Tíminn - 05.09.1987, Blaðsíða 7

Tíminn - 05.09.1987, Blaðsíða 7
Tíminn 7 Laugardagur 5. september 1987 Laun fiskvinnslufólks hækkuöu minna en hjá öðru verkafólki í fyrra: Kauphækkanir ekki vegið upp lækkun á bónusnum Fiskvinnslufólk virðist á 1. fjórð- ungi ársins 1987 hafa borið nokkru minni launahækkanir úr býtum en annað verkafólk að meðaltali hvort sem borið er saman við hækkun frá 4. ársfjórðungi 1986 - þar sem nýju lágmarkslaunin koma inn í-eða við 1. ársfjórðung 1986. Sérstaklega á þetta þó við um karla í fiskvinnslu á höfuðborgarsvæðinu. Bónusinn óbreyttur í krónutölu í heiit ár Skýringin virðist geta falist í því að bónusinn hefur staðið í stað í krónutölu frá ársbyrjun 1986 til sama tíma 1987, og þannig lækkað sem hlutfall af launum. Hækkun tímakaupsins hjá fiskvinnslufólki virðist síðan ekki hafa dugað til þess að fólkið næði sömu hækkun greiddra dagvinnulauna og annað verkafólk. Hafnarkarlarnir kræfir Svo dæmi sé tekið hækkuðu dag- vinnulaun hafnarverkamanna á höfuðborgarsvæðinu um 40% á því ári sem hér um ræðir á meðan hækkun til fiskverkunarkarla á sama svæði var að meðaltali um 23% og allra verkamanna um 29%. Meðal- launahækkun fiskverkunarkarla á landsbyggðinni var um 34% en allra verkamanna um 42% að meðaltali. Daglaunahækkun fiskverkunar- kvenna á höfuðborgarsvæðinu var um 27% á því ári sem hér um ræðir en allra verkakvenna að meðaltali um 33%. Fiskverkunarkonur á landsbyggðinni náðu um 32% hækk- un daglauna sinna en meðalhækkun verkakvenna þar var um 35%. Mun- urinn er m.a. minni vegna þess að fiskverkunarkonur eru um helming- ur verkakvenna úti á landi og draga því niður meðaltaliö. Launaskriðið út á landsbyggðina Meiri hlutfallsleg launahækkun á landsbyggðinni en á höfuðborgar- svæðinu hefur orðið til þess að jafna launin milli þessara svæða, en iaunin Bændur - jarðeigendur Vil kaupa jörð á Suöurlandi. Allt kemur til greina, kvóti - kvótalaust, hýst - húsalaust. Skipti á fasteign gæti komiö upp í greiðslu ef vill. Fariö verður meö allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Tilboð sendist fyrir 15. sept. á Auglýsingadeild Tímans, merks Jörð - 505 voru áður hærri á höfuðborgarsvæð- inu. Það sama virðist hafa gerst hjá flestum öðrum stéttum í kringum síðustu áramót, þ.e. að launamunur milli landssvæða hafi minnkað veru- lega eða horfið. Ef litið er til 2ja ára tímabils, þ.e. frá 1. ársfjórðungi 1985 hefur fisk- verkunarfólk náð svipuðum hækk- unum og annað verkafólk og sömu- leiðis álíka miklum og iðnaðarmenn og konur í verslunar og skrifstofu- störfum. Þetta þýðir að það scm fiskvinnslufólk náði umfram aðra á árinu 1985 missti það aftur og gott betur á árinu 1986. Þeir lægstu enn aftastir á merinni Einnig er frovitnilegt að líta á Eigendur fjórhjóla og annarra tækja sem ekið er á utan vega Öll umferð slíkra tækja utan vega er með öllu bönnuð í Hafnahreppi (Hafnir) Gullbringusýslu. Þeir sem brjóta bann þetta verða umsvifalaust stöðvaðir og kærðir ef nauðsyn krefur. Landsvæði það sem um ræðir er frá mörkum Njarðvíkur og Hafnar allt suður fyrir Reykja- nesvita. Hreppsnefnd Hafnahrepps og landeigendur. þróunina milli 2ja ársfjórðunga í kring um síðustu áramót, þegar lágmarkslaun voru sem kunugt cr stórhækkuð. Greidd laun hækkuðu þá að meðaltali um 14-15% hjá flestum nema körlum í verslunarm- annafélögum. Þarna ntá hins vegar hafa í huga að ýmsar stéttir iðnað- armanna gerðu að margra mati „góða" samninga í vctur sem ekki ná inn í þennan samanburð. Þar sem þeir hafa haldið sínum hlut vel hvaða viðmiðun scm tekin er síðan 1980 má ætla að kjarasamningar þeirra í vetur og margumrætt launa- skrið í byggingariðnaöinum síðan í vor hafi fleytt þeim vel fram úr öðrum stéttum á almenna vinnu- markaðnum hvað varðar launasam- anburð. Dregið úr launaskriðinu í verslunargreinum syðra Þar kemur og til að verulega virðist hafa hægt á því launaskriði sem áður var meðal karla í skrif- stofustörfum þegar leið á árið 1986. T.d. náðu þeir ásamt afgreiðslukörl- um aðeins um þriðjungi þeirrar u.þ.b. 15% hækkunar sem varð hjá öðrum stéttum í kringum síðustu áramót sem fyrr segir. Þetta hefur m.a. orðið til þess að launamunur karla og kvenna innan verslunar- og skrifstofugreinanna hafði minnkað verulega í upphafi þessa árs. Þau laun sem hér hefur verið rniðað við eru greidd dagvinnulaun ásamt bónus, sem fyrr segir og tölurnar eru fengnar upp úr Frétta- bréfi Kjararannsóknarnefndar. Vísitalan 49%, launin 68*88% Frá því í febrúar 1985 til sama tíma 1987 hækkaði framfærsluvísi- talan um 48,5%. Á sama 2ja ára bili (1. ársfj. 1985-1987) hækkuðugreidd daglaun verkafólks, kvenna í versl- unar- og skrifstoofustörfum og iðn- aðarmanna á bilinu 84-88%, karla í skrifstofustörfum um 73% og karla í afgreiðslustörfum lang minnst eða 68%. Afgreiðslufólk var í byrjun þessa árs eina stéttin sem ekki hafði náð upp sama kaupmætti fyrir greidd dagvinnulaun og að meðaltali árið 1980, en iðnaðarmenn voru hins vegar komnir þar 10% umfram. - HEI Póst- og símaskólinn Rafeindavirkjanám Póst- og símamálastofnunin tekur nú í haust upp að nýju nám í rafeindavirkjun og óskar hér með eftir nemum á 7. önn. Umsækjendur skulu hafa lokið bóklegu námi á 6. önn í rafeindavirkjun. Námstími er 13 mánuðir, bóklegt nám og starfs- þjálfun hjá stofnuninni og lýkur með sveinsprófi. Laun eru greidd á námstímanum. Umsóknir, ásamt prófskírteini eða staðfestu afriti af því, sakavottorði og heilbrigðisvottorði, berist Póst- og símaskólanum fyrir 15. september n.k. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Póst- og síma- skólanum, hjá dyravörðum Landssímahússins við Austurvöll og Múlastöðvar við Suðurlandsbraut og ennfremur á póst- og símstöðvum. Nánari upplýsingar eru veittar í Póst- og síma- skólanum í síma 91-26000/336/385/386. Reykjavík, 2. september 1987. PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN Ifl REYKJÞMIKURBORG Umsjónarfóstra Umsjónarfóstra með daggæslu á einkaheimilum óskast til starfa strax. Um er að ræða 9 mánaða afleysingu vegna námsleyfis. Upplýsingar veitir Fanny Jónsdóttir, deildarstióri í síma 27277. I* I REYKJMJÍKURBORG ||| T Jtau&cvi Sfádwi 'i' Kvarnaborg, nýtt dagvistarheimili í Ártúnsholti óskar eftir fóstrum í heilar og hálfar stöður 15. sept. n.k. Uppiýsingar veitir forstöðumaður, Margrét Peter- sen, í síma 27277.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.