Tíminn - 06.10.1987, Síða 10
“t i
' 10 Tíminn i
Þriðjudagur 6. október 1987
Þriðjudagur 6. október 1987
Tíminn 11
ORÐSENDJNG FRÁ
IÐNLÁNASJÓÐI
UM BREYTT
ClTLÁNÁKJÖR
Hinn 15. september kom til framkvæmda breyting á útlánakjörum Iðnlánasjóðs. Þau eru nú
sem hér segir:
Vélalán háð lánskjaravísitölu 7,65% vextir
Byggingarlán háð lánskjaravísitölu 8,65% vextir
Útlán bundin gengi SDR 8,65% vextir
Lán vöruþróunar- og markaðsdeildar háð lánskjaravísitölu 5,00% vextir
Byggingarlán undir 5.000.000,00 kr. eru háð lánskjaravísitölu en byggingarlán yfir
5.000.000,00 kr. eru bundin gengi SDR.
Vélalán undir 250.000,00 kr. eru háð lánskjaravísitölu en vélalán yfir 1.000.000,00 kr. eru
bundin gengi SDR.
En þegar tekin eru vélalán hærri en 250.000,00 kr. en lægri en 1.000.000,00 kr. ræður lántaki
hvor kjörin hann þiggur.
Samsvarandi breyting verður á útistandandi lánum þar sem ákvæði skuldabréfa heimila
slíkt.
IÐNLÁNASJÓÐUR
IÐNAÐARBANKÍMN lÆKJARQÖTU 12,101 REYKJAVÍK,
SfMI6S180S
Breiöablik lékviö danska liðiö HIK í Evrópukeppninni í handknattleik um helgina:
Jafntefli dugði skammt
Breiðablik og danska liðiö HIK
gerðu jafntefli, 19 mörk gegn 19, í
öörum Evrópuleik sínum sem fram
fór í íþróttahúsi Digranesskóla um
helgina. Það dugði skammt fyrir
okkar menn. Stórtapið úti á dögun-
um, þar sem Blikar lágu með sautján
marka mun, gerði þennan leik nán-
ast að formsatriði hvað úrslit varð-
aði.
Engu að síður sáust góðir kaflar.
Danska liðið er að vísu ekki þaö
stórlið sem sumir vildu meina en
lítið „hik“ var þó á leikmönnum
þess, markverðirnir báðir góðir og
Lars Gjöls-Anderson og landslið-
smaðurinn kunni Michael Fcnger
stórhættulegir fyrir utan.
Lcikurinn var jafn mest allan
tímann. Kópavogsbúarnir byrjuöu
ekki scm bcst en náðu að komast inn
í lcikinn og voru aðeins einu marki
undir í leikhléi, höfðu skorað níu
mörk gegn tíu mörkum gestanna.
Blikar komust yfir í leiknum þegar
tíu mínútur voru til leiksloka en
máttu sætta sig við jafntefli að lokum
sem raunar voru ekki ósanngjörn
úrslit.
Þórir Siggeirsson var mestan
leiktímann í markinu og stóð sig
þokkalega. Guðntundur Hrafnkels-
son kom inn fyrir hann um miðjan
síðari hálfleik.
Aðalsteinn Jónsson skoraði 6
ntörk fyrir Breiðablik og var besti
maður liðsins, fiskaði vítaköst og
var sterkur í vörninni. Hans Guð-
mundsson skoraði 4 mörk, þar af
þrjú úr vítum. Hann náði sér ekki á
strik í þessum leik og það gerði Jón
Þórir Jónsson hornamaðurinn knái
ekki heldur, skoraði ekki mark þrátt
fyrir nokkrar tilraunir. Kristján
Halldórsson skoraði 3 mörk af lín-
unni, Andrés Magnússon fyrrunt
Framari skoraði 2 mörk og það gerði
Svafar Magnússon einnig. Björn
Jónsson og Paul Dempsey skoruðu
sitt markið hvor.
Batnandi liði er best að lifa.
Blikar hafa byrjað þetta tímabil
heldur dapurlega, fyrst stórtap í
Danmörku og síðan tap á heimavelli
fyrir KR í 1. deildarkeppninni. Nú
var það jafntefli og með áframhald-
andi baráttu, betri fínpússningu í
hraðaupphlaupunum og endurkomu
hins meidda hornamanns Þórðar
Davíðssonar ættu hlutirnir að fara
að ganga betur.
Dómarar í þessum leik voru Per
Erik Sjong og Jan Rolf Ludvigsen,
Norsarar báðir tveir. Dómgæsla
þeirra líktist leiknum, þeir gerðu oft
mistök en voru góðir þess á milli.
hb
Bjarki Sigurðsson svífur inn úr horninu og skorar eitt níu marka sinna í
leiknum. Tímamynd Pjetur.
Handknattleikur, 1. deild kvenna:
Víkingur átti ekkisvar við
hafnfirskum hraðaupphlaupum
FH-stúlkurnar byrjuöu keppnist-
ímabiliö vel í 1. deildarkeppninni í
handknattleik um helgina. Þá mættu
þær Víkingi í Hafnarfirði og frábær
kafli hjá þeim í síðari hluta fyrri
hállleiksgcrði útslagið íþcssum lcik.
FH sigraði 22-15 cftir að_staðan í
hálfleik haföi verið 13-6.
Víkingsstelpurnar stóðu í gcst-
gjöfunum til að byrja með cn þegar
staðan var 5-5 breyttist jafnvægið í
martröð fyrir þær röndóttu. FH
gerði hvert markið á fætur öðru úr
vel útfærðum hraðaupphlaupunt og
staðan var fljótlega orðin 12-5. Eftir
þaö var ekki spurt að úrslitum.
FH-liðiö er orðið nokkuð sjóað í
I. deildarslagnum. Halla Gcirsdóttir
varði eins og berserkur og Gyða
Úlfarsdóttir var lítið síðri þegar hún
fékk að spreyta sig. Úti voru systurn-
ar Rut Baldursdóttir og Eva Bald-
ursdóttir ógnandi og aðrar systur,
Inga Einarsdóttir og Heiða Einars-
dóttir skæðar í hraðaupphlaupun-
um.
Spennandi í Digranesi
Stjarnan sigraði Hauka á föstu-
dagskvöldið í íþróttahúsi Digranes-
skóla með 22 mörkum gegn 21 eftir
að staðan hafði verið 13-12 Garðbæ-
ingum í vil í hálfleik.
Þetta var hörkuspennandi lcikur
eins og markatalan gefur til kynna
og ágætlega leikinn. Erla Rafnsdótt-
ir var að venju yfirburðarmanneskja
í liöi Stjörnunnar, frábær handknatt-
leikskona. Hún skoraði átta mörk
fyrir sitt lið. Ragnheiður Stefáns-
dóttir skoraöi fjögur mörk, Hrund
Grétarsdóttir var með þrjú og þær
Helga Sigmundsdóttir og lngibjörg
Andrésdóttir skoruðu tvívegis.
Drífa Gunnarsdóttir. Anna M.
Guðjónsdóttir og Guðný Guðsteins-
dóttir skoruðu eitt mark hver. Erla
var eins og áður sagði allt í öllu hjá
Stjörnunni og eins átti Fjóla Þóris-
dóttir góðan dag í markinu.
Haukaliðið var heldur jafnara og
er reyndar sterkara en oftast áður.
Margrét Theodórsdóttir er aftur
komin í þeirra r,aðir og munar um
minna. Margrét varfeikisterk í þess-
um leik og skoraði sjö mörk. Þær
Steinunn Þorsteinsdóttir, Elva
Guðmundsdóttirog Ragnheiður Júl-
íusdóttir skoruðu fjögur mörk hver
og Hrafnhildur Pálsdóttir og Bryn-
hildur Magnúsdóttir skoruðu eitt
mark. Hrafnhildur átti góðan leik,
dugleg í vörn sem sókn.
Þá sigraði KR Þrótt með 17 mörk-
um gegn 15 í Laugardalshöll. Þrótt-
arar eru sem kunnugt er nýliðar í 1.
deildinni.
hb
Eva skoraði sjö mörk fyrir FH,
Rut skoraði firnnt og lnga var með
fjögur. Kristín Pétursdóttir fyrirliði
skoraði þrjú ntörk, Heiða tvö og
Hildur Harðardóttir var með eitt
mark.
Inga Lára Þórisdóttir stjórnaði
spilinu hjá Víkingi og sýndi takta.
Hún skoraði fjögur mörk en marka-
hæst var Eiríka Ásgrímsdóttir ntcö
fimm mörk. Halla Hclgadóttir skor-
aði fjögur mörk og þær Sigurrós
Björnsdóttir og Valdís Birgisdóttir
skoruðu eitt mark hvor.
Vinningstölurnar 3. október 1987
Heildarvinningsupphæð: 4.696.967,-
1. vinningur var kr. 2.355.575,-
þar sem enginn fékk fyrsta vinning, færist
hann yfir á fyrsta vinning í næsta útdrætti.
2. vinningur var kr. 704.400,-
og skiptist hann á 400 vinningshafa, kr.
1.761á mann.
3. vinningur var kr. 1.636.992,-
og skiptist á 9.408 vinningshafa, sem fá 174
krónur hver.
Upplýsingasími:.
UÍ mBM/532 685111
>Ia Rafnsdóttir skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna. Hér reynir Hrafnhildur
’álsdóttir að hafa hemil á henni. Tímamynd Pjetur.
Stefán Halldórsson gengur
til liðs við Víkinga
Allar líkur eru á að Stefán Hall-
dórsson leiki knattspyrnu með !.
deildarliði Víkinga næsta suntar,
raunar svo gott sem öruggt sam-
kvæmt heimildum Tímans. Stefán
hefur þjálfað Hvergerðinga og leikið
með liði þeirra en hyggst nú snúa
aftur til höfuðborgarinnar.
Víkingar komu sem kunnugt er
upp úr 2. deild í haust og sagði Yuri
Sedov þjálfari þá að liðið vantaði
leikmenn til að styrkja það í 1.
deildarbaráttunni. -HA
Víkingur er kominn í aðra umferð
Evrópukeppninnar í handknattleik.
Þeir unnu Englendingana frá Liv-
erpool við ána Mersey í Laugardals-
höll á sunnudagskvöldið. Yfirburð-
irnir voru algjörir, staðan 16-4 í
hálfleik og lokastaðan 38-9.
Liverpoolbúar hafa ávallt verið
þekktir fyrir að eiga göð knatt-
spyrnulið. Þaðan koma tvö af sterk-
ustu félagsliðum Evrópu, Liverpool
og Everton. Svei mér ef ég held ekki
að drengirnir frá ánni Mersey ættu
að breyta handboltaliðinu sínu í
fótboltalið og fara frekar í víking á
þeim slóðum.
Liverpoolmenn skoruðu eftir tutt-
ugu mínútur og var þá staðan 10-1.
Þeir bættu heldur við sig í síðari
hálfleik, skoruðu þá fimm mörk og
tvö þeirra voru gerð eftir vel heppn-
aðar leiktléttur. Fyrir utan þessar
fléttur var leikur gestanna langt frá
því að vera „Evrópuhæfur".
Bjarki Sigurðsson var atkvæða-
mestur Víkinga í markaskoruninni,
setti inn níu ntörk í leiknum. Karl
Þráinsson skoraði átta mörk, þar af
sjö úr vítum. Hilnrar Sigurgíslason
skoraði firnm mörk, Sigurður Gunn-
arsson og Guðntundur Guðmunds-
son skoruðu fjögur mörk, Siggeir
Magnússon og Einar Jóhannesson
þrjú nrörk hvor og Árni Friðleifsson
tvö mörk.
Leikur Víkinga var oft og tíðum
ágætur en mótspyrnan var jú engin.
Engu að síður er Víkingsliðið það
sterkasta á papptrunum hér á landi
og þyrfti engum að koma á óvart að
liðið myndi verja íslandsmeistaratitil
sinn í ár. hb
'
- ...
Knaffspyrnufékig
Reykjayíkur
Helena og Guðrún með sigurlaun sín á föstudagskvöldið
Tímamynd Pjetur.
Guðrún best - Helena efnilegust
Guðrún Sæniundsdóttir Val var kosin besti leikniaður 1.
deildar kvenna á íslandsmótinu í knattspyrnu sumarið 1987 og
Helena Ólafsdóttir KR hlaut titilinn efnilegasti leikmaðurinn.
Kjörið var tilkynnt á lokahófi félags íslenskra knattspyrnu-
kvenna á föstudagskvöldið.
Knattspyrnukonurnar eru báðar vel að þessum titlum
L.
komnar og sigruðu reyndar með nokkrum yfirburðum í
kosningunni. Það eru ieikmenn liðanna sem greiða atkvæði.
Guðrún hefur verið styrkasta stoð Valsliðsins í sumar, leikið
mjög vel aftast í vörninni og aukaspyrnur eru hennar sérgrein.
Helena er hættulegur sóknarmaður og var aðal markaskorari
KR liðsins í sumar. - HÁ >
■
Ólympíulandsliðið:
Þorsteinn
bættist
í hópinn
Þorsteinn Guðjónsson hefur
hæst í hóp Ólympíuiaudsliðs-
manna í knattspyrnu en liðið er
nú komið til Portúgals þar sem
keppt vcrður við heimamenn
annaðkvöld. Þorsteinn kemur í
hópinn í stað Sveinbjarnar Há-
konarsonar sem tognaði á læri og
getur því ekki leikið. -HA
Reykjavíkurmótið í blaki:
ÍS og Þróttur
meðfullthús
Leikur ÍS og Þróttar í Reykja-
víkurmótinu í hlaki n.k. laugar-
dag verður hreinn úrslitaleikur í
m.fl. karla í mótinu eftir sigur ÍS
á Víkingum um helgina. Úrslit
urðu 2-3 (15-9, 15-13, 12-15 eftir
að Víkingar komust í 7-0,4-15 og
4-15). Þá sigruðu Þrótlarar HSK
3-0 (15-3, 15-8, 15-7) en HSK var
hoðin þálttaka eflir að Eram dró
sigúrkeppni. -HÁ
Reykjavíkurmótið
í körfuknattleik:
Valsmenn
taplausir
Valsmcnn eru taplausir eftir að
fyrri umfcrð Reykjavíkurmótsins
í körfuknattleik lauk á laugardug-
inn. Valur vann KR 71-65 í
llagaskólu á laugardaginn. Þá
vann ÍR-ÍS 66-46 í leik sem var
mjög jafn frainanaf en í síðari
hálfleik skildu leiðir. Sömu sögu
iná segja um leik ÍS og KR í
kvennaflokki en þar sigraði ÍS
49-31. -HÁ
Reykjanesmótið
í körfuknattleik:
Njarðvíkingar
meistarar
Njarðvíkingar urðu Reykja-
nesmeisturar í körfuknuttleik
1987. Lið UMFN vann Hauka i
síðustu umferð keppninnar 91-
78. Kcilvíkingar höfuuðu í 2. sæti
en llaukar í því þriðju. - HÁ
Snúið ykkur að
fótboltanum!
Norðdekk rallkeppnin:
Hrak-
falla-
keppni
ársins!
Norðdekk rallið, síðasta rall-
kcppni ársins, verður líklega í
minnum haft fyrir óhöpp á óhöpp
ofan. Þrjátíu og einn bíll hóf
keppni en rúmlcga helmingur
þeirra heltist úr iestinni á leiðinni
af hinum ýmsu og fjölbreyttustu
orsökum. Feðgarnir Jón Ragn-
arsson og Rúnar Jónsson sem
fyrir höfðu tryggt sér íslands-
meistaratitilinn duttu úr keppni í
fyrsta sinn í sumar. Þeir höfðu
haft forystuna um tíma.
Sigurvegarar urðu þeir Guð-
mundur Jónsson og Ágúst
Guömundsson á Nissan 240 RS
en Hjörlcifur Hilmarsson og Sig-
uröur Jensson á Talhot Lotus
voru ekki langt undan í 2. sætinu.
-HÁ
Stjörnu-Wilson mótið
í racquetball:
Jóhannes
sigraði
Jóhannes Guðmundsson varð í
1. sæti á Stjörnu-YVilson mótinu í
racquetball sem haldið var í
Veggsport um hclgina. Jóhannes
vann Viktor Urbancic í spenn-
andi ieik. Kristján Baldvinsson
hafnaði í þriðja sæti eftir keppni
við Ásmund K. Ólafsson.
Evrópumeistaramótið í blaki:
Sovétmenn eru
áframmeistarar
Sovétmenn héldu Evrópumeistaratitli
sínum í blaki eftir að þeir unnu Frakka
3-1 í úrslitaleik Evrópumótsins á sunnu-
daginn. Sovétmenn unnu fyrstu hrinuna
15-7 og aðra 15-6 og virtust ætla að fá
titilinn á silfurfati. Þeirlentu þó snarlega
á jörðinni þegar Frakkar unnu þriðju
hrinuna 15-7 og voru komnir í 7-3 í þeirri
fjórðu. Þá fóru Frakkarnir að gera
mistök og Sovétmenn unnu 15-9 og
leikinn þar með.
Grikkir unnu Svía 3-2 í úrslitaleiknum
um þriðja sætið. -HA
Endurgreiðsla ef
liðið tapar ieik!
V-Þýska íshokkýliðið Riessersee hef-
ur tekið upp mjög svo frumlega aðferð
til að (jölga áhorfendum á heimaleikj-
um. Þeim cr boðið upp á að grciða 50
kr. auka fyrir miðann sem þá gildir sem
trygging þannig að ef iiðið tapar þá fá
þeir sömu endurgreitt! Á þctta reyndi í
fyrsta skipti um helgina og greiddu þá
760 af 5000 áhorfendum trygginguna -
og fengu endurgreitt því Riessersee
tapaði 4-6 fyrir Bad Tölz.
Uppátæki þetta kostaði félagið yfir
100 þús. kr. á þessum fyrsta Icik en
forráðamenn þess scgja að þetta komi til
með að borga sig þcgar til lengdar lætur.
Svo fjölgi áhorfendum við þetta og til
þess sé leikurinn einmitt gerður. -HÁ
Halldór kosinn
knattspyrnumaður
Akureyrarbæjar
Frá Jóhannesi Bjarnasyni á Akureyri:
Halldór Askelsson Þórsari var nú um
helgina kosinn knattspyrnumaður Akur-
eyrar. Kjörið var tilkynnt á uppskeru-
hátíð KRA. Halldór fékk 37 stig af 40
mögulegum. Erlingur Kristjánsson varn-
armaður úr KA varð annar með 26 stig,
Júlíus Tryggvason Þórsari þriðji ineð 17
og Ilaukur Bragason KA Ijórði með 16
stig.
Markakóngur KRA fékk sína viður-
kenningu í hófinu, Tryggvi Freyr Vald-
imarsson í 6. fl. Þór skoraði 6 mörk í 3
leikjum.
Til leikmanna Liverpool með fullri virðingu:
L