Tíminn - 11.09.1987, Qupperneq 6
6 Tíminn.
Föstudagur 11. september 1987
Níræð spræk í
strembinni háfjallaferð
Pétur H. Ólafsson afhendir Ágústínu Halldórsdóttur sérstakt viðurkenning-
arskjal fyrir háfjallaferöina.
„Ég fór svona í ferðina eins og
hver annar og það var ekkert um
það. Petta gekk allt saman afskap-
lega vel og hann var afar góður.
fararstjórinn, mjög skemmtilegur og
góður maður, og ég hafði það
ágætt.“ Petta sagði Ágústína Hall-
dórsdóttir, elsti ferðalangurinn í há-
fjallaferð Félags eldri borgara sem
farin var í lok ágústmánaðar. Ágúst-
ína er 91 árs gömul en lét það ekki
á sig fá, heldur tók svefnpokann sinn
undir hcndina og hélt í fimm daga
háfjallaferð, alls 1600 kílómetra
leið.
„Jú, þetta var dálítið strembin
ferð“ sagði Ágústína, „en ég er nú
bæði vön að ganga og hef alltaf verið
létt til gangs. Ég hafði eiginlega
ætlað mér í háfjallaferð sem þessa
fyrir löngu síðan en hef aldrei látið
verða af því fyrr en nú. Ég hef ferðast
mikið áður bæði innanlands og utan.
Sérstaklega utanlands."
Pað voru tæplega hundrað manns
sem héldu í þessa ferð eldri borgara.
Að morgni dags 26. ágúst var haldið
úr Rcykjavík sem lcið liggur upp í
Pjórsárdal, þaðan inn í Veiðivötn,
síðan Sprengidalsleið inn í Nýjadal.
Þar var áð um nóttina.
Snemma morguns daginn eftir var
farin Gæsavatnaleið inn í Öskju,
þaðan niður í Herðubreiðalindir og
sem leið liggur að Laugum þar sem
Fyrsti dans Ágústínu í 36 ár. Hann
var stiginn á harmoníkuballi í húsi
eldri borgara á Akureyri.
áð var seint um kvöld eftir 17 tíma
ferð. Daginn eftir lá lciðin niður
Laxárdal til Húsavíkur og út á
Tjörnes og upp í Ásbyrgi. í Ásbyrgi
var Ágústína með þeim fyrstu sem
gengu upp á brún þar sem sá yfir
jarðfallið. Þaðan var haldið í Jökuls-
árgljúfur þar sem fossar voru
skoðaðir og endað á Dettifossi. Eftir
að hafa skoðað fossana var haldið
upp að Jökulsárbrú, norður fyrir
Mývatn og niður að Laugum á ný.
Á fjórða degi var haldið sem leið
liggur að Goðafossi, fram um Dals-
mynni í Laufás og hið markverðasta
þar skoðað. Akureyri var næsti án-
ingarstaður og tók hópurinn þar þátt
í hátíðarhöldum vegna afmælis Ak-
ureyrarbæjar. Um kvöldið var slegið
upp balli í húsakynnum félags eldri
borgara á Akureyri. l>ar tók Ágústína
sinn fyrsta snúning í 36 ár. Hinn
heppni var Pétur H. Ólafsson for-
maður ferðanefndar og að hans sögn
var Ágústína hjólliðug í dansinum
strax eftir fyrsta dans. Þau dönsuðu
saman þrjá dansa undir fjörugri
harmoníkumúsík sem hljómaði fram
á kvöldið. Frá Akureyri var síðasti
áfanginn farinn suður Kjalveg að
Þingvöllum þar sem borðaður var
kvöldverður og ferðin rædd. Þar
þökkuðu ferðalangar Ágústínu sér-
staklega fyrir ferðina. Frá Þingvöll-
um var haldið til Reykjavíkur og
komiö þangað seint um kvöld.
Á fyrsta opna húsi Félags eldri
borgara í Reykjavík var Ágústína
heiðursgestur og var henni þar fært
sérstakt viðurkcnningarskjal frá
samferðafólki í ferðinni.
Aðspurð um það hvort Ágústína
ætlaði aftur í ferð sem þessa sagðist
hún ekki vera búin að ákveða það.
Það færi allt cftir heilsunni. Hún
hefði Itins vegar ekki fundið fyrir
ferðinni frekar en hún hefði ekki
farið neitt. -HM
Hótel Saga í líkamsræktina
Hótel Saga er nú komin á fullt í
líkamsræktinni, en í kjallara hinnar
nýju álmu hótelsins er nú búið að
opna Baðstofuna, þar sem boðið er
upp á aðstöðu til líkamsræktar. I
Baðstofunni er að finna tækjasal til
þrekþjálfunar, stóra kerlaug með
vatnsnuddi, gufubað, nuddstofu og
sólbekki.
í Baðstofunni eru léttar veitingar
á boðstólum, auk þess sem þar eru
seldar snyrtivörur, svo og sérstakar
olíur og burstar fyrir nudd, bæði
fyrir almennt nudd og svokallað
appelsínunudd.
Það er Ásta Sigrún Gylfadóttir
sem veilir Baðstofunni forstöðu, en
Baðstofan er opin alla virka daga frá
klukkan 8 árdegis til klukkan 21, en
frá lukkan 10 til 14 um helgar.
Baðstofan er opin bæði fyrir hótelg-
esti og utanaðkomandi.
Eftirfarandi yfirlit gefur almennum launamanni
hugmynd um hvernig staögreiðsla opinberra
gjalda fyrir 1988 gengur fyrir sig.
Staðgreiðsla - álagning - uppgjör.
Um 36%
af öllum
launum
umfram
33.800
kr. á mán,
Losnum ekki viö skattskýrsluna fyrir 10. febrúar
ár hvert
„Mönnum hefur orðið tíðrætt um
að árið, sem er að líða, verði skatt-
laust. í því sambandi hefur gætt
nokkurs misskilnings," segir Garðar
Valdimarsson ríkisskattstjóri m.a. í
TÍUND, fréttabréfi RSK, þar sem
hann skýrir ýmiss atriði hins nýja
staðgreiðslukerfis og þær breytingar
sem því fylgja bæði fyrir launþega og
launagreiðendur.
Skattarnir reiknaðir út en
yfirleitt ekki innheimtir
Garðar segir að bæði almenningi
og launagreiðendum þurfi að vera
ljóst að þeir séu í ársbyrjun 1988
skyldugir til að telja fram með
hefðbundnum hætti tckjur sínar á
þessu ári og eignir um næstu áramót.
Að forminu til verði álagning tekju-