Tíminn - 08.10.1987, Síða 2
Fimmtudagur 8. október 1987
EINKAREIKNINGUR
Einkareikningur
er nýr og betri tékkareikningur
fyrir einstaklinga.
16% vextir
Ársvextir eru nú 16%
jafnt á háa sem lága innstæðu
Og það sem meira er; þeir eru
reiknaðir daglega af innstæðunni
en ekkiaflægstu innstæðu á 10daga
tímabili eins og á venjulegum
tékkareikningum.
Þessi ástæða ein ernægileg tilþess
að skipta yfir í Einkareikning.
30.000 kr.
yfirdráttur
Einkareikningshafar geta sótt um
allt að 30 þúsund króna yfirdrátt
til þess að mæta tímabundinni þörf
fyrir aukið reiðufé.
150.000 kr. lán
Einkareikningshafar geta fengið lán
með einföldum hætti.
Lánið er í formi skuldabréfs til allt
að 24 mánaða að upphæð allt að
150 þúsund krónur. Slík lánveiting
er þó að sjálfsögðu háð öðrum
lánveitingum bankans til
viðkomandi.
Hraðbanki
Einkareikningnum fylgir
bankakort sem veitir ókeypis
aðgang að hraðbönkunum allan
sólarhringinn.
Einkareikningurinn þinn
í Landsbankanum.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Framsóknarflokkurinn gaf eftir
embættið í stjórnarmyndunarviðræðum:
Samið var um
Þorvald sem
þingforseta
Það cr föst venja fyrir því að sá
þingflokkur sem heíur forsætisráð-
herrann fær ekki forseta Sameinaðs
þings. Samkvæmt öllum leikreglum
átti Framsóknarflokkurinn rétt á
þessu embætti í samningum um
stjórnarmyndun, en áreiðanlegar
heimildir Tímans herma að fram-
sóknarmenn hafi gefið eftir þingfor-
setastólinn til Sjálfstæðisflokks gegn
því skilyrði að Þorvaldi Garðari
Kristjánssyni yrði fengið embættið.
Hann gegndi því á liðnu kjörtímabili
og enginn þingmanna Framsóknar-
flokks sóttist verulega eftir því og
gátu vel sætt sig við Þorvald.
Framsóknarmenn fengu hins veg-
ar forseta neðri deildar, svo sem
áður var, og Alþýðuflokkur cfri
deild.
En þær raddir gerast nú háværari
að önnur hvor þingkona sjálfstæðis-
manna hljóti embætti forseta Sam-
einaðs alþingis í sinn hlut. í ályktun
sem samþykkt var á þingi sjálfstæðis-
kvenna í ágústmánuði sl. var skorað
á þingflokkinn að kjósa konu í
embætti þingforsetans vegna þess að
þær voru sniögengnar í ráðherravali.
Slagurinn stendur því um Þorvald
Garðar Kristjánsson, Ragnhildi
Helgadóttur og Salóme Þorkelsdótt-
ur, en öll eiga þau stuðningsmenn
innan þingflokksins og utan.
Þorvaldur Garðar hefur verið
þingforseti undanfarin fjögur ár.
Þorvaldur Garðar
Kristjánsson:
»No
comment"
„Þú ætlar að spyrja mig einhvers
um þetta mál en það er bara „no
comment" að fá hjá mér,“ sagði
Þorvaldur Garðar.
- Getur þú staðfest hvort það sé
rétt að þið bítist þrjú unt embættið?
„Ég get ekkert staðfest um aðra.
Ég held að það sé augljóst að ég gefi
sjálfur kost á mér,“ sagði Þorvaldur
Garðar.
Þj
Ragnhildur Helgadóttir:
Allir í
framboði
- Það hefur verið sagt að þú
bjóðir þig fram til embættis þings-
forseta.
„Það eru engir einstakir í fram-
boði. Auðvitað er allur þingflokkur-
inn í framboði til þeirra starfa sem
kosið er í úr hópi þingmanna," sagði
Ragnhildur.
Hún sagði skýringuna á því að
nafn hennar og Salóme væru nefnd
í þessu sambandi vera þá, að þing
sjálfstæðiskvenna hefði samþykkt
mjög eindregna ályktun í sumar þar
sem skorað er á formann flokksins
að sjá svo um að kona verði forseti
Sameinaðs þings.
„Það eru tvær konur í þingflokkn-
um og ég geri ráð fyrir að þetta sé
Stuðningsmenn hans telja að vegna
þess að fulltrúar landsbyggðarinnar
hafi orðið útundan við ráðherraval
sé rétt að Þorvaldur Garðar sinni
embætti sínu áfram. Einnig benda
þeir jafnframt á að samið hafi verið
um Þorvald í stjórnarmyndunarvið-
ræðum.
Tíminn leitaði álits hjá Þorvaldi
Garðari og Ragnhildi. Ekki náðist í
Salóme Þorkelsdóttur, Ólaf G. Ein-
arsson, þingflokksformann, né Þor-
stein Pálsson, flokksformann.
þj
SalómeÞorkelsdóttir, alþ.m.
Þorvaldur Garðar Krístjánsson,
alþm.
Ragnhildur Helgadóttir, alþm.
skýringin á þessu máli,“ sagði Ragn-
hildur. „Það er ekki hægt að ræða
um slag innan þingflokksins um
þetta embætti.“
þj