Tíminn - 18.11.1987, Page 3

Tíminn - 18.11.1987, Page 3
Miðvikudagur 18. nóvember 1987 Tíminn 3 ÁætlunSÍFumafkomufiskvinnslunnarmiðaðviðfastgengi í 17-29% verðbólgU milli ára: Blasir í 4-24% tap við fiskvinnslunni 1988? Miðað við þær forsendur sem nú blasa við - þ.e. fastgengisstefnu og almennt litlar verðbreytingar á sjávarafurðum erlendis - er áætlað að tap á botnfiskvinnslunni árið 1988 geti orðið allt frá rúmlega 5% og upp í tæplega 16% fyrir fjár- magnskostnað og frá tæplega 14% upp í rúmlega 24% að honum með- töldum, að því er fram kom í ræðu Magnúsar Gunnarssonar forstjóra SÍF á aðalfundi L.Í.Ú. í síðustu viku. Lægri tölurnar miðast við forsendur fjárlaga, þ.e. mjög lækk- andi verðbólgu milli ára, og enga magnbreytingu. Hærri tölurnar, þ.e. 24% tap, miðast við forsendur Verslunarráðsins um 29% verð- bólgu milli ára. í báðum dæmunum er og miðað við 39 kr. gengi dollara og því slakari afkomu sem dollara- gengi er lægra, en nú er það t.d. rúmlega 37 krónur. Magnús skýrði á fundinum frá áætlun SÍF á afkomu botnfisk- vinnslunnar á yfirstandandi ári samkvæmt áætluðu rekstraryfirliti yfir allt árið. Niðurstaðan er sú að á frystingunni verði um 6% hagnað- ur fyrir fjármagnskostnað en 3,1% tap að honum meðtöldum. Á salt- fiskvinnslunni er áætlaður 14,1% hagnaður fyrir fjármagnskostnað sem lækkar niður í 6,6% að honum meðtöldum. Afkoma botnfisk- vinnslunnar í heild eftir fjármagns- kostnað er áætlað að verði verði aðeins 0,4% yfir núllinu á yfir- standandi ári. Hjá SÍF var rekstraryfirlit Þjóð- hagsstofnunar fyrir 1986 notaður sem útreikningsgrunnur fyrir árin 1987 og 1988. Af áætlunum SÍF um þróun helstu tekju- og gjaldaliða frá niðurstöðum ÞHS fyrir 1986 má nefna, að reiknað er með útflutn- ingur á frystum fiski minnki um 5% en aukist um 10% á saltfiski. Mark- aðsverð freðfisksins er áætlað að hækki um 22% en salatfisksins um 28% milli ára. Hvað varðar kostnaðarliðina, er áætlað að verð hráefnis fyrir fryst- inguna hafi hækkað álíka og út- flutningsverðið, þ.e. 22%, en um 25% hjá saltfiskvinnslunni. Heild- ar launakostnaður verður 36% hærri í ár en 1986, þ.e. án frekari launahækkana til áramóta og hefur þá hækkað úr 20,9% í 22,9% af heildar tekjum fiskvinnslunnar (úr 23,1% í 25,8% í frystingunni). Af öðrum kostnaðarhækkunum má nefna um 25% verðhækkun flutn- ingskostnaðarinnanlands, um 19% hækkun orkukostnaðar. Þá er reiknað með 8,5% vaxta- og lán- tökukostnaði af afurðalánum, sem svari til 1,9% af tekjum alls og ann- ar fjármagnskostnaður er reiknað- ur 6,7%. Þá skulu nefndar nokkrar fors- endur fyrir hinum hrikalegu niður- stöðum rekstraráætlunar fyrir 1988, sem getið var hér að framan. Þar var farin fleiri en ein leið, en í grófum dráttum lýsti Magnús þeim þannig: Annars vegar var gengið út frá sama afla og 1987, þ.e. 370 þús. tonnum og þar af leiðandi sömu framleiðslu, en hins vegar 330 þús. tonna afla, en þá mundu að sjálf- sögðu flestir kostnaðarliðir lækka samsvarandi. Hvað varðar afurða- verðið voru hinar hrikalegu taptöl- ur niðurstaðan þegar reiknað var með sama meðalverði og í ár. En það kom fram hjá Magnúsi að von- ir manna eru takmarkaðar um að verð í erlendri mynt geti haldið áfr- am að hækka nokkuð í líkingu við þær hækkanir sem bjargað hafa fiskiðnaðinum í ár. En einnig var reiknað út frá 5% og allt upp í 20% hækkun afurðaverðs. Þá var í fyrra dæminu miðað við að forsendur fjárlagafrumvarpsins um 17% hækkun verðbólgu milli áranna 1987 og 1988 haldist og að laun, hráefnisverð og ýmiss kostn- aður innanlands hækki sem því svarar. Niðurstaðan í því dæmi gaf 18,6% tap á frystingunni og 5,4% í saltfiskinum. í síðara dæminu var hins vegar miðað við, það sem lík- legra þykir, að almennar launa- breytingar verði meiri en fjárlaga- frumvarpið gerir ráð fyrir og að vísitalan hækki 29% milli ára. Við það færi tap á frystingu í um 30% ogásaltfiskinum um 15%,eðaíum 24% á fiskvinnslunni í heild, sem fyrr greinir. - HEI Afkoma botnfiskvinnslunnar 1986-’87 og spá um ’88 Hagnaður fyrir fjármagnskostnað Hagnaður eftir fjármagnskostnað Frysting Söltun Samtals Frysting Söltun Samtals (%) (%) (%) (%) (%) (%) 1986 8,2 14,4 10,2 -0,9 6,8 1,6 1987 6,0 14,1 8,9 -3,1 6,6 0,4 1988-1 -9,5 2,1 -5,2 -18,6 -5,4 -13,7 1982-2 -20,5 -7,7 -15,8 -29,6 -15,2 -24,3 Fjölmenni var á borgarafundi sem Borgarskipulag Reykjavíkur hélt með íbúum Teiga, Laugamess, Laugaráss, Sundum, Heimum og Vogum um hverfaskipulag.; ^etnafkoma^ áNorðursvæði en Suðursvæði Borgarafundur Borgarskipulags: Umferð bar hæst á góma Umferðarmál og gatnakerfi var aðalumræðuefnið á borgarafundi sem Borgarskipulag Reykjavíkur hélt með íbúum í Teigum, Laugar- nesi, Laugarási, Sundum, Heimum og Vogum um tillögur að hverfa- skipulagi þessara hverfa í safnaðar- heimili Langholtskirkju fyrir skömmu. Borgarskipulagið óskaði sérstak- lega eftir athugasemdum og ábend- ingum frá íbúunum. Bar mest á óánægju margra íbúa með að Holta- vegurinn yrði gerður að tengibraut milli Suðurlandsvegar og Sætúns. Töldu íbúarnir að þar myndi Laugar- dalurinn skerast í sundur og að slysa- hætta við Langholtsskóla myndi stórlega aukast. Þá höfðu margir áhyggjur af auk- inni bílaumferð um Skeiðarvog í kjölfar fyrirhugaðrar tengingar við gatnakerfi Grafarvogs um brú yfir Elliðavog. Þá komu fram ýmsar aðr- ar athugasemdir frá íbúunum allt frá óskum um lokun vínbúðar ÁTVR við Laugarásveg til beiðna um hljóðmanir og sleðabrekkur. Það var Þorvaldur S. Þorvaldsson forstöðumaður borgarskipulags sem setti fundinn sem taldi um 200 manns. Birgir H. Sigurðsson skipu- lagsfræðingur og Málfríður K. Krist- iansen arkitekt kynntu síðan skipu- lagstillögurnar í máli og myndum. Þróun byggðar í borgarhlutanum var kynnt og síðan lýst núverandi á- standi hvers skipulagsþáttar, bæði þar sem vel hefúr tekist til og í fram- haldi af því lagðar fram tillögur að úrbótum. í kjölfar þessa borgarafundar verða tillögur að borgarskipulagi fullunnar og síðan afgreiddar í borg- arkerfinu. Að því loknu fær hvert heimili í þessum borgarhluta sendan heim bækling sem gerir grein fyrir helstu breytingum, úrbótum og skil- málum i hverju hverfi fyrir sig. Alþjóðlega skákmótið á Suðurnesjum: Hannes stefnir á alþjóðatitil Hannes Hlífar Stefánsson stefnir óðfluga að áfanga að al- þjóðlegum meistaratitli á al- þjóðaskákmótinu á Suðurnesj- um. Þá eiga þeir Þröstur Þórhalls- son og Björgvin Jónsson ágæta möguleika á slíkum áfanga. Fyrir 8. umferðina sem ekki var lokið þegar Tíminn fór í vinnslu í gærkvöldi hafði Helgi Ólafsson forystuna með 6 vinn- inga af 7 mögulegum. Hannes Hlífar kom á hæla hans með 5 1/2 vinning og þarf aðeins 1 1/2 vinning í síðustu fjórum skákun- um til að ná áfanga. í þriðja sæti er Englendingurinn Norwood með 5 vinninga en í 4.-6. sæti eru þeir Þröstur Þórhallsson, Björg- vin Jónsson og Guðmundur Sig- urjónsson með 4 1/2 vinning eftir 7 umferðir. Þeir Þröstur og Björgvin þurfa því 2 1/2 vinning í fjórum skákum til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. -HM Á Fiskiþingi í gær voru birtar niðurstöður úr rannsóknum Friðriks Friðrikssonar hagfræðings á rekstr- arafkomu útgerðar á Norður og Suðursvæðum, sem valdið hafa deil- um upp á síðkastið. í niðurstöðum Friðriks kemur fram að samkvæmt rekstraryfirliti 1986 hjá minni togur- um er afkoman mun betri á Norður- svæðinu en Suðursvæðinu, eða rúm- lega tvöfalt betri með aflamarki Norðursvæðis en aflamarki Suður- svæðis og tvisvar sinnum betri með sóknarmarki Norðursvæðis en sókn- armarki Suðursvæðis. Hjá stærri togurum er afkomu- munur Norður og Suðursvæðis mun minni, en Norðursvæðið sýnir þó nokkuð betri afkomu með aflamarki en Suðursvæðið. Hjá bátum upp að 200 brl. er afkoman betri á Suður- svæði en snýst við hjá bátum yfir 200 brl. En það var Jóhann K. Sigurðsson sem flutti framsögu um afkomu veiða og vinnslu á þinginu í gær. Minnti hann á að afkoman hefði verið góð, en verri hefði hún verið hefðu skipin ekki verið orðin svona gömul og nær allar skuldir á þeim greiddar. Sagði Jóhann að menn ættu að fara varlega í yfirlýsingum um góðæri og benda á nauðsynlega endurnýjun flotans. Ljóst væri að minni jsorskafli yrði á komandi ári, kvóti kæmi á rækjuna, minna veidd- ist af loðnu, verðið á henni væri lágt, olían væri á uppleið, þjónustan hefði hækkað mikið sem og vextir. Samt er ekki allt neikvætt að dómi Jóhanns. Gott verð fengist fyrir aflann á mörkuðum, afskipanir væru örar, afli víðast hvar góður og fólk væri aftur að leita til fiskvinnslunnar. En hins vegar væri frystingin rekin með tapi og saltfiskurinn stæði ekki vel. „Ástandið er s.s. ekkert sérlega gott, en svona sæmilegt," sagði Jóhann. Því næst voru tillögur fiskideild- anna bornar fram. Norðlendingar lýstu áhyggjum sínum yfir hækkandi þjónustuverði og vöxtum. Þeir mót- mæltu kostnaðarhækkunum og sögðu sjávarútveg stóriðju og því ættu þeir að njóta sama raforkuverðs og önnur stóriðja. Vestlendingar mótmæltu nýjum álögum sem og Sunnlendingar og Vestmannaeying- ar gerðu. Fiskideild Reykjavíkur og nágrennis varaði við bruðli og skor- aði á Alþingi og ríkisstjórnina að setja skorður á það ef það kæmi í ljós að bruðlið orsakaði verðbólgu. Þegar lestri tillagna fiskideilda var lokið hófust umræður. Guðmundur Runólfsson frá Vesturlandi sagði að verið væri að ræða um 80% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar og sagði þá sem handsamað hefðu góð- ærið, ekki fengið að njóta þess í réttlátum mæli. Sjávarútvegurinn gæti ekki búið við fastgengisstefnu til langframa og það yrðu stjórvöld að skilja. Að því Ioknu var tillögun- umvísaðtilfjárhagsnefndar. -SÓL

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.