Tíminn - 06.10.1987, Síða 3
Þriðjudagur 6. október 1987
Tíminn 3
Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn segir heila herdeild sitja fyrir gæsinni:
Góðærið veldur
vopnakapphlaupi
í ár og í fyrra hefur spurn eftir byssum og byssuleyfum magnast
svo að segja má að þjóðin sé að vígbúast. Yfirlögregluþjónn segir
að á íslandi séu ekki færri en 10 þúsund manns sem búa yfir
vopnum og að á hverri skotveiðivertíð megi safna saman heilli
herdeild úr þeim, sem eru í leit að bráð uppi um fjöll og firnindi.
„Það hefur verið mikil sókn að
námskeiðum okkar í meðferð skot-
vopna og sjaldan jafn frískleg þátt-
taka og í haust,“ sagði Bjarki
Elíasson, yfirlögregluþjónn. „Það
er góðærið sem skilar sér á þennan
hátt. Fólk hefur efni á byssum og
getur leyft sér að stunda slíkt
tómstundaefni.“
Því má bæta hér við að algengt
verð á skotvopnum er um 50 þús-
und krónur.
Námskeið lögreglunnar í með-
ferð skotvopna eru haldin svo oft
sem þurfa þykir. Fer það algjörlega
eftir aðsókn. Bjarki sagði að sjald-
an áður hefðu svo margir sótt um
byssuleyfi sem nú er raunin og
ekkert lát er á.
„Ég tel að það séu ekki færri en
um 10 þúsund manns á öllu íslandi
sem eiga skotvopn og stunda skot-
veiðar,“ sagði Bjarki Elíasson.
„Þetta er heil herdeild eins og
maður segir.“
Skotveiðimenn telja að þrátt fyr-
ir þessa gífurlegu fjöígun muni þeir
ekki þvælast hver fyrir öðrum á
veiðisvæðum, því að nóg sé rýmið.
Einnig telja þeir fuglastofnana
nægilega sterka til að mæta þessari
aukningu. í frétt Tímans fyrir
skömmu kom í Ijós að rjúpnastofn-
inn er mun sterkari en menn höfðu
gert ráð fyrir og að tveir af þremur
íslenskum gæsastofnum séu í mik-
illi uppsveiflu.
Spurður sagði Bjarki Elíasson
að hann taldi ekki hættu steðja af
fjölgun manna með byssuleyfi svo
fremi farið sé varlega, sem að
sjálfsögðu er skilyrði, og að menn
hefðu eðlilegt viðhorf til skot-
vopna.
Tíminn hafði samband við sölu-
menn nokkurra búða sem versla
með skotvopn og hvarvetna var
sama viðkvæðið. Fjölgunin mikla
hófst í fyrra og sala á skotvopnum
núna í haust gefur hinni ekkert
eftir.
Ekki er óalgengt að seldar séu
að meðaltali þrjár byssur á dag í
helstuskotvopnaverslununum. þj
Bjarki Elíasson, yfirlögreglu-
þjónn.
Austur-Landeyingar samþykktu á fundi Búnaðarsambandsins:
Gjald fyrir gæs
Gæsaskyttur sem leggja leið sína
í Austur-Landeyjar munu þurfa að
greiða fyrir skotleyfi í framtíðinni.
Á fundi Búnaðarfélags A-Land-
eyja í vor var samþykkt samhljóða
tillaga um að taka gjald fyrir gæsa-
skytterí. Ásókn í gæsaveiði hefur
aukist gríðalega síðustu árin og eru
þetta viðbrögð bænda sem nú
koma fram til að fylgjast með
skytteríi í hreppnum.
Gjaldið er 500 krónur fyrir það
sem kallað er morgunflug. Það er
frá birtingu og fram til tólf á
hádegi. Vilji menn frekar mæta
seinni hluta dags, þ.e. frá hádegi
og fram á kvöld, greiða þeir einnig
500 krónur. Miklir kappar sem
vilja veiða allan daginn greiða 800
krónur.
Haraldur Konráðsson á Búðar-
hóli í A-Landeyjum sagði í samtali
við Tímann í gær aðmeð þessum
reglum væri verið að stemma stigu
við talsverðum yfirgangi sem borið
hefur á á undanförnum árum, þar
sem menn hafa verið að skjóta á
gæs í leyfisleysi og sumir hverjir
með stórum rifflum. Haraldur
sagði aðalmarkmiðið með þessari
samþykkt vera, að þá geti menn
fylgst með hverjir væru að skjóta
og hvar. „Þá hefur það borið við
að menn eru að skjóta með rifflum
hér og það viljum við ekki sjá,
a.m.k. ekki ég,“ sagði Haraldur.
Fyrst í stað hefur þessi verðskrá
verið sett upp til að fá fram við-
brögð þeirra sem kaupa leyfin en
þau hafa ekki komið fram enn því
gæsin hefur ekki látið sjá sig í
nokkrum mæli fram til þessa. Bíða
bæði gæsaskyttur og landeigendur
eftir að kólni og gæsin hörfi úr
úthaganum og inn á túnin til að
viðbrögð fáist við þessari nýjung
þeirra A-Landeyinga. -ES
5greiðslur V/SA öruggar
skivtsar gretðslur
Boðgreiðslur VI5A (Electronic Funds Transfer) eru sjálfvirkar millifærslur
fyrir m.a. rafmagn og hita, afnot útvarps og sjónvarps, áskriftir dagblaða
og tímarita, endurnýjun happdrættismioa og ao sjálfsögðu V754-greiðslurn-
ar sjálfar mánaðarlega.
Boðgreiðslur VISA spara tíma, fé og fyrirhöfn, skilvísar tryggar greiðslur
þrátt fyrir annir eða fjarvistir, draga úr akstri, bið og umstangi, minnka
ónæði heima fyrir og létta t.d. blaðberum störfin án tekjumissis þeirra.
Komið vissum fastagreiðslum í fastan farveg í eitt skipti fyrir öll!
Aðeins eitt símtal og málið er leyst! Happdrætti DAS © 1 77 57, DVS 2 70 22,
Morgunblaðið ® 69 11 40, Rafmagns- og hitaveita Reykjavíkur © 68 62 22,
Ríkisútvarpið S 68 59 00, Stöð 2 © 67 37 77 o.m.fl.
Þægindi og þjónusta eru aðalsmerki V/SA.Korthafar VISA þekkja eftirfar-
andi hlunnindi: Ferðaslysatryggingu, sjúkratryggingu (erl.), viðlaga-
Djónustu (erl.), bankaþjónustu (erl.),
iraðbankaþjónustu (erl.), gistiþjónustu,
vildarkjör, tímaritið VILD
Nú eiga korthafar VISA enn fleiri kosta völ.
VISA: Boðgreiðslur,
Raðgreiðslur,
Símgreiðslur.
VISA
STYRKTARAÐILI ÓLYMPÍUNEFNDAR ÍSLANDS