Tíminn - 06.10.1987, Qupperneq 15
Tíminn 15
Þriðjudagur 6. október 1987
llllllllllllllllllllllllllll TÓNLIST " ....................... ....... :::|f ............ i’" ............. ........ ................ ................ ........ .......... ......^
Rösklega riðið í hlað
Elisabeth Söderström
Sinfóníuhljómsveit íslands hóf
reglulegt vetrarstarf sitt með tónleik-
um í Háskólabíói sl. fimmtudag, 1.
október. Hljómsveitin er og verður
kjölfesta tónlistarlífs í borginnijeins
og Pablo Casals sagði, er sinfóníu-
hljómsveit mesta og magnaðasta
hljóðfæri heims, og fyrir það hljóð-
færi hefur hin háleitasta tónlist verið
samin. í Sinfóníuhljómsveitinni fá
hámenntuðustu og kunnáttufyllstu
hljóðfæraleikarar vorir starf við
hæfi. Þótt þetta væru fyrstu reglu-
legu hljómleikar vetrarins hefur
hljómsveitin ekki setið auðum
höndum: hún fór til Grænlands sem
myndarlegt framlag íslensku þjóðar-
innar til menningarhátíðar í Nuk -
sjálfur tel ég þá aukafjárveitingu
meðal hinna minnst i umdeilanlegu
sem nú er rætt um - og viku fyrr hélt
hún kynningartónleika, sem sagðir
eru hafa mælst vel fyrir. Núna er hún
á tónleikaferð um Norðurland og
mun koma víða við, með fræga
einleikara og vinsæla tónlist.
Á fimmtudaginn kom saman hið
stærsta og hið smæsta: tæplega
tveggja klukkustunda löng 7 hijóm-
kviða Antons Bruckners (1824-
1896) og söngperlur eftir Sibelius,
Grieg og Tsjaiokofskí, sem Elisa-
beth Söderström flutti. Söderström
hlýtur að vera komin um sextugt, en
syngur ótrúlega vel, enda gríðarfræg
og fjölhæf söngkona. Auk þess sýndi
hún dæmi þess, sem við höfum
iðulega heyrt, að „sjötugur Svíi sé
jafnvel á sig kominn líkamlega og
tvítugur íslendingur“, því hún tipl-
aði fimlega af sviðinu og á. Hins
vegar munu fslendingar vera talsvert
langlífari en Svíar, þrátt fyrir heilsu-
æði hinna síðarnefndu, hvað sem
valda kann, en það er önnur saga.
Þegar Elisabeth Söderström kom
hingað á Listahátíð fyrir mörgum
árum, líklega hálfum öðrum áratug,
var frá því sagt, að að hún væri
frægur tungumálagarpur og kynni
m.a. rússnesku, endaflutti hún núna
langt atriði úr óperunni Eugene
Onegin eftir Tsjaikofskí. Illu heilli
skildu fæstir áheyrendur mikið í
rússneskunni, og hefði átt að skýra
frá efni og tilefni aríunnar í tónleika-
skrá, sem og efni annarra söngva
sem hún flutti.
Sinfóníur Bruckners eru „í tísku “
um þessar mundir, en 7. sinfónían er
talin þeirra aðgengilegust. Fjórir
„Wagner-túbuleikarar“ voru fluttir
inn frá Bretlandi til að taka þátt í
flutningnum og var hljómurinn há-
tignarlegur í túbunum fjórum. Auk
þess var þarna fastatúba Sinfóníu-
hljómsveitarinnar (Bjarni Guð-
mundsson) sem ýmist sat með Wagn-
er-túbunum eða með félögum sínum
í brassinu: þremur básúnum, fjórum
trompetum og fjórum hornum.
Bruckner var mikill aðdáandi
Wagners, og hljómurinn í þessari
miklu kviðu hans ntinnir talsvert á
Wagner - fræðimenn telja, að 7.
sinfónían sé óður til óperujöfursins
látins.
Ef nógir peningar væru til, og
ekkert til sparað, hefði þurft miklu
stærri hljómsveit til að flytja þessa
sinfóníu eins og best verður á kosið,
okkur, sem ekki erum sterkir í
Bruckner, þótti þetta harla gott.
Hljómsveitarstjóri var Frank
Shipway, sem hér hefur stjórnað
áður við mikla ánægju áheyrenda
jafnt sem hljómsveitar, og mun hann
stýra sprota alls fjórum sinnum í
vetur,sem er fagnaðarefni. Allir tón-
leikar hans með Sinfóníuhljómsveit-
inni hafa verið ánægjulegir og eftir-
minnilegir.
Húsfyllir og listamönnum vel
fagnað, og þótti upphaf þessa starfs-
árs Sinfóníuhljómsveitarinnar lofa
góðu um framhaldið. Sig. St.
Amnesty International:
Fangar mánaðarins
- september 1987
Mannréttindasamtökin Amnesty
International vilja vekja athygli al-
mennings á máli eftirfarandi sam-
viskufanga í september. Jafnframt
vonast samtökin til að fólk sjái sér
fært að skrifa bréf til hjálpar þessum
föngum og sýna þannig í verki
andstöðu sína við að slík mannrétt-
indabrot eru framin. íslandsdeild
Amnesty gefur einnig út póstkort til
stuðnings föngum mánaðarins og
fást áskriftir á skrifstofu samtak-
anna.
Líbía: Farid Hasan Ashraf, Mu-
hammad Hilal, Dr. ’Abd al-Hamid
al-Babur og Mahmud ’Umar Abu
’Ubayd eru allir meðlimir í stjórn-
málasamtökunum Ba'th, sem eru
fylgjandi stjórn íraks. Þeir voru
meðal 25 einstaklinga sem voru
handteknir í feb. og mars 1980 í
kjölfar dauða leiðtoga og stofanda
Ba’th samtakanna en talið er að
hann hafi dáið af pyntingum. Hand-
tökunar áttu að koma í veg fyrir að
Ba’th meðlimir gætu mótmælt dauða
leiðtogans. Snemma árið 1982 voru
Ba’th meðlimirnir dæmdir en dóm-
urinn dreginn til baka þegar í ljós
kom að játningar voru fengnar með
pyntingum. f>eir voru sem ekki látnir
lausir. Árið 1983 voru þeir enn
leiddir fyrir dómstóla og þá var 20
þeirra sleppt. Þrír hlutu dauðarefs-
ingu og hefur einn þeirra verið
líflátinn en hinir tveir, Ashraf og
Hilal, eru enn á lífi. Tveir meðlimir,
al-Babur og ’Ubayd, hlutu 8 ára
fangelsisdóm hvor.
Búrúndi: Jean-Baptiste Ndikur-
iyo er rómversk-kaþólskur prestur
starfandi við háskóla í Gitega hér-
aði. Hann var handtekinn 24. des.
1986 eftir að hafa lesið fyrir nemend-
ur sína bréf frá páfa þar sem hann
lýsir áhyggjum sínum yfir þeim tak-
mörkunum sem stjórn Búrúndí hef-
ur sett á kaþólsku kirkjuna. Honum
var haldið til marsloka 1987 án
ákæru eða dóms. Hann var svo
handtekinn aftur í apríl s.l. eftir að
hafa þakkað safnaðarmeðlimum fyr-
ir að hafa beðið fyrir því að hann
yrði látinn laus. Honum hefur verið
haldið án ákæru eða dóms síðan.
Thailand: Sanan Wongsuthii er 44
ára verkalýðsfélagi. Hann var hand-
tekinn 15. okt. 1982, sakaður um að
hafa talað niðrandi um ríkiserfingja
Thailands þegar hann hélt ræðu á
þingi verkalýðsfélaga í maí 1982.
Hann neitaði þessum ákærum, sagð-
ist einungis hafa látið í ljósi áhyggjur
yfir að konungdæmið stæði and-
spænis vandamálum um sundrungu
líkt og hjá verkalýðsfélögum, hern-
um og kirkjunni. Hann var látinn
laus gegn tryggingu eftir 5 daga. í
maí 1983 var hann ákærður fyrir
„drottinsvik" og hlaut 5 ára fangels-
isdóm sem hófst 7. nóv. 1986.
Þeir sem vilja leggja málum þess-
ara fanga lið, og þá um leið mann-
réttindabaráttu almennt, eru vin-
samlegast beðnir að hafa samband
við skrifstofu íslandsdeildar Amn-
esty, Hafnarstræti 15, Reykjavík,
sími 16940. Skrifstofan er opin frá
16-18 alla virka daga. Þar fást nánari
upplýsingar sem og heimilisföng
þeirra aðila sem skrifa skal til.
Einnig er veitt aðstoð við bréfaskrift-
ir ef óskað er.
TRIOLIET
HEYDREIFIKERFI
Bændur bókið pantanir tímanlega
Sjálfvirk fylling
Öryggi í heyverkun
Mjög hagstætt verð
St. Jósefsspítali
Landakoti
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðinga vantar á eftirtaldar deildir:
Handlækningadeildir l-B, ll-B og lll-B.
Lyflækningadeild l-A.
Gjörgæslu
Barnadeild
Móttökudeild
Svæfingahjúkrunarfræðing vantar til afleys-
inga.
Sjúkraliða vantar á eftirtaldar deildir:
Handlækningadeildir l-B, ll-B og lll-B.
Lyflækningadeild l-A.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 19600/
300, frá kl. 09:00-16:00, alla virka daga.
Læknaritari óskast. Upplýsingar gefur yfirritari í
síma 19600/261.
Fólk óskast til ræstinga. Möguleiki á aö tveir aöilar
skipti með sér vakt þannig: Vinni 2 daga aöra
vikuna og 3 hina. Upplýsingar veitir ræstingastjóri
í síma 19600/259 frá kl. 10:00-14:00, alla virka
daga.
Fóstra óskast á barnaheimilið Litlakot. Það er
staösett á spítalalóðinni og er því miðsvæðis í
borginni. Við erum fjórar sem gætum barna á
aldrinum 1 -31/2. Okkur vantar eina fóstru til viðbót-
ar. Upplýsingarveitirforstöðumaður í síma 19600/
297 frá kl. 09:00-15:00, alla virka daga.
Reykjavík 2. október 1987. .
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis-
og eða minningargreinum í blaðinu,
er bent á, að þær þurfa að berast
a.m.k. tveim dögum fyrir birtingar-
dag.
Þær þurfa að vera vélritaðar.