Tíminn - 16.10.1987, Qupperneq 16
16 Tíminn
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmissambands Framsóknarfélaganna á Suöurlandi,
Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin alla þriöjudaga og fimmtudaga frá kl.
13-17 sími 2547.
Heimasími starfsmanns er 6388.
Framsóknarmenn eru hvattir til að líta inn eða hafa samband.
Árnesingar
Aðalfundur FUF í Árnessýslu verður haldinn að Eyrarvegi 15, Selfossi
sunnudaginn 18. okt. n.k. kl. 14.
Venjuleg aðalfundarstörf.
önnur mál.
Gestir fundarins verða Guðni Ágústsson alþingismaður og Gissur
Pétursson formaður SUF.
Stjórnin.
Félagsvist
Munið félagsvistina þann 12. og 19. október n.k. kl. 20.30 að
Eyrarvegi 15, Selfossi.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Selfoss
Árnesingar
Hin árlega framsóknarvist Framsóknarfélags Árnessýslu hefst föstu-
daginn 23. október kl. 21.00 í Aratungu, föstudaginn 30. okt. í
Félagslundi og lýkur 13. nóvember að Flúðum.
Aðalvinningur er ferðavinningur frá Samvinnuferðum-Landsýn. Heild-
arverðmæti vinninga 75.000 kr.
Allir velkomnir Stjórnin
Skaftfellingar
Aðalfundur Framsóknarfélags Vestur-Skaftafellssýslu verður haldinn
í Tunguseli laugardaginn 24. okt. kl. 14.00.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
3. Önnur mál.
Stjórnin
Framsóknarfólk Suðurlandi
28. Kjördæmisþing Framsóknarfélaganna á Suðurlandi verður haldið
helgina 7.-8. nóv. n.k. á Kirkjubæjarklaustri og hefst kl. 14
laugardag.
Nánar auglýst slðar.
KSFS
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Fundur mánudaginn 19. október kl. 20.30 að Nóatúni 21.
Dagskrá:
Fréttir af L'andsþingi framsóknarkvenna (LFK) að Varmalandi.
Gerður Steinþórsdóttir segir frá dvöl sinni í Frakklandi.
Áslaug Brynjólfsdóttir verður með smá uppákomu.
Mætið vel.
Stjórnin.
Reykvíkingar
Aðalfundur fulltrúaráðsins
Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík verður
haldinn 25. október n.k.
Fundurinn verður haldinn i Sigtúni 3 og hefst kl. 10.00.
Stjórnin
Framsóknarfólk Austurlandi athugið
28,kjördæmisþing framsóknarmanna á Austurlandi, sem vera átti á
Hótel Höfn, Hornafirði dagana 9. og 10. október nk. verður frestað til
30. og 31. október nk. og hefst ki. 20.00. Nánari upplýsingar I síma
97-11584. KSFA
Föstudagur 16. október 1987
DAGBÓK
F.v. Guðjón Sigvaldason (Jerry) og Stefán Sturla Sigurjónsson (Pétur).
Þjóðleikhúsið:
Fyrsta frumsýning vetrarins
- Bílaverkstæði Badda
Leikrit Ólafs Hauks Símonarson-
ar „Bílaverkstæði Badda“ verður
frumsýnt sunnudagskvöldið 18. okt.
á Litla sviði Þjóðleikhússins.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson,
en leikmynd og búningar eru eftir
Grétar Reynisson. Björn Bergsteinn
Guðmundsson annast lýsingu.
í hlutverkum eru: Bessi Bjarna-
son, Arnar Jónsson, Jóhann Sigurð-
arson, Guðlaug María Bjarnadóttir,
Sigurður Sigurjónsson og Árni Tryg-
gvason. Þetta er spennuleikrit sem
gerist í afskekktri sveit. Sögusviðið
er Bílaverkstæði Badda, sem lenti
utan þjóðbrautar þegar nýi vegurinn
var lagður um sveitina og verða því
verkefnin stopul. Gamall vinnufé-
lagi birtist óvænt til að gera upp
sakir.
Uppselt er á frumsýninguna. Önn-
ur sýning verður þriðjud. 20. okt.
þriðja sýning miðvikud. 21.
(uppselt), og fjórða sýning fimmtu-
daginn 22. október.
Leikhús í Djúpinu
Á morgun, laugard. 17. okt. kl. 14:00
frumsýnir nýtt leikhús,
eih - leikhúsið sitt fyrsta verkefni, „Sögu
úr dýragarðinum" eftir Edward Albee, í
neðri hæð veitingastaðarins „Hornið" - í
Djúpinu.
Á bak við eih - leikhúsið standa þrír
ungir leikarar, þeir Stefán Sturla, Guðjón
Sigvaldason og Hjálmar Hjálmarsson.
Ætlunin er að starfrækja leikhús í Djúp-
inu í vetur í samvinnu við eiganda
veitingastaðarins „Hornið".
„Saga úr dýragarði" hefur verið flutt
víða um heim og hvarvetna hlotið verð-
skuldaða athygli, en hér á landi er
höfundurinn best þekktur fyrir leikritið
„Hver er hræddur við Virginíu Woolf?“
Hlutverk í sýningunni eru tvö og eru
þau í höndum Guðjóns Sigvaldasonar og
Stefáns Sturlu Sigurjónssonar. Leikstjóri
er Hjálmar Hjálmarsson. Thor Vilhjálms-
son sneri leikritinu á íslensku.
Frumsýning eih - leikhússins á Sögu úr
dýragarðinum verður á laugardag 17.
október kl. 14:00.
2. sýning sunnud. 18. okt. kl. 20:30
3. sýning miðvikud. 21. okt. kl. 20:30
4. sýning fimmtud. 22. okt. kl. 20:30
Veitingastaðurinn „Hornið" býðursýn-
ingargestum upp á veitingar fyrir og eftir
sýningar.
Djúpið er opnað kl. 19:30 fyrirsýningarg-
esti sýningardaga. Miða- og matarpantan-
ir í síma 13340.
Tvær aukasýningar á
„Ég dansa við þig...“
Laugardaginn 17. okt. ogsunnud.
18. okt. verða tvær aukasýningar á
dansverki Jochens Ulrich „Ég dansa
við þig... “ Sýningarnar hefjast kl.
20:00 báða dagana.
Sýningum á „Tígrisdýrunum"
að fækka
Nú fækkar óðum þeim sýningum sem
eftir eru á leikriti Alþýðuleikhússins „Eru
tígrisdýr í Kongó?“ Leikritið var frum-
sýnt fyrir rúmu hálfu ári og eru sýningar
orðnar 80 talsins.
Sýningar cru nú um hélgar, á laugar-
dögum og sunnudögum kl. 13:00. Hádeg-
isverður er innifalinn í miðaverði sem fyrr
og eru sýningar í veitingahúsinu 1 Kvos-
inni.
Með hlutverkin fara Harald G. Har-
aldsson og Viðar Eggertsson og leikstjóri
er Inga Bjarnason.
Næstu sýningar verða á laugardag og
sunnudag kl. 13:00. Miðapantanir má
gera allan sólarhringinn í síma 15185 og
eins eru teknar pantanir f veitingahúsinu
í Kvosinni. Þar er síminn 11340.
Neskirkja -
félagsstarf aldraðra
Félagsstarf aldraðra í Neskirkju. Sam-
verustund á morgun, laugardaginn 17.
október kl. 15:00.
Gestur verður Ketill Larsen, sem m.a.
sýnir myndir og segir frá heimsreisu sinni.
Málfreyjudeildin íris -
Hafnarfirði
Málfreyjudeildin íris t Hafnarfirði
heldur kynningarfund á starfsemi sinni
laugardaginn 17. október kl. 15:00 í húsi
Slysa- varnafélagsins að Hjallahrauni 9.
DART
ölkeldumótið i pílukasti
Mótið verður haldið í Ölkeldunni,
Laugavegi 22 (2. hæð), laugardaginn 17.
október og sunnudaginn 18. október kl.
11:00-17:00.
Úrslit verða leikin 24. okt. kl. 13:00-
17:00. Peningaverðla'un ogverðlaunapen-
ingar.
Islandsmót l.P.F. verður haldið 7. og
8. nóvember.
Allir velkomnir.
lslenska pílukastfélagið
Málfreyjur funda í
Kópavogi
Ráðsfundur Málfreyja á lslandi verður
haldinn laugardaginn 17. okt. í Félags-
heimili Kópavogs kl. 11:00 Gestgjafarnir
eru M.f.d. Fífa, Kópavogi.
Meðal dagskrárefnis á fundinum verð-
ur fræðsla: Um raddbeitingu og
framsögn. Leiðbeinandi er Ragnheiður
Steindórsdóttir. Einnig verður fræðsla
um ræðukeppnir og óundirbúnar ræður.
Leiðbeinandi Sigrún Sigurðardóttir
M.f.d. Fífa Kópavogi. Mætið stundvís-
lega.
Gestir eru velkomnir á fundinn.
Hana nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga gönguklúbbs
Frístundahópsins Hana nú í Kópavogi
verður 17. október. Lagt af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10:00. Gengið verður
hvernig sem viðrar. Búið ykkur vel.
Nýlagað kaffi á könnunni. Allir velkomn-
ir.
Félagsvist
Húnvetningafélagsins
Húnvetningafélagið í Reykjavík stend-
ur fyrir félagsvist ( Félagsheimilinu Skeif-
unni 17 laugardaginn 17. október kl.
14:00.
Allir velkomnir.
Outi Heiskanen sýnir
í Norræna húsinu
Finnski grafíklistamaðurinn Outi Hei-
skanen opnar sýningu á verkum sínum í
anddyri Norræna hússins laugardaginn
17. október kl. 15:00.
Outi Heiskanen hefur sýnt áður hér á
landi, bæði í Norræna húsinu og í Gallerí
Langbrók, auk þess sem hún átti verk á
sýningunni Graphica Atlantica á Kjar-
valsstöðum í fyrra. Hún fæddist árið 1937
í Mikkeli og stundaði nám við Listahá-
skóla Finnlands 1966-’69. Síðan hefur
hún haldið fjölda einkasýninga og tekið
þátt í samsýningum í Finnlandi og víða
um heim.
Outi Heiskanen er meðal þekktustu
myndlistarmanna Finnlands og var valin
Listamaður ársins í Helsinki 1986. Hún
verður sjálf viðstödd opnun sýningarinnar
kl. 15:00 á laugardaginn.
Sýningin er opin daglega kl. 09:00-
17:00 og henni lýkur 1. nóvember.
Sýningar í Gallerí Borg
Nú hafa verið ákveðnar sýningar í
Gallerí Borg fram í desembermánuð.
Sýningar í Gallerí Borg, Pósthússtræti
9 á þessum vikum eru eftirfarandi:
15.-27. okt. Kjartan Guðjónsson
29.okt.-10. nóv. Karl Kvaran
12.-24. nóv. Jóhanna K. Yngvad.
26.nóv,- 8. desember Louisa Matthías-
dóttir.
Sýning í Slúnkaríki
á ísafirði
Laugardaginn 17. október hefst sýning
á olíu-pastelmyndum eftir
Kristin Guðbrand Harðarson. Sýningin
hefst kl. 16:00. Hún stendur yfir til
mánaðamóta.
Slúnkaríki er opið fimmtud. til sunnud.
kl. 16:00-18:00.
Árbæjarsafn
Frá 1. október verður Árbæjarsafn
aðeins opið eftir samkomulagi. Upplýs-
ingar í síma 84412 kl. 09:00-16:00.
Opnuð hefur verið Haustsýning Ás-
grímssafns í Ásgrímssafni að Bergstaða-
stræti 74, sem hýsir heimili og vinnustofu
málarans auk listaverkasafns þess sem
hann gaf íslensku þjóðinni.
Árlega eru settar upp í safninu þrjár
sýningar, sýndar eru 30-40 myndir í senn
og áhersla lögð á að hafa sýningarnar sem
fjölbreytilegastar, bæði að inntaki og efni.
Að þessu sinni hafa verið valdar til
sýningar í vinnustofu málarans, á efri hæð
hússins, landslagsmyndir, málaðará Þing-
völlum og í nágrenni Reykjavíkur að
vetrarlagi við mismunandi birtuskilyrði.
í heimili málarans á neðri hæð hússins
hafa verið dregnar fram þjóðsagnamynd-
ir, pennateikningar og krítarmyndir, þar
sem Ásgrímur gefur frásagnarandanum
lausan tauminn, oft með mikilli kímni.
Aðgangur að sýningunni cr ókeypis.
Ásgrímssafn verður í vetur opið sem hér
segir: Sunnudaga, þriðjudaga og fimmtu-
daga kl. 13:30-16:00. Þar eru einnig seld
hin vönduðu listaverkakort safnsins og
kemur jólakort 1987 út um miðjan októ-
ber.
Málþing STÍL og afmælishóf
í tilefni tveggja ára afmælis STlL -
Samtaka tungumálakennara á Islandi -
munu samtökin gangast fyrir málþingi á
morgun, laugardaginn 17. októbcr í Ris-
inu, Hverfisgötu 105. Dagskráin hefst kl.
10:00 og lýkur með afmælishófi milli kl.
17:00 og 19:00.
Málþingið ber yfirskriftina „Tungu-
málakennsla á lslandi - Hvert stefnum við
?“ og verða þar flutt framsöguerindi um
hina ýmsu þætti tungumálakennslu. Á
eftir verða frjálsar umræður.
Tungumálakennarar eru eindregið
hvattir til að mæta og deila reynslu sinni
og skoðunum. Stjórn STÍL
Minningarsjóður Einars
á Einarsstöðum
Vinir Einars á Einarsstöðum, sem lést
fyrir nokkru, stofnuðu um hann minning-
arsjóð. Þeir benda á þann sjóð til áheita
fyrir þá sem vilja heiðra minningu hans
og styrkja eftirlifandi konu hans.
Sjóðurinn er varðveittur við Útibú
Landsbunka fslands á Húsavík og er
nr.5460.
Háskólafyrirlestur
Jörgen Dines Johansen, prófessor í
bókmenntafræði við háskólann í Óðin-
svéum, flytur fyrirlestur í boði heim-
spekideildar Háskóla lslands laugardag-
inn 17. október kl. 14:00 í stofu 101 í
Lögbergi.
Fyrirlesturinn fjallar um táknfræði í
bókmenntum og nefnist „Semiotik og
litteraturen".
Prófessor Jörgen Dines Johansen er
meðal þekktustu fræðimanna í heiminum
á sviði táknfræði og sálgreiningar í bók-
menntum. Hann hefur síðustu árin fengist
við rannsóknir á táknfræði Charles Sand-
ers Peirce og þá sérstaklega hvernig nota
má hana í bókmenntatúlkun. Eftir hann
liggja ýmis rit og fræðigreinar, svo sem
Psykoanalyse, tekstteori, litteratur (1977)
og væntanlegt er rit um Peirce.
Fyrirlesturinn verður fluttur á dönsku
og er öllum opinn.