Tíminn - 11.09.1987, Síða 4
4 Tíminn
Föstudagur 11. september 1987
Loksins komið loðnuverð:
ER FRJALST VERD
EDA FAST VERD?
,„Pað eru tvær ástæður fyrir því
að ég sat hjá við atkvæðagreiðsl-
una. í fyrsta lagi var það fullreynt
að ekki myndi þokast áfram.
Þ.e.a.s. ólíklcgt var að kaupendur
myndu hækka sitt kauptilboð.
Þetta verð mat ég of lágt, gengið út
frá áætlunum, um afkomu í veiðum
og vinnslu á loðnu til bræðslu. Það
var fullljóst að erfitt var að finna út
það verð sem gæti verið til hags-
bóta báðum aðilum, þá taldi ég
réttast að það verð yrði að ákvcð-
ast, þar sem tapinu væri skipt niður
á milli greinanna.
I öðru lagi, að hefði ég greitt
atkvæði gegn tillögunni, þá hefði
hún fallið á jöfnu. Það var ckkert
annað í sjónmáli. Hjá þessu varð
ekki komist," sagði Benedikt
Valsson, oddamaður yfirncfndar
Verðlagsráðs sjávarútvegsins í
samtalið viðTímann, en hún komst
loks að niðurstöðu með loðnuverð
í fyrradag.
Lágmarksverð á loðnu til
bræðslu var ákveðið 1.600 krónur
á tonnið og er þá miðað við 16%
fituinnihald og 15% fitufrítt þurr-
efni. Vcrðið breytist um 74 krónur
til hækkunar cða lækkunar fyrir
hvcrt % sem fituinnihald breytist
frá viðmiðun og hlutfallslega fyrir
hvert 0,1%
Vcrðið var ákveðið samkvæmt
tillögu kaupenda, Einars Jónatans-
sonar og Vilhjálms Ingvarssonar
gegn atkvæði fulltrúa útgerðar-
manna, Sverris Leóssonar. Óskar
Vigfússon, fulltrúi sjómanna og
Benedikt Valsson, oddamaður,
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Fundir yfirnefndar voru alls
fimm, og kom tilboð kaupenda
fram á þeim þriðja. Scljendursettu
bins vegar fram tilboð sitt um 100
krónur á tonnið. Astæðan fyrir svo
lágu tilboði cr sú, að sjómenn og
útgerðarmenn höfðu krafist frjáls
verðs á loðnunni, en verið neitað í
Verðlagsráði. Á þennan hátt voru
þeir að endursegja þá afstöðu sína.
En er þctta ekki staðfesting á
frjálsu verði, yfir 1.600 krónum?
„Eg vcit það eiginlega ekki, en
tilboð okkar stendur alveg áfram.
Verðlagsráðsverðið hefur aldrei ver-
ið nema bremsa niður á við og alltaf
frjáist að fara upp á við, þannig
að það er engin breyting," sagði
Geir Þ. Zoega, framkvæmdastjóri
Krossanesverksmiðjunnar á Akur-
eyri í samtali við Tímann.
Loðnuverksmiðjur um land allt
eru nú komnar í viðbragðsstöðu,
en aðeins Krossanesverksmiðjan
tilkynnt verð ofar ákvörðun Verð-
lagsráðs.
Færeyskir sjómenn sem komu
inn til Siglufjarðar í vikunni til-
kynntu um loðnu Islandsmcgin við
Grænlandslínuna svo kölluðu.
þannig að nú má búast við brottför
loðnubáta á rniðin á hverjum degi.
-SÓL
Undirbúningsnefnd Norrænu kvennaráðstefnunur í ösló, sem haldin verður á
næsta ári. Þær Arndís Steinþúrsdóttir, frá Kvenréttindafélagi Islands og
Guðrún Ágústsdóttir frá Framkvæmdanefnd um launamál kvenna eiga sæti í
nefndinni fyrir liönd íslenskra kvenna. límamynd Gunnar
Norrænt kvennaþing í
Osló í september '88
Náttúrulækningafélag íslands 50 ára:
20. september verði
heilsuverndardagur
Náttúrulækningafélag íslands
hefur skorað á veitingahús landsins
að leggja sérstaka áherslu á að liafa
á boðstólum hollan mat og holl-
ustusamlega matreiddan sunn-
udaginn 20. september. Þetta er
gert í tilefni þess að nú eru 50 ár
liðin frá því Jónas Kristjánsson
læknir stofnaði Náttúrulækninga-
félag íslands í þeim tilgangi að efla
og útbreiða þekkingu á heilbrigðu
lifi og heilsusamlegum lifnaðar-
háttum.
Fæðingardagur Jónasar er 20.
september og hyggst Náttúrulækn-
ingafélagið minnast afmælisins á
ýmsan hátt og er áskorun á veit-
ingahúsin einn þáttur þess. Nátt-
úrulækningafélagiö hefur einnig
varpað fram þeirri hugmynd að
hald.i slíkan náttúruverndardag 20.
sept mber ár hvert og að sýna
þannig og sanna fyrir landsmönn-
um að íslcnskir veitingamenn séu
meðvitaðir um hollusamlcga
matseld. Þá er átt við að veitinga-
hús leggi sérstaka áherslu á græn-
meti, bæði ferskt og soðið, grófa
brauðvöru. ávaxta og berjadrykki,
hóllega fitu og óbrasaðan mat.
SJÖ PRESTAR ÓSKAST
Konur á Norðurlöndum ætla að
halda mikið þing í september á
næsta ári í Osíó og vcrða þar rædd
málefni kvcnna út frá sem flestum
sjónarhornum. Vonast skipuleggj-
endur þingsins til að það fari fram
með svipuðu sniði og kvcnnaráð-
stefnurnar miklu í Mexíkó, Nairobi
og Kaupmannahöfn, nema hvað hér
er eingöngu á dagskrá staða kvenna
á Noröurlöndum.
í síðustu viku hé|t undirbúnings-
nefnd þingsins fund sinn í Reykja-
vík. Á blaðamannafundi nefndar-
innar kom m.a. fram að hugmyndin
að þinginu hafi fæðst 1085 en orðiö
að verulcika fyrir tilstuðlan forsætis-
nefndar Norðurlandaráðs og nor-
rænu ráðherranefndarinnar. Lögðu
þó fulltrúar í nefndinni áherslu á að
allt skipulag þingsins væri alfarið í
höndum kvenna. Að sögn Guðrúnar
Ágústsdóttur er vonast til að þátttak-
endur verði á bilinu 5000-8000 og er
þingið öllum opið. Þó verður hinum
ýmsu félagasamtökum boðin þátt-
taka og hafa um 70 samtökum hér á
landi verið send bréf þar sern þeim
er boðið að senda fulltrúa á þingið.
Sjálft þingið mun standa í 8 daga
og fer fram á lóð Oslóarháskóla.
Veröur reynt að styrkja þá þátttak-
endur sem koma með beint framlag
til ráöstefnunar, hvort sem það verð-
ur í formi fyrirlestra, málverkasýn-
inga eða annars. Þá mun íslenska
undirbúningsnefndin reyna að út-
vega áhugasömu kvcnfólki ódýrar
fcrðir til Osló. -phh
Nú hefur biskup íslands auglýst
sex prestaköll laus til umsóknar og
auk þess cmbætti eins farprests.
Umsóknarfrcstur er til 5. október.
Prestaköllin eru þcssi: Bjarnanes
í Skaftafellsprófastsdænri (Höfn í
Hornafirði), en þar hefur Baldur
Kristjánsson verið settur sóknar-
prcstur síðan 1985; Breiðabólsstað-
ur í Húnavatnsprófastsdæmi, en
Róbert Jack, fyrrverandi prófastur,
hefur fengið þaðan lausn frá embætti
sökum aldurs; Háls (í Fnjóskadal) í
Þingeyjarprófastsdæmi, en Hanna
María Pétursdóttir, fyrrverandi
sóknarprestur, hcfur fengið þaðan
lausn frá embætti, enda fer hún nú
til starfa við Skálholtsskóla; Ólafsvík
á Snæfellsnesi (í Snæfells- og Dala-
prófastsdæmi), þaðan hefur Guð-
mundur Karl Ágústsson fengið lausn
frá embætti, enda hefur hann verið
rkipaður sóknarprestur í Hóla-
irekkusókn í Reykjavík; Patreks-
'jörður í Barðastrandarprófasts-
dæmi, en Þórarinn Þór, fyrrverandi
prófastur hefur fengið þaðan lausn
frá embætti sökum aldurs og aldurs
í starfi; Raufarhöfn í Þingeyjarpróf-
astsdæmi, en þar hefur ekki verið
skipaður sóknarprestur í fáein ár.
Þá er það einnig að frétta af
biskupsstofu að Kristján Róbcrtsson
hefur verið kallaður af sóknarnefnd
Seyðisfjarðarprestakalls til að gegna
þar embætti sóknarprests frá 1. okt-
óber. Hann er 62 ára að aldri og
hefur hann gegnt prestsþjónustu síð-
an 1950. Kona hans er Auður Guð-
jónsdóttir. KB.
Jón Þórarinsson tónskáld
sjötugur:
Hátíðar-
samkoma
í Þjóðleik-
húsinu
I tilefni þess að Jón Þórarinsson
tónskáld verður sjötugur 13. scpt-
ember mun Sinfóníuhljómsveit ís-
lands gangast fyrir hátíðarsamkomu
til heiðurs Jóni í Þjóðleikhúsinu
þann dag kl. 14.00. Jón var einn af
frumkvöðlum að stofnun sinfóníu-
hljómsveitarinnar árið 1950 og hefur
alla tíð unnið að framgangi og upp-
byggingu tónlistarlífs í landinu.
Þegar Jón kom frá tónlistarnámi í
Bandaríkjunum skömmu eftir lok
síðari heimsstyrjaldarinnar gekk
hann strax í lið með þeim mönnum
sem börðust fyrir stofnun sinfóníu-
hljómsveitarinnar. Þeir náðu tak-
marki sínu árið 1950 þegar útvarps-
ráð samþykkti að veita fjárstyrk til
starfrækslu sinfóníunnar „í tilraun-
arskyni". Jón var fyrsti formaður
stjórnar sinfóníuhljómsveitarinnar
og þegar rekstrarformi sinfóníunnar
var breytt í sjálfseignarstofnun „í
eitt ár í tilraunarskyni" var Jón
ráðinn framkvæmdastjóri og sá hann
um reksturinn næstu fimm árin. Á
þeim tíma var ráðist í stóraukið
tónleikahald og m.a. var ráðist í
tónleikaferðir út í landsbyggðirnar.
Jón Þórarinsson hefur verið giftu-
ríkur í tónsmíöum sínum og samið
mörg tónverk svo sem tónlistarverk-
in Völuspá og Minni Ingólfs sem
frumflutt var á 200 ára afmæli
Reykjavíkurborgar. auk ótal söng-
laga, kammerverka og kórvcrka. Þá
hefur Jón stjórnað mörgum kórum
og hljómsveitum jafnframt því sem
hann hefur útsett fyrir hljómsveitir
og kóra fjölmörg íslensk lög sem ella
hefðu ef til vill fallið í gleymsku.
ísland án-
ingarstaður
alþjóðlegra
Farfugla
fsland mun verða áningarstaður
alþjóðlegra Farfugla í næstu viku.
Það verða um 70 þátttakendur á
alþjóðlegri ferðaráðstefnu Farfugla
sem Bandalag íslenskra farfugla
mun halda í samvinnu við alþjóða-
hreyfingu Farfugla á Hótel Loftleið-
um dagana 14.-19. september. Þátt-
takendurnir eru allir starfsmcnn og
stjórnendur ferðaskrifstofa Farfugla
í hinum ýmsu löndum og munu John
Parfitt fyrsti varaforseti og Dennis
Lewis framkvæmdastjóri alþjóða-
hreyfingarinnar sitja ráðstefnuna.
Menntamálaráðherra mun setja ráð-
stefnuna í Farfuglaheimilinu að
Sundlaugavegi 34 árla dags 14. sept-
ember.