Tíminn - 08.10.1987, Side 20

Tíminn - 08.10.1987, Side 20
$ Þjónusta í þína þágu SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Auglýsingadeild hannar auglýsinguna fyrir þig Okeypis þjónusta 686300 1 miinn 1917 l\J 1987 ÁDA ^ . i / ■ iviwrvo Tímlnn Niðurstöður starfshóps Rannsóknaráðs: Bætt stjórnun getur sparað þrjá milljarða Bætt stjórnun í fiskvinnslu getur leitt til allt að þriggja milljarða króna sparnaðar á ári, ef farið er eftir tillögum starfshóps á vegum Rannsóknar- áðs ríkisins, en hann hefur síðustu mánuði verið að vinna að því að móta hugmyndir um hvernig bæta megi hag og samkeppnisaðstöðu fiskvinnsl- Niðurstöður starfshópsins eru, að það séu einkum tvenns konar þróunar- og rannsóknarverkefni, sem geta bætt samkeppnisaðstöðu fiskvinnslunnar. í fyrsta lagi eru það verkefni tengd hráefnisjöfnun. Aukin sér- hæfing sem byggist á jöfnu flæði hráefnis til vinnslunnar og að ein- hverju leyti af tiltekinni tegund og stærð, er líklegust til að skapa nýtt framfaraskeið í vinnslunni. Ávinn- ingur af því er metinn á 5-10% af framleiðsluverðmæti vinnslunnar, eða af stærðargráðunni 750 - 1500 milljónir króna á ári. í öðru lagi sjálfvirkni í vinnslunni. Pegar til lengri tíma er litið virðist sjálf- virkni geta aukið hagkvæmni og dregið úr mannaflaþörf vinnslunn- ar. Ávinningur er talinn geta verið um 8- 10% af framleiðsluverðmæti Alþjóðlega skákmótið í Ólafsvík: Þröstur nálgast nú meistaratitil Þröstur Þórhallsson fer að finna þef af alþjóðlegum meistaratitli ef fer sem horfir á alþjóðlega skákmót- inu í Ólafsvík. Hann vann meistara- Viðskiptin við útlönd: 6,5 milljarða halli Líklegast er að viðskiptahallinn á næsta ári verði yfir 6 milljörðum, en ekki um eða yfir 4 milljarða eins og Tíminn sagði í gær, í frétt sinni af væntanlegri þjóðhagsspá. Upplýsingar sem Tíminn hefur nú aflað sér segja að það sem einkum hafi breyst frá því að fjármálaráðherra talaði um 4,4 milljarða halla á árinu 1988 í Tímaviðtali fyrir skömmu sé, að ofreiknaðar hafi verið ákveðnir liðir í útflutningstekjum. Með öðrum reiknilíkönum hafi hins vegar talan 6,5 milljarðar komið út að óbreyttum forsendum og ef ekki verður gripið í taumana. - BG banann Björgvin Jónsson í gær- kveldi, en Björgvin var efstur fyrir þessa fjórðu umferð, hafði unnið allar sínar skákir. Þeir félagarnir tróna nú á toppnum með 3 vinninga hvor og þurfa því 4 vinninga í þeirn 7 skákum sem eftir eru til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli, Björgvin sinn fyrsta en Þröstur sinn þriðja og síðasta. Aðrar skákir fjórðu umferðar enduðu með jafntefli, nema hvað skák Ingvars og Dan var ólokið þegar Tíminn fór í prentun. Þar hafði Ingvar betri stöðu. Staðan á mótinu eftir fjórar um- ferðir er því þannig að Þröstur og Björgvin verma toppsætið með 3 vinninga, en Danielsson kemur á hæla þeirra með 2 1/2 vinning. Þá eru fjórir menn jafnir með 2 vinn- inga, þeir Bator, Jón L., Schandorff og Haugli. Þá koma Karl, Sævar, og Tómas með 1 1/2 vinning, en ekki er Ijóst hvar Ingvar og Dan lenda, en þeir voru með 1 vinning fyrir fjórðu umferð. í kvöld fá skákmennirnir frí frá taflmennsku. - HM Alvarlegt vinnuslys varð í Hafnarfirði Mjög alvarlegt vinnuslys varð í vélsmiðjunni Kletti í Hafnarfirði klukkan 15:30 í gærdag, þegar ungur maður varð undir þungu búnti af járni. Slysið átti sér stað þegar verið var að hífa búnt af vinkiljárni niður af vörubíl. Stroffan utan um búntið gaf sig undan þunganum og lenti maður- inn með báða fætur undir járninu. Hann hlaut meiriháttar áverka. Maðurinn var fluttur með hraði á slysadeild Borgarspítalans. Hann er tuttugu ára gamall, fæddur 1967. Þj vinnslunnar, eða einn til einn og hálfur milljarður króna á ári. Erfiðleikar fiskvinnslunnar fel- ast m.a. í harðari samkeppni um hráefni en áður, bæði við erlenda aðila og frystiskip og að erfiðara er að fá fólk til starfa, aðallega vegna lágra launa. Ástand það er fiskvinnslan býr nú við er m.a. að eftirspurn eftir ferskum fiski er vaxandi, vægi Evrópumarkaðar hefur aukist, hagkvæmni markaðanna breytist stöðugt, stofnun fiskmarkaða breytir verðgrundvelli, kaupendur fiskafurða vilja í ríkari mæli frá tryggingu fyrir gæðum, erfitt er að fá starfsfólk til starfa og verkstjórar og aðrir leiðbeinendur verða æ betur menntaðir en áður. Allt þetta hefur mótandi áhrif á þau rannsóknar- og þróunarverkefni sem ráðist verður í. Lagði nefndin aðaláherslu á að . kanna hvernig hægt væri með hag- ræðingu og sjálfvirkni á ýmsum stigum vinnslunar að ná skjótum hagrænum árangri. Þannig mátti fá fram hvar í vinnslurásinni arðs væri að vænta og hvers konar rannsóknar- og þróunarverkefni væru líklegust til að gefa mestan arð. Starfshópinn skipuðu Pétur Maack, sem var formaður, Davíð Lúðvíksson, Finnbogi Alfreðsson, Grímur Valdimarsson, Páll Kr. Páisson og Sturlaugur Daðason. Tillögur nefndarinnar um fjár- framlag til rannsókna- og þróunar- verkefna voru þær að gert verði átak til að efla samstarf iðnaðar, fiskvinnslu og rannsóknastofnana um þróun tækni og aðferða til að stórauka hagkvæmni í fiskvinnslu. Verði varið 150-200 milljónum króna til verkefnanna næstu þrjú árin og þriðjungur komi frá hinu opinbera og verði t.d. veittar úr Rannsóknarsjóði ríkisins. - SÓL 1 ísund Aðgangseyrir sundstaða Reykjavíkurborgar hækkaði að meðaltali um 12% í gær. Einstakt fullorðinsgjald hækkaði úr 45 krónum í 50 krónur', tíu miða kort hækkaði úr 400 krónum í 450 krónur og þrjátíu miða kort hækkaði úr 1000 krónum í 1100 krónur. Einstakt barnagjald hækkaði hins vegar um 25% að þessu sinni, kostar nú 25 krónur í stað 20 króna áður. Tíu miða barnakort hækka hins vegar aðeins um 15 krónur, úr 130 krónum í 145 krónur. Þess má geta að einstakt barnagjald hefur ekki hækkað frá því í febrúar 1985. - HM Nú kostar 25 kr. fyrir krakka í sund í Reykjavík. Alþingi: Verða keyptir 63 bílasímar? í gær kom frarn minnisblað frá þingflokksformönnum, sem leggja á fyrir alla þingflokkana, þess efnis að keyptur verði bílasími handa sér- hverjum hinna 63ja þingmanna landsins. Hver bílasími kostar um 100 þúsund krónur, og myndu símar fyrir þingmenn alla því kosta um 6,3 milljónir kr. Málið hefur verið rætt á þing- flokksfundi hjá a.m.k. einum flokk- anna. Ljóst er að talsverður áhugi er innan margra þingflokkanna á því að þingmenn fái bílasíma. Þó eru einhverjar raddir uppi um að nægj- anlegt væri að þingmenn fengju afnotagjöld greidd fyrir bílasíma en þær raddir hafa þó ekki hlotið mik- inn hljómgrunn. Æ Bm

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.