Tíminn - 08.10.1987, Side 3
Fimmtudagur 8. október 1987
Tíminn 3
Laugalandsmeyjar
Föstudaginn 2. október var mikill kvennafans saman kominn í íþróttahöllinni á Akureyri. Þar voru staddar ytir
átta hundruð konur sem á árum áður stunduðu nám við Húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði. Skólinn
hefur nú verið lagður niður, en fyrsta skólasetningin var í októberby;rjun fyrir rimmtíu árum. Húsmæðurnar
fengu sér að snæða í íþróttahöllinni og rifjuðu upp gamlar minningar. Á laugardeginum komu síðan árgangarnir
saman, hver í sínu lagi, við skólann sinn og röbbuðu saman. hía - Akureyri
Af húsí og lóðum SÍS
Viðræður um kaup ríkisins á húsi
Sambands íslcnskra samvinnufélaga
við Sölvhólsgötu hafa nú tckiö á sig
ögn formlcgri mynd cn til þcssa og
cr farið að skiptast á tilboðum og
halda fundi, bæöi í húsi SíS og í
fjármálaráðuncytinu.
Frctt Þjóðviljans í gær af lóða-
kaupum SíS í Kópavogi rcyndist
ckki á rökum rcist ogsagöi Hcrmann
Sveinbjörnsson, blaðafulltrúi SíS,
að margt ætti cftir að gcrast áður cn
slíkar undirritanir gætu farið fram.
Eitt af því scm gerast þarf áður cr að
gcngiö vcröi l'rá sölu á Sambands-
húsinu við Sölvhólsgötu. KB
iy=j> Með gætni
skal um götur
aka
USSSÍR0AB
Kirkjuþing 1987 í Bústaðakirkju:
KIRKJURÁD SÆTIR
HARÐRIGAGNRÝNI
Mjög harðorð gagnrýni kom fram
í umræðu um skýrslu kirkjuráðs á
kirkjuþingi í gærmorgun. Sagði dr.
Gunnar Kristjánsson, kirkjuþings-
niaður m.a. að það væri með öllu
ólíðandi að kirkjuráð kæmist upp
með það ár eftir ár að hafast ekkert
að í málum sem væru mikil alvöru-
mál fyrir kirkjuna í heild. Gagnrýndi
hann mjög það sem hann kallaði í
ræðu sinni dæmigerð ófaglærð
vinnubrögð kirkjuráðs varðandi af-
greiðslu þeirra mála er þingið vísar
til þess.
Kristján Þorgeirsson, kirkjuráðs-
maður, sté ásamt öðrum í pontu og
hafði hann orð á því að fyrst kirkju-
ráð væri eins lélegt og dr. Gunnar
vildi vera láta, væri víst kominn tími
til að kjósa nýja menn til starfa.
„Þau mál sem við erum að undir-
búa fyrir kirkjuþing og bera hcr upp
eru mörg hver alvöru mál. Það er því
ekki til mikils ætlast af kirkjuráði að
það afgreiði þau af einhverri al-
vöru," sagði dr.Gunnar Kristjánsson
einnig. Nefndi hann sérstaklega af-
greiðslu kirkjuráðs á 12. máli kirkju-
þings ’86 um leiðarrit um kirkjur og
búnað þeirra, sem ekkert hcfði kom-
ist áleiðis í heilt ár. Einnig tiltók
hann sérstaklega 13. mál frá í fyrra
er varðar þjóðmálaráð kirkjunnar
og hlaut það einmitt talsverða um-
fjöllun fjölmiðla á sínum tíma og
almenna athygli. Ekkert gerðist í
því máli fyrr en 12. maí s.l. að
kirkjuráð ákvað að vísa málinu áfr-
ant til ráðgjafarnefndar um siðfræði-
leg málefni, á þá leiö að undirbúin
yrði ráðstefna í Skálholti í sumar.
Ekkert hefur þó enn orðið úr þeirri
ráðstefnu og því má segja að hrein-
lega ekkert hafi komið út úr þessari
samþykkt kirkjuþings í fyrra.
Afgreiðsla annars ntáls frá í fyrra
var einnig tekið til umræðu eftir
flutning kirkjuráðsskýrslunnar. Það
var 34. mál um friðarmál. Kom fram
í skýrslunni að biskup íslands hefur
lagt grundvöll að því að stofnaður
verði friðarhópur presta í stað þess
að stofna friðarhóp kirkjunnar eins
og hópurinn var nefndur í samþykkt
kirkjuþings frá í fyrra. Hlaut þessi
nafnbreyting, og um leið áherslu-
breyting, nokkra gagnrýni þingfull-
trúa núna.
Helstu mál frá
hendi ráðsins
Fyrir utan það verksvið kirkjuráðs
að sjá um afgreiðslu þeirra niála sem
kirkjuþing vísar til þess, hverju
sinni, ber kirkjuráði einnig að undir-
búa kirkjuþing með biskupi. Þau
mál sem kirkjuráð hefur undirbúið
og lagt fram í ár eru m.a. tillaga til
þingsályktunar um aðgang fatlaðra
að kirkjum landsins, um stofnun
Siðfræöistofnunar Þjóðkirkjunnar
og Háskóla íslands, og um það
hvernig kirkjugörðum og söfnuöum
verði bcst tryggöar tckjur sínar við
fyrirhugaða breytingu ylir í stað-
greiðslukerfi skatta á næsta ári.
Kirkjuráð skipa aðalmennirnir
Gunnlaugur Finnsson, varaforseti
ráðsins, sr. Jón Einarsson, prófast-
ur, sr. Jónas Gíslason, dósent, og
Kristján Þorgeirsson. Biskup íslands
er sjálfskipaður forseti kirkjuráðs.
Kirkjuþing hófst í fyrradag með
messu í Bústaðakirkju, cinsogTím-
inn grcindi frá, en það stendur í 11
daga samfellt. Ekki eru allar tillögur
komnar fram ennþá og er skilafrest-
ur þcirra fram til dagsins í dag. KB
Opinberri heimsókn
forsetans til Ítalíu
lokið:
Vigdís á
Sikiley
Opinberri hcimsókn forseta
íslands, frú Vigdísar Finnboga-
dóttur, lauk í gærntorgun, en
strax að henni lokinni hélt hún til
Sikileyjar, þar sem hún mun
dveljast fram á föstudag.
Forsetinn kont til Sikileyjar
um hádegisbil í gær og voru
viðstaddir á llugvellinum við
komu hennar allir helstu fyrir-
menn eyjarinnar.
Eftir stutta athöfn á flugvellin-
um í Palermo var haldið til Orl-
eanshallarinnar, þar sent skipst
var á gjöfum og léttar veitingar
bornar fram. Því næst var haldið
til Palazzo dei Normaani, eða
Norntannahallarinnar, þaðan til
Palazzo dellc Aquile og því næst
bauö landsstjórinn á Sikilcy til
hádcgisverðar til heiðurs forscta
íslands.
Eftir hádegi var haldið til
Monreale, þaðan með þyrlu til
Agrigento þar scm hin helgu hof
voru heimsótt, þaðan til Cataniu
mcö þyrlu og þaðan til Syrakúsíu
meö bíl, þar sent Vigdís snæddi
kvöldverð.
Dagurinn í dag mun verða
alveg jafn annasamur hjá forsct-
anum og gærdagurinn. Hún mun
heimsækja grískt leikhús, skoða
eldfjallið Etnu úr lofti, snæða
óformlegan hádegisvcrð á veit-
ingastaðnum Uliveto, hcimsækja
víngarð og því næst skoöa gríska
leikhúsiö í Taormina.
Forseti íslands mun halda
heimlciðis á morgun mcö vél
Fluglciða. -SÓL
Símgreiðslur V/SA-, Eitt símtal
og mátð er afgreitt
Um að gera að spara sporin! Farið ekki langa leið að óþörfu.
Korthafar VISA geta pantað og greitt leikhúsmiða (þeir eru geymdir á ábyrgð
korthafa þartil sýning heíst), skipt við póstverslanir, bókaforlög, greitt auglýs-
ingar, getraunaseðla o.fl., allt með einu símtali:
Þjóðleikhúsið: S 6112 00, Leikfélag Reykjavíkur: © 1 66 20, Sinfóníu-
hljómsveit íslands: © 62 22 55, íslenska óperan: © 114 75,
RÚV: © 69 30 60, Bylgjan © 2 8511, Stjarnan © 68 9910,
ísl. getraunir © 68 83 22, Quelle: S 4 50 33, Kays: © 5 28 66,
Freemans: S 5 39 00, DV: © 2 70 22, Morgunblaðið: S 2 24 80, o.fl.
Þægindi og þjónusta eru aðalsmerki VISA. Korthafar þekkja eftirfarandi
hlunnindi: Ferðaslysatryggingu, Sjúkratryggingu (erl.), Viðlagaþjónustu (erl.),
Bankaþjónustu (erl.), Hraðbankaþjónustu (erl.), Gisti-
þjónustu, Vildarkjör,
Tímaritið VILD.
Nú eiga korthafar VISA
enn fleiri kosta völ.
VISA: Boðgreiðslur,
Raðgreiðslur,
Símgreiðslur.
STYRKTARADILI ÓLYMPÍULIÐS ÍSLANDS