Tíminn - 11.09.1987, Síða 12
12 Tíminn
Föstudagur 11. september 1987
FRETTAYFIRLIT
TEL AVIV — ísraelskir
leiötogar og þarlendir fjölmiölar
voru nær einróma í því aö
hafna boöi Yassir Arafat leiö-
toga PLO um beinar friöarviö-
ræöur milli PLO og ísraels. Þá
hefur PLO algerlega neitaö því
aö hafa átt þátt í boði Arafats
og mun ekki eiga í slíkum
viöræöum.
PARIS — Miklar skemmdir
uröu á kuvaitíska - franska
bankanum í París þegar
sprengja sprakk þar. Engin
meiösl uröu á mönnum í þess-
ari sprengingu, sem er önnur
sprengjuárásin á arabískan
banka í vikunni.
BRUSSEL — Tuttugu og
fimm breskir knattspyrnuað-
dáendur hafa veriö framseldir
til Belgíu og ákærðir þar fyrir
manndráp. Ákæran varoar
hlutdeild þeirra í harmleiknum
á Heysel leikvanginum fyrir
tveimur árum þegar 39 manns
létust í átökum aðdáenda ít-
alska liösins Juventus og
breska liðsins Liverpool.
MANILA — Um leið og Cora-
zon Aquino forseti Filippseyja
viöurkenndi í sjónvarpsút-
sendingu hiö ótrygga ástand í
landinu hvatti hún landslýð til
aö standa gegn öllum bylting-
artilraunum hersins. En
leiðtogar hinni misheppnuöu
byltingartilraunar hafa enn ekki
verið handteknir og hóta aö
reyna aftur að bylta stjórninni.
MOSKVA — Heimildir
herma aö Sovétrikin hafa hvatt
íran til aö stuðla aö því aö
friðarferð aöalritara Samein-
uöu þjóðanna, Javier Peresar
De Cuellar til Persaflóa veröi
árangursrík.
BAGHDAD - i sameigin-
legri yfirlýsingu íraks og Líbýu
er lögð áhersla á aö friösamleg
lausn veröi fundin á deilunum
viö Persaflóa og einnig er þar
skorað á iran aö samþykkja
áskorun Sameinuöu þjóöanna
frá 20. júlí sl. um vopnahlé.
JÚGOSLAVIA — Þúsund
Júgóslavar í borginni Novi Sad
þurftu að þola matareitrun af
völdum salmonella þegar þeir
gæddu sér á samlokum. Þetta
er stærsta tilfelli matareitrunar
þar í laodi í tvo áratugi.
MALLORCA - Fjórir
grænfriðungar voru teknir fastir
á Mallorca og einn gúmmíbáta
þeirra eyðilagður þegar þeir
reyndu að hindra bandarískt
herskip í aö leggjast þar aö
bryggju. Var þetta liöur í bar-
áttu gegn kjarnorkuvopnum,
en herskipiö getur borið slík
vopn.
ÚTLÖND
Illlllllllli!l!!ll!l!lllll!!!!ll!!l!lllllllllll!!llllll
Reagan og Kontra skæruliðar:
AðstoðuppálO
milljarða 1988
Ronald Rcagan Bandaríkjaforscti
vill aö handaríska þingið veiti
Kontra skæruliðum, scm berjast
gcgn stjórn Sandinista í Nicaragua,
aðstoð upp á 270 milljónir dala eða
scm samsvarar rúmum l() milljörð-
um íslcnskra króna á næstu átján
mánuðum. Á þcssu ári fengu Kontr-
arnir fjóra milljarða ísl. króna frá
stjórn Reagans.
Þctta kom fram þcgar Schultz
utanríkisráðhcrra vitnaði fyrir utan-
ríkisnefnd bandarísku öklungar-
deildarinnar. Schultz sagði „að þetta
væri sú upphæð scm mótspyrnu-
hrcyfing Kontra þyrfti til þjálfunar,
tækjabúnaðar og annarra hluta er
sn.ertu pólitíska og hernaðarlcga
baráttu þeirra fyrir friði, hvorki
mcira nc minna".
Schultz sagði að cf Kontraliðar
fcngju ekki nieiri aðstoð eftir 30.
september, þegar bandaríska fjár-
lagaárinu lýkur, þá mun sú áætlun
unt frið, sem kennd er við Arias
forseta Costa Rica, aðeins þjóna
hagsmunum kommúnistanna í Nic-
aragua. En í þeirri áætlun ergert ráð
fyrir að allri utanaðkomandi aðstoö
við skæruliðahreyfingar í Mið-Ame-
ríku verði hætt.
Friðaráætlun Ariasar, sem undir-
rituð var af 5 forsetum Mið-
Ameríkuríkja í Guatemala í ágúst
sl. kemur til framkvæmda 7. nóv-
ember n.k., en við sama tækifæri
lýsti Schultz því yfir að áætlun sú
væri einungis gott byrjunarskref. Þá
hét Reagan forseti því á þriðjudag
að aðstoð við skæruliðana yrði hald-
ið áfram þangað til „raunverulegt
lýðræði væri komið á í Nicaragua".
Taldi Schultz nauðsynlegt fyrir
skæruliðana, sem stæðu í átökum
við kúbanska ráðgiafa og her búinn
fullkomnum sovéskum vopnum, að
fá þennan stuðning hið fyrsta. Sagði
hann: Ef koma á Ariassamkomulag-
inu í framkvæmd á þann hátt að
samningsbundið vopnahlé verði
tryggt, lýðræðisleg þróun hefjist í
Nicaragua og öryggishagsmunir við-
komandi þjóða tryggðir, eins og
áætlun Ronalds Reagan og Jim
Wright forystumanns demókrata í
bandaríska þinginu kveður á um, þá
verða Bandaríkin að styðja frelsis-
baráttu Kontranna".
Það er hins vegar Ijóst að ekki
verður auðvelt að fá þing Bandaríki-
anna til að samþykkja svo mikla
aðstoð viö Kontra skæruliðana og
reyndar hafa frjálsyndir demókratar
þegar byrjað að skipuleggja baráttu
gegn því að aðstoð við þá verði
framhaldið. En samkvæmt heimild-
um er Reagan reiðubúinn til að nota
maður-á-mann aðferðina við öldu-
ngardeildarmenn til að fá beiðnina
samþykkta.
; j ...... . w&dSjíPW*-
'
'y.V,-.
|
^ ' *
.,r .
Ný stjórn í Danaveldi:
Stjórnar-
taumarnir
í höndum
Schluters
Persaflói að fyllast af lierskipum ýmissa landa.
Persaflóastríöið:
Harðnandi átök fyrir
friðarferð DeCuellar
Átökin á Persaflóa fóru vaxandi í
gær eftir að hafa legið niðri í hartnær
viku þegar íranskir fallbyssubátar
réðust á olíuflutningaskip frá Kýpur.
Á sama tíma hélt íranskt stórskota-
lið uppi einhverri öflugustu stór-
skotahríð sem um getur frá stríðs-
byrjun fyrir 7 áruni á landamærabæi
í Irak. Þá bárust fréttir frá Baghdad
um að íraskar flugvélar hefðu gert
árás á skotmörk í Iran.
Á sama tíma berast fréttir um að
á næstunni verði 75 herskip ýrnissa
þjóða á Persaflóa til þess að vernda
skipaleiðir og slæðá tundurdufl.
Það er því erfitt vcrk, sem bíður
Perez De Cuellar aðalritara Samein-
uðu þjóðanna sem lagði upp í friðar-
ferð sína til Persaflóa í gær.
Þegar Öryggisráðið ákvað að senda
aðalritarann í heimsókn til írans og
Iraks til þess að freista þess að koma
á friði, var farið fram á við bæði rfkin
að þau hættu vopnaskiptum á meðan
hann væri þaráófriðarsvæðinu. íran
hefur lofað að gera sitt besta, en
ekkert hefur komið frá írak þess
efnis. Hins vegar vænta kunnugir
þess að vopnaskakið minnki meðan .
á ferð DeCuellar stendur, cn hann
verður í Teheran á föstudag.
DeCuellar sagðist við brottför
sína vera vongóður um árangur af
ferð sinni og sagðist vonast eftir
jákvæðum og skýrum viðbrögðum
deiluaðila við tillögum sínum.
Þetta er önnur tilraun Peresar
DeCuellars til að koma á friði við
Persaflóa á síðustu tveimur árum,
en hann fór árangurslaust í hcim-
sókn til landanna í apríl 1985.
Svalbarði:
Isbjörn sviptir
mann höfuðleðri
Hollenskur vísindamaður á Sval-
barða varð fyrir þeirri óþægilegu
reynslu að ísbjörn skrapaði af hon-
um hálft höfuðleðrið og særði fé-
laga hans illa þegar björninn réðist
á þá í skýli þcirra.
í frásögn Verdens Gang af at-
burðunum segir að ísbjörninn hafi
náð vænum hluta af höfuðleðri
vísindamannsins, þegar hann
reyndi að rcka bjarndýrið á brott
frá aðseturstað sínum sl. sunnu-
dag. Samstarfsmaður hans kom til
hjálpar þegar hann hcyrði ópin og
hóf baráttu við björninn með log-
andi kyndli og berum höndum.
Það dugði fyrir þá félaga til að
komast undan villidýrinu inn í
skýlið.
Mcnnirnir tvcir. vopnlausir og
sambandslausir við umheiminn.
hýrðust síðan fangnir í skýlinu
franr á miðvikudag. þegar hol-
lenskt rannsóknarskip fann þá.
Þeir voru síðan fluttir með þyrlu
tvö hundruð kílómetra leið á
sjúkrahús í Longyearbyert, stærsta
byggða bóli á Svalbarða.
Það tók Poul Schlúterekki langan
tíma að mynda nýja stjórn, enda var
aðeins um að ræða endurreisn á
fyrrverandi stjórn. Þessi stjórn verð-
ur mun veikari minnihlutastjórn, en
sú fyrri þar sem hún hefur aðeins
stuðning 70 af 179 þingmönnum í
danska þinginu.
Þá hefur Schlúter enga samninga
gert við þá tvo flokka, sem hafa
verið nefndir sem hugsanlegir stuðn-
ingsflokkar stjórnarinnar, Róttæka
vinstri flokkinn og Framfaraflokk-
inn. Hefur orðið vart nokkurrar óá-
nægju innan þessara flokka með
málsmeðferð Schlúters. En Schlúter
segif að ríkisstjórnin verði að leggja
■fram tillögur sínar og fá um þær
umræöu til að sjá hvort meirihluti er
fyrir samþykkt þeirra. Danska þing-
ið kemur saman 6. október og þykir
trúlegt að framtíð og tilvera hinnar
nýju stjórnar ráðist um miðjan des-
ember, þegar fjárlagafrumvarp
næsta árs verður lagt fram.
Formaður Jafnaðarmannaflokks-
ins, Anker Jörgensen situr nú eftir
með sárt ennið og kallar vinnubrögð
Schlútcrs leikaraskap.
í nýju fjögurra flokka stjórninni
sitja 22 ráðherrar. Sex nýir ráiðherrar
koma til starfa og tvö ný ráðuneyti
verða stofnuð, eins konar efnahags-
ráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti.
Þá fá minni flokkarnir tveir í stjórn-
inni, Mið-Demókratar og Kristilegi
þjóðarflokkurinn hvor um sig einn
ráðherra til viðbótar.
OLLVINNSLA
PRENTVERKEFNA
mm P R E N T S M I Ð J A N i
^^•ddc
a
Smiöjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Simi 45000.