Tíminn - 07.10.1987, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 7. október 1987
Tíminn 7
SAMTÍNINGUR
Ingólfur Davíðsson:
Austurvöllur „lngólfstún<(
.. Ot við grænan Austurvöll.
sem angar lengi á vorin.
stendur væn og vegleg höll.
vonin mænir þungad öll."
Svo stcndur í Alþingisrímum
árið 1902. Höllin er Alþingishúsið,
reist á árunum 1880-1881. Þuð var
enginn bjarkar- eða blómailmur á
Austurvelli í þá daga, nei „angan-
in" var fnykur af búfjáráburði og
saur. Þá Íyktaði vel af vellinum
þegar Björn Jónsson ráðherra o.fl.
sveifluðu þar ljánum. Nú cr þar
blóma- og trjágarður. Skjólgott er
orðið á Austurvelli, því að háar
byggingar lykja um hann.
En hvernig var umhorfs á þess-
um slóðum þegar Ingólfur Arnar-
son og Hallveig Fróðadóttir festu
þar bú? Hlýlegt hefur þá verið á
Reykjavíkursvæðinu er skógar-
kjarr klæddi hæðir og ása. Bærinn
hefur að líkindum verið reistur í
skógarjaðri. örskammt frá Tjörn-
inni. "Ingólfstún". þ.e. grasigróna
llatlendið fram undan bænunt, hef-
ur náð að Tjörninni og Læknum,
og allt vestur að sjó. Stutt hefur
sjávargatan verið. Nægur rekavið-
ur ásamt birki til húsagerðar. og
eldiviður. Matarafli hægur. gnægð
fiskjar. eggver og selveiðar. Korn-
rækt í Akurey og víðar. Fénaður
gekk að verulegu leyti sjálfala í
kjarrinu. meðan það entist, og í
fjörunni.
Aldir liðu og margt gerðist á
„Ingólfstúni". Framkvæmdarmað-
urinn mikli Skúli Magnússon land-
fógeti kom á fót „Innréttingun-
um". það er iðnaðarfyrirtækjum, á
spildu, sem Aðalstræti gengur nú í
gegnum, árið 1752. Þetta var vísir
að kaupstaðnum Reykjavík. Hið
grasigróna svæði Austurvöllur, var
hluti af túni Víkurbænda, austan
við bæinn. Nú er Austurvöllur
varla meira en sjötti hluti þess sem
KVIKMYNDIR
Stjörnugjöf frá einni til fimm =★★★
Beverly Hills Cop II:
Kjaftur,húmorog
rugl á sínum stað
Háskólabíó: Beverly Hills Cop ll/Lög-
reglan í Beverly Hills II. Aðalhlutverk:
Eddie Murphy, Judge Reinhold,
John Ashton, Birgitte Nielson. Leik-
stjóri: Tony Scott
Myndin hefst á vel skipulögðu
ráni í Beverly Hills þar sem Ijóst er
að fagmenn eru að verki. Er þar
kominn glæpaflokkur Maxwell
Dent (Jurgen Prochnow) undirfor-
ystu Karla Fry (Birgitte Stallone/
Nielson). Þá víkur sögunni aftur til
Detroit þar sem Axel Foley
(Murphy) er að eltast við krítar-
kortarsvindlara og jafnframt á
flótta undan yfirmanni sínum, sem
er að verða rauðhærður af áhyggj-
um yfir peningaaustri og árangurs-
leysi Foleys.
Þá verður Andrew Bogomil
(Ronny Cox) fyrir skotárás og
særist lífshættulega. Foley heldur
rakleiðis til Beverly Hills til að
aðstoða félaga sína þar við að
upplýsa málið. Hefst þá eltingar-
leikur við stafrófsmorðingjann og
ræningjann.
Látum þetta nægja af söguþ-
ræðinum úr Beverly Hills Cop II,
héreftir skammstafaða BII, sem
stendur fyrir Beverly II. Nóg um
það.
Það var aldrei hægt að búast við
neinu öðru en að myndin væri
fyndin. Hún er það líka. Það var
heldur ekki hægt að búast við
neinu öðru en að hún væri kraft-
mikil. Hún er það líka. Það var
heldur aldrei hægt að búast við að
hún væri frumleg. Enda er hún það
alls ekki. Myndin ber öll merki
þess að vera númer tvö. Enda er
hún það.
Lítum á listann. Eddie kallinn
Murphy kemst vel frá sínu eins og
alþjóð hefir gert ráð fyrir. Kjaftur-
inn, montið, húmorinn, ruglið og
gáfurnar eru á sínum stað og
framkoma Foleys frá fyrri mynd
hefur lítið sem ekkert skánað.
Judge Reinhold er hins vegar
stjarna myndarinnar. Óborganleg-
ur í hlutverki Rosewood lögreglu-
manns, blómaunnanda, byssu-
brjálæðings og kjaftasks, þá stelur
hann senunni. Hann prívat og
persónulega fær fimm stjörnur hjá
Frímanni frænda.
John Ashton bregst ekki í þessu
veigalitla hlutverki. í samræmi við
hlutverkið, fær hann ekki stórt
pláss í Tímanum. Enda er Para-
mount fyrirtækið fimm árum eldra
en Tíminn.
Birgitte Nielson hin fyrrum eig-
inkona Rambos Cobrusonar fer
ofboðslega í taugarnar á undirrit-
uðum og af því tilefni fær hún
ekkert skrifað um sig í Tímann.
Hafi hún eða aðdáendaklúbbur
hennar (sem Stallone er örugglega
ekki í frekar en ég), þá er bara að
skrifa til Tímans, c/o SÓL, Síðu-
múla 15, og færa fram skriflegar
ástæður af hverju hún ætti að fá
skrifað um sig.
NIÐURSTAÐA: Þetta er
skemmtileg mynd. Það er hægt að
hlæja mikið að henni. En Nota
Bene; Ekki fara á myndina með
því hugarfari að hún sé frumleg og
frábær. Hún er það ekki. Hún er
einungis fyndin og frábær.
- SÓL
talið var Austurvöllur í upphafi
kaupstaðar árið 1786. Byggingar
þrengdu smáni sanran að.
Á Austurvelli voru lengi tjald-
stæði sveitamanna í kaupstaðar-
ferðum og langferðamanna. Mun
stundum hafa verið sukksamt á
þessum áningarstaö. Sumir vildu
gera gagn og dreiíðu rösklega úr
hrossataðshrúgunum með fætin-
um, til að bæta ræktunina. Svell
lagði oft yfir á vetrum og mátti þá
sjá margan skautamanninn, jafnt
unga og gamla. Sumir renndu sér á
hrossleggjum. Frarn yfir aldamót
var völlurinn leigður út til slægna
og mun Björn Jónsson ritstjóri og
ráðhcrra einna lengst hafa leigt þar
slægjur. Þegar dómkirkjan var
byggð úr steini á árunum 1788-
1790, fór mikið af vellinum undir
grjót og troðninga. við flutning
grjóts frá Grjótaþorpssvæðinu."
Um aldamótin 1800 var Austur-
völlur svo illa farinn að kært var
yfir því. Menn ristu þar torf og
stungu hnausa. Bæjarfógeti v^rö
nokkrum sinnum að banna þar
torfskurð í leyfisleysi.
Sumarið 1875 var völlurinn lag-
færður og girtur hárri, rammlcgri
járnrimlagirðingu, nteö öruggum
lás fyrir. En árið 1930 var girðingin
tekin niöur og farið að rækta þarna
hríslur og blóm. Gerðir malarborn-
ir gangstígar, scm seinna voru
hellulagðir og breikkaðir mjög.
Stytta Bertels Thorvaldsens var
afhjúpuð á Austurvelli með mikilli
viðhöfn 19. nóv. 1875. Aldamót-
anna síðustu var og minnst á Aust-
urvelli. Nú trónir á honum miðjum
minnismerki Jóns Sigurðssonar,
gert af Einari Jónssyni, flutt frá
Stjórnarráðshúsinu á Austurvöll
árið 1931. Völlurinn utan gang-
stíga, er nú girtur vírneti til varnar
trjám og blómum. Á haustkvöld-
um eru hin fögru blóni stundum
flóðlýst.
Margt hefur borið við á Austur-
velli. Ein fyrsta opinber athöfn
sem þar fór fram var hýðing saka-
manns árið 1829. Skorti þar ekki
áhorfendur. Samkomuhaíd hefur
lengi tíðkast á Austurvelli og mun
ein hin fyrsta skemmtun fyrir al-
menning hafa farið þar fram árið
1856. Þá lék lúöraflokkur, sem var
í fylgdarliði Napóleons prins, þeg-
ar hann heimsótti landið það ár;
Napóleon prins var frændi keisar-
ans fræga. Oft léku lúðrasveitir á
Austurvelli fyrr á árum og þar voru
haldnir fundir, t.d. I. maí og oftar,
einnig samkontur á sumardaginn
fyrsta, sjómannadaginn og 1. des-
ember. Minnst er þar stoínunar
lýðveldisins 17. júní ár hvert. Hinn
30. márs 1949 kom til verulegra
átaka á Austurvelli í sambandi viö
fund Alþingis þegar ákveðin var
innganga íslands í Atlantshafs-
bandalagið.
Lítum aðeins á umhverfíð. Al-
þingishúsið og dómkirkjan setja
mjög svip á það. Einnig land-
símahúsið og Reykjavíkurapótek.
Stutt er í Hótel Borg, banka,
pósthús, og kirkjugarðinn ganrla
við Aðalstræti, þar sem flestir
Reykvíkingar fyrri tíma voru
grafnir. Gamli kirkjugarðurinn var
nánast orðinn að túni þegar Schier-
beek landlæknir fékk umráð yfir
honum og gerði miklar garðyrkju-
tilraunir þar skömmu fyrir alda-
mótin. Við brottför Schierbecks til
Danmerkur tók Halldór Daníels-
son bæjarfógeti við. Vargarðurinn
þá nefndur Bæjarfógetagarður, og
þótti lengi cin helsta prýði Reykja-
víkur. Silfurreynirinn mikli í garð-
inum er citthvert elsta tré í
Reykjavík, um eða rúmlega aldar-
gamall.
Ef fornir Víkurbændur gætu ris-
iö upp úr gröf sinni, mundi þeim
þykja þröngt á Austurvelli og lítið
um slægjuland. Undrast mundu
þeir æði margt. En minnast ber
þess, að Ingólfur landnámsmaður
var í senn bóndi og sævíkingur, cr
séð hafði margt utan heimahaga
sinna í Noregi. Fyrsti Rcykja-
víkurhöfðinginn var trúmaður á
heiðna vísu og dómkirkjan veglegt
hof í draunium hans. Sonur hans
setti l'yrsta þingið; að vísu ekki við
Austurvöll.
1 lÁSKÓl.l ÍSLANDS
VELKOMNIR f HÁSKÓLA ÍSLANDS
nýnhmahátið í iiáskólabíói
PÖSTUDAGINN 9. OKTÓBER 1987
DAGSKRÁ
KL. 14:00
Hátíðin sett
✓
Háskólakórinn syngur stúdcntasöngva. Stj. Ami Ilarðarson
Ávarp - háskólarektor Siginundur Guðbjarnason
Ávarp - formaður Stúdentaráðs Ómar Geirsson
Námsráðgjöf og námstækni - Ásta Kr. Ragnarsdóttir
Námslán - Thcódór Grímur Guðmundsson
Bókasafnsþjónusta - Halldóra horslcinsdóttir
Heilsugæsla/læknisjjjónusta - Jóhann Ág. Sigurðsson
Mataræði, matseld - Margrct Þorvaldsdóltir
íþróttir - Valdimar Ömólfsson
Úr sögu Iláskólans, kvikmynd
I Iáskólakór og stúdentar taka lagið
I látíðinni slitið
Veitingar
Kvikmyndasýning: "Radiodays" - Woody Allen