Tíminn - 04.09.1987, Side 6
6 Tíminn
Föstudagur 4. september 1987
Hálendiseftirlit lögreglunnar:
Vafasömum ökuferðum
fækkaði mjög mikið
„Hálendiseftirlit lögreglunnar er
gott nýmæli, því stærsti hluti lands-
ins er án löggæslu, t.d. hálendið í
víðustu merkingu og við verðum
að fara að koma á skipulagningu á
þessi mál og miða t.d. við þjóð-
garða í Bretlandi og Bandaríkjun-
um,“ sagði Böðvar Bragason, lög-
reglustjóri í Reykjavík á blaða-
mannafundi sem lögreglan hélt í
gær til kynningar á hálendiseftirliti
lögreglunnar, scm stóð yfir í
sumar.
Til eftirlitsins voru settir tveir
lögreglumenn á vel útbúnum bíl og
hafa unnið í samvinnu við ýmsa
aðila, t.d. Vegagerðina, lögreglu-
mcnn, landverði og auk þess hefur
verið góð samvinna við þyrluflug-
menn Landhelgisgæslunnar.
Eftirlitið mæltist mjög vel fyrir
og var greinilegt að ýmsir, eins og
t.d. ferðamenn og starfsfólk hinna
ýmsu staða á hálendinu, telja að
með þessu hafi öryggi viðkomandi
verið aukið til muna.
Þegar eftirlitið var sett af stað á
sínum tíma, var málið vel kynnt,
og telur lögreglan að það hafi orðið
til þess að draga mjög úr umferð
um hálendið við vafasamar aðstæð-
ur. Prátt fyrir það bar nokkuð á því
að lögreglumennirnir þyrftu að
hafa afskipti af fólki sem þannig
hagaði ferðum sínum að það olli
skemmdum á gróðri og spjöllum á
landi og var þar um að ræða menn
á ýmiskonar farartækjum, t.d.
jeppum og fjórhjólum.
Einnig komu upp mál, eins og
ölvun við akstur, réttindalaus
akstur, veiðiþjófnaður, akstur á
óskráðum ökutækjum og vega-
spjöll svo dæmi séu nefnd.
Enn er verið að vinna úr þeim
málum sem upp komu, en ljóst er
að það hefur skilað árangri.
- SÓL
Bændur
beiti sér
fyrir
gróður-
vernd
Aðalfundur Stéttarsambands
bænda hefur samþykkt að fela stjórn
sambandsins að beita sér fyrir raun-
hæfri ogöfgalausri umræðu um gróð-
urverndarmál í samvinnu við önnur
samtök bænda. Skorað er á alla
bændur að sýna skilning og velvilja
þeim sjónarmiðum sem vilja stuðla
að nýtingu gróðurs og vcrndun nátt-
úru. Jafnframt er lýst áhyggjum yfir
hörðum deilum sem undanfarið hafa
farið fram unr landnýtingu og gróð-
urvernd. Þessar deilur geti skaðað
hagsmuni landbúnaðarins og spillt
ímynd hans meöal þjóðarinnar. Slíkt
sé óþarfi þar sem flestir bændur nýti
land sitt hóflega, enda cigi bændur
allt sitt undir því að gæðum lands
þeirra sé ekki spillt. Hins vcgar voru
menn sammála um að betur mætti
gera og því væri full ástæða til að
vinna að þessum málum með opnum
huga. - ABS
Hugo Þórísson, Linda Adains M.D., dr. Thomas Gordon, Vilhelm Norðfjörð og fulltrúar Almenna bókafélagsins
við kynningu bókarinnar um samskipti foreldra og barna. Tímamynd brein
Taplausa aðferðin
í samskiptum fólks
I vikunni sem er að líða voru
stödd hér á landi hjónin Thomas
Gordon og Linda Adams til kynn-
ingar á bók sinni „Samskipti foreldra
og barna“ sem var að koma út í
fyrsta sinn á íslensku. Ingi Karl
Þórisson þýddi bókina. Bókin hefur
verið kennd í langan tíma við upp-
eldisbrautir og við menntun kennara
hér á landi. Hlutverk útgáfunnar
Kristinn Sigmundsson heldur um helgina tvenna tónleika, þá fyrri í
Skjólbrekku í Mývatnssveit og þá seinni í Húsavíkurkirkju. Undirleikari
er að sjálfsögðu Jónas Ingimundarson. Tónleikarnir í Skjólbrekku eru
á laugardaginn og hefjast kiukkan 16 og seinni tónleikarnir verða á
sunnudeginum og hefjast klukkan 21. Á efnisskránni eru m.a. lög eftir
Sigvalda Kaldalóns, Beethoven og Schumann.
núna er að gefa fleira fólki kost á að
lesa um málefni þetta og það var á
þeim forsendum sem Almenna
bókafélagið gaf hana út. Ekki síður
er ætlunin að nota hana sem undir-
stöðubók í námskeiðum sem haldin
hafa verið hér á landi undir sam-
hljóma heiti bókarinnar. Sagði Gor-
don að það væri reynsla þeirra í
þeim 20 löndum þar sem bókinni
hefur verið dreift, að fólk vill gjarn-
an sækja námskeið eftir að hafa lesið
bókina, þó að auðvitað mætti nrargt
læra af bókinni einni.
Hugo Þórisson og Vilhelm Norð-
fjörð hafa veg og vanda af innlendu
námskeiðunum sem ætluð eru öllum
þeim er bæta vilja samskipti sín við
aðra. Þó að yfirskriftin sé fyrst og
fremst skírskotun til heilla fjöl-
skyldna, er sagan ekki öll sögð.
Hver fjölskylda er jú samsett af
einstaklingum og það er til þeirra
sem námskeiðið nær.
Sömu grundvallarreglur eru not-
aðar í námskeiðum sem Linda
Adams hefur haldið víða um heim
fyrir konur og aðra hópa. Grund-
völlurinn felst í því að reyna að
hjálpa fólki til að ná tökum á
samskiptum sínum og að kenna því
að tileinka sér hina svokölluðu tap-
lausu aðferð. Hún felst í því að
enginn aðili að samskiptum tapi eða
gefi eftir á eigin kostnað. Námskeið-
in gefa fólki tækifæri til að þjálfa
með sér nauðsynlegustu hæfileikana
með aðstoð leiðbeinenda, áður en
farið er út í raunveruleikann.
Bókinni og námskeiðinu er ætlað
að kenna fólki eins og fólki og
persónum, en ekki endilega eins og
kennurum, foreldri, maka, forstjóra
eða fóstru, að sögn Lindu Adams.
Thomas Gordon bætti því við að
með starfi sínu væru þau að revna að
kenna fólki að finna jafnvægiö á
milli þess sem aðrir vilja og þess sem
þú vilt. Einnig væri það markmið
haft að leiðarljósi að menn eyði ekki
of löngunr tíma í að taka ákvörðun
eftir þessari aðferð. KB
Sproti hf. hefur þegar sent frá sér
ICY-Vodka og ICY-Kavíar, en núna
kemur líka ICY-Demantsíld fyrir
sælkerana.
ICY-
Demant-
síld
Stór, þykk og matarmikil síldar-
flök eru nú að koma á markaðinn
undir vöruheitinu ICY-Demantsíld.
Verða flökin næst því sem fólk átti
að venjast af Norðurlandssíldinni,
sem hvarf af miðunum árið 1967.
Hráefnið er fengið með því að
Söltunarstöð Verktaka hf. á Reyðar-
firði velur úr stærstu og fallegustu
síldina sem veiðist að haustinu fyrir
Austurlandi.
Reyðfirðingarnir salta þessa
gæðasíld og sjá um alla meðferð
hennar í þá mánuði sem hún þarf að
liggja í salti, áður en hún er tilbúin
til marineringar. Eftir það er hún
marineruð á sama stað eftir gamalli
heimilisuppskrift sem naut mikilla
vinsælda á síldarárunum á Siglufirði.
Fylgir sögunni að þar hafi menn þótt
kunna betur en annars staðar að
verka síld.
Á síldarvertíðinni á haustmánuð-
um gengur síldin langt inn á firði
fyrir austan og veiðist stundum alveg
bókstaflega við bryggjusporðinn á
Reyðarfirði. Hún berst því á land
eins ný og fersk eins og hægt er að
hugsa sér. Hér er því ekki unr
venjulega síld að ræða sem velkst
hefur oft á tíðunr í löngunr flutning-
um. En eins oggefur að skilja verður
magnið takmarkað þar sem ekki er
mikið af stórri Demantsfld í íslensk-
um síldarstofnunr.
ICY-Demantsíld er þriðja vöru-
tegundin sem Sproti hf. sendir frá
sér. Fyrir eru á markaðnum ICY-
Vodka og ICY-Kavíar og hefur
hvort tveggja hlotið góðar viðtökur
hér heima. Stefnt er að sölu á
erlendunr vettvangi, bæði austan
hafs og vestan á næstunni. Það er
Lindá í Reykjavík sem sér um
dreifingu á Demantsíldinni.
"________________KB
Drögum úr hraða
- ökum af skynsemi!
yUMFEROAR
RÁÐ
Skákþing íslands 1987:
NIU UMFERDIR
EFTIR MONRAD
Skákþing íslands 1987 verður
haldið í félagsheimili T.R. að
Grensásvegi 46 dagana 11. - 13.
september n.k.
Keppni í drengja- og telpna-
flokki (14 ára og yngri) verður
þessa sömu daga og verða tefldar
níu umferðir eftir Monrad kerfi og
er umhugsunartími 40 mínútur á
skák fyir keppanda.
Verði næg þátttaka, verður sér-
stakur telpnaflokkur, annars verð-
ur haft sama fyrirkomulag og
undanfarin ár.
Umferðartaflan gerir ráð fyrir
að 11. september frá 19.00 - 23.00
verði tefldar fyrsta, önnur og þriðja
umferð. Þann 12. september frá
13.00 - 18.00 verði tefldar fjórða,
fimmta og sjötta umferð og á
sunnudeginum 13. september frá
13.00-18.00 verði tefldarsjöunda,
áttunda og níunda umferð.
Skákstjóri verður Ólafur H.
Ólafsson. - SÓL