Tíminn - 07.10.1987, Qupperneq 11
Miðvikudagur 7. október 1987
ÍÞRÓTTIR
lllllllll
Illllll
Dregið í aðra umferð Evrópukeppninnar:
VíkingarogStjörnumenn fá
mótherja frá Norðurlöndum
- Víkingar gegn Kolding og Stjarnan mætir Urædd-Sterkari en við á pappírunum segir Gunnar
Einarsson - Sé ekki betur en við fáum sterka andstæðinga segir Árni Indriðason
Dregið var í 2. uniferð Evrópu-
keppninnar í handknattleik í gær-
morgun. íslcnsku liðin eru tiltölu-
lega heppin með mótherja, Víkingar
keppa við danska liðið Kolding og
Stjörnumenn mæta Urædd frá Nor-
egi. Búast má við jöfnum og spenn-
andi leikjum en bæði íslensku liðin
eiga heimaleiki sína á undan.
í liði Urædd eru fjórir norskir
landsliðsmenn. Liðið hefur náð í
bikar á hverju ári síðustu árin, ýmist
orðið bikarmeistarar, Noregsmeist-
arar eða sigrað í úrslitakeppni deild-
arinnar. Urædd sló út sænskt lið í 1.
umferð Evrópukeppninnar í ár og
segir það kannski eitthvað um styrk
þess. Heimavöllur Urædd er sann-
kölluð ljónagryfja enda heyrir til
stórtíðinda ef þeir tapa leik þar og
áhorfendur eru vel með á nótunum.
„Mér líst svona sæmilega á þetta,"
sagði Gunnar Einarsson þjálfari
Stjörnunnar í samtali við Tímann í
gær. „Þetta er sterkt lið þetta Urædd
lið. Þeir buðu mér reyndar að þjálfa
þetta lið rétt áður en ég kom heim
þannig að ég þykist nú þekkja nokk-
uð vel til þess. Á pappírnum mundi
ég segja það að þetta væri sterkara
lið en Stjarnan. Það skiptir höfuð-
máli að við náum toppleik hér heima
og reynum svo að spila af skynsemi
úti,“ sagði Gunnar.
Kolding, mótherjar Vtkinga, urðu
danskir meistarar í fyrra og ljóst er
að lið þeirra er mjög sterkt. „Ég get
ekki betur séð en að við fáum mjög
sterka andstæðinga. Ég þekki samt
ekki nægilega mikið til þessa liðs, ég
á eftir að kynna mér það nánar,"
sagði Árni Indriðason þjálfari Vík-
inga í samtali við Tímann í gær.
„Þeir eru með eitt af sterkustu ef
ekki sterkasta lið á Norðurlöndum.
Ég þarf að kynna mér liðið áður en
ég svara því hvaða möguleika við
eigum,“ sagði Árni. _ HÁ
Enski deildabikarinn:
Ellefu-núll
Yuri Sedov þjálfarí 1. deildarliðs Víkinga í knattspyrnu var glaðhlakkalegur þegar Ijósmyndari
Tímans hitti hann við veiðar í Hvammsvík í Hvalfirði á mánudaginn. Sedov hafði veitt 6
silunga í þessari „veiðiparadís fjölskyldunnar“ og var hæstánægður með aflann og ákveðinn
í að fara aftur. Hér hampar hann hluta aflans. Tímamynd pjcmr
íþróttirnar í kvöld:
Landsleikur við Portúgali
samtals
hjá Watford
Önnur umferð enska deildabik-
arsins í knattspyrnu var leikin í
gærkvöldi og var hér um að ræða
síðari leiki liðanna. Watford vann
stærsta sigurinn í 2. umferð, þeir
sigruðu Darlington 8-0 í síðari leikn-
um eða 11-0 samtals. Úrslit urðu
mestmegnis eftir bókinni nema hvað
1. deildarlið Southampton tapaði
fyrir 2. deildarliði Bournemouth.
Úrslit í 2. umferð enska deildabik-
arsins (samanlögð úrslit í sviga, liðin
sem halda áfram eru feitletruð):
íslenska Ólympíulandsliðið í
knattspyrnu keppir í kvöld gegn
Portúgölum ytra. Leikurinn er liður
í undankeppni Ólympíuleikanna.
Leikurinn hefst kl. 20.00 að íslensk-
um tíma og verður honum lýst beint
á rás 2. Heil umferð verður í 1. deild
karla á Islandsmótinu í handknatt-
leik í kvöld og einnig fjórir leikir í 1.
deild kvenna.
íslenska landsliðið ætti að eiga
þokkalega möguleika gegn Portú-
gölum í kvöld. Má því til marks
renna yfir úrslit í leikjum liðanna í
riðlinum til þessa. íslendingar hafa
unnið A-Þjóðverja (2-0), gert jafn-
tefli við Hollendinga (2-2) og tapað
fyrir ítölum (0-2). Portúgalir hafa
gert jafntefli við A-Þjóðverja (0-0)
——1
í kvöld
Handknattleikur
1. deild karla:
Valur-Þór Valsh. kl. 18.00
Stjarnan-UBK ... .. Digranesi kl. 20.00
ÍR-FH .. Seljaskóla kl. 20.00
KR-Víkingur .... ... HöllinniWL 20.15
KA-Fram ... Akureyri kl. 20.00
1. deild kvenna:
Fram-Stjarnan .. .... Höilmni ki. 19.00
Haukar-KR ... Hafnarf. kl. 20.00
FH-Valur ... Hafnarf. kl. 21.15
Víkingur-Þróttur . ... HöUinmkl. 21.30
2. deild kvenna:
ÍBK-HK ... Keflavík kl. 20.00
3. deild:
ÍA-ÍS .. . Akranesi kl 20.00
Þróttur-ögn . . . . . Seljaskóla kl. 21.15
Blak
Reykjavikuxmót:
HSK-ÍS Hagaskóla ki. 19.30
ÍS-Þróttur (kv.) . . . . Hagaskóla kl. 20.45
og Hollendinga (1-1) en tapað fyrir
Itölum (0-2).
Önnur umferð íslandmótsins í
handknattleik verður leikin í kvöld.
Nýliðar ÍR og Þórs lenda aftur í
krumlum sterkra andstæðinga þar
sem eru FH og Valur. Stjörnumenn
hyggjast án efa fylgja eftir sigri
sínum á KA þegar þeir mæta
Blikum. KA-menn verða örugglega
grimmir eftir tapið síðast og gætu
reynst vængbrotnu Framliði erfiður
ljár í þúfu. KR og Víkingur eru einu
taplausu liðin sem eigast við í kvöld
og má búast við spennandi leik þó
Víkingar verði að teljast líklegri
sigurvegarar.
(kvennaboltanum mætast íslands-
meistarar Fram og Stjarnan en bæði
lið unnu sína leiki í 1. umferð.
Frjálsar íþróttir,
keppni unglingaliða:
Þrír á pall
Þrír íslenskir keppendur náðu
verðlaunasæti á félagamóti ungl-
ingaliða í Amsterdam um helgina.
íslenska liðið hafnaði í 8. sæti með
114 stig en Bayer Uerdingen frá
V-Þýskalandi sigraði með 182 stig.
Bjarki Viðarsson HSK varð í 2.
sæti í kúluvarpinu með 13,32 m.
Sigurvegarinn var v-þýskur og kast-
aði 1 cm lengra en Bjarki. Frímann
Hreinsson FH varð 3. í 3000 m
hlaupi á 8:41,16 mín., tæpum 2 sek.
á eftir V-Þjóðverjanum sem sigraði.
Þá varð Steinn Jóhannsson FH þriðji
í 800 m hlaupi á 1:56,00 mín. en
hollenski sigurvegarinn hljóp á
1:53,89 mín. - HÁ
Haukar sem töpuðu naumt fyrir
Stjörnunni keppa við KR sem vann
Þrótt. Þróttarar keppa við Víking og
eldsnöggt lið FH inætir sterku liði
Vals. - HÁ
Arsenal-Doncaster
Coventry-Cambridge . . . .
Gillingham-Stoke .......
Liverpool-Blackburn .. . .
Luton-Wigan ............
Mansfield-Oxford .......
Millwall-QPR............
Newport-Crystal Palace . .
Plymouth-Peterborough . .
Rotherham-Everton.......
Scunthorpe-Leicester . . . .
ShefTiled Wed.-Shrewsbury
Southampton-Bournemouth
Walshall-Charlton ....
Watford-Darlinglon . . .
Wimbledon-Rochdale . .
Wolves-Manchester City
York-Lceds ..........
. 1-0 (4-0)
. 2-1 (3-1)
. 0-1 (0-3)
. 1-0 (2-1)
. 4-2 (5-2)
. 0-2 (1-3)
. 0-0 (1-2)
. 0-2 (0-6)
. 1-1 (2-5)
. 0-0 (2-3)
. 1-2 (2-4)
. 2-1 (3-2)
, 2-2 (2-3)
. 2-0 (2-3)
8-0(11-0)
2-1 (3-2)
0-2 (2-3)
0-4 (1-5)
GETRAUNIR
Sjötta leikvika var metvika þessa tímabils hjá íslenskum getraunum.
Seldar voru 160.444 raðir. Níu þeirra gáfu eigendum sínum 12 rétta
(kr. 98.455.-) og 227 voru með 11 rétta (kr. 1.017.-).
Um 50 hópar skráðu sig í hópleik getrauna sem hófst í vikunni og
var einn hópurínn meðal þeirra sem fengu 12 rétta. Hann hefur því
tekið forystuna í keppninni. Verðlaunin eru ferð fyrir 5 á stórleik í
Evrópu í vor. Fjöldi hópa var með 10 og 11 rétta. Fimmtán bestu
vikurnar gilda í vor svo nægur tími er fyrir nýja hópa að taka þátt.
LEIKVIKA7 Leikir 10. október 1987 Tíminn -Q 2 > Q > *o 'O 'nT Dagur RÚV. Bylgjan C\J o o co Stjarnan
1. Arsenal-Oxford 1 1 1 1 1 1 1 1 1
2. Coventry-Southampton 1 1 1 1 1 1 1 1 X
3. Derby-Nott’m Forest 2 2 X X X X 2 1 2
4. Everton-Chelsea 1 1 1 1 1 1 1 1 X
5. Norwich-Tottenham 2 2 2 2 2 2 2 2 2
6. Porsmouth-Luton 1 X 1 1 2 1 1 2 X
7. Sheff. Wed.-Man. United 1 2 2 X 2 1 2 X 2
8. Watford-Newcastle X 2 1 2 X 1 X 2 1
9. WestHam-Charlton 1 1 1 1 X 1 1 1 X
10. Wimbledon-Liverpool 2 2 2 2 2 2 2 2 2
11. Leicester - Barnsley 1 1 1 1 1 X 1 X 1
12. W.B.A.-Bradford X X 1 2 X 1 2 1 1
Staðan: 26 33 35 30 29 29 30 31 33
Tíminn 11
Molar
■ Útsendarar v-þýska knatt-
spyrnuliðsins Bayern Múnchen
hafa að undanförnu fylgst mcð
Clive Allen, leikmanni Totten-
ham og hyggjast þeir reyna að fá
hinn sókndjarfa Allen til liðs við
sig. Bayernliðið hefur á undan-
förnum árum þrátt fyrir góðan
árangur verið án markaskorara á
borð við Alien sem skorar alltaf
reglulega. Allcn er markahæstur
í ensku 1. deildinni um þessar
mup.dir.
■ Úrslitakeppnin í bandaríska
hafnaboltanum (baseball) hefst í
þessari viku. Það eru sigurvcgar-
ar austur- og vesturriðla deild-
anna tveggja sem nú cigast við,
annarsvegar St. Louis Cardinals
gegn San Francisco Giants og
hinsvegar Minnesota Twins gegn
Detroit Tigers. Leikið verðurupp
á fjóra sigra en úrslitaleikurinn
sjálfur verður svo milli þcirra
tveggja liða sem sigra í þessum
viðureignum.
■ Franski knattspyrnulands-
liðsmaðurinn Patrick Battiston
hefur ákvcðið að hætta uð leika
með landsliðinu. Sagði hann í
samtali við blaðamenn að nú væri
kominn tími til að hleypa nýrri
kynslóð að. Battiston er sá síðasti
úr Evrópumeistaraliðinu frá 1984
sem leggur landsliðsskóna á hill-
una.
■ Eitthundrað og ellefu lands-
lið hafa tilkynnt þátttöku sína í
Heimsmcistaramótimi í knatt-
spymu sem verður haldið á Ítalíu
árið 1990. Skiptingin erþessieftir
heimsálfum (aðildarlönd FIFA
innan sviga): Asía 26(35), Afríka
23 (47), Mið- ogNorður Anieríka
og Kyrrahafið 14(24), S-Ameríka
10 (10), Evrópa 33 (34), Eyjaálía
og ísrael 5 (7). Dregið verður i
riðla 12. desember.
■ Framherjadúettinn Ian Rush-
Mark Hughes veröur fremstur í
flokki þegar Walesbúar keppa
við Dani í Kuupmannahöfn í
næstu viku. Leikurinn er í 6. riðli
Evrópukeppninnar í knattspyrnu
og dugir Walesbúum jafntefli til
að svo gott sent tryggja sér sæti í
úrslitakeppninni. Wales hefur
aldrei tapað leik sem þeir Rusli
og Hughes leika saman í, 10
leikjum alls en Dunir eru rnjög
sterkir á heimavelli og gætu
breytt þessari þróun.
■ Cyrille Regis var valinn í
cnska landsliðið í knattspyrnu
fyrir Evrópuleik liðsins gegn
Tyrkjum í næstu viku. Þykirþetta
tíðindum sæta því fimm ár eru
síöan Rcgis var síðast í landslið-
inu. Bobby Robson frant-
kvæmdastjóri valdi Regis í stað
Mark Hateley sem cr meiddur.
■ Tveir íslcndingar ljúka í vor
námi í íþróttastjórnun frá
íþröttaháskólanum í Osló. Þetta
eru þeir Stefán Konráðsson borð-
tennismaður og Gústaf Björns-
son knattspyrnumaður sem báðir
eru íþróttakennarar. Þetta fag er
nú kennt í fyrsta skipti í háskólan-
unt og snýr nteira að “viðskiptu-
sviði“ íþróttanna. M.a. er kennd
markaðsfræði, lög íþróttahrey-
finganna, almannatengsl ofl.
■ Tvöhundruð og ijórtán ís-
lundsmet í sundi voru sett á
sfðastliðnu ári (júl.-júl.) Flest
voru metin í cinstaklingsgreinum
karla og kvenna, 109, 61 í ein-
staklingsgreinum unglinga, 21 í
boðsundsgreinum karla og
kvenna og 23 í boðsundsgreinum
unglinga. Unga fólkið á greini-
lega framtíðina fyrir sér, bætir 84
met á einu ári, met sem mörg
hver voru einmitt í eigu þess
sundfólks sem er á toppnunt í
dag.
■ Á ársþingi Sundsambands ís-
lands sem haldið var fyrir
skömmu kom fram að rekstur
sambandsins skilaði hagnaði á sl.
ári. Um 40% af tekjum sam-
bandsins komu frá Lottó. Af
gjaldaliðum má nefna mót erl-
endis (42%), innlend mót
(17,2%) og kennslu/þjálfun
(7%). Sjórn sambandsins var að
mestu endurkjörin á þinginu.