Tíminn - 16.10.1987, Blaðsíða 13
Föstudagur 16. október 1987
Tíminn 13
»>%
Úr fatadeildinni á 2. hæð Kaupstaðar.
Tímamynd Pjetur.
Glæsileikinn
í fyrirrúmi
- á annarri hæðinni í Kaupstað sem opnuð var í gær
Það er greinilegt, þegar gengið er
um nýju verslunina á annarri hæð
Kaupstaðar, að þar hefur verið lögð
áhersla á að setja upp verslun sem sé
glæsileg í útliti. Augljóslega hefur
fátt verið til sparað að gera hana sem
best úr garði, og mikill munur er þar
á öllum innréttingum frá því sem er
til dæmis hjá KRON í Stórmarkaðn-
um í Kópavogi og í Miklagarði.
Þessi nýja verslun var opnuð eftir
hádegi í gær með því að lúðrasveit
lék fyrir gesti og gangandi, og jafn-
framt mátti segja að hún fylltist
samstundis af fólki. Mátti sjá þetta á
bílastæðinu utan við húsið, sem um
hádegisbilið var hálftómt, en troðið
í hvert stæði laust eftir klukkan tvö
þegar opnað hafði verið. Vöruval
þarna má teljast mjög fjölbreytt, en
mikið ber þó á fatnaði hvers konar,
svo og leikföngum, hljómflutnings-
vörum og ritföngum og bókum.
Innréttingar og vöruval mega telj-
ast af vandaðri tegundinni. I heild
minnir verslunin fyrst og fremst á
þau deildaskiptu vöruhús sem Is-
lendingar þekkja af heimsóknum til
erlendra stórborga. Má því segja að
með opnun þessarar verslunar hafi
KRON tekið upp aðra stefnu en ríkt
hefur hjá félaginu undanfarið og
leggi nú meiri áherslu en fyrr á
glæsileika og þjónustu.
Undanfarið ár hefur KRON rekið
matvöruverslun á neðstu hæð Kaup-
staðar, og er hún um 2000 fermetrar.
Önnur hæðin er ívið stærri eða 2200
fermetrar, og þriðja hæð byggingar-
innar, sem enn er aðeins fokheld, er
svipuð að stærð. Ef kjallari er talinn
með þá er heildargólfflötur alls húss-
ins um átta þúsund fermetrar.
-esig
Eldurís markaðssett í Bandaríkjunum:
Vodka er drykkur
bandarískra „uppa“
Hverjir drekka vodka í Banda-
ríkjunum? Þeir eru ungir, menntað-
ir, með góð laun, oftast í ábyrgðar-
stöðu og búa í úthverfum. S.s.
„upparnir". Auk þess er 60% vo-
dkaneytenda í Bandaríkjunum
karlmenn.
Að þessu hefur Glenmore Distill-
eries Company í Bandaríkjunum
komist í könnunum sínum við að
markaðssetja íslenska vodkan,
Eldurís, en Glenmore, ásamt ÁTVR
boðaði til blaðamannafundar vegna
þess að markaðssetning vodkans í
Bandaríkjunum er nú hafin.
Höskuldur Jónsson, forstjóri
Á.T.V.R. hóf fundinn með stuttri
tölu og rakti þá m.a. hvernig sam-
starf þessara aðila hófst og að þetta
væri ekki aðeins vodkasala, heldur
og landkynning. Aðrir útflytjendur
gætu einnig hagnast af kynningum
Eldurís.
Hr. Chase Donaldson, einn af
framkvæmdastjórum Glenmore
Distilleries tók næstur til máls og
þakkaði hann íslenskum aðilum gott
samstarf og sagðist mjög ánægður og
stoltur yfir því að fyrirtækið hefði
þann heiður að markaðssetja Eldur-
ís vodkann og sagðist þess fullviss að
það yrði smellur um heim allann.
Fyrstu viðbrögð heildsala í Banda-
ríkjunum hefðu verið mjög góð, og
auk þess væri vodkinn kynntur á
sérstakan hátt og hefur þessi aðferð
ekki verið notuð áður.
Kynninguna annast þær Donna
Ann Hayden, upplýsingafulltrúi
Glenmore og Cheryl Shur, sölustjóri
Glenmore. Auk þess er stuðst við
litskyggnur og myndbandsspólur.
Brugðið er upp myndum af íslandi,
náttúrunni og byggðum bólum. Inn
á milli eru svo sýndar niðurstöður
ýmissa kannana um vodka, eins og
t.d. hverjir drekka, hvers vegna,
hvar og hvenær. Kynningin er hin
áhugaverðasta og hefur að sögn
Donaldson haft sín áhrif.
Kannanir vestra sýna að Absolut
vodka hefur um 50% af sölunni,
Stolichnaya vodka er í öðru sæti
með um 25% hlutdeild og Finlandia
vodka er f þriðja sæti með um 10%
hlutdeild. Eldurís hefur alla tilburði
til að hafa þarna áhrif og ná sterkri
stöðu á markaðnum.
Til enn frekari kynningar er hinum
ýmsu vörum dreift til notenda. í því
skyni eru notuð plaköt, videospólur,
bæklingar, gjafapakkaðar flöskur,
klukka, servíettur, eldspýtnabox,
lyklakippur, speglar og kveikjarar.
-SÓL
Austurströnd Bandaríkjanna:
Áhugi veitingahúsa á
lambakjöti kannaður
Markaðsnefnd landbúnaðarins
og Útflutningsráð hafa að undan-
förnu kannað áhuga veitingahúsa á
austurströnd Bandaríkjanna á ís-
lensku lambakjöti. Hingað til hefur
einkum verið reynt að selja lamba-
kjöt í smásölu í verslunum en verð
sem nú fæst fyrir kjötið með því
móti er svo lágt að það borgar sig
engan veginn að selja kjötið á þeim
kjörum.
í framhaldi af könnun Útflutn-
ingsráðs sem gerð var fyrir nokkru,
á möguleikum þess að selja íslenskt
lambakjöt í Bandaríkjunum, var
250 fínni veitingahúsum í Boston,
á New York svæðinu og í Wasing-
ton sendur spurningalisti varðandi
lambakjöt. Niðurstöðu þeirrar
könnunar er að vænta seinnipart-
inn í þessum mánuði. Auðunn
Bjarni Guðmundsson starfsmaður
Markaðsnefndar landbúnaðarins
sagðist ekki enn geta gert sér grein
fyrir því hvort þarna væri um
raunhæfa leið að ræða, en í öllu
falli þyrfti að athuga málið nánar
því ýmislegt jákvætt hefði komið
fram. ABS
MANNVIST
í ÞÉTTBÝLI
VERÐLAUNA-
SAMKEPPNI
í tilefni 75 ára afmælis Læknablaðsins hafa
læknafélögin ákveðið að efna til
hugmyndasamkeppni er fjalli um
viðfangsefnið
„MANNVIST í ÞÉTTBÝLI“.
Samkeppninni er ætlað að hvetja fólk til
umhugsunar um húsakost okkar og umhverfi
og leiða fram nýjar hugmyndir að umbótum í
húsnæðis-, skipulags- og umhverfismálum, er
geti stuðlað að betra mannlífi og bættu
andlegu og líkamlegu atgervi komandi
kynslóða.
Eins og nafn keppninnar „mannvist í þéttbýli11
ber með sér, er viðfangsefnið víðfeðmt og
efnisval innan ramma þess nokkuð frjálst.
Keppendum er frjálst að taka fyrir
skipulagsmál, húsnæðismál, umhverfismál
eða einhverja þætti þessara málaflokka, svo
sem uppeldismál, skólamál, íþrótta- og
útivistarmál, húsnæðismál og félagslega
þjónustu, heilbrigðisþjónustu, tómstunda- og
menningarmál svo fátt eitt sé nefnt.
Frjálst er að taka á þessu viðfangsefni á
fjölbreytilegan hátt og koma til greina
ritgerðir, uppdrættir, myndbönd, myndir, ljóð
og hvaðeina sem mönnum er tiltækt sem
tjáningarform.
Þátttaka er öllum heimil. Verðlaunafé er
samtals kr. 500.000.
Skilafrestur er til 29. febrúar 1988.
Samkeppnisskilmála er hægt að fá á
skrifstofu læknafélaganna í Domus Medica,
Egilsgötu 3, Reykjavík, sími 91-18331.
Dómnefndin.
t
Þökkum innilega hlýhug og samúö viö andlát og útför eiginmanns
míns, fööur, tengdaföður og afa
Gests Guðbrandssonar
Birkivöllum 3, Selfossi.
Guö blessi ykkur öll.
Sigurlína Julíusdóttir
Jónína Andersen Flemming Andersen
Garðar Gestsson Guðbjörg Haraldsdóttir
Brynjólfur Gestsson Sigurbjörg Óskarsdóttir
og barnabörn.
t
Sigurður T. Jónsson
frá Úthlíð,
Hamraborg 14, Kópavogi
veröur jarösunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 19. október kl.
13.30.
Börn og tengdabörn