Tíminn - 16.09.1987, Blaðsíða 5
Skóladagur í Tívolí
Leyfið var
afturkallað
Ekki gróðasjónarmið
sem ráða ferðinni
„Það var búið að veita leyfi
sem hefur núna verið afturkallað
og þannig stendur málið núna.
Það var gert vegna þess að við
nánari athugun sýndist mönnum
að þarna ætti að vera lengri
dagskrá heldur en sótt var um og
því þóttu ekki liggja fyrir nægileg-
ar upplýsingar. A þessari stundu
liggur því ekki fyrir neitt leyfi til
samkomu þarna hvað sem
verður", sagði Jón I. Guðmunds-
son yfirlögregluþjónn á Selfossi,
en hann ásamt sýsluraanni á Sel-
fossi gefur út leyfi til samkom-
uhalda sé um það sótt.
„Mér finnst það nú spurning
hvort þetta passar inn í skólakerf-
ið, við þurfum a.m.k. að vita
hvað þarna á að vera á seyði“,
sagði Jón ennfremur aðspurður
um hvernig honum litist á sam-
komuhald af því tagi sem fyrir-
hugað er. - ABS
Tíminn hafði samband við Krist-
in T. Haraldsson og Hjört Hjartar-
son forsvarsmenn Bókarans, vegna
viðbragða skólayfirvalda, bruna-
málastjóra og lögregluyfirvalda.
Þeir höfðu ýmsar athugasemdir
fram að færa og sögðu m.a. að það
væri af og frá að þessu skemmtana-
haldi réðu gróðasjónarmið. Þeir
sögðu að enginn einn skóli gæti
komið svona skemmtun í kring og
það væru þeirra sambönd sem
gerðu þetta framkvæmanlegt.
Krakkarnir hefðu verið mjög já-
kvæðir og því hefði verið haldið
áfram að vinna að því að halda
skemmtilegan dag fyrir krakkana.
Aðspurðir hvort ekki væri óeðli-
legt að hafa ekki samband við
skólameistara viðkomandi skóla
sögðu þeir að hingað til hefðu
skólaskemmtanir verið haldnar án
milligöngu skólanna en sjálfsagt
væri að ræða við alla aðila.
Varðandi leyfið sem hafi verið
afturkallað í bili hafi eingöngu
verið um að ræða að Tívolí teldi sig
hafa skemmtanaleyfi frá 22:00 til
03:00 en óskað hefði verið eftir að
umsókn um leyfi hljóðaði upp á
tímann frá 15:00 til 03:00.
ABS
Miðvikudagur 16. september 1987
Tíminn 5
Brunamálastjóri:
Fá ekki leyfi
Tíminn hafði samband við
skólayfirvöld varðandi fyrirhug-
aðan skóladag í Tívolí og í stuttu
máli sagt komu rektor MR, skóla-
meistari Fjölbrautaskóla Vestur-
land á Akranesi og aðstoðarskól-
ameistari Fjölbrautaskólans á
Selfossi af fjöllum þegar þeir
voru spurðir um skóladaginn.
„Skóladagur í Tívolí? Ég hef
ekkert af þessu heyrt, þetta hefur
ekki borist hingað upp á Akranes
svo þú segir mér fréttir. Við
fyrstu sýn líst mér heldur illa á
þetta. Mér finnst að nemendafé-
lög eigi sjálf að hafa forgöngu um
samskipti og samkomuhald milli
skóla. Þarna er nú stefnt að stóru
dæmi sem ég veit ekki hvort
mcnn ráða við ef eitthvað fer úr
böndunum. Ég sé ekki að þctta
eigi skylt við skólastarf og ég þarf
nú einhvern tíma til að kyngja
þessu þegjandi og hljóðalaust.
Þaðer t.d. ekki heimilt aðauglýsa
rútuferðir frá skólunum án þess
að hafa um það samráð við við-
komandi skólayfirvöld," sagði
Þórir Ólafsson skólameistari á
Akranesi.
„Ég var nú að heyra af þessu í
morgun skildist reyndar að þetta
væri all miklu minna í sniðum og
að þetta ætti að vera dagskemmt-
un til tíu um kvöidið eða þar um
bil. Við munum hugsa okkar mál
og átta okkur á því hvað hér er
að gerast,“ sagði Örlygur Karls-
son aðstoðarskólamcistari Fjöl-
brautaskóla Suðurlands á Self-
ossi, þrátt fyrir að í bréfi umboðs-
skrifstofunnar Bókarans standi
að Fjölbrautaskólinn á Selfossi
standi fyrir hátíðinni.
„Hvað scgirðu7 mér líst nú
bara engan veginn á þetta. Mér
líst ekkert á að einhverjir um-
boðsmenn úti í bæ ætli að taka að
sér skólaskemmtanir út um
hvippinn og hvappinn. Ég hélt að
félagslífið í skólunum væri fyrst
og fremst til að auka þroska
nemenda sjálfra. Ef þetta brýtur
ekki gegn lögum þá brýtur það
a.m.k. gegn öllu velsæmi finnst
mcr. Svona samkomur eiga eng-
an rétt á sér á skólatíma, alls
engan og ég mun spyrja forystu-
menn í mínu liði um þetta. Þarna
cru bara þeir á ferð sem vilja
plokka peninga af krökkunum,”
sagði Guðni Guðmundsson rekt-
or Menntaskólans í Reykjavík.
Því má svo bæta við að nem-
endafélagi Fjölbrautaskóla Vest-
urlands var formlega svarað í gær
þess efnis að ferð þessi yrði alls
ekki farin í nafni skólans.
ABS
Tíminn hafði samband við Berg-
stein Gizurarson brunamálastjóra
en Brunamálastofnun hefur krafist
þess að skipt verði um þak tívolís-
ins vegna þess að núverandi þak
fullnægir ekki kröfum Brunamála-
stofnunar um brunavarnir því efni
þaksins logar sjálft ef í því kviknar.
„Það er af og frá að það sé leyft
héðan að halda hópsamkomur
þarna. Tívolí er á undanþágu og
hún miðar að því að staðurinn sé
rekinn sem tívolí, ekki að halda
þarna hópsamkomur og það er
eigendum Tívolís fullkunnugt um.
Það eru gerðar sérstakar kröfur til
samkomuhúsa og húsið þarna er í
fyrsta lagi á undanþágu. Það hefði
jafnvel verið á undanþágu þrátt
fyrir að skipt hefði verið um þak
því brunamálareglugerðin gerir
ekki ráð fyrir byggingum úr plasti.
Það hefur hins vegar ekki verið
vilji hér að koma í veg fyrir mögu-
leika sem svona plast gefur þannig
að stofnunin hefur verið reiðubúin
til að gefa undanþágur f vissum
tilfellum, en ekki þó til hóp-
skemmtana.
Umboðsfyrirtækið Bókarinn:
leika.
Á blaðamannafundi sem haldinn
var til kynningar á fyrirhuguðum
skóladegi kom fram að aðstand-
endur skóladagsins vonast til að
nokkur þúsund manns mæti í Tív-
olí en „að sjálfsögðu munu öll
leiktæki vera í gangi til að auka
stemmninguna. Bókarinn mun
skipuleggja rútuferðir frá skólun-
um... “ eins og segir í bréfi sem
afhent var á fundinum.
Það kom einnig fram á fundinum
að fyrirhugað er að halda eins
konar skólahátíðir á gamlárskvöld
og í lok skólaársins og yrðu þær
sambærilegar við þá sem fyrirhug-
uð er nú, enda hefur Bókarinn
Aðstandendur skóladagsins
Tímamynd: Pjetur
tekið Tívolí á leigu í vetur til
tónleikahalds, skóladansleikja og
þess háttar fyrir þá sem þess óska
eins og segir í kynningarbréfi
Bókarans.
Varðandi gæslu á staðnum á
meðan skóladagurinn fer fram er
búist við að hjálparsveit skáta í
Hveragerði sjái um gæsluna, en
einhver önnur hjálparsveit skáta
ella og að sögn undirbúningsmanna
verður allt gert til þess að skóladag-
urinn fari sem best fram.
ABS
Guöni Guðmundsson rektor í MR:
Peningar plokk
aðirafkrökkum
Umboðsfyrirtækið Bókarinn í
Reykjavík hefur að undanförnu
undirbúið svokallaðan skóladag
sem meiningin er að halda laugar-
daginn 26. september í Tívolí í
Hveragerði. Skóladagurþessi hefst
kl. 15:00 um daginn og stendur til
kl. 03:00 aðfaranótt sunnudags og
er ætlaður fyrir alla fjölbrautaskóla
og menntaskóla á Suðurlandi en
auk er skóladagurinn opinn öllum
öðrum sem áhuga hafa.
Meðal skemmtikrafta skóladags-
ins eru Bubbi, Megas, Júlíus
Brjánsson, Edda Björgvinsdóttir,
Laddi, Bjartmar Guðlaugsson,
Rauðir fletir, Sykurmolarnir og
Gildran. Ennfremur standa Jón
Páll og Hjalti Úrsus fyrir skóla-
keppni um sterkasta nemandann
sem fer m.a. fram með rafgeyma-
lyftu, japanskri glímu sem engar
reglur gilda um, sekkjahlaupi og
fleiru. Keppni milli skóla fer fram
í eggjaáti, bátaralli, blöðrudarti og
reiptogi yfir vatn á móti Jóni og
Hjalta auk klessubílaaksturs.
Greifarnir eiga svo að sjá um
lokasprettinn og „leika fyrir ( ) til
kl. 3:00“ eins og segir í kynningar-
bréfi frá Bókaranum, en sviginn
hér á undan gefur til kynna eitthv-
k
að óákveðið. Ekki mun vera um
opinbert ball til kl. 3:00 að ræða,
en ekki er meiningin að meina
fólki að dansa á meðan Greifarnir