Tíminn - 16.09.1987, Side 14

Tíminn - 16.09.1987, Side 14
14 Tíminn Miðvikudagur 16. september 1987 BÓKMENNTIR Nýmæli, Ijóð ungskálda 1982-1986, Eysteinn Þorvaldsson valdi efnið og annaðist utgáfuna, Iðunn 1987. Það verður vitaskuld að tcljast sæta tíðindum þegar út kemur á bók töluvert rækilegt úrval af því sem yngstu ljóðskáldin hafa verið að gera. Hjá því fólki verður að gcra ráð fyrir að séu á fcrðinni þær breytingar, umbyltingar, nýjungar og framfarir, sem þegar stundir líða fram vcrða vegnar, mctnar og vænt- anlega teknar gildar sem liður í allri þeirri framþróun sem sífellt er að verða í Ijóðagerð og allri endursköp- un bókmenntanna. Ég ncfni þetta vcgna þcss að það cru töluvcrðar byrðar lagðar á herð- ar þcirra sem hverju sinni vclja sér það hlutskipti að viðhalda hér Ijóða- gerð. Eins og menn vita hefur það hvorki mcira né minna cn verið aðalcinkcnni þjóðarinnar í aldanna rás hvað hún hefur verið hneigð til að fella hugsanir sínar í Ijóðform af einni cða annarri gerð. Það hefur geysimikið og raunar ómælanlegt magn Ijóða verið ort á íslandi í ellefu hundruð ár. Og þótt vissulega sé margt af því léttvægt þá stendur hitt óhaggað að upp úr rís verulega mikið af góðum og jafnvcl gullvæg- um Ijóðum, sem túlka það fremsta sem hugsað hefur verið á hinum ýmsu tímum. I'essi arfur fclur svo samtímis í sér að hér á landi cr ríkjandi sterk Ijóðahcfö. Al' því leiðir að ný Ijóð eru stöðugt og kannski ósjálfrátt borin saman við hin eldri. Og alltaf er hætt viö að nýju Ijóðin vilji þá standa í skugganum af þeim gömlu framan af, og að út úr þeim skugga verði ungu skáldin að brjótast, ætli þau sér að komast til álits og viröing- ar. Ljóðhefð nútímans En hvernig cr þá Ijóðhefð nútím- ans, eins og hún blasir við á þessari bók? I Ivaö er að gerast í Ijóðagerð- inni núna sem er frábrugöiö því gamla? Áöur en ég rcyni að svarti því vil ég þó geta þess að ekki vcrður bctur séð en að val Eysteins Þorvaldssonar í þessa bók og vinna hans við hana séu hvortveggja vel af hendi leyst og samviskusamlcga. Hann er aukheld- ursá bókmenntafræðingur scm hvað mest og best hel'ur kannað Ijóða- gerðina hér allt frá tilkomu módern- isma og atómskálda, og þessi nýja bók sýnir að hann hefur áfram veriö vakandi yfir því sem hefur verið að gcrast og komti fram. Miöað við það sem ég hef sjálfur lesið af þcssum bókum get ég ekki annað séð en úrval hans þarna gel'i bæði sannferöuga rnynd af Ijóðagerð ungu skáldiinna síðustu árin og að í því sé komið fram hæfilega breitt sýnishorn til aðgcfajöfnum höndum hugmynd um yrkisefnin og þau viö- horf til þeirra sem nú eru mest ráðandi. Rcglan, sem valið er eftir. er sú að taka aðeins í bókina Ijóð eftir skáld sem fædd eru 1952 eða síðar, með öðrum orðum fólk sem var um eða undir þrítugu við upphaf tímabilsins 1982-86. Vitaskuld má svo endalaust deila uin það hvort taka hefði átt þetta ljóðið eða liitt, cftir eitt skáld eða annað, en út á þær brautir skal ég ekki fara hér. Þó skal ég nefna að ekki fer á milli mála aö tvö skáld standa þarna nokkuð áberandi upp úr hvað gctu snertir, þeir ísak Harð- arson og Gyrðir Elíasson. Líka fer ekki hjá því að Sjón og hin súrreal- ísku Ijóð hans veki þarna athygli; þau eru án efa áhugaverðar tilraunir. hvaða augurn sem menn vilja líta á gæði þeirra. Mikil einstefna En það sem stingur fyrst og fremst í augun við lestur bókarinnar er hin mikla einstefna sem ríkjandi cr inn- an hennar allrar. Með hæfilegri ein- földun væri alls ekki fjarri lagi að halda því fram að engu sé líkara en að öll gæti hún verið ort af einu og sama skáldinu. Ályktunin, sem draga má af þessari bók, er því fyrst og fremst sú að núna sé ríkjandi ákveðin tískustefna í Ijóðagerðinni, og að þessi sama tískustefna hafi svo eindæma sterk tök á skáldunum að ekkert þeirra megni að rífa sig undan hcnni. Almy rkvi a rncmnl áauð'r'n f jatstvtöu'^ urn 'ne^.n výum e1 sj^'t^ í | aðta áU $ baj dvrs'nS 'e'1 , ,:6sið snyt tna a ho- íjatl^u b'Vsva^n Ut s'U & statattd'' |auðann. & ^ {V:nngVnnn' Hóttin Á mi"' okkar svön nótt'ti undit hvítri sæng'nni Rauð tár þín streyma mðut kmnar mínar. Oe kossar okkar hegar famit að blána. Linda Vilhjálms-dótur f teið orðið kalt & þau eru nýlega búm að slökkva á sjónvarpinu(þáttur um páskahald í (srael)þegar gló andtgorkúlanfyll'tupp.gluggann landslagsferníngunnn fellur sam stundis af veggnum andartak standa þau hlusta as a sér í gólf'ð grúfa s.g niður í snoðið tepp'ð klemma aftur augu manstu ofninn í hans & grét u æpir hún þú meinar nornina umlar hann svelgir brennheitt loft nær ekki andanu símamynd Isak Harðarsor> ^Juggi minn hélaður Þ'ðnar við komu þína kegar ég ætla að færa h4 u , ertu horfin ^ér kakkir °g ég er einn ’nýju Jandi. Heimir Múr Kerstín Gyrðir Eliasson rauðu orðin mín ruglaðir fuglar sendir út af örkinni til að kveikja í þér blái vinur minn . . . manstu Dante og Beatrice? hér er skeytið frá mér til þín: gul blóm í grænum sveig og grönn Paradís! Jóhann árelíuz Innhverf Ijóð og dreymin í stuttu máli birtist þetta í því að skáldin yrkja nánast undantekninga- laust innhverf og dreymin ljóö. þar sem persónubundin viðhorf einstakl- ingsins, angist hans, cinangrun og tilfinningalíf eru sett í öndvegi. Að því er varðar þjóðfélagið allt um- hverfis þá er engu líkara en það sé ekki til. Þannig eru myndir af nánasta umhverfi skáldanna. væntanlega oft- ast Reykjavík cða öðrum þéttbýlis- stöðum, svo sárafágætar þarna að til hreinna undantekninga heyrir. Að ekki sé talað um íslenska náttúru, fegurð hennar eða hrikaleika, sem ckki er ofsagt að sé gjörsamlcga út úr myndinni. Þarna eru scm sagt engin Reykjavíkurljóð í anda Tóm- asar og engin náttúruljóð í stíl þeirra Jónasar eða Bjarna. Að ádeilum eða hvers konar ann- arri þjóðfélagsumræðu er líka nánast tilgangslaust að leita þarna. Svo dæmi séu gripin af handahófi þá er þarna ekkert að finna um átökin við verðbólguna á þessu tímabili eða deilurnar út af hvalveiðimálunum, að ekki sé minnst á hluti cins og húsbyggingar eða ljóð út af pólitísk- um tilefnum, erlendum eða innlend- um. Verkalýðsmál eða trúmál eru heldur ekki á ferðinni þarna svo orð sé á gerandi. Þó væru öll þessi efni, sem nú voru talin, ekki ncma í eðlilegu framhaldi af því sem nienn hafa verið að yrkja um á íslandi kynslóðum saman. Fráhvarf frá nýraunsæi Eysteinn Þorvaldsson víkur raun- ar að þessu í stuttum en býsna skilgóðum inngangi sen. hann ritar að bókinni. Hann rifjar þar upp að bókmenntaiðja ungra höfunda á átt- unda áratugnum hafi stundum verið kennd við nýraunsæi. Hún hafi augl- jóslega verið fráhvarf frá tjáningar- máta módernismans. sem oftar en ekki hafi þótt vera myrkurogtorskil- inn. Nýraunsæisskáld hafi tjáð sig mcð opinskáum og stundun. nokkuð mælskum hætti, og þau hafi veriö óspör á þjóðfélagsádeilu og félags- Iegan boðskap. Og hann segir orð- rétt um þetta: „En ungskáldastíll 8. áratugarins lenti í blindgötu; einföld framsetning hans. óbrotin skynjun og félagsmála- boðskapur dugir ungum yrkjendum ekki lengur. Yngstu skáldin núna virðast hafa margslungnari hug- n.yndir uin veruleikann en fyrirrenn- arar þeirra og í stað þjóðfélags- hneigðar er komin efahyggja og innhverf tjáning. Viðbrögð þeirra viö andstæðun. tilverunnar birtast í margbrotnum ogstundum torræðum myndum sem í knöppu umfangi geta geymt stórt inntak og fjölþættar skírskotanir. Hugarflug er leyst úr læðingi, hin gamalkunna rauntrúa veruleikalýsing er ekki eftirsóknar- verð lengur, afstæði manns og um- hverfis er ótryggt. Ljóðin eru yfir- leitt myndsæknari og táknrænni en _ áður var og málfarið er almennt vandaðra og fágaðra. Á 8. áratugn- um voru ung skáld að gera ýmsar tilraunir með hversdagsmálfar og slangur í málnotkun en úr því hefur mjög dregiö. Núna er að jafnaði lögð meiri rækt við myndmálið; það er ósjaldan hnitað og úthugsað og stunduni með óvæntri margbreytni. Myndefnið er oft ofið uggvekjandi hugblæ og sótt til nýlegra sviða tæknisamféiagsins." Myndmál og form Það er vissulcga mikið til í þessari skilgreiningu á ljóöunum þarna, en þó vekur hitt athygli hvað myndmál þeirra í heild má í rauninni teljast fátæklegt. Það eru vitaskuld margar Ijóðmyndir og líkingar í þessum verkum, en upp til hópa mega slík stílbrögð þarna þó sýnast töluvert hefðbundnari en vænta mætti af hópi ungra og framsækinna skálda. Verulega stór hluti af þcssu mynd- máli er byggður upp af gamalkunn- um vísunum og hugrenningatengsl- um úr áður þekktri Ijóðagerð. Og þegar Eysteinn Þorvaldsson talar um að myndcfnið sé sótt til nýlegra sviða tæknisamfélagsins, þá vcrður að segjast eins og er að á slíku efni ber furðanlega lítið í bókinni. Hvar eru til dæmis Ijóð- myndirnar sem byggjast upp á samanburði tilfinningalífsins, sem mest cr ort um hér, við tölvurnar sem nú eru komnar á hvers manns borð? Á beinum myndum úr tækni- heimi nútímans ber hér í rauninni furðanlega lítið; helst er að bifreiðar og flugferðir komi örlítið við sögu. Líka er að því að gæta að það virðist vera nánast allsráðandi stefna hjá þessum skáldahópi að nota hvorki rím. stuöla né fasta hrvnj- andi. Þetta er svo algilt þarna að tvö örstutt rímuð og stuðluð smáljóð eftir Sverri Stormsker verða þarna undantekningin sem sannar regluna og undirstrikar þetta. En í þessu má hins vegar auðveldlega leiða að því rök að skáldin séu komin út á varasamar brautir. Formið cr það snar þáttur í allri Ijóðagerð að skáld. sem ekki ræktar þaö á cinn eða annan hátt, sýnir þar með ekki nema hluta af mögulcgri getu sinni. Tengslin við samtímann Sá er hér ritar hefur stundum áður í ritdómum gagnrýnt þá tilhneigingu til aö yrkja myrkt og torskilið og án allra tengsla við þjóðfélagið um- hverfis sem áberandi er víða í Ijóða- bókum ungskálda. Þótt þaðsé vissu- lega skáldanna að yrkja þá má ekki gleyma þeirri gullnu reglu að enginn endist til lengdar til þess að yrkja fyrir skrifborðsskúffuna. Og með slíkri bókmenntaiðju er heldur cng- um grciði geröur; Ijóðaunnendur cru víðar en margir halda, og þeir eru þá einungis sviknir urn það sem þeir vilja fá og eiga raunar heimtingu á að fá, rétt cins og hverjir aðrir ncytendur á markaðnum. Það fer ekki á milli mála að áhugi á ljóðagerð er hér bara býsna mikill og fcr trúlega vaxandi. Én á öllum öldum hefur það einkennt lífræna ljóðagerð að skáldin hafa haft sterk tengsl við samtíma sinn, endurspegl- að hann og bent fram á við. Þannig vann Hallgrímur Pétursson þegar hann orti Passíusálmana, og sömu- leiðis Eggert Ólafsson er hann kvað Búnaðarbálk. Þetta voru einnig vinnubrögð rómantísku skáldanna á öldinni sem leið þegar þau gerðust liðsoddar í sjálfstæðisbaráttunni. Og það þarf enginn að reyna að segja mér að Islendingar nútímans séu upp til hópa orðnir svo uppteknir af eigin naflaskoðun að innhverf og tormelt tilfinningaljóð séu það eina sem geti höfðað til þeirra. Þessi bók má að llestu leyti teljast trúverðugt úrval af því sem yngsta skáldakynslóðin hefur veriö að fást viö síðustu árin. Hún sýnir marga góða kosti þessara verka, en gallar þeirra stinga þó töluvert í augun þegar hún er lesin. Þarna er hvorki meira né minna en á ferðinni heil skáldakynslóð sem leitar inn í inn- hverfa draumaheima í eigin brjósti og vinnur Ijóö sín þræleinangruð frá samfélagsveruleikanum utan dyra. Framferði eins og þetta kann ekki góðri lukku að stýra ef það er stundað eingöngu. Enginn skilji orð mín svo að ég sé að lýsa eftir cinhverri „brugskunst" eða „hagnýt- anlegri Ijóðagerð". Því fer fjarri. Það sem fyrir mér vakir er að benda á að Ijóðagerðin virðist vera að stefna inn í öngstræti. þar sem hætta virðist vera á að hún lokist inni, einangruð frá samtímanum og frá öllu lífinu og fjörinu sem þrátt fyrir allt er stöðugt á ferðinni úti á breiðstrætum mannfélagsins. Að þessu leyti cr að því verulegur fengur að fá hér út á markaðinn bók á borð við þessa. Hún sýnir svart á hvítu að í nýjustu Ijóðagerðinni hér er á ferðinni viss tilhneiging til innilokunar, sem menn hafa kannski frekar haft á tilfinningunni til þessa að væri fyrir hendi en að þeir hafi beinlínis séð hana svart á hvítu fyrir sér. Hún sýnir Ijóðagerð í kreppu sem er á góðri leið með að lenda í hnút utan um sjálfa sig. Hún sýnir að hér vantar meiri fjölbreytni. rík- ara myndmál, meiri áherslu á form. Ef skáldin gæta að þessu, fara að vinna í víðara samhengi og taka meira mið af skuggunum frá fortíð- inni, þá má vissulega enn vænta blómlegrar ljóðagerðar hér á kom- andi tímum sem hingað til. -esig

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.