Tíminn - 05.09.1987, Qupperneq 12
12 Tíminn
Laugardagur 5. september 1987
FRÉTTAYFIRLIT
RÓM — Stjórn ítalíu ætlar aöi
senda herskip til Persaflóa til1
að vernda skip sín á þessum
slóðum. Þessi tilkynning
ítölsku stjórnarinnar fylgdi í
kjölfar skyndiárásar íransks
byssubáts á ítalska freigátu á
fimmtudaginn.
KÚVAIT —Óþekktlangdræg 1
eldflaug lenti á suðurströnd
Kúvait í gær en engin meiðsli
á fólki eða skemmdir á mann-
virkjum urðu þegar hún sprakk.'
LUNDÚNIR - Nýjustu
átökin á Persaflóanum urðu til i
þess að gull hækkaði í verði á
mörkuðum í Lundúnum.
ULSAN, Suður-Kórea
— Leiðtogar fimmtán þúsund1
verkamanna við skipasm íðast-
öðvar í Suður-Kóreu sögðu þá1
mundu halda áfram verkföllum
sínum í ár eða meira eða svo
lengi sem til þyrfti til að fá hærri
laun. Þeir lofuðu hinsveaar að
hætta öllum ofbeldisaogerð-i
um.
TRIPÓLI, Líbanon -
Andstæðar sveitir i hinum á-
hrifamikla Sósíalistaflokki sýr-
lenskra þjóðernissinna
(SNSP) lenti saman í norður-
hluta Líbanons og létust að
minnsta kosti tveir menn í
þeim átökum.
Moskva - Reuter
Hæstiréttur í Sovétríkjunum
dæmdi í gær Vestur-Þjóðverjann
Mathias Rust til fjögurra ára vistar í
vinnubúðum fyrir að fljúga lítilli
einkaflugvél sinni inn í sovéska loft-
helgi og lenda nærri Rauða torginu
í Moskvu án þess biðja um leyfi.
Dómarinn Robert Tikhomirnov
dæmdi Rust til fjögurra ára fyrir
„meinfýsin spellvirki", þrjú ár fékk
hann fyrir að hafa brotið alþjóðleg
flugumferðarlög og tvö ár fyrir að
hafa komið inn í Sovétríkin á ólög-
legan hátt. Rut mun afplána dóma
þessa samtímis.
Hinn nítján ára gamli Vestur-
Þjóðverji sýndi engin svipbrigði þeg-
ar dómurinn var lesinn upp og var
síðan fylgt í burt af tveimur sovésk-
um vörðum. Honum var þó leyft að
hitta ntóður sína, Móniku, föður
sinn, Karl-Hcinz, og yngri bróður
Mathias Rust: Fjögur ár í vinnu-
búðum.
Ingó áður en réttarhöldunum lauk
Rust fékk vægasta dóminn sem
hægt er að fá ef menn eru sendir í
sovéskar vinnubúðir, refsing hans
nær til almennrar nauöungarvinnu.
Ekki er hægt að áfrýja þessum dómi
til æðri dómsvalda í Sovétríkjunum
en stjórnin í Kreml hefur vald til að
náða Rust.
Tikhomirnov dómari sagði að
sönnunargögn þau sem lögð hefðu
verið fram í málinu bentu til að
ævintýraþrá hefði ráðið þessari ferð
Rust.
Rust gat átt von á tíu ára fangels-
isdómi fyrir flugferð sína og sækj-
andinn í ntálinu hafði áður farið
fram á að hann yrði dærndur til átta
ára nauðungarvinnu.
Vestur-þýskir stjórnmálamenn
voru flestir á því í gær að refsingin
til handa Rust væri of hörð og létu
margir þeirra í Ijós þá von að
Gorbatsjov Sovétleiðtogi og stjórn
hans milduðu refsinguna og jafnvel
náðuðu flugkappann.
„Jafnaðarmenn bæði vona og bú-
ast við að sovéskir valdhafar láti
hinn nítján ára gamla ungling í
umsjá foreldra sinna og að hann
þurfi því ekki að eyða fjórum árum
í sovéskum vinnubúðum," sagði
Hans-Jochen Vogel talsmaður Jafn-
aðarmannaflokksins síðdegis í gær.
Alfred Dregger talsmaður hins ráð-
andi flokks kristilegra demókrata
tók í sama streng: „... en ég vona að
dómurinn sé ckki síðasta orðið í
þessu máli,“ sagði Dregger.
Nágrannar Rust fjölskyldunnar í
Hamborg lýstu þó ekki mikilti samúð
með flugmanninum unga og einn
sagði að það þyrfti að hýða drcnginn
duglega þegar heim kænii.
TOKYO — Ríkisstjórn Yas- ,
uhiro Nakasone í Japan gekk j
enn einu skrefi lengra í þá átt
að losa sig viö hlutabréf sín í
japanska flugfélaginu JAL.
Flugfélagið er eitt af nokkrum
stórum japönskum ríkisfyrir-
tækjum sem stjórnvöld ætla að
selja í hendur einkaaðilum.
MOSKVA — Sovéska her-
málqagnið Krasnaya Zvezda
sagði að 143 manns hefðu ;
látið lífið á þessu ári eftir árásir i
afganskra skæruliða á sovésk-
ar Antonov flutningavélar sem
notaðar eru til mannflutninga í
Afganistan.
NAIROBI — Jean-Baptiste
Bagaza, sem var bolað úr
forsetastólnum í Burundi í vik-
unni, flaug frá Paris til Nairobi
oa virtist sem hann ætlaði sér
aö komast aftur til lands síns.
f gær var þó ekki vitað hvar
hann héldi sig nákvæmlega.
MOSKVA — Tveir apar hafa
verið þjálfaðir í geimferða-1
tækni síðustu tvær vikurnar í
Sovétríkjunum og eiga þeir að ■
fara í loftið með nýian sovésk-,
an gervihnött. Það var dag-,
blaðið Sovetskaya Rossiya j
sem frá þessu skýrði. I
Mathias Rust kom hingað til lands í vor og var myndin tekin við það ForeldrarMathiasarRustásamtyngribróð-
tækifæri: Nokkrum dögum síðar var hann lentur á Rauða torginu í ur hans Ingó: Vonsvikin.
Moskvu.
með gleraugu og leit hann ekki út
fyrir að vera sá maður sem tók sér á
hendur hættulega flugferð á vorrnán-
uðum.
Aðrir leikendur vöktu einnig at-
hygli. Vsevolod Yakovlev, verjandi
Rust, tók af sér gleraugun og setti
þau á til skiptis og beitti hrífandi
mælskulist þegar hann fór fram á
væga refsingu til handa skjólstæðingi
sínum. Vestrænir fréttamenn höfðu
það á orði Yakovlev væri hinn
sovéski Perry Mason, sú fræga
bandaríska sjónvarpshetja.
Vladimir Andreyev, sækjandinn í
ntálinu, var klæddur í blá einkennis-
föt sem sýndu að hann er háttsettur
á skrifstofu ríkissaksóknara. Hann
var alvarlegur á svipinn og svipbrigð-
ih endurspegluðu málflutning hans.
Fyrir neðan Rust og verði hans
tvo sátu tveir túlkar sem skiptust á
að túlka orð Rust yfir á rússnesku og
önnur orð yfir á þýsku. Þeir túlkuðu
á óaðfinnanlegan hátt og notuðu
meira að segja handahreyfingar til
að leggja áherslu á þýðinguna.
Foreldrar Rust og yngri bróðir
hans sátu í annarri röð við hiiðina á
vestur-þýskum stjórnarerindreka.
Fréttamenn hreinlega gleyptu þau
þegar þau fóru inn og út úr dómshús-
inu.
Fyrir utan voru svo sovéskir borg-
arar og ekki allir ánægðir: „Ég kom
alla leið frá Tadzhikistan (í Mið-
Asíu) og þeir vildu ekki hleypa mér
inn,“ sagði einn miðaldra ntaður og
bætti við að „Glasnost" eða opnun-
arstefna Gorbatsjovs Sovétleiðtoga
næði greinilega ekki nógu langt.
v,
Réttarsalurinn í Moskvu þar sem Rust var dæmdur:
Minnisstæðir
persónuleikar
Moskva - Reuter
Það virtist cnginn kippa sér upp
við það í gær þegar Karl-Hcinz
Rust, faðir vestur-þýska táningsins
sem gerði landvarnarmenn Sovétr-
Rauða torginu þann 28. maí, stóð
upp í hæstarétti landsins og tók
nokkrar myndir.
Það var kannski ekki skrýtið,
embættismenn í dómsalnum,
að hér var á ferðinni merkur atburð-
ur sem minnisstæðir persónuleikar
settu mark sitt á.
Hinn nítján ára gamli Mathias
Rust var t miðju þessa mikla leik-
íkjanna að fíflum þegar hann lenti á áhorfendur og fréttamenn vissu allir sviðs. Hann var snyrtilega klæddur.