Tíminn - 06.10.1987, Blaðsíða 7

Tíminn - 06.10.1987, Blaðsíða 7
Tíminn 7 Þriðjudagur 6. október 1987 Aðgangseyrir að Leifsstöð í bið: Farþegar sleppa enn vegna innheimtudeilu Ætlun flugstöðvarmanna virðist hafa verið að innhcimta aðgangseyri þennan af flugfélögunum sjálfum, en ekki að leggja skattinn á farþega. Sagði Halldór að nú væri greinilega verið að leika sama leikinn og þegar reynt var að koma flugvallarskattin- um á með þessum sama hætti í eina tíð. Svarflugfélaganna viðþessum aukaskatti, eða aðgangseyri, hefur orðið það að neita að inna gjaldið af hendi nema til komi sérstök far- gjaldahækkun til jafns við innskrán- ingargjaldið. Að sögn Birgis Guðjónssonar yfir- lögfræðings samgönguráðuneytisins hefur ekki komið stafur um mál þetta inn á borð hjá því ráðuneyti. Hins vegar vissi hann til að utanrík- isráðuneytið sendi flugfélögunum tilkynningu um að gjaldtaka þessi hæfist l.október. Boðleið sú kemur til af því að málefni Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar heyra undir utan- ríkismálin. Tjáði hann Tímanum jafnframt að hann hafi þegar haft spurnir af því að beiðni flugfélag- anna um sérstaka fargjaldahækkun vegna skattsins væri væntanleg til samgönguráðuneytisins. Innskráningargjald það sem stjórnvöld hugðust krefja flugfélögin Arnarflug og Flugleiðir um, hefur að sögn Halldórs Sigurðssonar, blaðafulltrúa Arnarflugs, ekki enn verið greitt. Fyrirmæli utanríkis- ráðuneytisins voru á þá leið að flugfélögin ættu að greiða 200 kr. í innskráningargjald fyrir hvern far- þega sem um flugstöðina fer á þeirra vegum. Greindi Tíminn frá aðgangs- eyrinum á föstudaginn var. Þessum aðgangseyri hafa flugfélögin mót- mælt harðlega, þar sem ekki hafi verið reiknað með þessu gjaldi í síðustu fargjaldahækkun, sem varð þann l.september s.l. Ánægðir veiðimenn með þrjátíu físka. Talið frá vinstri: Renetta Sörensen, Ásgeir Sörensen, Grímur Guðmundsson, Páll Guðmundsson, Hrafn Þórðarson og Ólafur Hrafnsson. (Tíminn: Pjciur) Enn græöir ríkis- sjóður á reykvískum ökumönnum: 600.000 krónum pungað út Reykvískir ökumenn borguðu ríkissjóði rúmlega sexhundruð þúsund krónur í hinar ýmsu sektir frá klukkan 6 á föstudagsmorgni til 9 í gærmorgun. Helstu gjalda- liðir eins og venjulega voru of hraður akstur og árekstrar. Á þcssum tíma voru 78 árekstr- ar. Meðaltalsútkoma væri 253.000 krónur. 49 voru teknir í radar, þar af voru 4 sviptir öku- skírteinum. Þaðgerirum 270.000 krónur. 28 höfðu vanrækt aðal- skoðun og var því klippt af bílum þeirra. Það eru um 56.000 krónur og 13 náðust þar sem þeir höfðu lagt ólöglega og voru dregnir í burtu. Það gera 26.000 krónur. Samtals gerir þetta rúmlega 600.000 krónur. Geri aðrir betur. Auk þessa voru tvö umferðars- lys á Reykjavíkursvæðinu. Klukkan 21.30 á sunnudagskvöld varð tveggja bíla árekstur í Skúla- torgi, og var annar ökumaður fluttur á slysadcild. Á laugardeg- inum hafði svo orðið mjög harður árekstur á gatnamótum Höfða- bakka og Vesturlandsvegar, aldrei þessu vant er hægt að segja. Þar var einn ökumaður fluttur á slysadeild og báðir bíl- arnir fluttir mikið skemmdir á brott í kranabíl. Auk þessa var mikið um rúðu- brot og aðrar minni skemmdir í miðbænum um hclgina, en mikið var af ölvuðum unglingum að „skemmta sér og öðrum“ á föstu- dags- og laugardagskvöldinu. Lögreglan hafði í nógu að snúast við að keyra unglingana mikið drukkna heim langt fram eftir nóttu. -SÓL Hvammsvík í Hvalfirði: „Það er ótrúlegt hvað var mikil þörf hjá fólki að komast í sportveiði þar sem er nokkurn veginn öruggt að fá fisk og það þarf ekki að leggja á sig langa ferð úr Reykjavík. Þá hefur greiðslufyrirkomulag mælst vel fyrir, en hér er borgað fyrir hvern veiddan fisk og sá sem fer heim með öngulinn í rassinum þarf ekkert að borga," sagði Ólafur Skúlason, framkvæmdastjóri og einn eigenda Laxalóns hf., sem hefur sett á fót veiðiparadís fyrir fjölskylduna í Hvammsvt'k í Hvalfirði. í rauninni hefur hinn hefðbundni Þingvalla- hringur lengst með þessu fyrirtæki, þar sem hægt er að ganga að regn- bogasilungi vísum frá pundsfiskum til 14 punda fisks, sem egnt hefur verið fyrir frá opnun hinn 11. sept- ember sl. en hefur enn ekki viljað bíta á agnið. Hann svamlar því enn um í Hvammsvík. Það er fullbókað langt fram í tímann. Á hverjum degi standa á bakkanum 28 veiðimenn og 182 munu freista gæfunnar í þessari viku. Ólafur leyfir allar tegundir af beitu og sportveiðarfærum, en bend- ir á að stóru fiskarnir vilji helst flugu og eru glysgjarnir. Hófí hefur gefið vel. „Ég á ekki orð yfir vinsældirnar og ekkert lát er á aðsókn,“ sagði Ólafur og er hægt að vitna um að síminn stansaði ekki meðan blaðamenn stöldruðu við í Hvammsvík. Á sjötta hundrað veiðimenn hafa rennt fyrir silung á þessum stað frá opnun og 1300 fiskar veiðst. Einnig er þar að finna 9 holu golfvöll og næsta sumar mun verða aðstaða til seglbrettaið- kunar o.fl. „Það eru óþrjótandi möguleikar," sagði framkvæmdas- tjórinn. Stór kostur við fyrirtæki Laxalóns hf. er hve þægilegt er að komast að veiðisvæðinu. Þangað hafa hreyfi- hamlaðir og hjartveikir menn komið til að veita sér nokkuð, sem þá hafði ekki rennt í grun að geta leyft sér nokkurn tímann. „Það er hægt að aka fólki í hjólastól alveg niður að víkinni og ég hef sjaldan upplifað eins mikla hamingju og hjá því fólki þegar það fær fisk.“ Yuri Sedov, þjálfari Víkings í knattspyrnu, var við veiðar í gær. Hann átti varla orð til að lýsa ánægju sinni. „Stórfenglegt, stórfenglegt," endurtók hann í sífellu, en hann veiddi sex sæmilega fiska. Veitt verður svo lengi sem veður leyfir og hitastig í sjónum er 5°C eða meira og fiskurinn fjörugur. Farið er fram á 100 krónur fyrir fiska undir pundi, 200 krónur fyrir 5 punda fisk og 400 krónur fyrir stærri. „Það hafa ekki allir veitt fisk, sem hafa rennt fyrir hann hérna. Það er dagamunur á hvort hann tekur,“ sagði Ólafur. „En hvergi á landinu er maður öruggari með fisk en hér.“ þj Margeir Pétursson varði íslands- itieistaratitil sinn á Skákþingi fs- lands á Akureyri. Margeir Pétursson malaði skákþingið Margeir Pétursson malaði Skákþing fslands sem lauk á Akur- eyri á föstudag og varði þannig fslandsmeistaratitil sinn í skák. Margeir fékk 12 vinninga af 13 mögulegum, en Helgi Ólafsson varð í öðru sæti með 11 vinninga. Þeir voru í nokkrum sérflokki, en þriðja sætið skipaði Karl Þorsteins með 8 1/2 vinning. Árangur Margeirs hefur verið sérstaklega glæsilegur undanfarið allt frá því á skákmóti sem hann tefldi á í Moskvu í vor. Hann hefur nú teflt 36 skákir án þess að tapa og unnið þrjú síðustu skákmót sem hann hefur tekið þátt í. Hann varð Norðurlandameistari í Færeyjum, vann skákmótið í Gausdal í Noregi og nú síðast varði hann íslands- meistaratitilinn á Akureyri. Ein- staklega góður árangur. -HM Veiðiparadís fjölskyldunnar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.