Tíminn - 11.09.1987, Blaðsíða 2

Tíminn - 11.09.1987, Blaðsíða 2
2 Tíminn Föstudagur 11. séptember 1987 Söluskattsskyldum f jölgar um fjórðung Söluskattsgreiðcndum fjölgaði um rúmlega fjórðung frá síðustu mánaðamótum þegar um 2.350 þjónustufyrirtæki, sem gert erskylt að innheimta fyrir ríkið 10% sölu- skatt, bættust við þau rúmlega 9.290 söluskattskyld fyrirtæki sem áður voru á skrá. Af þessum 2.349 nýju aðilum cru 1.477 í Reykjavík og aðeins 322 utan suðvcsturhorns landsins. Af þeim söluskattsskyldu fyrirtækjum sem fyrir voru, scm fyrst og fremst cru vcrslanirnar, cru hins vegar um 47% í Reykjavík en þriðjungur utan R-kjördæm- anna. í Ijósi þess að söluskattinn grciða landsmenn sjálfir bcint eða óbcint cr athyglisvcrt að söluskattskyld fyrirtæki (og cinstaklingar) skuli vera 11.641 talsins. En það þýðir að aðeins um 21 íslcndingur stcnd- ur á bak við hvcrn söluskattsaðila og þar af aðcins um hclmingúrinn á vinnumarkaðnum. Þeir 2.349 scm nú bættust við cru lögfræði- stofur, fasteignasölur, cndur- skoðcndur, vcrkfræðingar og arki- tektar, viðskiptafræðingar, auglýs- ingastofur og fleiri. Þótt aðeins væri rciknað með 2 starfsmönnum að mcðaltali í starfi hjá hverju þessara fyrirtækja væri þarna um að ræða nær hátt á 5. þúsund af alte um 100 þúsund manns í starfi hjá öðrum en ríki og bæ. Starfsemi auglýsingastofa cr t.d. mcðal þeirra greina sem hvað örast hcfur „blómstraö" á undanförnum árum. í þeirri grein eru 175 skráðir söluskattsgreiðcndur hjá skatt- stjóra. Miöað við að þær starfi 250 daga á ári, samsvarar þaö því að hverjar 2 fjölskyldur í landinu standi undir rckstri auglýsingastofu einn dag á ári. En þann kostnað greiöa landsmenn í gegnum vöru- verð, fjölmiðlaáskriftir og fleiri slíkar leiöir. Svipað má raunar segja um góðan hluta þcirra þjón- ustufyrirtækja sem nú eru að bæt- ast við á söluskattsgreiðslulista skattstjóranna. -HEI Flugvél í sjóinn: Flugmaður hífður upp úr köldum sæ Fjögurra sæta, Cessna Skyhawk vél frá Bandaríkjunum hrapaði í sjóinn, um 160 mílur vestur af Kefla- vík. Flugvélin var að koma frá Mainfylki í Bandaríkjunum á leið til Evrópu í ferjuflugi. Tilkynning barst flugstjórninni í Keflavík á þriðja tímanum í fyrri- nótt, og sagðist flugmaðurinn vera mjög tæpur á bensíni og óttast að ná ckki til Keflavíkur. Flugvél Flug- málastjórnar fór til móts við flugvél- ina og var yfir henni þegar flugmað- urinn nauðlenti henni stórglæsilega á sjónum. Þá var klukkan orðin rúmlega 4. Maðurinn var í flotbúningi og dólaði í sjónum í tæpan klukkutíma, eða þar til þyrla frá varnarliðinu kom og hífði hann úr köldunt sæ. Hercules vél frá varnarliðinu var þá einnig kontin á vettvang, en sncri við. Flugmaðurinn var kominn á Borg- arspítalann um það leyti sem fólk fór á fætur í gærmorgun. Honum líður vel eftir atvikum. -SÓL Áætlaður fjöldi gjaldskyldra þjónustuaðila til sérstaks söluskatts eftir atvinnugreinum og skattumdæmum - einstaklingar og félög 841 842 843 845 849 lögfr. lógg.end. verkfr. aug- viðskfr. fast- bokhalds- tæknifr. lysinga- tölvuvinn. Hlutfallsl. eignas. þj. o.fl. arkit. o.fl. þjónusta o.fl. Samtals skipt. % Reykjavik 261 201 624 123 268 1 477 62,88 Reykjanes 80 74 220 38 138 550 23.42 Vesturl. 9 19 20 1 2 51 2.17 Vesttiröir 2 14 9 0 3 28 1.19 Norðurl v 2 12 7 0 1 22 ‘ 0,94 Norðurl. e. 13 26 57 9 21 126 5,36 Austurl. 1 17 15 1 5 39 1.66 Suðurl. 8 11 19 2 4 44 1,87 Vestm eyj. 3 5 1 1 2 12 0,51 SAMT 379 379 972 175 444 2 349 100,00 Fljótstungurétt: Réttum flýtt Síödegis á morgun og á sunnudag verður réttað í Fljótstungurétt á Hvítársíðu í Mýrasýslu. Við greindum frá því að fyrirhug- aðar réttir þar yrðu mánudaginn 14. september cn réttum var flýtt og verður því byrjað að rétta síðdegis á morgun og svo byrjað aftur eld- snemrna á sunnudag. ABS Háskólabóka- safnið fær stóra bókagjöf Jolin M. Harrington, sendiherra Kanada færði bókasafni Háskóla íslands um 100 kanadískar bækur að gjöf fyrir hönd kanadísku þjóðarinnar. Signiundur Guðbjarnason rektor H.í. og Einar Sigurösson bókavöröur Háskólabókasafns tóku á móti bókagjöfinni í gær. Bóka- safninu var gefinn kostur á að velja bækurnar sjálft af lista yfir bækur sem varða kanadi.sk málcfni og eru bæði á ensku og frönsku. Bækurnar fjalla m.a. um sögu, landafræði, ævisögur, mannfræði og bókmenntir. Tíinamynd C>unnar Þorskaflinn yfir 300 þúsund tonn Bráðabirgðartölur Fiskifélagsins: Vestmannaeyjar í öðru sæti. með 4.044 tonn. Sé litið yfir allt árið, verður útkoman allt önnur. Vest- mannaeyjar hafa veitt tæp 140 þús- und tonn og eru langaflahæsta sjáv- arplássið samkvæmt venju. -SÓL Flnífamaðurinn á Dalvík: Laus en í farbanni Eins og lesendur Tímans minnast. greindi blaðið frá útlendingi búsett- um á Dalvík, sem lenti í ryskingum við bæjarbúa eftir dansleik og brá þá m.a. hnífi á loft og lagði í brjóst eins bæjarbúans. Rannsókn málsins er nú á lokastigi hjá Rannsóknarlögreglunni á Akur- eyri og fer von bráðar rétta boðleið í íslensku réttarkerfi. Útlendingnum hefur verið sleppt úr varðhaldi, en cr í farbanni þar til málinu er lokið. Hann hafði skallað einn ballgesta og síðan stungið hann í brjóstið. Sá sem varð fyrir stungunni slapp mjög vel. ' ~ -SÓL Fyrstu átta mánuði ársins hefur þorskafli landsmanna farið yfir 300 tonn, sem eru þau mörk sem Haf- rannsóknarstofnunin setti sem há- marksafla fyrir allt árið. Setti stofn- unin þessi mörk mcð tilliti til vaxtar hrygningarstofnsins og varaði við rneiri veiði. Ljóst þykir að þorskafli lands- manna verði ekki undir 370 þúsund- um tonna, miðað við 369 þúsund tonn í fyrra. Heildarþorskfiskafli allra skipa í ágústmánuði var tæp 37 þúsund tonn og veiddu togarar tæp 26 þúsund tonn af því. Heildarafli báta í mán- uðinum var 22.868 tonn af þorski og öðrum botnfiski, rækju, hurnri og hörpudiski. Tögararnir vciddu hins vegar tæp 41 þúsund tonn af botn- fiski. Það sem af er árs hafa togarar því veitt samtals 285 þúsund tonn af ýmsum sjávardýrum, og bátar rúm 747 þúsund tonn. Heildarafli allra skipa er orðinn 1.033.130 tonn. Á sama tíma í fyrra höfðu öll skip veitt samtals rúm 900 þúsund tonn. Hins vegar var þorskatli landsmanna fyrstu átta mánuði síðasta árs ekki nema 276.029 tonn. Reykjavík er staða aflahæstur í ágústmánuði, með 4.286 tonn og Pétur Friörik viö eina mynda sinna. Pétur Friðrik sýnir sölu og eru þær llestar málaðar í ár Pétur Friðrik opnar á laugardag- inn málverkasýningu í einum sala Holliday Inn. sem nafnið bcr Sigtún. Sagði Pétur í samtali við Tímann að þetta væri Irckar lítil sýning hjá sér í þctta sinnið, aðcins um 30 niyndir. Sagði Pétur að myndirnar væru til og tyrra. Petur, sem hélt sýna tyrstu sýningu 12 ára gatnall í Málaraglugg- anurn, sagðist ekki hafa lengur töl- una á jreirn sýningum sent hantj hef- ur haldið. Hann sagðist ekki stunda aðra vinnu cn þessa og ekki hafa gert Tíniamynd: Brcin í Sigtúni í mörg ár. Myndirnar eru allflestar landslags- myndir og crtt m.a. frá Þingvöllum. Rcykjavík, Grindavík ogHafnarfirði. Sýningin setn opnar kl. 15. á laugar- dag verðun opin í lOdaga. Aðgangur er ókeypis.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.