Tíminn - 11.09.1987, Page 5
Föstudagur 11. september 1987
Tíminn 5
Reykja-Jón langafi
Bandaríkjaforseta?
Vestur-íslcndingar hafa í fimm-
tíu ár eða svo talið fullvíst að
Ronald Reagan, forseti Bandaríkj-
anna, væri af íslenskum ættum,
eða nánar sagt ættaður frá Reykj-
um á Rcykjaströnd. Samkvæmt
arfsögninni var Björg Jónsdóttir
amma Ronalds Reagan í föðurætt.
Hún var dóttir Reykja- Jóns, scm
kenndur var við Rcyki á Reykja-
strönd, og fluttist utan frá Sauðár-
króki tuttugu og eins árs gömul
árið 1887 með skipinu Camoens og
settist að í Winnipeg, |rar sent hún
giftist síðar Páli Eiríkssyni frá
Bakka í Viðvíkursveit af Djúpa-
dalsætt. Pau eignuðust soninn Entil
Walthers, sem varð frægur listmál-
ari vestan hafs og kom margoft til
íslands.
Árið 1892 eignaðist Björg son,
sem skírður var William og hafði
ættarnafnið Cody. Þetta var þó
ckki Buffalo Bill heldur nafni hans.
Þessi William Cody kom við sögu
kvikmyndagerðar vestra, en fór á
hausinn um 1930. Björg var 26 ára
þegar hún eignaðist William, en
eftir þann tíma mun hún hafa gifst
Páli frá Bakka og tóku þau sér
nafnið Walthers.
Af ástæðum sem erfitt er að
skýra fyrir íslendingum hefur þess-
um uppruna Ronalds Reagans ver-
ið haldið leyndum. Áhersla hefur
verið lögð á að hann væri af írsku
foreldri, en Reagan-hjónin munu
hafa verið barnlaus og tekið hann
í fóstur. Áhersla hefur verið lögð á
þetta írska ættcrni, og hefur Reag-
an m.a. farið til Irlands til að
undirstrika það. Þykir gott að vera
af írskum ættum í Bandaríkjunum
ætli menn í ríkisstjóra - eða forseta-
framboð vestra.
Þegar Reagan var orðinn forseti
í hið fyrra sinnið vaknaði niikill
áhugi að fá söguna um rétt faðerni
hans upplýsta. En þegar til átti að
taka reyndust kirkjubækur, þar
sem mátti sjá allan sannleikann í
málinu, læstar sainkvæmt skipun
frá skrifstofu forseta. Þetta bann er
enn í gildi. Þcss er vænst að þegar
Reagan lýkur síðara tímabili sínu
á forsetastóli í Bandaríkjunum
muni hcimilt að opna kirkjubæk-
urnar, og þá mun staðfesting á
hinum rétta uppruna hans koma í
ljós. Það þykir ekki sigurstranglegt
að lcita kjörs í æðstu embætti í
Bandaríkjunum og vera Norður-
landabúi eða lausaleiksbarn.
William Cody, sonur Bjargar
Jónsdóttur, scm tók sér fari mcð
skipi til Ameríku sumarið 1897,
var um tvítugt þcgar hann eignaðist
Ronald Reagan. Ekki hefur tckist
að grafa upp nal'n móður hans, en
William Cody vissi vel af þcssum
syni sínum, cnda vann Reagan í
fyrstu undir handleiðslu lians, cftir
að harin fór að sinna kvikmyndum,
þótt Cody væri þá sjálfur hættur að
reka kvikmyndaver. Cody andaðist
árið 1950.
Það cr svo skemmtileg tilviljun,
að bæði Ronald Reagan og dóttir
hans hal'a komið til íslands. Vel má
vera að þeim sé báðum kunnugt
um, að ættarþræðir þcirra liggja til
Islands, allt norðurá Reykjaströnd
og Sauðárkrók. Hingað kom dóttir
forsetans um það leyti scm hún var
að hcfja að skrifa ævisöguþætti
sína.
Athuganir Tímans leiða sterkar líkur að því að Reykja-Jón hafi veriö
langafi hans.
Gæsaskyttur í glæfraleik:
Kristbjörn Árnason:
Höglin skutust yfir
menn og málleysingja
Lögreglan á Akureyri fékk sím-
hringingu frá vegfaranda á mánu-
dagskvöidið, þar sem tilkynnt var
um menn sem væru að skjóta í þoku
og rökkri við Þveráreyrar í Eyjafirði.
Þegar lögreglan kom á staðinn var
skyggni aðeins um 100 metrar og
notaði hún gjallarhorn til að biðja
mennina að hætta skothríðinni.
Mennirnir voru fimm og sagði
Konráð Jóhannsson, sem var vitni
að atburðinum:
„Þetta kvöldskytterí er búið að
var hér í mörg ár, en nú tók steininn
úr. Fólk var í stórhættu þarna, t.d.
hestar og kýr stóðu skjálfandi af
hræðslu upp við girðingar og það
hvinu högl í kringum fólk í heyskap
þarna niður á bökkunum. Þetta
gekk bara ekki lengur," sagði
Konráð.
Konráð hefur stundað gæsaveiðar
í 25 ár og sagði hann ótal dæmi um
fólk sem hreinlega skyti beint út úr
bílgluggum og ylli stórhættu. Skot-
félag Eyjafjarðar harmaði atburðinn
og ætla sér að taka á málinu.
Rannsóknarlögreglan á Akurcyri
hefur tekið skýrslu af mönnununt og
hefur sent málið áfram til Ólafs
Ólafssonar, fulltrúa hjá bæjarfógeta.
-SÓL
Unnið við grunn að nýrri lögreglustöð á Sauðárkróki. Þar verður einnig til húsa sýsluskrifstofa og
bókaverslun.
Byggt yfir lög og rétt
Fréttaritar Tímans í Fljótum, Öm Þórarinsson
skrífar.
Fyrir skömmu hófust bygginga-
framkvæmdir við hús á Sauðárkróki
þar sem ætlað er að verði lögreglu-
stöð, sýsluskrifstofa og bókaverslun
í framtíðinni. Húsið verður á tveim-
ur hæðum alls 1070 fermetrar að
stærð og er áætlað að hluti hins
opinbera verði tilbúinn undir tréverk
um mitt næsta ár.
Nýja húsið kemur til með að bæta
til mikilla muna aðstöðu á sýsluskrif-
stofu Skagafjarðar sem verið hefur
til húsa að Víðigrund 5 í 25 ár. Það
húsnæði er löngu orðið alltof lítið
enda málaflokkar sem tilheyra sýslu-
skrifstofunni sífellt verið að aukast
undanfarin ár.
Nýja húsið rís við Suðurgötu 1
gegnt húsi Pósts og síma á Sauðár-
króki. Verktaki er byggingafélagið
Hlynur hf. á Sauðárkróki.
Svör frá VSI
ómálefnaleg
Fundur var haldinn í gær hjá
sáttasemjara í deilu Félags starfs-
fólks í húsgagnaiðnaði og VSI.
Kristbjörn Arnason, formaður fé-
lagsins sagði í viðtali við Tímann
fyrir fundinn að félagið hefði lagt
fram kröfur sínar hjá sáttasemjara,
en VSÍ hefði svarað með bréfi þar
sem ekki hefði vcrið tekið nijög
málefnalega á hlutunum.
Sagðist Kristbjörn vonast til þess
að hægt yrði að afgreiða þessa
ómálefnalegu hlið málanna sem
fyrst og að VSI sæi sér fært að
leggja fram móttillögursínar. Von-
aðist Kristbjörn að það yrði gert á
fundinum í gær og síðan yrði farið
í að ræða raunverulegar kröfur
félagsins um fastlaunasamning eins
og febrúarsamningar þessara aðila
hefðu gert ráð fyrir. -phh
Bílþjófar á Akureyri:
Reyndu við einn,
en tóku svo hinn
Aðfaranótt miðvikudagsins lang-
aði þrjá unga menn að fara í bíltúr
um Akureyrarbæ á einhverjum öðr-
um bíl en sínum eigin. Þeir fór því
sem leið lá niður í Slippstöðina og
reyndu að tengja framhjá í einum
bílnum, en án árangurs. Þeir brutust
því inn í Bílasölu Norðurlands, tóku
þaðan lykla að Galant bíl sem þar
var til sölu og óku á brott.
Næst héldu þeir til Vélsmiðju
Steindórs, brutust þar inn og stálu
peningum, tóbaki og skiptimynt.
Lögreglan á Akureyri hirti þá
skömmu síðar á bílnurn. -SÓL
Vinnuslys í Sólheimum:
Féllu ofan af
7. hæð
Um hálf fimm í gær varð vinnu-
slys við eitt af háhýsunum í
Sólheimum.
Þar voru tveir menn á vinnu-
palli að athafna sig á sjöundu
hæð, þegar pallurinn féll til
jarðar. Annar maðurinn féll með
pallinum alla leið til jarðar, en
hinum tókst að krækja í kaðal á
leiðinni niður.
Báðir mennirnir voru fluttir á
slysadeild Borgarspítalans, þar
sem þeir fóru í rannsókn. -SÓL