féll niður
þar sem fjallað er um næst elstu
dóttur Áslaugar. Málsgreinin senr
féll niður er svona: „ Soffía. kennari
áður í Ólafsvík nú í Hafnarfirði.
Gift Þráni Þorvaldssyni, múraram-
eistara. Þau eiga fjögur börn og eina
fósturdóttur."
Jafnframt misritaðist nafn Ragn-
heiðar yngstu dóttur Áslaugar á
einum stað í greininni. Tíminn biöur
hlutaðeigandi velvirðingar á þessunr
f pfaff ] í Kringlunni
Fyrir þá sem sauma
í hinni nýju verslun PFAFF í Kringlunni er lögö
sérstök áhersla á þjónustu viö þá sem sauma.
Seljum margs konar tvinna og minni hluti
tengda saumaskap.
Gefið ykkur tíma til aö skoöa PFAFF saumavél-
arnar og HORN saumavélaborðin, sem henta
fyrir allar helstu saumavélategundir.
Framvegis verður
sýnikennslaá
PFAFF saumavélar
alla föstudaga og
laugardaga milli kl.
14.00 og18.00 a
föstudögum og
14.00-16.00 á
laugardögum.
PFAFF
Kringlan S: 68 91 50 / Borgartún 20 S: 2 67 88