Tíminn - 04.09.1987, Page 14

Tíminn - 04.09.1987, Page 14
14 Tíminn Föstudagur4. september 1987 AÐ UTAN ■III lllllllll! Siðgæðisfrædsla í sjónvarpsþáttum - án þess að áhorfendur verði þess varir Undanfarna mánuði hcfur verið kippt fótunum undan þcirri sið- gæðisfræðslu sem Bandaríkjamenn hafa átt að venjast og stuðst við í daglegu lífi. Þar er átt við sjón- varpsútsendingar hinna svokölluðu „sjónvarpsprcdikara" en eins og komið hefur fram hcfur sú stétt reynst síður en svo slíkt fordæmi um gott siðferði sem látiö hefur verið í veðri vaka. En í sjónvarpi fer sífellt fram önnur fræðsla í góðum siðum þó að í annarri mynd sé og ekki með sama bægslagangi í fjáröflunar- skyni og margnefndir sjónvarps- predikarar hafa haft í frammi. hað hefur gleymst í umræðunni að sá predikari sem áhrifamestur er í Ameríku um þessar mundir er ekki Jim Bakker, Jerry Falwell eða æðsti maður kaþólsku kirkjunnar þar í landi, John O'Connor kardi- náli. Hann er enginn annar en góðvinur okkar Islendinga Bill Cosby „fyrirmyndarfaðir". Engir þættir í sögu bandarísks sjónvarps hafa notið viðlíka vin- sælda og einmitt þættirnir Fyrir- myndarfaðir og Fjölskyldubönd, sem sýndur er á Stöð 2, og þétt á eftir að vinsældum fylgja aðrir þættir af svipuðu tagi. Kaþólskur prestur, prófessor í félagsvísindum viö háskólann í Arizona og rithö- fundur, Andrew Greeley, velti vöngum yfir þeim áhrifum sem þessir þættir hafa á siðferðisvitund fólks í New York Times fyrir nokkrum vikum og verður sú grein hér endursögð að hluta. Áhorfendur þekkja sjálfa sig og eigin vandamál - en sjá hvernig má leysa þau Fólk situr heima í stofum sínum og hefur gaman af að fylgjast með ýmsum hversdagslegum uppákom- um í venjulegum fjölskyldum og hvernig þær leysa þau vandamál sem upp á koma. Áhorfendur hlæja að kunnuglegum deilumálum og spennu sem myndast innan fjölskyldunnar þegar allir eru ekki á sama máli í smærri og stærri málum, eins og þegar upp á kemur að námfús ung stúlka vill hlaupa yfir bekk, trúlofun er opinberuð, upp rennur fimmtugsafmæli, sím- rcikningurinn er yfir sig hár, rifrildi kemur upp milli ungra elskenda, drengur tekur upp á því að vilja læra að fljúga, afi og amma eiga brúðkaupsafmæli, vinahjón skilja, inflúensa leggst á fjölskylduna. Og mcðan áhorfendur skemmta sér sjá þeir hvaða dyggðir þarf til að leysa slík vandamál sem geta skotið upp kollinum í hvaða fjölskyldu scm er. Þar má t.d. nefna góða eiginleika sem mikið cru lofaðir en oft er erfitt að halda í heiðri eins og t.d. þolinmæði, trúnað, tilfinn- ingu fyrir líðan annarra, heiðar- leika, örlæti, sveigjanleika og fyrir- gefningu. Ekki hamraö á sið- gæðislögmálunum I þcssuni sjónvarpsþáttum er sjaldan komist að einhlítri siðferð- islegri niðurstöðu. Yfirleitt er ekki lögð áhersla á að berja siðgæðislög- málin inn í áhorfendur. Heldur er gefið í skyn til hvaða hæfilcika og skapgerðarþátta má grípa til að viðhalda kærleikanum í fjölskyld- unni. Hér er sem sagt um að ræða nútímaútgáfu af siðfræðipredikun- um miðaldaleikrita sem hefur verið laumað á sjónvarpsskerminn án þess að nokkur hafi gert sér grein fyrir því. Auðvitað eru til undantekningar frá þessari „rnjúku" aðferð til að koma siðferðisboðskapnum á Fræðsluskrifstofa Vestfjarðaumdæmis ísafirði Eftirtalin störf eru laus til umsóknar: 1 staða skólasálfræðings. 1 staða sérkennslufulltrúa/ kennslufulltrúa. 1/2 staða ritara Þá vantar talkennara og bókasafnsfræðing til sérstakra verkefna sem mætti vinna í áföngum eftir samkomulagi. 1 staða kennsluráðgjafa í Vestfjarðaumdæmi 25-50% með búsetu hvar sem er í umdæminu. Óskað er eftir kennurum með starfsreynslu og/ eða framhaldsnám. Fræðsluskrifstofan býðurfram góða vinnuaðstöðu í húsakynnum sínum á ísafirði, starfsandi er góður meðal skólamanna á Vestfjörðum auk þess er boðið uppá góð laun fyrir ofangreind störf. Upplýs- ingar veitir fræðslustjóri Pétur Bjarnason í síma 94-3855 og 94-4684 og forstöðumaður ráðgjafar og sálfræðideildar, Ingþór Bjarnason í síma 94- 3855 og 94-4434. Samband föðurins Cliffs Huxtable og dóttur hans Rudi er til fyrir- myndar. En það sama gildir raunar um tengsl alirar fjölskyldunnar og geta margir sitthvað lært af því hvernig leyst er úr ýmsum vanda sem skýtur upp kollinum á heimili Huxtable-fjölskyldunnar. framfæri. í einum þessara fjöl- skylduþátta er t.d. aðalhetjan, sem endranær er ekki með neinar slá- andi fullyrðingar, mjög afdráttar- laus þegar boðið er upp á kókaín. „Segið einfaldlega nei,“ segir hann og beinir máli sínu beint til áhorf- enda. En í Fyrirmyndarföður er sjaldan gerð tilraun til að predika beinum orðum nauðsynina á kær- leikanum innan fjölskyldunnar. Þar þykir það ekki nauðsynlegt. Félagsfræðingur einn heldur því fram að fjölskyldan sé ekki fyrr sest fyrir framan sjónvarpsskerm- inn til að fylgjast með nýjustu atburðunum í fjölskyldu Cliffs Huxtable læknis en hún kemst í slíkt hugarástand þar sem hlýja og skilningur ríki. „Við vitum vel um vandamálin. Hjónaskilnuðum fjölgar, sömuleiðis einstæðum for- eldrum. Við vitum um fóstureyð- ingar, sifjaspell, barsmíðar eigin- manna á konum sínum, barnshaf- andi unglingsstúlkur o.s.frv. En þegar Huxtable- fjölskyldan birtist á skerminum sjúgum við í okkur andrúmsloftið á heimilinu þar sem heil og heilbrigð fjölskylda lifir í gagnkvæmum skilningi og væntum- þykju og okkur líður vel. Þegar þátturinn er búinn höfum við bjart- ari vonir um að fjölskyldan eigi framtíð fyrir sér og okkar eigin fjölskylda ekki síst. Þetta er ekki bara notaleg siðfræðilexía. Þetta er áskorun um að sýna kærleika." Er þetta flótti frá raunveru- leikanum? Sumir halda því sjálf- sagt fram að það sé líka flótti frá raunveruleikanum að hlusta á góða tónlist eða sjá góða leiksýningu. En í því felst líka endurnæring og þar er galdur sjónvarpsþáttarins Fyrirmyndarfaðir einmitt fólginn, hann endurnærir vonir venjulegs fólks um fjölskylduna, sína eigin fjölskyldu. Hlýr og endurnærandi kærleikur - en boöar Fyrirmynd- arfaðir trú? Fyrirmyndarfaðir leggur fram fyrirmyndardæmi um siðgæði og býður upp á hlýjan og endurnær- andi kærleika. Merkir það að þátt- urinn boði trú? Félagsfræðingurinn sem áður er vitnað til og líka er leikpredikari er ekki í minnsta vafa um það. „Fjölskyldukærleikur er einn þessara örsmáu glugga sem hinn Algóði, eða Guð ef fólk vill heldur nota það orð, gægist inn um á okkur. Við finnum oft merkingu stóru atburðanna í litlu atriðunum í lífinu, ekki satt?“ Og hann segir frá því að hann myndi hiklaust gefa þeim frí frá kirkjusókn um helgar sem horfa á einn til tvo slíka fjölskylduþætti í sjónvarpinu á viku. „Þessir þættir koma boð- skapnum miklu betur á framfæri en við í kirkjunni," segir hann. í sunnudagaskólanum, þar sem hann predikar, segist hann ákaf- lega oft styðjast við atburði úr þessum þáttum með mjög góðum árangri. Hann nefnir sem dæmi þegar krakkarnir sögðu frá atviki í þáttunum Vaxtarverkir (Growing Pains), þar sem söguhetjan, 9 ára strákur, lenti í alvarlegri klípu vegna þess að hann hafði gripið til til lyga um símhringingu í klámbúð sem hækkaði símreikning heimilis- ins um 65 dollara. „Hvað lærðuð þið af þessari sögu?“ spurði hann. „Þú skalt ekki Ijúgá að foreldrum þínum ef þú átt á hættu að upp um þig komist," sagði polli á aldur við söguhetjuna. En hann hugsaði sig betur um og bætti svo við: „Reynd- ar skaltu aldrei Ijúga að þeim.“ Sjálfsagt eru það ekki margir prestar sem leita fanga i predikanir sínar í fjölskylduþáttum sjónvarps- ins. „Þeir eru oft niðursokknir í umræðuna um það sem efst er á baugi hverju sinni. Og einblína um of á guðfræðileg og hugsjónaleg málefni til að sjá trúna þar sem hana er að finna - í daglegu lífi venjulegs fólks,“ segir félagsfræð- ingurinn. Gagnrýni á fjölskyldu- þættina Gagnrýnendur hafa ráðist að fjölskyldugamanþáttunum að undanförnu, bæði frá hægri og vinstri. En slíkt gerist alltaf þegar eitthvað gengur vel og vekur at- hygli. Þeir halda því fram að þætt- irnir risti grunnt og séu ómerkileg- ir. Þeir sýni ekki þá ógn og þján- ingu sem margar fjölskyldur búi við né þá lítillækkun sem margar svartar fjölskyldur þurfi að þola. í þeim sé horft framhjá eymdinni og vansældinni sem í mörgum tilfell- um stjórni tengslunum milli eigin- manns og eiginkonu og milli for- eldra og barna. Þar sé aðeins fengist við óbrotnar fjölskyldur í góðum efnum. Þar skorti engan neitt. En þeir sem krefjast þess að „Cosby“ sé harðari í horn að taka gera sér enga grein fyrir hinum óljósu mörkum sem skilja að tján- ingarform og þeim skaða sem gerð- ur er við það að virða ekki þessi mörk. Ef þátturinn um Fyrirmynd- arföðurinn væri lagður undir um- ræður um hugsjónir, færu töfrar hans forgörðum - og þar með boðskapurinn. Kærleikurinn innan fjölskyldunnar mikil- vægastur En það er fleira fólgið í trú en fjölskyldukærleikur ekki satt? Hvað um frið og hungur og Þriðja heiminn? Áhyggjur vegna félagslegra að- stæðna hjá einhverjum bróður í órafjarlægð og afskiptaleysi gagn- vart nánasta bróður er trúlega hvorki heilsusamlegt, til langframa né árangursríkt. Trú sem hefur gleymt mikilvægi náinna tengsla milli manna og hvað þeir erfiðleik- ar sem þar kunna að koma upp á geta verið afdrifaríkir verður ekki tekin alvarlega þegar hún belgir sig út yfir æðri vegsemdum kirkjunnar manna. Vissulega ætti trúin að blandast inn í sem flest svið mann- lífsins. En slík afskipti verða ekki viðurkennd nema trúin sjái líka til þess að fullnægjandi fyrirmynd sé fyrir hendi til að gefa lífinu mein- ingu og græða sárin sem hlotist hafa af því að gera tilraun til að sýna sínum nánustu ást. Meginatriðið í gagnrýninni á Cosby og aðra þætti í svipuðum dúr er það að þeir fjalla um óbrotnar miðstéttarfjölskyldur, félagslega stofnun sem margir Am- eríkanar í menningarúrvalsdeild- inni (og þar er að finna hreint ekki svo fáa presta) trúa (eða vilja trúa) að sé úrelt. Hvað er athugavert við óbrotna fjölskyldu? Sjónvarpsáhorfendur í Amer- íku, þ.á m. margir sem ekki búa í heilum fjölskyldum, virðast á öðru máli en menningarúrvalsflokkur- inn. Almenningur virðist hafa þá trú að heil fjölskylda sé yfirleitt betri en brotin fjölskylda og tekur þá mið af fjölskylduþáttunum. Stundum sé ekki um annað að ræða en að vera einstætt foreldri, en oftast nær sé það betra að foreldrar lifi í hjónabandi. Þó að einstæðum foreldrum og fjölskyld- um í upplausn fari fjölgandi virðist alménningur samt hafa þá trú að heil og kærleiksfull fjölskylda sé eftirsóknarverðasta mynstrið. Sömuleiðis að fjölskyldukærleikur, jafnvel í óhefðbundnum fjölskyld- um, skipti mestu máli. Það sem gerir þessa sjónvarps- þætti svo vinsæla er sú mynd sem þeir draga upp af kærleika innan fjölskyldu, hvort sem fjölskyldan er í heilu lagi eða ekki. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA REYKJAVÍK Lausar stöður Á vegum Svæðisstjórnar málefna fatlaðra í Reykjavík taka bráðlega til starfa vistheimili og sambýli fyrir fatlaða. Okkurvantar því fólktil starfa, einkum þroskaþjálfa eða fólk með sambærilega menntun. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af meðferðarstarfi með fötluðum og þekki fjölþætt markmið þess. Laun skv. kjörum opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 15. sept. n.k. til Svæðisstjórnar. Nánari upplýsingar í síma 621388. Svæðisstjórn málefna fatlaðra Hátúni 10-105 Reykjavík.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.