Tíminn - 05.09.1987, Page 2
2 Tíminn'
Laugardagur 5. september 1987
Kort af leitarsvæðinu seni Landhelgisgæslan hefur notast við. Á þessu gríðarstóra svæði, hefur hvorki lundist
tangur né tetur af 10 metra löngum Vestmannaeyjahát.
Leit aö Hvítingi VE-21 úr lofti hætt:
. LEITIN ENN
ARANGURSLAUS
HSVK3ANK
_____ ClR LOFTI 5. SEPTCNIKCR
_____ BATAR A 5EPTEMBER
I i i ÚR LOFTt Á. SEPTEMBER.
Færeyjaheimsókn forsetans:
íslendingaboð í
Norræna húsinu
Á öðrum degi heimsóknar forseta
íslands, frú Vigdísar Finnbogadótt-
ur, til Færeyja, var mikið um að
vera.
Vigdís bauð m.a. til veislu seinni
partinn í gær og var sú veisla fyrir
íslendinga búsetta í Færeyjum, svo
og þá sem voru þar að störfum.
íslendingarnir eru á sjöunda tug, þar
af rúmlega tuttugu starfsmenn
Istaks.
Veislan var haldin í Norræna hús-
inu og stóð í rúma klukkustund. Var
forsetinn rómaður af veislugestum
fyrir aðlaðandi framkomu.
Veðrið í Færeyjum í gær var
snöggtum betra en það sem var á
fyrsta degi heimsóknarinnar. Þá
hellirigndi á gesti og gangandi. í gær
var hins vegar að mestu þurrt.
Forsetinn hefur fengið gjafir á
ferð sinni um eyjarnar, m.a. glæsi-
legt málverk frá íbúum Þórshafnar.
- SÓL
Esperantistar
þinga
Islenska esperantosambandið
heldur sitt áttunda landsþing í A-sal
á ráðstefnuhæð Hótels Sögu í dag kl.
14:00.
Breski málfræðingurinn, dr. John
C. Wells. kennari í hljóðfræði við
University College í Lundúnum
verður gestur þingsins. Að lokinni
þingsetningu ntun hann flytja hátíð-
arræðu í tilefni hundrað ára afntælis
alþjóðamálsins. Síðan mun Árni
ídag
Böðvarsson flytja stutt erindi um
tungumálamisrétti.
Bæði erindin verða flutt á esper-
anto og er öllum áhugamönnum
velkomið að hlýða þar á.
Dr. John C. Wells flytur síðan
fyrirlestur fyrir almenning á ensku í
Háskóla íslands og ber sá fyrirlestur
yfirskriftina „What's vvrong with
English?".
Leit að Hvítingi VE-21 hófst í
birtingu í gærmorgun. Flugvél
Landhelgisgæslunnar, TF-SÝN,
þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
SIF, og Orion og Hercules vélar
varnarliðsins fóru í loftið milli kl.
6 og 7 í gærmorgun og hófu leit úr
lofti, auk þess sem um 10 bátar
leituðu á hafinu.
Meginþungi leitarinnar hefur
farið fram við Surtseyjarsvæðið,
en skip fóru í gær allt að 75
sjómílur suður af Grindavík.
Hvorki finnst tangur né tctur af
þessu 7 tonna, 10 mctra langa
tréfiskiskipi. Leitarmenn hafa þó
fínkembt risastórt svæði og tekið
tillit til hámarks vinda og strauma
á svæðunum sunnan og austan
eyjanna.
TF-SÝN og TF-SIF hættu leit
upp úr tvö leytinu í gærdag, en
vélar varnarliðsins voru í loftinu til
fjögur. Skipin leituðu fram í
myrkur.
Reköld af ýmsu tagi hafa fundist
víða, en ekkert sem hægt er að
tengja með vissu við Hvíting. SIF
hefur skoðað útsker og eyjar, því
erfitt er að ganga fjörur á þessum
hamraskerjum.
Landhelgisgæslan hefur nú hætt
leit úr lofti, en verður áfram með í
skipulagningu og stjórn leitarinn-
ar.
Veðrið á leitarsvæðinu scm gerði
ieitarmönnum erfitt fyrir í fyrra-
dag, gekk að miklu leyti niður í
gær, en þó voru enn rúmlega 10
vindstig við Bjarnarey.
Tveir menn voru á Hvítingi,
báðir einhleypir og búsettir í Vest-
mannaeyjum. - SÓL
Frá leitariluginu úr TF-SÝN í
fyrrakvöld. Áhafnarmeðlimirnir
Jón Ebbi Kjörnsson (nær) og Öniar
Karlssou (fjær).
Myndin sýnir hvernig lcitin ór lofti
fer fram, en 3 menn leita sitt hvoru
megin í vélinni. Ilinamynd Pjctur
LENGI BÝR AÐ FYRSTU GERÐ.
Dagvist barna í Reykjavík rekur 61 dagvistarheimili
víðs vegar um borgina fyrir um 4000 börn á aldrinum
6 mán — 10 ára.
Megin viðfangsefni Dagvista er að búa hinum ungu
Reykvíkingum þroskavænleg uppeldisskilyrði í öruggu
og ástríku umhverfi í leik og starfi með jafnokum.
Við erum nú þegar um 600 manns sem önnumst þessa
yngstu borgara, en til að ná ofangreindum markmiðum
þurfum við liðstyrk áhugasamra einstaklinga.
Við óskum eftir: Fóstrum, þroskaþjálfum, uppeldis
fræðingum (BA —próf eða sambærilegt), einstaklingum
sem hafa öðlast reynslu við uppeldi eigin barna.
einstaklingum sem vilja öðlast reynslu í dagvistaruppeldi
fyrir væntanlegt nám.
Allar nánari upplýsingar um störfin gefur Fanny Jónsdóttir, deildarstjóri í síma 2 72 77 alla virka daga
frá kl. 9.00 - 16.00 og í síma 2 14 96 laugardag og sunnudag frá kl. 11.00 - 15.00