Tíminn - 06.10.1987, Síða 20
Þjónusta
í þína þágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
AMglýsingadeiid liannar
auglýsinguna fyrir þig
1,1. ^ ......... ... "■ '■ ..
Okeypis þjónusta
Tíiiiíiiii
100 milljón króna útgerðarfélag stofnað til að stöðva kvótasölu frá Suðurnesjum?
Hyggjast kaupa öll
föl skip með kvóta
Nú vantar aðeins herslumuninn
á að nýtt stórt útgerðarfyrirtæki
verði stofnað á Suðurnesjum. Hug-
myndir eru uppi um að þetta nýja
fyrirtæki geri út nokkra báta og
selji síðan aflann á Fiskmarkaði
Suðurncsja. En hver er tilgangur-
inn með stofnun þessa fyrirtækis?
„Við erum að reyna að snúa
þróuninni við. Það er alltaf verið
að selja skip og báta með kvótan-
um af svæðinu. Þeirri þróun viljum
við snúa við, hætta að láta fiskinn
fara annað. Við ætlum að stofna
hlutafélag með a.m.k. 100 milljóna
króna hlutafé," sagði Logi Þor-
móðsson, stjórnárformaður Fisk-
markaðs Suðurnesja í samtali við
Tímann í gær, en hann er einn af
forsvarsmönnum þessa verðandi
fyrirtækis.
Auk Loga eru þcir Sigurður
Garðarsson, framkvæmdastjóri,
Eiríkur Tómasson, útgerðarmað-
ur, Grindavík, Sigurbjörn
Björnsson, hjá Verkalýðsfélagi
Keflavíkur, Karl Njálsson, fisk-
verkandi í Garði, Jón Norðfjörð
hjá Skipaafgreiðslu Suðurnesja og
Birgir Guðnason, málarameistari
Keflavík í undirbúningsnefnd að
stofnuninni.
Undirbúningsstofnfundur fyrir-
tækisins verður haldinn í Glaum-
bergi 18. október nk. klukkan 14,
en starfsmaður á vegum nefndar-
innar vinnur nú hörðum höndum
að því að safna hlutafjárloforðum
á Suðurnesjum.
Logi sagði mikinn hug í mönnum
og stefnt yrði að því að fjárfesta í
skipum og bátum, „eða bara öllu
sem flýtur“ eins og hann orðaði
það. Skipin munu eingöngu landa
á Fiskmarkaði Suðurnesja, þar sem
allir hafa jafna möguleika á að
nálgast aflann. Til að byrja með
verður stefnt að því að kaupa skip
í kringum 7-10.000 tonn.
„Það er líklegt að Sjöstjarnan
verði seld á uppboði. Hvað verður
gert við skipin? Við viljum ekki’
missa skipin úr héraði ef þau eru til
sölu. Nú ef einhver hefur áhuga á
að selja skip; þá er bara að hafa
samband við okkur,“ sagði Logi að
lokum.
-SÓL
Framkvæmdastjórn VMSI ályktar:
Hafnið atvinnuum-
sóknum útlendinga
Undir Hvammshöfða í Hvalfirði. I Beinin fundust neðan við húsið þar | sem örinni er beint að. (Tíminn: Pjetur)'
Framkvæmdastjórn Verkamanna-
sambands íslands sat fund í gær og
sendi frá sér ályktun í kjölfar hans.
í henni segir m.a. að vegna þeirrar
yfirlýsingar nokkurra atvinnurek- •
enda um að flytja inn nokkur hundr-
uð eða þúsundir af erlendu verka-
fólki, og einnig að verið sé að stofna
fyrirtæki sem ætli sér að græða á því
að smala hingað fátæku fólki frá
öðrum löndum, samþykki VMSÍ
eftirfarandi:
„Stjórnin skorar á öll aðildarfélög
að hafna umsóknum um atvinnuleyfi
fyrir útlendinga meðan íslenskir at-
Beinafundur
í Hvalfirði
Mannabein fundust undir
Hvammshöfða í Hvalfirði klukkan
18.00 á sunnudag. Þrír skotveiði-
menn gengu fram á beinin, þar sem
þau hafði rekið á land í fjörunni.
Um er að ræða handlegg og fingur.
Tveimur klukkustundum eftir
fundinn kom Rannsóknarlögregla
ríkisins á vettvang og tók beinin til
rannsóknar. Ekki er enn vitað hvað-
an þau hafa rekið.
Gegnt er á höfðann í fjöru en
hann er um 5 km austan við
Hvammsvík. Rannsóknarlögreglu-
menn könnuðu svæðið frekar í
gærmorgun og er rannsókn á frum-
stigi. Beinin verða síðar send til
Rannsóknarstofnunar háskólans.
Þj
Italíuheimsókn forseta íslands:
21 fallbyssuskot
til heiðurs Vigdísi
Opinber heimsókn forseta
Islands, frú Vigdísar Finn-
bogadóttur, til Ítalíu í boði Fra-
ncesco Cossiga, forseta Ítalíu,
hófst í gær.
Forsetinn flaug með Flugleið-
avél til Rómar í gærmorgun og
lenti á Leonardo da Vinci flugVelli
síðdegis, en flugvél forseta seink-
aði um hálfa klukkustund vegna
hríðarbyls á Keflavíkurflugvelli.
Eftir stutt spjall við þarlenda emb-
ættismenn, var haldið til Quirinale
hallarinnar, en þar mun Vigdís búa
á meðan á heimsókninni stendur,
og fylgdu Carabinieri verðirnir
forsetanum eftir á mótorhjólum.
Þegar til hallarinnar kom var
fáni Islands dregin að húni við hlið
ítalska fánans og síðan var hleypt
af 21 fallbyssuskoti til heiðurs for-
setum. Þá tók Cossiga ítalfuforseti
á móti Vigdísi og töluðust þau við
í nokkurn tíma. Um kvöldið var
síðan haldið kvöldverðarboð til
heiðurs forseta íslands.
í dag mun Vigdís síðan leggja
blómsveig á leiði óþekkta her-
mannsins að viðstöddum varnar-
málaráðherra Ítalíu og mun því
næst hitta Nicola Signorello, borg-
arstjóra Rómaborgar í ráðhúsi
borgarinnar. Forsætisráðherra ít-
alíu, Giovanni Goria, heldur síðan
hádegisverðarboð til heiðurs for-
seta íslands. Síðdegis mun forset-
inn síðan heimsækja ýmis iðnfyrir-
tæki. Um kvöldið heldur forsetinn
kvöldverðarboð til heiðurs forseta
Ítalíu. -SÓL
vinnurekendur neita nýjum kjara-
samningum við íslenskt verkafólk.“
Ennfremur segir í ályktuninni að
henni sé öðru fremur beint til aðild-
arfélaga þar sem fiskvinna er aðalat-
vinnugrein byggðarlagsins. „fs-
lenskri fiskvinnslu verður ekki bjarg-
að með innflutningi útlendinga,
heldur á þann hátt að kjör í fisk-
vinnslu verði á þann veg að íslenskt
verkafólk sæki í þau störf.“ -SÓL
Tveir menn hætt komnir:
Sprenging í
Járnblendinu
Tveir menn voru hætt komnir
þegar öflug sprenging varð í Járn-
blendiverksmiðjunni á Grundar-
tanga laust fyrir klukkan 19.00 á
laugardagskvöldið. Talsvert tjón
varð á verksmiðjunni sjálfri en mesta
mildi þykir að ekki urðu slys á
mönnum.
„Mannleg mistök“ ollu sprenging-
unni. Heitum málmi var hellt í ker
með vatni sem orsakaði mjög kröft-
uga gufusprengingu. Aðeins tveir
menn voru að störfum í verksmiðj-
unni en þá sakaði ekki. Aðrir starfs-
menn voru nýsestir að snæðingi. Við
sprenginguna rifu gufa og glóandi
málmur gat á gafl verksmiðjunnar
og þak.
Sennilega mun taka um hálfan
mánuð að lagfæra skemmdir á húsn-
æðinu, en rekstur stöðvast þó ekki.
Þj