Tíminn - 04.09.1987, Side 20
PARNIR
HRESSA
KÆTA
TERRY Fenwick leikur nú sem
„sweeper" í vörninni hjá Q.P.R.
og enski landsliðsmaðurinn hefur
átt stærstan þátt í velgengni liðs-
ins það sem af er ensku 1.
deildarkeppninni. Q.P.R. trónir nú
á toppi 1. deildarinnar og þótt
hæpið verði að telja að liðið hafi
burði til að vera þar í allan vetur
er byrjunin góð hjá liði sem var í
sextánda sætinu á síðasta tíma-
bili. Sjá nánar ábl. 11
1917
1987
. . 17. MARS
Tíminn
Hvítingur VE-21,7 tonna bátur
frá Vestmunnaeyjum sent saknað
hefur verið frá því seint á miðviku-
dagskvöld, er enn ófundinn. Tveir
menn voru um borð í Hvítingi,
sem er 26 ára gamall trébátur,
þegar farið var uð óttast um hann,
cn það var þegar hann tilkynnti sig
ekki til tilkynningaskyldunnar á
skyldutímanum milli. 20 og 22 á
miðvikudagskvöld. Hann hafði til-
kynnt sig í fyrri tímann, sem er
milli 10 og 13.30, en báturinn fór
frá Eyjum rétt eftir 9 á miðviku-
dagsmorgun.
Kunnugir menn í Eyjum, segja
að mennirnir hafi verið með línu
skammt frá Bjarnarey, sem er lítil
eyja austan við Vestmannueyjar,
og þar hafi þeir verið að fiska
beitu. Lóð áttu þeir síðan 12-14
sjómílur suður af Bjarnarey.
TF-SÝn, flugvél Landhelgis-
gæslunnar hefur verið að leita úr
lofti, og var aðstoðuð af vél frá
varnarliðinu um miðjan gærdag-
inn. Fjögur skip voru einnig að
leita, þar af tvö frá Eyjum.
Aftakaveður hefur verið á svæð-
inu sunnan og austan Vestmanna-
eyja og við Surtsey, þar sent leitin
að Hvítingi fer fram. Stormur,
hvöss austnorðaustanátt og
rigning, 8-9 vindstig og hiti þetta
7-10 stig. Sjávarhiti á staðnum er
aðeins um 10 - 11 stig. Líkur eru
taldar á að veðrið gangi niður
snemnta í dag og geta þá fleiri
bátar tekið þátt í leitinni.
Leit stóð fram yfir kl. 20 í
gærkvöldi, af hálfu TF-SÝN, flug-
vélar Landhelgisgæslunnar, en þau
skip sem höfðu verið að leita,
þurftu að lcita skjóls nokkuð fyrr
vegna veðurs.
Leit hófst aftur í birtingu í
morgun og er búist við ntun betra
skyggni en var í gær, en þá var það
um 3 mílur milli regnskúranna.
- SÓL
Vandamál fóstra breytast lítið:
Borgarstjóri segir
laun ekki vandamál
Leiðinlegur húmor? Frá gámakartöflusölunni í Mjóddinni í gær. Er það þetta sem bændur og neytendur vilja?
Páll Guðbrandsson, form. Landssambands kartöflubænda:
Engin samstaða og
leiðinlegur húmor
Á fundi borgarstjórnar Reykja-
víkur í gær var dagvistun og vanda-
mál dagvistunarheimila mikið til um-
ræðu.
Kristín Á. Ólafsdóttir, borgarfúíl-
trúi Alþýðubandalagsins sagði aðe-
ins 29,5% starfsfólks dagvistunar-
heimila verða fóstrur eða fólk með
sambærilega menntun. Hins vegar
væru 70,5% starfsfólksins ófaglærð.
Einnig væri athyglisvert að skoða að
Forseti ísiands í Færeyjum:
Fyrsti þjóð-
höfðinginn
í opinberri
heimsókn
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, fór í gær til Færeyja í
opinbera heimsókn, en Vigdís mun
vera fyrsti erlendi þjóðhöfðinginn til
að koma í opinbera heimsókn til
Færeyja. Móttökunefnd, skipuð
m.a. Atla Dam, lögmanni, sendi-
herra íslendinga í Kaupmannahöfn,
sendiherra Dana í Reykjavík og
íslenska konsúlnum í Þórshöfn, tók
á móti forsetanum í Vogum. Þaðan
fór hún m.a. í heimsókn í Lögþingið,
skoðaði nýtt móttökuhús Færeyinga,
sá atriði úr nýju leikriti leikfélagsins
í Þórshöfn og snæddi kvöidverð í
boði Lögþingsins.
Sérstakur fylgdarmaður forsetans
ytra er Julianna Klett, skipuð af
landstjórninni, en hún hefur oft
áður séð um sendiherra, ræðismenn
og ráðherra sem hafa komið til
Færeyja.
Forsetinn mun heimsækja ýmsa
fallega og merka staði í Færeyjum,
t.d. Stóra Dímon, sækja guðsþjón-
ustu í Sandskirkju og fleiri staði.
Heimsókn Vigdísar lýkur á mánu-
dag. - SÓL
undanfarið hefur 11 dagvistunar-
deildum verið lokað og dvalartíma
barna á þeim sem cnn væru opnar
væri styttur. Börn scm sækja um
pláss i fyrsta sinn, fá ekki pláss.
Mikill flótti væri úr þessari atvinnu
og nefndi Kristín að á fyrstu sex
mánuðum ársins hefðu 174einstakl-
ingar hætt störfum. Og í þokkabót
hefur seinni hluti ársins ávallt verið
talinn erfiðari cn sá fyrri. Ástæðuna
fyrir þessu taldi hún vera launin.
Grunnlaun fóstru væru 27.866, en
þau hæstu 34.788. „Launin eru
kjarni vandantálsins," sagði Kristín.
Minnihlutinn í borgarstjórn lagði
því fram tillögu, í hverri segir að.
vegna mikilla erfiðleika við að
manna stöður við dagvistunarstofn-
anir, þá lýsi borgarstjórn því yfir að
launakjör stéttarinnar verði tekin til
sérstakrar skoðunar. Um tillöguna
verður greitt atkvæði síðar.
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins, tók undir
orð Kristínar og benti einnig á, að
sumir kæmu með þær tillögur að
fjölga börnum á hverja fóstru og
borga þeim betur. Það væri samt
ekki raunveruleg lausn, því kröfur
til dagvistunarstofnana væru mun
meiri en kröfur til dagmæðra. Einnig
væri stjórn Dagvistunar'barna að
vinna að tillögum til úrbóta, og hún
treysti þeim best til að koma með
tillögur til lausnar þessum vandamál-
um.
Davíð Oddsson, borgarstjóri
sagði „kjarnann ekki vera launam-
ál“. Davíð sagði að það væri ekki
rétt að dagvistunarkerfið væri í rúst,
það væri bara hluti sem væri illa
staddur. Einnig var hann duglegur
við að minna minnihlutann á að Palli
væri ekki einn í heiminum. „Vand-
inn er fyrir hendi, og launin bjarga
engu þar um“ sagði borgarstjóri, en
fóstrur og börn sem höfðu komið sér
fyrir á áhorfendapöllunum, voru
ekki alls kostar sammála mati hans.
Á fundinum átti einnig að taka til
afgreiðslu tillögu þess efnis að rýmka
opnunartíma verslana. Afgreiðsl-
unni var frestað, þar sem lögð var
fram breytingartillaga við opnunar-
tíma á sunnudögum. - SÓL
“Þetta er leiðinda ræktun í dag
þessi kartöflurækt, þegar mikið sp-
rettur og ekki fæst nokkur samstaða
um nokkurn hlut. Allir eru upp á
móti öllum. Það er voðalega leiðin-
legur húmor í mörgum bændum.“
Þetta sagði Páll Guðbrandsson, kar-
töflubóndi í Hávarðarkoti og for-
maður Landssambands kartöflu-
framleiðenda, í viðtali við Tímann
vegna uppskerumála. „Það versta er
að það fer enginn eftir neinu í öllum
þessum félögum. Þó að við séum að
samþykkja einhverjar reglur í lands-
sambandinu og eitthvað til að fara,
eftir, þá er það þverbrotið þegar við
komum út af fundum."
Þetta þykir mönnum víða innan
stéttarinnar vera til mikilla vand-
ræða því að engar reglur séu til og
ekkert vald liggi hjá félögunum.
Þannig sé ekki hægt að samþykkja
nein tilmæli til að samræma nokkurn
hlut, hvorki í sambandi við skipulag
eða hagræðingu.
„Það er hægt að segja að öllum sé
frjálst að rækta kartöflur hvar sem
er á landinu og selja þær hverjum
sem er og á hvaða verði sem er. Það
getur hver maður reynt að ímynda
sér hvernig það lítur út gagnvart
mönnum sem hafa af þessu lífsviður-
væri. Þetta er eins mikill frumskógur
og hægt er að hugsa sér,“ sagði Páll.
Einnig kannaðist hann við að
mjög lélegar heimtur væru á gjöldum
bænda til viðeigandi sjóða. Það væru
yfirleitt afurðasölusamtökin sem
tækju þessi gjöld af bændum en
skiluðu þeim ekki áfram. „Það eru
heildsölufyrirtækin sem halda gjöld-
unum, en bændurnir eru búnir að
borga þau. Það er vegna þess að
dregið er af okkur við útborgunina,
en því er ekki skilað til réttra aðila,“
sagði Páll Guðbrandsson að lokum.
- KB