Tíminn - 04.09.1987, Blaðsíða 16
16 Tíminn
Föstudagur 4. september 1987
Jafnrétti í framsókn
3. landsþing LFK haldið að Varmahlíð í Skagafirði
4. -6. sept. 1987. ______ ____________;
Asta Ragnheiður
Hollustustefna
neyslustefna
Þórdís
Ferðamála-
stefna
Magdalena
Umhverfismál
Elísabet
Söderström vara-
form. miðflokks
'kvenna í Svíþjóð
Valgerður
alþingismaður
Siguröur
framkvæmdastj.
Framsóknarfl.
Steingrímur
utanríkisráðherra
Þórunn
varaform. S.U.F.
Þrúður
Framboðsmál
Guðmundur
heilbrigðisráðherra
Anne Lise Folsvik
formaður kvenna-
samt. norska
miðflokksins
Unnur
Starf og
stefna LFK
Helgarferðir F.í.
4.-6. sept.
1. Þórsmörk - Gist í Skagfjörösskála/
Langadal. Gönguferðir viö allra hæfi um
Mörkina, og aðstaða öll í Skagfjörðsskála
er mjög góð.
2. Landmannalaugar - Eldgjá Gist
verður í sæluhúsi félagsins í Laugum.
Upplýsingar og farmiðasala í skrifstofu
F.í. Óldugötu 3. Brottför í ferðirnar er
kl. 20:00 á föstudagskvöld.
Ferðafélag íslands
Helgarferðir Útivistar
4.-6. sept.
1. kl. 20:00 Þórsmörk - Goðaland -Góð
gisting í Útivistarskálunum, Básum.
gönguferðir við allra hæfi. Fararstjóri:
Bjarki Harðarson.
2. kl. 20:00 Haustferð á Kjöl. Gist í skála
á miðjum Kili. Göngu- og skoðunarferð
um Þjófadali, Hveravelli og Kerlingar-
fjöll. Slóðir Fjalla-Eyvindar. Farið á
grasafjall.
Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni
Grófinni 1, símar: 141606 og 23732.
Útivist
íslands 1976, en var síðan við framhalds-
nám í Hollandi til 1979, er hann kom
heim til Islands og hefur verið búsettur og
starfað í Reykjavík síðan. Hann hefur
fengið margs konar viðurkenningar, m.a.
menningarverðlaun Dagblaðsins. Helgi
hefur haldið einkasýningar og tekið þátt
í mörgum samsýningum, innan lands og
utan.
Sýning Helga í Gallerí Svart á hvítu er
opin alla daga nema mánudaga kl. 14:00-
18:00 og stendur til 20. september, en þá
lýkur einnig sýningu hans að Kjarvals-
stöðum.
Gildran í H-100 á Akureyri
Nú er hljómsveitin Gildran stödd á
Akureyri, en hljómsveitarmeðlimir hafa
verið með tónleika í Reykjavík, þar sem
þeir hafa kynnt efni af plötu sinni „Huldu-
menn”.
Hljómsveitin Gildran mun Ieika í H-
100 föstudags- og laugardagskvöld 4. og
5. september.
Hátíðarmessa í Hallgríms-
kirkju í Saurbæ
Næstkomandi sunnudagskvöld kl.
20.30 verður sérstök hátíðarmessa í Hall-
grímskirkju í Saurbæ. Minnst verður 30
ára afmælis kirkjunnar og tekin í notkun
flóðlýsing, sem Sigurjón Hallsteinsson,
bóndi í Skorholti, hefur gefið kirkjunni.
Við hátíðarmessuna prédikar dr. Sigur-
björn Einarsson, biskup. Frú Ragna
Kristmundsdóttir syngur einsöng. Einnig
verður samleikur á orgel og fiðlu. Flytj-
endur eru: Friðrik Stefánsson og Auður
Hafsteinsdóttir.
Að lokinni messu er öllum kirkjugest-
um boðið til kaffiveitinga í Félagsheimil-
inu að Hlöðum, er Kvenfélagið Lilja sér
um. Þar verður greint frá gjöfum til
kirkjunnar, rifjuð upp nokkur atriði úr
sögu kirkjunnar o.fl.
I tilefni afmælisins hefur verið gerður
„ sérstakur platti af kirkjunni.
Kristín Guðrún við eitt verka sinna
Menor og Alþýðubankinn
á Akureyri kynna mynd-
listakonuna Kristínu Guðrúnu
Menningarsamtök Norðlendinga,
MENOR, og Alþýðubankinn á Akureyri,
kynna að þessu sinni myndlistakonuna
Kristínu Guðrúnu. Kristín Guðrún er
fædd 15. apríl 1963 á Akureyri og lauk
stúdentsprófi frá M.A. 1983.
Um haustið ’83 innritaðist hún í forn-
ámsdeild Myndlistaskólans á Akureyri
Úr Svarfaðardal
ÆTTARMÓT í SVARFAÐARDAL
Afkomendur Sigfúsar Jónssonar,
bónda á Grund í Svarfaðardal og konu
hans Önnu Sigríðar Björnsdóttur, halda
ættarmót á Dalvík laugardaginn 5. sept-
ember, en þann 6. scpt. eru liðin 150 ár
frá fæðingu Sigfúsar.
Hópferð um Svarfaðardal verður farin
frá Víkurröst kl. 13:30 á laugardag og
stansað á Tjörn. Stansað verður einnig á
■ Grund og skoðaður minningarreitur Eir-
íks Hjartarsonar og snætt nesti, ef veður
leyfir.
Um kvöldið kl. 18:00 verður hóf í
Víkurröst og heldur Anna Sigrún Snorra-
dóttir hátíðarræðuna og sitt hvað verður
sér til gamans gert.
Þátttakendur úr Reykjavík fara hóp-
ferð norður á morgun, föstud. 4. sept. kl.
15:00. Þeir sem hafa áhuga hringi til
Bjarkar Guðjónsdóttur í síma 1-35314.
Farið verður til baka á sunnudag. María
Snorradóttir á Dalvík (sími 96-61163)
selur miða að hófinu í Víkurröst og gefur
upplýsingar um ferðina um Svarfaðardal.
Undirbúningsnefnd í Reykjavík hefur
síma 13042 eða 2622 (Hólmfríður Gísla-
dóttir).
Ingibjörg
Launajöfnuður
Jafnréttismál
Guðlaug
Byggðamál
Ólafía
Atvinnumál
Dagskrá Landsþingsins
Föstudagur 4. sept.
Kl. 14.00 Rútuferð frá Reykjavík
Kl. 21.30 Komið í Varmahlíð
Kynning „þjófstart" í umsjón Félags framsóknar-
kvenna í Reykjavík.
Laugardagur 5. sept.
Kl. 07.00 Sund
Kl. 08.00 Morgunverður
Kl. 09.30 Þingsetning, Unnur Stefánsdóttir form. LFK. Kjör em-
bættismanna þingsins.
Skýrsla stjórnar.
Kl. 10.45 Kaffihlé
Kl. 11.00 Ávörp gesta
Kl. 11.30 Erlendir fyrirlesarar
Kl. 12.30 Matarhlé - Meistarar fjallalambsins kynna nýjungar
Kl. 14.30 a) Drög að ályktunum lögð fyrir þingið:
Umræður um drögin
Kl. 15.30 b) Lagabreytingar - umræða - afgreiðsla
Kl. 15.45 Kaffihlé
Kl. 16.00 Umræðuhópar starfa
Kl. 18.00 Útivist-skokk-sund-gönguferðir-hestaleiga-gufubað
Kl. 20.09 Kvöldverður á Sauðárkróki í boði Kaupfélags Skagfirðinga
Kvöldvaka í umsjón kvenna í N-Vestra.
Sunnudagur 6. sept.
Kl. 08.00 Sund
Kl. 08.30 Morgunverður
Kl. 09.30 Kosningar
Kl. 10.00 Umræðuhópar skila áliti - umræður
Kl. 12.00 Matarhlé - hádegisverður í boði Framsóknarfélaganna á
Siglufirði
Kl. 14.00 Umræðum framhaldið og afgreiðsla mála
Kl. 15.00 Þingslit. Stjórnin
Söngsveitin sem syngur með hljómsveit
undir stjórn Gunnars Þórðarsonar.
Söngvararnir eru (f.v.): Eyjólfur Kristj-
ánsson, Eiríkur Hauksson, Björgvin Hall-
dórsson og Sigríður Beinteinsdóttir
Enn er „Allt vitlaust"
á Broadway
Aukasýningar á rokk- og danssýning-!
unni „Allt vitlaust”, sem í vetur gekk i
lengi á Broadway, verða nú aftur í.
september og er fyrsta sýningin ákveðin
laugardaginn 5. sept.
Það vcrður sem fyrr stórhljómsveitin
Fuglarnir (The Birds) undir stjórn Gunn-
ars Þórðarsonar, sem leikur, alls 10
hljóðfæraleikarar, og söngsveitin „The
Bees“ syngur ineð, en hún er skipuð
Björgvini Halldórssyni, Sigríði Beinteins-
dóttur, Eiríki Haukssyni og Eyjólfi
Kristjánssyni.
Dansflokkurinn „Rokk í vlölögum", sem
skipaður er 17 dönsurum sýnir listir sfnar.
Stefnt er að því að sýna rokk- og
danssýninguna „Állt vitlaust” út septcm-
ber, - en síðan mun ný sýning taka við í
Broadway. Sú sýning hefur hlotið vinnu-
heitið „Gullárin“ og byggist hún mikið til
á hinum fræga KK sextett. Þess má gcta, f
að þar mun söngkonan Ellý Vilhjálms
koma fram - í fyrsta skipti eftir langt hlé.
eftir að hafa verið þar á námskeiðum frá
barnsaldri. Haustið ’84 fór hún í málar-
adeild Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands og útskrifaðist þaðan vorið 1987
(eða síðastliðið vor). Kristín ætlar að
taka sér a.m.k. ársfrí frá skólum en
hyggur síðan á frekara framhaldsnám í
listaskólum erlendis. Á listkynningunni
eru 7 verk, 4 unnin með olíu á striga og 3
mónógrafík verk. Listkynningin er í
útibúi Alþýðubankans á Akureyri, Skipa-
götu 14 og lýkur henni 16. október.
Guðrún J.
flokksmál
Ragnheiður
Stjórnmálaályktun
Samkomulagið, olía á striga, 1987
Helgi Þorgils Friðjónsson
með tvær myndlistar-
sýningar samtímis
I dag, föstud. 4. september opnar Helgi
Þorgils Friðjónsson sýningu í Gallerí
Svart á hvítu við Óðinstorg. Á þeirri
sýmngu eru grafík- og vatnslitamyndir.
Á morgun, laugard. 5. sept. kl. 14:00
opnar Helgi svo sýningu á Kjarvalsstöð-
um, og þar sýnir hann olíumálverk.
Helgi er fæddur í Búðardal 1953. Hann
lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla
Hleðslunámskeið
í Vatnsmýrinni
Um helgina verður haldið námskeið í
torfhleðsluaðferðum í Vatnsmýrinni. Þar
verður kennt að stinga og rista klömbru
og streng og að hlaða úr veggi og hús með
þeim hætti og gert var áður fyrri. Hleðslu-
vinnan hefur ekkert breyst um aldaraðir.
Námskeiðið hefst kl. 10:00 á laugardag
og stendur til kl. 18:00 með matarhléi á
milli kl. 13:00 og 14:00 og sama tímasetn-
ing er á sunnudag.
Þeim sem hafa áhuga er bent á að mæta
kl. 10:00 í Vatnsmýrinni á milli Norræna
hússins og gamla Tívolíportsins og er
ekið frá Umferðarmiðstöðinni Vatnsmýr-
arveg niður í mýrina þar sem torfhúsin
standa.
Leiðbeinandi er Tryggvi Gunnar
Hansen. Nánari upplýsingar í síma 75428
á kvöldin.
Námskeið í morsi og radíótækni
Vilt þú ná langt ??
Radíóamatörar ná daglega um allan •
heim.
Námskeið í morsi og radíótækni til
nýliðaprófs radíóamatöra byrjar 9. sept-
ember n.k.
Nú geta allir lært mors, ný og skemmti-
leg aðferð notuð.
Ertu þreytt(ur) á poppstöðvunum... ?
Nýtt námskeið í stuttbylgjuhlustun byrjar
einnig í dag, fimmtud. 3. september .
Skráning í síma 31850 næstu dag kl.
17:00-19:00
Kvenfélag Neskirkju
Hársnyrting og fótsnyrting fyrir aldraða
hefst aftur eftir sumarfrí miðvikudaginn
9. september nk. í Safnaðarheimili Nes-
kirkju.
Ásgrímssafn
Frá 1. september verður opnunartími
Ásgrímssafns á sunnudögum, þriðjudög-
um og fimmtudögum kl. 13.30-16.00.