Tíminn - 16.10.1987, Page 7
Föstudagur 16. október 1987
Tíminn 7
Tryggingastofnun ríkisins greiðir útlendu lyfin:
Lyfjum sjúklinga
hent á spítalanum
Tryggingastofnun ríkisins greið-
ir lyf þeirra hjartasjúklinga sem
skornir hafa verið upp erlendis og
læknar þeirra þar útvega þeim.
Það sem kemur mönnum hins veg-
ar spánskt fyrir sjónir er að þegar
sjúkrahús hér á landi tekur aftur
við sjúklingi sem gengist hefur
undir uppskurð erlendis er lyfjum
þeim, sem honum voru útveguð,
hent og honum gefin ný sem eru
samsvarandi.
2000 krónum skolað niður
Fyrir skömmu var fullum poka
af lyfjum, sem hjartasjúklingur
fékk í Bretlandi að aflokinni
aðgerð, hent þegar hann var lagður
inn á Borgarspítalann. Hann mátti
síðar kaupa sams konar lyf úr
apóteki hér á landi sem kostuðu
um 2000 krónur.
Það er regla á sjúkrahúsum hér
að skola þessum útlendu lyfjum
niður.
Á árinu 1986 fóru 133 íslending-
ar til uppskurðar vegna hjartasjúk-
dóma til útlanda. Það má því gera
ráð fyrir að T ryggingastofnun ríkis-
ins skoli talsverðu fjármagni niður
með lyfjakaupum fyrir sjúklinga
erlendis, ef dæmi þetta er algengt.
Til að forða misskilningi
„Sefavarnarlyf, sem kölluð eru
blóðþynningarlyf almennt, verður
að skipta um þegar sjúklingar
koma heim. Það eru yfirleitt notuð
önnur lyf t' Bandaríkjunum og
Bretlandi en hér á landi og við
erum einungis með eitt blóðþynn-
ingarlyf á skrá,“ sagði Guðmundur
Oddsson, hjartasérfræðingur á
Borgarspítalanum. „Hvað varðar
önnur lyf er ástæða þess að við
skiptum í lyf sem fást hér að þau
heita öðru nafni. Þetta er gert til
þess að forða misskilningi þegar
líður á og útlendu lyfin, sem sjúkl-
ingunum voru fengin, þrjóta."
Guðmundur Oddsson taldi dæmi
Tímans mjög einangrað og alls
ekki algilt. Venjan sé sú að íslensk-
ir sjúklingar sem leitað hafa lækn-
inga erlendis komi með lítinn lyfja-
skammt heim sem dugir fáa
daga. Þetta á sérstaklega við um
breska lækna en Bandaríkjamenn
eru oft örlátari á lyfin.
„Þá fer það oft eftir lækninum
sjálfum sem annast sjúklinginn
hvort hann lætur hann Ijúka við
skammtinn og skiptir yfir síðar eða
að hann skiptir strax. Yfirleitt vilja
menn koma í veg fyrir að miklum
verðmætum sé fleygt.“
Óumflýjanlegur kostnaður
Guðmundur Oddsson benti á að
því fylgdi líka kostnaður að kalla
sjúklinginn inn aftur eftir að hann
hefur útskrifast af spítala til þess
eins að gefa út ávísun á önnur lyf,
sem fást í lyfjaverslunum hér á
landi. Þá sé jafn gott að skipta
þegar og sjúklingurinn kemur heim
úr aðgerðinni.
„Ég hef sjálfur látið sjúklinga
mína halda t.d. verkjalyfjum
sínum, því að yfirleitt er þá um
nákvæmlega sömu lyf að ræða og
fást hér,- þau heita aðeins öðrum
nöfnum."
Guðmundur segir meðferð
hjartasjúklings á blóðþynningar-
lyfjum afar flókna og þótt þau lyf
sem Bretar og Bandaríkjamenn
nota séu ekki sfðri en það lyf sem
hér er notað séu ekki teknir af
þeim sömu skammtar. Lyfin hafa
mismunandi frásog og helmingun-
artíma og að sögn Guðmundar
þannig í eðli sínu að ekki megi
blanda þeim. Blóðþynningarlyfið
sem hér er notað, „dicumarol",
hefur verið notað allar götur frá
1960.
Stórvarasamt að blanda
„Blóðþynningarlyf eru aldrei
gefin öðru vísi en svo að á rann-
sóknarstofu er blóð sjúklings mælt
og þá er ákveðið hvað hann þurfi
að taka mikið af töflum og hvenær
hann eigi að mæta til rannsóknar
næst,“ sagði Guðmundur. „Ef við
ættum að vera með fleiri en eitt lyf
í gangi gæti það verið beinlínis
hættulegt. Spurningin erhins vegar
hvaða lyf sé heppilegast. Það er
matsatriði. En það er óskaplega
mikið atriði að skipta yfir.“
- Geta læknar sem annast ís-
lenska sjúklinga erlendis notað
blóðþynningarlyfið sem fæst á ís-
landi svo ekki þurfi að fleygja
þessum verðmætum sem Trygg-
ingastofnun greiðir fyrir?
„Ég held að það sé alveg jafn
útilokað og fyrir okkur að nota
þeirra lyf og af sömu öryggisástæð-
um. Þetta lyf er stórvarasamt ef
það er ekki notað rétt og ég tel að
það væri mjög misráðið að hafa
fleiri en eitt blóðþynningarlyf í
umferð." þj
Formenn endurkjörnir á ársþingi IUT:
Áfengisneysla minnki
um 1/4 fyrir aldamót
Ný stjóm IUT, talin frá vinstrí að ofan: Ingibergur, Aðalsteinn, Arndís,
Guðni og Stefanía.
Á næsta ári halda ungtemplarar
upp á 30 ára afmæli samtaka sinna
og verður þess m.a. minnst með
hátíðarútgáfu „Sumarmála", þar
sem rakin verður saga og starf
samtakanna o.fl.
Samtökin voru stofnuð sumar-
daginn fyrsta 1958 og til undirbún-
ings fyrir afmælisárið héldu ís-
lenskir ungtemplarar 29. ársþing
sitt 26. og 27. september si.
Þar var rætt um kaup á húsnæði
fyrir félagsstarf ungtemplara, sem
vantað hefur um árabil.
Mikilvægi starfsemi ungtempl-
ara hefur vaxið með aukinni fíkni-
efnaneyslu unglinga og þörfin fyrir
samtökin líklega aldrei verið meiri,
segir í tilkynningu, en þau hafna
neyslu vímuefna og vilja afla þeirri
lífsstefnu fylgis meðal ungs fólks.
Á þinginu var endurkjörinn for-
maður, Ingibergur Jóhannsson, og
varaformaður, Stefanía Sæmunds-
dóttir. Aðrir í stjórn eru Aðal-
steinn Gunnarsson, Arndís Hilm-
arsdóttir og Guðni R. Björnsson.
Á ársþinginu voru þrjár ályktan-
ir samdar. Þingið skorar á alþingis-
menn að standa vörð um gildandi
áfengismálastefnu sem miðar að
því að halda áfengisneyslu í lág-
marki og fara um leið að tilmælum
Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar
um að draga úr áfengisneyslu um
fjórðung fram til næstu aldamóta.
Þingið skorar á alþingismenn að
beita sér gegn því að seldur verði
áfengur bjór í landinu.
Stjórnvöld eru hvött til að leggja
áherslu á forvarnarstarf í fíkniefna-
málum og tryggja til þess fjármagn
þrátt fyrir áætlaðan samdrátt í
útgjöldum ríkisins á komandi ári.
Að lokum fagnar þingið áföng-
um í samskiptum risaveldanna í
afvopnunarmálum sem miða að
tryggari friði í heiminum. Nýlega
hafa samtökin bætt friðsamlegri
samskiptum milli þjóða á stefnu-
skrá sína. Stjórnmálamenn og sér-
staklega þeir sem móta utanríkis-
stefnu landsins eru hvattir til að
skipa íslandi í fylkingu þeirra
þjóða sem vilja eiga frumkvæði að
tilslökunum sem byggja á gagn-
kvæmu trausti. þj
FUF Skagafiröi:
Gegn aðför að
námsjafnrétti
Á aðalfundi Félags ungra fram-
sóknarmanna í Skagafirði var sam-
þykkt ályktun gegn fyrirætlunum
fjármálaráðherra um að leggja sölu-
skatt á fæðissölu skólamötuneyta. í
ályktuninni segir: „Aðalfundur FUF
í Skagafirði haldinn l.október 1987,
lýsir megnri andstöðu við þá ákvörð-
un núverandi fjármálaráðherra Jóns
Baldvins Hannibalssonar að leggja
söluskatt á fæðissölu skólamtjtu-
neyta. Slík skattlagning hlýtur að
hækka námskostnað þeirra sem
sækja þurfa skóla fjarri heimabyggð
og rýrir enn frekar jafnrétti til náms.
FUF í Skagafirði skorar á alla náms-
menn að mótmmæla þessari ráðstöf-
un.“
Aðalfundurinn var hinn ágætasti
og mætti annar þingmanna Fram-
sóknarflokksins í Norðurlandi
vestra, Stefán Guðmundsson á
fundinn, en Páll Pétursson var for-
fallaður vegna fundar annars staðar.
Þá mætti formaður og ritari SUF,
þeir Gissur Pétursson og Guðmund-
ur Gylfi Guðmundsson á fundinn og
kynntu vetrarsarf FUF.
Umræður voru mjög líflegar um
verkefnin framundan og stjórnmálin
yfirleitt. Nýr formaður var kjörinn
Árni Gunnarsson frá Flatatungu, en
hann tók við af Guðrúnu Sighvats-
dóttur sem gegnt hefur því embætti
um árabil.
Hádegisverðarfundur á morgun:
Steingrímur Hermannsson
ræðir utanríkismál íslands
Steingrímur Hermannsson utan-
ríkisráðherra mun ræða um utanrík-
ismál íslands á hádegisverðarfundi
n.k. laugardag, sem haldinn er af
Varðbergi og Samtökum um vest-
ræna samvinnu.
Eftir framsöguerindi sitt mun
utanríkisráðherra svara fyrirspurn-
um og taka þátt í almennri umræðu.
Fundurinn verður haldinn í Átt-
hagasal Hótel Sögu og verður salur-
inn opnaður klukkan tólf á hádegi.
Fundurinn er opinn félagsmönnum í
Varðbergi og SVS, ásamt gestum
þeirra.