Tíminn - 16.10.1987, Blaðsíða 12
12 Tíminn t
Föstudagur 16. október 1987
FRETTAYFIRLIT
ÚTLÖND
lllllllllllllllllllllll
KÚVAIT — Olíuflutningaskip
í eigu Bandaríkjamanna varð
fyrir eldflaug þar sem það lá
við akkeri rétt utan við strendur
Kúvait og var þetta fyrsta árás-
in sem skip verður fyrir innan
landhelgi furstadæmisins.
Skipið sem fyrir árásinni varð
heitir Sungari og siglir undir
fána Líberíu. Eldur kviknaði
þegar eldflaugin hitti skipið en
samkvæmt heimildum frá
Persaflóanum var hann slökkt-
ur nokkru síðar.
COLOMBÓ — Þúsundir
indverskra hermanna komu
sér fyrir rétt fyrir utan borgina
Jaffna á samnefndum skaga á
norðurhluta Sri Lanka. Þar er
búist við hörðum lokaátökum
milli fjölmenns herliðs Indverja
og skæruliða tamíla.
LUNDÚNIR — Lögreglan í
Bretlandi sagðist hafa tekið
fyrrverandi bankamann fastan
í tengslum við yfirtöku brug-
gfyrirtækisins Guinness á eig-
um whiskýframleiðandans
Distillers Co PLC. Þrír áhrifam-
iklir viðskiptamenn hafa þegar
verið kærðir í sambandi við
þetta fjármálahneyksli sem ei
eitt það mesta í Bretlandi é
undanförnum áratugum.
PEKÍNG — Viðræðum milli
stjórnvalda Kína og Sovétríkj-'
anna, er miða að því að bæta
stjórnmálaleg samskipti ríkj-
anna, lauk í gær án þess að
verulegur árangur næðist.
Þetta voru elleftu viðræður
kommúnistaríkjanna tveggja
um þessi efni síðan árið 1982
og búist er við að fleiri fylgi á
eftir.
MOSKVA — Sovétmenn
munu líklega nema úr gildi lög
er hafa gert stjórnvöldum kleifi
að fangelsa þúsundir stjórnar-
andstæðinga á síðustu þrjátíu
árum. Það var háttsettur so-
véskur embættismaður sem
sagði þetta í beinni sjónvarps-
útsendingu þar sem þingmenn
frá Sovétríkjunum og Banda-
ríkjunum ræddu málin.
TÚNIS — Tveir leiðtogar bók-
stafstrúarmanna úr hópi mús-
lima í Túnis voru handteknir
eftir að hafa verið á flótta.
Báðir voru þeir meðal sakborn-
inga í fjöldaréttarhöldum sem
haldin voru í síðasta mánuði
og annar þeirra var þá dæmdui
til dauða.
MILWAUKEE — Sex börr
létu lífið í eldsvoða í Milwauk-
ee í Bandaríkjunum í gær.
Eldurinn kviknaoi í gömlu húsi,
ekki langt frá húsi sem brann í
síðasta mánuði en þá létust tíu
börn. Hverfi þetta er eitt af
fátækari hverfum bandarísku
borgarinnar og mörg húsanna
eru frá þvf um aldamótin.
iga
i"**1**1,
LUNDÚNIR — Breskur
tundurduflaslæðari fann oa
eyðilagði tundurdufl utan við
strendur Sameinuðu arabísku
furstadæmanna snemma í
gærmorgun.
Vopnin biýnd
innan UNESCO
Federico Mayor frá Spáni, helsti keppinautur Senegalbúans Amadou
Mahtar M‘Bow um framkvæmdastjórastöðuna innan UNESCO, var á þönum
í gær við að reyna að afla sér stuðnings. Búist er við að lokaatkvæðagreiðslan
um stöðuna verði í dag eða kvöld.
Mayor kom til Parísar í fyrrakvöld en þar eru höfuðstöðvar þessarar
menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Hann neitaöi að tala við
fréttamenn enda tíminn naumur og við marga að ræða.
Samkvæmt heimildum innan her-
búða Spánverjans ætlar hann að
reyna að tala við sem flesta fulltrúa
þeirra 158 landa sem enn eiga aðikl
að UNESCO eftir að Bandaríkin,
Bretland og Singapúr sögðu sig úr
samtökunum.
Vestrænir stjórnarerindrekar
segja að ef M'Bow verði endurkjör-
inn framkvæmdastjóri UNESCO
geti komið tii enn alvarlegri
sundrungar innan samtakanna og
fleiri vestræn ríki yfirgefi þau.
M‘Bow hefur verið gagnrýndur
fyrir að vinna beinlínis gegn hags-
munum Vesturveldanna og fara illa
með þær 150 milljónir dollara sem
UNESCO fær í sinn hlut árlega.
Stuðningsmenn hans segja hins veg-
ar að samtökin hafi verið mjög virk
hin síðustu ár, sérstaklega meðal
hinna fátækari þjóða þar sem þörfin
er meiri.
M'Bow tapaði í fyrsta skipti at-
kvæðum í kjöri í fyrradag. Það var
fjórða atkvæðagreiðslan innan fram-
kvæmdastjórnar samtakanna og sú
fimmta verður samkvæmt reglunum
einungis milli Senegalbúans og
Spánverjans. Alls eiga fimmtíu full-
trúar sæti í framkvæmdastjórninni
og í atkvæðagreiðslunni á mið-
vikudaginn fékk M'Bow 21 atkvæði
og Mayor 19 atkvæði.
Mayor er 53 ára gamall Hfefna-
fræðingur sem snéri sér að stjórn-
málum og er fyrrum menntamála-
ráðherra Spánar.
Frakkar, sem hýsa hið tvö þúsund
manna starfslið UNESCO, hafa
hingað til stutt M'Bow á þeim for-
sendum að hann sé Afríkubúi og
njóti stuðnings flestra ríkja þriðja
heimsins. Óvíst er að þeir breyti um
afstöðu.
Sovétmenn hafa stutt búlgarskan
frambjóðanda en heldur er ekki víst
hvað þeir gera í dag. Vitað er að þeir
vilja fá Bandaríkjamenn aftur inn í
samtökin en vilja þó varla lýsa
opinberlega yfir stuðningi við annan
en hinn 66 ára gamla Senegalbúa.
Annars væru þeir komnir upp á kant
við fjöldan allan af ríkjum þriðja
heimsins. Talsmaður sovéska utan-
ríkisráðuneytisins lýsti því yfir í gær
að Sovétmenn hefðu „samúð" með
M'Bow þótt ekki vildi hann segja
hvort þeir greiddu honum atkvæði.
{ gær var mikill spenningur í
höfuðstöðvum samtakanna og tíð
fundarhöld þar sem nefndir hinna
ýmsu landa ræddu hvað bæri að gera
færi svo að hvorugur þeirra M'Bow
eða Mayor næði að tryggja sér
öruggan meirihluta í kosningunni í
dag.
Einn möguleikinn er sá að þriðji
frambjóðandinn komi inn í myndina
þegar ríki samtakanna halda aðal-
ráðstefnu sína í næsta mánuði. Nöfn
Enriue Iglesias utanríkisráðherra
Uruguay og Sadruddin Aga Khan
prins og fyrrum yfirmanns Flótta-
mannahjálpar SÞ hafa verið nefnd í
þessum sambandi. Reuter/hb
Senegalbúinn M‘Bow berst fyrir að halda starfi því sem hann hefur gegnt
síðustu tólf árin: Hart barist innan UNESCO.
Walter Hudson í rúminu heima hjá sér, hjá honum er næringafræðingurinn sem ætlar að hjálpa honum að losa sig
við nokkur hundruð kíló.
MAÐURINN SEM MÁ
VIÐ AÐ MISSA MIKID
Sumt fólk er ánægt þegar því tekst
að losna við fimm kíló eða svo eftir
strangan megrunarkúr þar sem gul-
rætur og undanrenna koma í stað
mjólkur og kets.
Fyrir Walter Hudson eru fimm
kíló smámunir. Þessi 42 ára gamli
Bandaríkjamaður fór í megrunarkúr
í síðasta mánuði sem stendur enn.
Það er ekki nema von, Walter er
örugglega þyngsti maður í heimi.
Raunar veit enginn nákvæmlega
hvað hann er þungur nú en hann
hefur farið yfir fimm hundruð kílóa
múrinn, svo mikið er víst.
Walter vonast til að léttast niður í
tæplega hundrað kíló og ætlar nær-
ingafræðingurinn Dick Gregory að
gera allt til að hjálpa honum til þess.
Walter hefur eytt síðustu 27 árum
ævi sinnar í rúminu og þar át hann
óhemjulega. Ein máltíð samanstóð
kannski af steik, hrísgrjónum, aftur
steik, ávöxtum, aftur steik og eftir-
rétti.
„Ég naut þess að éta,“ segir
Walter.
Núna snæðir hann ávexti og salöt
og dreymir um að komast á fætur til
að „sjá gröf móður minnar og setja
fótspor í snjóinn". Newsweek/hb
Stjórnin í Belgíu býðst
til að segja af sér:
Tungumála-
kreppa
Wilfried Martens forsætisráð-
herra Belgíu lagði í gær fram
afsagnarbeiðni stjórnar sinnar
eftir að henni mistókst að komast
að samkomulagi um lausn á
tungumáladeilu á neyðarfundi í
fyrrakvöld.
Deila þessi hefur sett allt á
annan endann í Belgíu en hún
snýst um neitun frönskumælandi
embættismanns að tala flæmsku á
embættismannaprófi. Reyndar
ristir hún dýpra því frönsku- og
flæmskumælandi hópar landsins
hafa lengi eldað grátt silfur
saman.
Konungurinn hefur tekið sér
tíma í að ákveða hvort hann
muni taka afsagnarbeiðnina gilda
og samkvæmt heimildum í Belgíu
verður mikið rætt saman á bak
við tjöldin næstu daga til að finna
lausn á þessari deilu.
Það er hinn frönskumælandi
Jose Happart sem málið snýst
um. Hann er sveitarstjóri í Four-
ons, flæmskumælandi héraði, en
hefur neitað að svara embættis-
prófi á flæmsku.
Stjórn Belgíu er samsteypu-
stjórn fjögurra flokka og stjórn-
arerindrekar sögðu í gær að ekki
væri vonlaust að deilan leystist.
Reyndar sagði hinn 51 árs gamli
Martens af sér fyrir ári út af sama
máli en þá bað konungurinn hann
um að halda áfram starfi sínu.
Reuter/hb