Tíminn - 06.10.1987, Blaðsíða 14
14 Tíminn i
Þriöjudagur 6. október 1987
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA - Mauno Koivisto
forseti Finnlands kom til
Moskvu í gær í opinbera heim-
sókntil Sovétríkjanna. Koivisto
mun meðal annars eiga við-
ræður við Mikhael Gorbatsjov
Sovétleiðtoga. Pað var Andrei
Gromyko forseti sem tók á
móti Koivisto á flugvellinum í
Moskvu.
osló - Norsk stjórnvöld
sögðust ætla að láta auka
eftirlit á landamærum Noregs
og Sovétríkjanna vegna frétta
um að aukinn fjöldi veiðimanna
væri farinn ao læðast inn á
sovéskt landsvæði og fella þar
dýr. Talsmaður norska utanrík-
isráðuneytisins sagði þetta
mest vera fífldirfsku, veiði-
mennirnir vildu sýna öðrum
hversu hugaðir þeir væru.
MOSKVA - Sovéskur hers-
höfðingi sagði á blaðamanna-
fundi að áætlanir Bandarikja-
manna um að smíða tvískipt
vopn síðar á þessu ári drægu
verulega úr möguleikanum á
að samið yrði um alþjóðlegt
bann við framleiðslu efna-
vopna og efnavopnabirgðir
yrðu eyðilagðar. Tvískipt vopn
eru eins og nafnið gefur til
kynna framleidd í tveimur hlut-
um og efnavopnahlutinn verð-
ur aðeins virkur séu hlutarnir
settir saman.
BAGHDAD - Persaflóa-
stríðið er enn jafn hatrammt og
áður og ekkert lát var á herni
um helgina. irakskar þotur
gerðu loftárásir á Cyrus
olíuborpail írana og á olíu-
stöðvar þeirra á Farsieyju en
íranir héldu hins vegar áfram
að varpa sprengjum á hafnar-
borgina Basra.
RANGOON - Ferja, sem
var á siglingu á Rangoon ánni
í Burma, hvolfdi og var um
hundrað manns saknað. Óttast
var að fólkið hefði allt
drukknað.
LAUTOKA, Fijieyjar -
Nokkur spenna var á Fijieyjum
eftir að hinar pólitísku fylkingar
landsins gátu ekki komið sér
saman um tillögur byltingarfor-
ingjans Sitveni Rabúka ofur-
sta. Búist var við að landstjóri
eyjanna Ratú Sir Penaia Gan-
ilau léti í sér heyra og reyndi
að koma fram með tillögur er
bundið gætu enda á óvissuást-
andið.
KAMPALA - Hersveitir Úg-
andastjórnar og þorpsbúar
hafa drepið 490 fylgjendur'
ungrar uppreisnarkonu sem í
óðu fram í bardaga naktir niður j
að mitti en smurðir einhverjum i
smyrslum sem áttu að verja þá
kúlum óvinanna. Þetta kom i
fram í tilkynningu varnarmálar-
áðuneytisins í Uganda.
ELDUR í OLÍUFLUTNINGASKIPI í PERSAFLÓA: íröksku þoturnar fóru alla leið til Hormúzsunds til að gera árás sína á hin risastóru
olíuflutningaskip írana.
Persaflóastríöið:
írakar skutu á stærsta
olíuflutningaskip heims
írakskar herþotur gerðu árás á stærsta olíuflutningaskip heims,
kveiktu í öðru og hittu það þriðja. Herþoturnar þurftu að fljúga langa
leið í þessa árásarferð sína gegn olíuflutningaskipum Irana.
Samkvæmt heimildum Reuters fréttastofunnar voru um fimmtán
dráttarbátar að reyna að slökkva mikinn eld sem geysaði um borð í
tankskipinu Skínandi stjörnu sem skráð er í Kýpur. Skip þetta er
rúmlega 256 þúsund tonn og varð fyrir árás herþotanna á Hormúzs-
undi í gær.
Heimur Aðmíráll, annað tankskip
aðeins minna cn Skínandi stjarna,
varð cinnig fyrir árás í gær en ekki
var vitað um eld þar um borð.
írakar létu þetta ekki nægja. Mir-
agc þotur þeirra gerðu einnig árás á
Risann sjófróða, Seawise Giant, sem
er stærsta skip heims cða tæplega
565 þúsund tonn. Það siglir undir
fána Líberíu.
Samkvæmt fréttum frá svæðinu
lést aðeins einn ntaður í þessum
loftárásum.
íranir nota þessi þrjú geysistóru
tankskip sem birgðaskip fyrir olíu og
olíuafurðir frá Khargeyju í norðri en
írakar hafa einmitt gert miklar og
síendurteknar árásir á Khargeyju.
Þetta gera íranir til að auðvelda
aðkomuskipum að taka við íranskri
olíu og sigla á burt með hana.
íröksku flugmennirnir þurftu að
fljúga tæplega níu hundruð kíló-
metra leið frá Irak til Hormúzsunds
áöur en þeir létu til skarar skríða.
Samkvæmt heimildum frá írak tók
„mikill fjöldi" þotna þátt í árásinni
og flugmennirnir snéru ekki heim
fyrr en þeir höfðu séð elda og reyk
líða upp frá skipunum.
Loftárásin kom á sama tíma og
japönsk olíuflutningaskip sigldu út
úr flóanum samkvæmt skipun frá
skipaeigendum í Japan sem ætla að
bíða átekta þar til friðvænlegar horf-
ir í flóanum.
Fleiri fréttir bárust frá Persa-
flóasvæðinu í gær og voru þær ófrið-
legar mjög. Háttsettur íranskur her-
foringi hótaði árásum á stöðvar
Bandaríkjamanna í flóanum og
sagði í viðtali við Tíma þeirra Teher-
anbúa að slíkar árásir væru
algjörlega réttlætanlegar".
Bandaríkjamenn hafa komið sér
upp birgðastöð í Bahrein og þar er
einnig stór birgðaprammi úti fyrir
sem Bandaríkjaher notar.
Reuter/hb
Tíbet eftir óeirðirnar í síðustu viku:
Kenneth Kaunda forseti Zambíu:
Sonurinn lést af völduni eyðni.
Zambía:
Eyðni leiddi
son Kaunda
til dauða
Lögreglusveitir
fluttar til
höfuðborgarinnar
Vopnuð lögregla scttist að í helg-
asta klaustrinu í Lhasa, höfuðborg
Tíbets, og mörg hundruð hermenn
og þjóðvaröliðar komu til borgarinn-
ar í gær. Öryggisgæslan kentur í
kjölfar óeirðanna í síðustu viku
þegar aðskilnaðarsinnar áttu í blóð-
ugum átökum við lögrcglu.
Aukaliðið kom til borgarinnar frá
Kína í sérstökum flugvélum og er
Ijóst að mikil öryggisgæsla verður á
morgun þegar þess verður minnst að
37 ár eru liðin frá því kínverski
herinn réðist inn í Tíbet.
Ungur munkur í klaustrinu helga
sagði að tuttugu lögreglumenn hefðu
sest að í vistarverum þar á bæ og
væru þeir vopnaðir. Klaustrið hefur
að geyma helgustu skrín þeirra Tí-
betbúa og átökin í síðustu viku
brutust einmitt út á þröngum stræt-
unum í nágrenni þess.
Kínverska lögreglan setti upp nýja
lögreglustöð í gær, aðeins nokkur
hundruð metrum frá rústum gömlu
lögreglustöðvarinnar scm reiður
múgurinn kveikti í á fimmtudaginn.
Hópur þögulla Tíbetbúa fylgdist
með þegar verkamenn settu upp
merki lögreglunnar fyrir ofan dyrnar
á nýju byggingunni. Vopnaður lög-
regluvörður tók sér síðan stöðu fyrir
framan húsið.
Búið var að koma fyrir hátölurum
á fjölförnum stöðum í höfuðborginni
í gær og þar voru oftar en einu sinni
lesnar upp viðvaranir frá lands-
stjórninni um að óeirðarseggjum
yrði harðlega refsað næðist til þeirra.
Tilkynningarnar voru einnig lesnar
upp.á ensku, greinilega ætlaðar út-
lendingum.
Kínversk stjórnvöld hafa sakað
trúarleiðtogann Dalai Lama um að
hafa staðið að baki óeirðunum þar
sem búddhamúnkar börðust við lög-
reglu með berum höndum.
Stjórnvöld segja að sex manns
hafi látist í óeirðunum en margir
telja að fleiri hafa látið Iífið, sumir
segja allt að nítján manns.
Kínversk stjórnvöld höfðu boðið
Dalai Lama til Tíbet fyrir óeirðirnar
en óvíst er hvort það boð stendur
nú. Á skrifstofu trúarleiðtogans í
Nýju Delhi á Indlandi var því hins
vegar neitað að hann hefði staðið á
bak við mótmælin. Reuter/hb
Kenneth Kaunda forseti
Zambíu skýrði frá því um helgina
að sonur hans hefði látist af
völdum eyðni og bað allar þjóðir
heims að sameinast í baráttunni
gegn þessum illræmda sjúkdómi.
Kaunda var spurður að því á
blaðamannafundi hvort eitthvað
væri hæft í sögum um að sonur
hans Masuzyo, sem lést í desemb-
er á síðasta ári, hefði verið með
eyðnisjúkdóminn.
„Ég hef ekkcrt að fela“, sagði
Kaunda og bætti við að hann vissi
ekki hvernig sonur hans hefði
fengið eyðnisjúkdóminn en eitt
væri víst að líta þyrfti á eyðni sem
alþjóðlegt vandamál.
Masuzyo var rétt rúmlega þrí-
tugur þegar hann lést.
Kaunda gagnrýndi þá kenn-
ingu að sjúkdómurinn, sem brýt-
ur á bak aftur varnarkerfi líkam-
ans, væri upprunninn í Afríku og
hvatti Alþjóða heilbrigðismálast-
ofnunina (WHO) til að leiða
rannsóknir er miðuðu að því að
finna lækningu á eyðni.
Stjórnvöld í Zambíu hafa skýrt
frá 395 eyðnitilfellum t landinu
en sumir læknar telja að um mun
fleiri tilfelli sé að ræða. Það sem
gerir málið erfitt er að læknar
sem annast fórnarlömb sjúk-
dómsins í landinu mega ekki gefa
upplýsingar um sjúklinga sína án
leyfis yfirvalda. Reuter/hb