Tíminn - 17.10.1987, Side 18
18 Tíminn
Laugardagur 17. október 1987
lllllllll
illlllllllllllllllllllllllllllllllllll
Árnason
Árni
Hinn 31. júlí sl. andaðist á'Lan'd-
spítalanum í Reykjavík Árni Árna-
son frá Bakka á Kópaskeri eftir
harða og alllanga baráttu við bana-
valdinn. Hann fæddist hinn 15. nóv-
ember 1915 á Bakka, þar sem hann
átti síðan heimili sitt ævilangt. Árni
var sonur hjónanna Ástfríðar Árna-
dóttur og Árna Ingimundarsonar frá
Brekku. Var Árni einn af hinum
kunnu og dugmiklu Brekkubræðr-
um, sem kenndir voru við Brekku í
Núpasveit, en Ástfríður var ættuð úr
Þistilfirði og komin af ágætu bænda-
fólki, sem víða hefur verið getið og
alþekkt hér um slóðir. Verður því
ekki farið nánar út í ættfærslu þeirra
í þessari grein. Fyrstu árin eftir að
þau giftu sig Ástfríður og Árni
dvöldu þau á Brekku, ættaróðali
Árna, en sfðan í Garði, nýbýli frá
Brekku, sem Guðmundur bróðir
Árna reisti sér og sat um áraraðir.
Jarðnæði lá ekki á lausu um þessar
mundir fyrir þá sem gjarnan vildu
reisa bú og var því oft setinn Svarfað-
ardalurinn á býlum þeirra sem búið
var á, Á þessum árum eignuðust þau
hjónin sex börn, sem öll lifðu og
döfnuðu og var því fjölskylduhalinn
orðinn alllangur og ekki furða þó
þrengdist um. Þessi börn voru talin
eftir aldri: Ingunn f. 1898, Unnur f.
1900, Jón f. 1902, Hólmfríður f.
1904, Sabína f. 1908 og Guðrún f.
Bakka, Kópaskeri
1911.
Á þessu tímabili var mjög vaxandi
vegur Kaupfélags N. Þingeyinga er
stofnað var 1894 og staðsett við
Kópasker. Hafði félagið reist fyrstu
hús sín, vöruhús, sölubúð og slátur-
hús fyrir starfsemi sína. Hér voru þá
mjög léleg hafnarskilyrði til staðar,
nánast hafnleysa, ef eitthvað var í
sjó. Árni hafði þá gerst starfsmaður
K.N.Þ. sem hann svo var allan sinn
langa starfsdag. Annaðist hann af-
greiðslu skipa og afhenti vörur utan-
búðar og tók á móti innleggi manna.
Fann hann fljótt, þó ekki sé langt
uppt' Snartarstaði og Garð, að þægi-
legra og notalegra yrði að eiga
heimili sitt nær vinnustað. Ákveður
hann þá þó efnin væru ekki mikil til
slíks að byggja yfir sig og sína á
Kópaskeri og árið 1912 byggir hann
Bakka, sem, er fyrsta íbúðarhúsið
hér og hjónin því landnemar. Ekki
leið langur tími til þess að nýja
heimilið vígðist af gráti nýs fjöl-
skyldumeðlims, var þar komin Aðai-
heiður, f. 1913. Áttunda barnið var
Árni f. 1915. Virtist hann af engum
vanefnum gerður frá móðurskauti,
því nýfæddur vóg hann 23 merkur.
Nú gerist ekkert í fjölskyldustækkun
til hins fræga og kalda vetrar 1918,
en þá bætist myndarlega við barna-
hópinn því nú fæðast tvíburar,
stúlkubörn er hlutu nöfnin Ingiríður
og Anna og 1919 bætist enn við
drengur, það var Sigurður. Árið
1922 fæðist svo örverpið og bar þó
ekki mikil einkenni þess, því snáði
þessi vóg 24 merkur við fæðingu og
hlaut Ingimundarnafn í skírninni. Á
Bakka ólst þessi stóri hópur upp,
utan þess að tvær systurnar fóru
kornungar í fóstur hjá vina og frænd-
fólki. Af þessum hóp eru nú fjögur
systkini dáin, Ingunn, Unnur, Jón
og Árni og aðeins ein systirin er eftir
á Kópaskeri, Ingiríður, sem þar er
búsett.
Snemma var Árni hinn gjörfuleg-
asti sveinn og bar það með sér að
hann hefði hlotið góðan skerf af
styrk og áræði og snemma var hann
hlutgengur við hin mörgu og fjöl-
breytilegu störf og umsvif sem tíðk-
uðust á stórum og mannmörgum
heimilum. Ekki voru þau störf unnin
af bægslagangi, því hann var rólynd-
ur og lét ekki mikið yfir sér, en því
drýgri, sem meira á reyndi. Hann
var vinsæll í hópi jafnaldra, glettinn
og fyndinn og átti létt með að vekja
glaða hlátra, án allrar græsku og
fylgdi þessi eiginleiki honum fram
að því síðasta og munu mörg hin
léttu og sniðugu tilsvör hans lifa á
vörum samtfðarmanna hans á æsku-
slóðunum. Árni var snemma, raunar
löngu innan við fermingaraldur
furðu hlutgengur við hin erfiðu af-
greiðslustörf sem unnin voru við
frumstæð skilyrði og oft hinn mesti
þrældómur, en þau gáfu hraustum
dreng krafta í köggla. Faðir hans,
bróðir og frændur unnu með miklum
dugnaði og hagsýni og með einstakri
heppni að afgreiðslu skipa hér við
hafnleysuna og það var sannarlega
ófært á legunni, ef ekki var reynt að
brjótast út og ekki lét Árni sinn hlut
eftir liggja, eða dró úr. Ungur að
árum fór hann að fara með v/b Kára,
sem faðir hans eignaðist og var
notaður til að draga uppskipunarbát-
ana og einnig til vöruflutninga á
sandana við Öxarfjörð og út um
Sléttu. Þarna lærði Árni sjó-
mennsku, sem alltaf hreif hann
mjög. Öll hans stjórn, oft við ærin
átök Ægis einkenndist af rólyndi,
festu og fumlausum handtökum,
sem aldrei brugðust honum. Þar
voru ekki stóryrði viðhöfð, kannski
örlítil glettni með álíka púi upp í
vindinn.
Á æskudögum Árna var mikill
kraftur í störfum ungmennafélag-
anna og þar sem mikill fjöldi ung-
menna var að vaxa upp hér í Núpa-
sveit og í nágrannasveitum, þá
skapaðist grundvöllur fyrir íþróttir
og leiklist og söng í sveitunum og svo
lyftu héraðsskólarnir undir og hvöttu
til dáða. Systkinahópurinn á Bakka
lét ekki sitt eftir liggja, en lagði fram
krafta sína, bæði í íþróttum og við
sýningar á leikritum sem ekki voru
svo fáar á þessum dögum. Hér var
þá nýreist skólahús sem gjörði þetta
mögulegt og svo stóð fólkið vel
saman ungt og eldra. Árni tók
drjúgan þátt í þessu og þótti hinn
liðtækasti, bæði á íþrótta- og leik-
sviði. Það var ein náðargáfa sem öll
systkinin hlutu í vöggugjöf og líklega
að mestu arfur frá móðurinni sem
var gædd henni ríkulega, þetta var
tónlistin. Lærðu systurnar flestar að
leika eitthvað á orgel og var löngum
sungið kátt á Bakka og ein þeirra,
Hólmfríður varð ágætur píanisti og
kórstjóri um margra ára skeið. Ekki
átti Árni mikil skipti við þá háu
menntagyðju, lét sér nægja einn
vetrarpart á Laugaskóla auk barna-
fræðslunnar, sem hér var mjög góð,
en hann stóð vel fyrir sínu á því sviði
og hagnýtti sér það sem honum
hentaði. Fimmfalda harmóniku
eignaðist Árni um 1930 og þar sem
næmi hans var mikið fyrir tónunum
varð hann fljótur að komast upp á
lagið með gripinn og urðu samskipti
þeirra, nikkunnar og hans hin ágæt-
ustu og leiddu til þess að þau fóru
margar ferðirnar saman inn um
sveitir í Öxarfjörð og Kelduhverfi,
auk þess sem hann spilaði á samkom-
um hér heima. Varð hann eftirsóttur
á böllin og jafnan fús að fara, en oft
var erfitt að fara um foldina á
vetrum, en þá var nikkan bara lögð
á sleðagrind og mjöllin köfuð. Ann-
álað var þrek og úthald Árna við
þessar iðkanir og rómuð var taktfesta
hans og þeir eru margir enn scm
minnast og þakka þessar ljúfu
stundir.
Það var 1934 sem Árni keypti sinn
fyrsta bíl var það Ford vörubifreið
frá því ári. Þetta varð vísir að meiri
umsvifum í þessum dúr því um
margra ára skeið gerðu þeir út bíla
Árni og bræður hans Sigurður og
Ingimundur. Voru þetta fyrst vöru-
bílar, en síðar höfðu þeir litla fólks-
bíla með. Urðu vörubílarnir mest
fjórir til fimm, enda voru þá aukin
umsvif í vegagerð hér um slóðir og
fleira var á döfinni. Sköpuðu þeir sér
vinsældir fyrir lipurð og dugnað
meðal héraðsbúa, enda var ekki
verið að hika við að grípa til skófl-
unnar ef skafl varð á vegi. Reyndi
oft á þol og þrótt bílstjóranna f þeim
vetrarferðum. Ekki lögðu þeirbræð-
ur af að aðstoða við afgreiðslu skipa,
en lögðu þar jafnan hönd að verki.
Árið 1944 hættu gömlu hjónin í
Bakka heimilishaldi en við tóku
undirritaður og kona hans Ingiríður
og ráku það til 1950 og á þessu
tímabili voru þeir bræður mikið
heima, en Árni þó mest. Við hjónin
höfðum þá eignast tvær litlar dætur,
sem mjög hændust að frænda sfnum
og mátti segja að þær sæju ekki
sólina fyrir honum og kölluðu hann
Dadda sinn og áttu með honum
margar ljúfar stundir sem aldrei
gleymast og svo var með Árna að
börn og unglingar hændust að
honum. Upp úr 1950 fór að losna um
bílaútgerðina og hinir bræðurnir að
fara að heiman með bíla st'na, en
Árni átti bíl sinn um skeið og flutti
fólk og vörur á honum eftir beiðn-
um. Þáttaskil urðu í Bakka 1951 því
þá steig Árni það happaskref að
gifta sig. Kona hans varð Kristveig
Jónsdóttir, Grímssonar frá Klifs-
haga í Öxarfirði og konu hans Sig-
urðínu Sigurðardóttur. Tóku þau þá
við búsforráðum í gamla Bakka og
áttu þar heimili síðan, allt til ársins
1985 að Kristveig flutti suður til
barna þeirra er öll voru þá suður
flutt. Mikla ræktarsemi sýndu þau
hjón landnemahúsinu og héldu því
vel við og létu stálklæða það í bak
og fyrir og sómir það sér einkar vel
í þeim búningi og er þeim til sóma.
heimili þeirra þar var einkar hlýlegt
og snyrtilegt, enda Kristveig mikil
myndar húsmóðir og hannyrðakona
af hærri gráðu. Þau eignuðust saman
fjögur börn og eru þau þessi eftir
aldri talin: Gunnar f. 16/6 1952
kennari, giftur Sólveigu Jóhannes-
dóttur og eiga þau tvö börn. Ástfríð-
ur f. 9/10 1953 húsmóðir áður gift
Sigurði Inga Lúðvíkssyni og áttu
þau tvö börn, en slitu samvistir.
Seinni maður hennar er Þorsteinn
Helgason kennari og hafa þau eign-
ast eitt barn. Einar er þriðja barnið,
bílstjóri, ógiftur og barnlaus. Jón er
yngstur, bankamaður er býr með
sambýliskonu, Mettu Helgadóttur,
barnlaus. Áður hafði Árni eignast
son með Sigríði Magnúsdóttur frá
Skinnalóni, Árna Hrafn bifvéla-
virkja í Reykjavík f. 10/10 1943.
Kona hans er Hlín Pálsdóttir og eiga
þau fjögur börn.
Á næstu árum vann Árni ýmist við
bílkeyrslu og sitthvað við K.N.Þ.
Einnig var hann talsvert á sjónum og
eignaðist trillu og gerði hana út á
grásleppu og fisk. Trilluna átti hann
í nokkur ár og fór á henni margar
sjóferðir sér til yndis og gagns, en
seldi hana síðar. Á síðari árum
gerist svo Árni fastur starfsmaður
hjá K.N.Þ. og vann við afgreiðslu í
vöruhúsi og keyrði bíla kaupfélags-
ins er þessi þurfti með. Vann hann
þar af sinni kunnu trúfesti. Einkum
var rómuð umgengni hans á vinnu-
stað. Varla hefur ruslapúkinn átt sér
verri óvin en hann, því aldrei þoldi
hann návist hans, hann var einstakur
smekkmaður í allri umgengni og var
því allt snyrt og snurfusað þar sem
hann vann, jafnt heima hjá honum
sem annarsstaðar. Gilti hið sama um
öll tæki sem hann vann með, allt
varð að vera hreint og smurt og í
lagi. Það tóku margir eftir þessu sem
í vöruhúsið komu. Það er víða sem
svona menn vantar, öðrum til fyrir-
myndar. Aldrei sást heldur að Árni
væri ataður þó hann ynni við sóðaleg
störf. Ef hann hefur sagt einhverju
stríð á hendur á æviskeiðinu, þá er
það sóðaskapurinn og letileg tilþrif
á vinnustað. Á pakkhúsárum hans
fór að bera á æðaþrengslum í fótum
hans. Hefur líklega kuldinn í hinu
stóra óupphitaða húsi átt mikinn
þátt í því, einkum á vetrum. Ágerð-
ist þetta með árunum og reyndi hann
að leita sér lækninga við þessu
meini, en erfiðlega gekk að bæta
það. Leið hann oft miklar kvalir í
fótum, en talaði fátt um það, enda
ekki vani hans að aumka sjálfan sig.
Eins og áður er frá sagt ákvað
Kristveig að flytjast suður og keyptu
þau íbúð ásamt Einari syni sínum.
Árni var þó ekki enn tilbúinn að fara
af feðraslóðum og varð því eftir í
Bakka og sá um sig með prýði, hélt
öllu hreinu og fáguðu og var laginn
við matargerðina sem annað. Annað
slagið vann hann úti, einkum í
sláturhúsi K.N.Þ. og hjá Sæblik hf.
í rækjuvinnslunni, dekraði við bílinn
sinn og leit inn til frænda og vina og
undi sér hið besta. Stundum skrapp
hann suður til fjölskyldunnar. En nú
tóku meinin að eflast og eftir eitt
slíkt kast var hann fluttur sársjúkur
á sjúkrahús og eftir það var hann
ýmist heima hjá konu sinni eða hann
dvaldi á spítala og undir lokin óskaði
hann þess sjálfur að dvelja þar, vissi
áreiðanlega að hverju stefndi, en því
tók hann með sinni kunnu ró og
æðruleysi og gekk rólegur og ókvíð-
inn móti örlögum sínum. Á sjúkra-
húsið heimsótti konan og börnin
hann og einnig sat Anna systir hans
hjá honum, þegar hún kom því við
og stór var hlutur Aðalheiðar systur
hans, sem hlynnti að honum með
einstakri fórnar og kærleikslund.
Hún hefur áður lagt að líknandi
hendur við svipuð tilfelli þó hætt sé
hjúkrunarstörfum fyrir nokkrum
árum.
Árni lést í svefni á Landspítalan-
um aðfaranótt 31. júlí sl. og var
jarðsettur frá Bústaðakirkju 11.
næsta mánaðar. Sr. Ólafur Skúlason
jarðsöng og hélt hlýlega minninga-
ræðu. Fjöldi Norður-Þingeyinga
búsettir syðra mættu við jarðarförina
og kusu að fylgja þessum vinsæla
sýslunga og samtíðarmanni hinsta
spölinn og áreiðanlega hugsuðu
margir nyrðra hlýlega suður og
hefðu gjarnan kosið að vera í hópn-
um og margar kveðjur bárust fjöl-
skyldunni víðsvegar að. Það var
glatt sólskin yfir Reykjavík þennan
dag og það hvíldi friður og ró yfir
grafreitnum í Gufunesi þar sem
Árna á Bakka varbúin hvíla, þangað
náði ekki glaumur borgarinnar þrátt
fyrir nálægðina. Þar mun fara vel um
þreytta Norður-Þingeyinginn og
þangað munu ástvinir leggja leið
sína og eiga hljóða stund.
Væri samtíðarfólk spurt um álit
sitt á lífshlaupi Árna þá hygg ég að
svör þess yrðu eitthvað á þessa leið:
Það er hægt að lifa svo lífinu frá
æsku til elli að vera ávallt sannur og
góður drengur og heiðursmaður og
hann tók virkan þátt í uppbyggingu
sveitar sinnar og sýslu og hlaut
vinsældir og traust allra sem honum
kynntust.
Við hjónin og börn okkar og
fjölskyldur sendum hlýjar kveðjur
suður til Kristveigar ogbarna hennar
og fjölskyldna og við þökkum og
munum samveruna í gegnum árin og
blessum minningu hans Árna okkar
á Bakka.
Brynjúlfur Sigurðsson
Hafnarfjörður
Víðivellir
Stuðningsfóstra. Fóstra eða þroskaþjálfi óskast
Í37,5% starf. UpplýsingargefurÞórelfur Jónsdótt-
ir forstöðukona í síma 52004.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði
t
Jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa
Helga J. Halldórssonar
fyrrverandi kennara við Stýrimannaskólann I Reykjavík fer fram frá
Laugarneskirkju fimmtudaginn 22. október kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag Islands.
Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Slgrún Helgadóttir Ari Arnalds
Guðný Helgadóttir
Þorbjörg Helgadóttir Jorgen H. Jorgensen
Áslaug Helgadóttir Nicholas J. G. Hall
og barnabörn
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
Ágúst Jakob Ormsson
frá Klettl, Kleppsvegi 44, Reykjavik
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni 20. október kl. 15.00.
Hjaltl Ben Ágústsson
Sœrún Ágústsdóttlr Matthfas Svelnsson
Krlstlnn Þór Ágústsson Lllja Kristlnsdóttlr
t
Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur vináttu og hlýhug við fráfall
og útför bróður okkar
Ólafs Bjarnasonar
frá Þorkelsgerði ( Seivogi
Systkinln